Þjóðviljinn - 25.02.1962, Blaðsíða 7
\
0JÓÐVILJINN
ifandl: BamelnlnKarílokknr «U>ý8n — SóBlallstaflokknrlnn. - Rttatjórari
núB KJartansson (&b.), Matmús Torfi Ólafsson, SigurOur OuBmundsson. —
'róttaritstJórar: ívar H. Jónsson, Jón BJamason. — Auglýsingastjórl: OuOgeir
áagnússon. - RitstJóra. afgrelOsla. auglýslngar, prentsmiOJa: SkólavðrOust. 10.
17-500 (5 llnur). Askrlftarverð kr. 55.00 á mán. — Lausasöluverð kr. 3.00.
FrentaznlOJa ÞJóOvUJane hJ.
Er sósíalisminn glæpur?
\/msir vinstrimenn, sem þó virðast hafa mestan hug
á því að sundra vinstrimönnum, hafa það mjög á
orði að ekki sé unnt að vinna með sósíalistum vegna
þess að þeir séu handbendi Rússa og beri ábyrgð á
hverskonar óhæfuverkum sem unnin hafi verið í Sovét-
rikjunum. Engir vita þó betur en þessir menn að ís-
lenzkir sósíalistar hafa ævinlega tekið sjálfstæða af-
stöðu til íslenzkra vandamála, og öll baráttumál þeirra
eiga sér hljómgrunn langt út fyrir raðir Alþýðubanda-
lagsins og hafa mótað skoðanir vinstrimanna almennt
á vandamálum þjóðarinnar. Ekki þurfa þessir menn
heldur að beita öðru en persónulegri reynslu sinni til
: þess að vita hvílík fjarstæða það er að íslenzkir sósíai-
í istar séu aðdáendur óhæfuverka. Enda vita þeir menn
j sem þannig tala miklu betur en ummæli þeirra gefa til
kynaa. En hin raunverulega ásökun þeirra á íslenzka
* sósíalista er sú að þeir skuli ekki afneita sósíalismanum,
jafnt kenningunni sem framkvæmdinni, og bugast fyr-
ir hinum tryllta áróðri feigra auðvaldsblaða.
jPkkert er eðlilegra en að rnenn líti mjög alvarlegum
augum frásagnir um afglöp og óhæfuverk í Sovét-
í rfkjunum, og engir líta þau alvarlegri augum en sósíal-
■ istar sjálfir. Þess skyldu menn þó minnast í því sam-
Í bandi að stórfelld og altæk þjóðfélagsleg umskipti hafa
" aldrei gerzt samkvæmt neinni óskeikulli áætlun; þar
koma ekki aðeins til greina vitsmunir, kenningar og
hugsjónir, heldur losna og úr læðingi tilfinningar og
ástríður í miskunnarlausri baráttu. Þannig hafa öll
mestu umskipti mannlegrar sögu gerzt, og menn þurfa
ekki mikla sagnfræðilega þekkingu til að finna hlið-
stæðurnar, hvort sem menn viiia líta á feril kristin-
dómsins. upphaf borgaralegra þjóðfélaga eða sjálf-
; stæðisbaráttu einstakra ríkja. En bað eru blindir menn
sem sjá ekki það sem er að skapast fyrir fæðingarhríð-
unum sjálfum.
C*ósíalisminn er hið mikla afl okkar tíma. Hann hefur
^ lyft hundruðum milljóna manna úr sárustu niður-
• lægingu, gert þjóðfélög þeirra öflug og afkastamikil í
þágu almennings, tryggt mönnum sem áður börðust við
sultinn öruggt lífsviðurværi, fært ólæsum og óskrifandi
þekkingu og verkkunnáttu, Iengt líf hundraða milljóna
manna, og hann opnar nú þegnunum ný þróunarsvið
þar sem ekkert virðist ókleift. Og sósialisminn hefur
ekki aðeins valdið algerum umskiptum þar sem hann
ræður ríkjum, hann hefur haft áhrif á örlög alls mann-
ky>ns, líf hvers einasta manns. Allar þær þjóðir sem
öðlazt hafa sjálfstæði á síðustu áratugum hafa notið
sósíalismans; jafnvel hinar smæstu hafa getað haldið
hlut sínum andspænis risaveldum vegna þess að þær
höfðu nýtt afl að bakhjarli. Einnig í auðvaldsríkjunum
láta áíhrif sósíalismans að sér kveða á öllum sviðum;
ýmsar þær hugsjónir sem verklýðshreyfingin barðist
forðum fýrir ójafnri baráttu eru nú viðurkenndar sem
óhjákvæmileg einkenni nútímaþjóðfélags, að minnsta
kosti í orði: öll von auðvaldsríkjanna um Lífsmátt er
bundin við það að reyna að færa sér í nyt í afskræmdri
mynd aðferðir sósíalismans, með áætlunarbúskap og
takmarkaðri heildarstjórn á því auðvaldskerfi sem hef-
ur stjómleysið að uppistöðu. Þetta eru augljósustu
staðreyndir nútímans, og enginn sá sem hefur nokkurn
sjóndeildarhring kemst hjá að viðurkenna þær.
17rafan um að sósíalistar afneiti sósíalismanum til
þess að vera gjaldgengir í hópi vinstrimanna er
krafa um að menn afneiti nútíð og framtíð og hreiðri
um sig á einhverju mýnesi þar sem ekki sér til sólar.
Engir menn skulu ætla sér þá dul að unnt sé að berj-
ast fyrir árangursríkri vinstristefnu án þess að sósíal-
ísminn hafi þar miklu og sívaxandi hlutverki að gegna.
Mcnn sem boða þvílíkar kenningar, jafnvel þótt það
séi gert af þeim andlega heigulshætti sem kenndur er
við góðan vilja, eru óþarfir þeim hugsjónum sem þeir
þykjast þó vilja efla. — m.
Þessi grunntcikning af íbúð
þeirra Eysteins og iSigriðar
þarfnast ekki mikiila skýringa.
Rétt er íþó að gefa þess, að í
þeirra ibúð er veggurinn á
milli stofanna heili og' dyra-
laus. 1 sumum íbúðunum í
blokkinni dr aftur á móti að-
eins hafður hálfur veggur á
miUi þeirra eða jafnvel; alveg
opið. Teikninguna ger^j Ás-
mundur Ólason. i'
*CO •gó*-
eS *C9 - Y&o
YJTO -tfO4 *3Q
-
— Hvenær keyptir þú. þessa
íbúð, Eysteinn?
— Ég keypti þetta í septem-
ber 1959. Þá var húsið fokhelt
með eínföldu glen í gluggu.m.
Húsið var múrhúðað og málað
að utan og öil sameign innan-
húss múrhúðuð svo og fullgeng-
ið frá miðstöð. Ennfremur var
útihurð kc.iiin. Hins vegar vonj
eftir gólfdúkar, málning og
hurðir í sámeign i kjallara.
Sjálf var íbúðin ómúnjð og ó-
hlaðnir milliveggir, en miðstöðv
arofnar komnir og búið að
leggja leiðslur að öllum tækj-
um.
— Hvað eru margar íbúðir
í þessari blokk?
— Þetta eru 3 stigahús og 3
íbúðir í hverju eða 24 íbúðir
alls í blokkinni.
— Hvað er þessi íbúð stór?
— Hún er um 90 fferm. að
flatarmáli með svölum. Þetta
feru 3 herbergi. eldhús og bað
og innri forstofa. Svo fylgir í-
búðinni geymsla og h'tið her-
bergi í kjallara. Þá eru einnig
í kjallaranum sameiginlegt.
þvottahús fyrir stigahúsið,
kynding, soi-pgejTnsla og kló-
sett. Annars eru íbúðiraar í
blokkinni af tveim stærðum og
er þetta minni gerðin. Það mun-
ar einu herbergi.
— Af hverjum keypturðu
þetta? Byggingarfélagi eða ein-
staklingi?
— Ingólfur Guðmundsson
byggingarmeistari byggði þetta
ásamt tveim sonum sínum og
keyptum við allir af honum.
Hann byggði tvö stigahúsin af
þremur, en þriðja stigahúsið er
byggt af einstaklingum. Það var
ekki steypt upp fyrr en í vetur
svo að skilveggurinn á milli
stigahúsanna var útveggur þang-
að til.
— Hvað var kaupverðið mik-
ið?
— Ég keypti þetta á 215 þús-
und krónur af Ingólfi eins og
'það var þá, en síðan er ég bú-
inn að leggja í þetta upp undir
100 þúsund krónur allt í allt.
Um áramótin 1960—1961 var
kostnaðarverð íbúðarinnar orðið
268 þúsund krónur en ég hef
enn ekki gert það upp nákvæm-
lega um síðustu áramót. Þetta
árið hef ég lítið gert nema í
sambandi við það sameiginlega.
— Er þetta með eigin vinnu.
eða hefurðu ekki unnið mikið í
þessu sjálfur?
— Þetta er sá kostnaður. sem
ég er búinn að leggja út fyrir
í beinhörðum peningum, eigin
vinna ekki meðtalin. Ég hef
borgað mjög lítil vinnulaun,
enda gert mest sjálfur nema f.
d. ekki lagt raflagnir. Einnig
------------------------------—.
Franskar herflugvélar eiga
að gœla Ben Bella fyrir OAS
PARIS — Franski herinn hefur
komið fyrir loftvamarbyssum
allt í kringum höllina Chateau
d’Aunoy 40 kílómetra frá París.
Franskar herflugvélar eru á
sveinii yfir höllinni dag dg nótt.
Þessi viðbúnaður er til þess
gerður að vernda líf Múhameðs
Ben Bella og annan’a forustu-
manna frelsishreyfingar- Serkja
í Alsír sem mx eru farigar í
höllinni. Ben Bella er várafor-
sætisráðlierra í útlag^stjóm
Serkja og með honum eryx þrír
aðrir ráðhei’rar í útlagastjórn-
inni. Franska stjómin úheíur
lofað að láta þá lausa jafrtskjótt
og vopnahlé kemst á í Alsír.
Eftir að tveir flugforingjar frá
Aisír réðust á herbúðir frelsis-
hrevfingarinnar í Morokkó að
boði leynifélagsskaparinsji OAS
óttast franska stjómin iijó Sal-
an hershöfðingi og kumpánar
hans geri tilraun til að ræna
Ben Belia og félögum hans eða
ráða þá ai dögum.
Væru foringjar Serkja drepn-
ir i vörzium frösnku stjómar-
innar gæti það orðið til að
spilla fyrir friðarsamningum
í Alsír, en viðleitni OAS beinist
sem stendur einkum að því að
hindra að samningar verði und-
irritaðir. Herflugmennimir sem
eru á varðbei’gi umhverfis
Chateau d’Aunoy hafa fyrirskip-
ani.r um að þvinga hverja ó-
kunna flugvél sem þeir verða
varir við til að lenda eða skjóta
hana niðt’.r ella. Eftir árásina
á herbúðirnar í Marokkó óttast
írönsk yfirvöld að OAS reyni
loítárásir á höllina þar sem
Serkirnir eru í haldi. ■
Fyrir nokkru fór blaðamaður frá Þjóiviljaiuun í heimsókn til ungra hjóna hér í bænum, sem hafa síðastliðin rúm tvö
ár verið að vinna að því baki brotnu áð koma sér upp íbúð, Erindið var að fá hjá þessum hjónum dálitla Iýsingu á því,
hvernig ungt fólk, sem er a.ð byrja búskap með tvær hendur tómar fer að því að eignast þak yfir höfuðið við þau skii-
yrði sem hér eru fyrir hendi, bæði að því er varðar kaup, lánakjör o.fl. — Hjónin, sem ég heimsótti, heita Sigríður Jóns-
dóttir og Eysteinn Jónsson og eiga hedtna í Stóragerði 18. Eru þau fyrir rösku ári flutt í íbúðina sína, þótt þar sé rnörgu
ólokið enn. Eysteinn er 25 ára gamall bifreiðasmiður og kona hans er fjórum árum yrigri. Hafa þau verið gift í 2% ár
og eiga tvö ung börn. Er saga þeirra áraiðanlega allgott dæmi um það, hvað ungt fólk hér á landi verður á sig að leggja
til þess að koma sér upp eigin húsnæði og hver skilyrði því eru búin til þe,s.
eignast íbúð
fékk ég múrai’a til þess að
grípa í þetta með mér í vinnu-
skiptum, en sjálfur hlóð ég alla
milliveggi og einangraði. Ég hef
einnig verið heppinn með það,
að tréverkið, sem komið er, hef-
ur faðir minn smíðað fyrir mig,
og einnig hafa kunningjar rm'n-
ir unnið hjá mér í sjálfboða-
vinnu. Sú hjálp. sem ég hef
fengið hjá ættingjum og kunn-
in.gjum, hefur verið ómetanleg.
— Hvað hafa verið stærstu
kostnaðariiðimir til þessa?
— Múrhúðunin er langstærsti
liðurinn ennþá. Ég hef borgað
15 þúsund krónur bæði fyrir
efni og vinnu, borgaði múrar-
anum 6 þúsund krónur í pen-
ingum auk vinnuskipfanna.
— En eldhúsinnrétting?
— Eldavólin kostaði. 2600 kr.
og vaskur með blöndunartækjum
3500 kr. Svo hef ég bara
borgað efni í skápa. Og aUir
skápar á veggi eru ókomnir
enn. Ég er heldur ekki búinn
nema að grunnmáia eldhúsið
og bað'ð, en er búinn að mála
tvær umferðir yiir liei'.bergin
og ganginn.
— Hvað er það fleira, sem þú
átt enn eftir?
— Það er niegnið ajf tréverk-
inu eftir, svo sem burðir, enn-
fre.mur gólfdúkar. Þá er eftir
að tvöfalda glerið í gluggunum
og enn vantar baðker i baðher-
bergið. Svo er litla herbergið
í kiallaranum alveg eftir, ekki
búið að múrhúða það einusinni.
— Hvað geturðu gizkað á að
það muni kosta mikið, sem eft-
ir er?
— Ég hugsa, að það sé ekki
minna en 60 þúsund fyrir utan
eigin vinnu. Þetta eru stórir
kostnaðárliðir sem efiir eru. Og
þetta er auðvitað miðað við
verðlagið eins og það er í dag,
en það hefur hækkað mikið
síðan ég byrjaði að byggja.
— Hvað eru sameiginlegar
framkvæmdir langt komnar?
— Það hefur verið lagt tals-
vert í sameiginlegan kostnad,
þótt. enn -sé margt eftir. Á síð-
asta ári lögöum við rúm 70
þúsund í þetta sameighilega en
það gera 8—9 þúsund krónur á
íbúð. Millihurðin í ganginn
kostaði t, d. ein saman um 12
þúsund krónur. Svo höfum við
keypt hurðir í kjallara, gengið
frá stigagöngum og U. Við
keyptum sameiginlega þvotta-
pott sti'ax og ætluðum í fram-
itiðinni að kaupa sameiginlega
þvottavélar. Ég keypti mér litla
vél fyrir 4300 krónur. Það er
ómissandi að hai'a vél og hún
er svo lítil, að hún getur verið
þægileg fyrir barnafataþvott,
þegar hinar koma. Næsta skefið
í sameiginlegum málum verður
líklega að fá dyrasíma. Þar sem
miki.ll umgangur er, er hann
ómissandi. Það er svo mikið
þri|naðaratriði, að húsið sé ekki
alltaf opið fyrir öllu rápi.
— HVernig hefur gengið með
lán til byggingarinnar?
— Þegar ég kevpti fylgdi 50
þúsund króna víxillán til 5 ára.
Vextir af því voru uppbaflega
7%’, hækkuöu síðan upp í 11%
Og lækkuðu svo fxftur niður í
9%. Sjálfur lagði cg út. er kaup-
samningurinn var gerður, 30
þúsund krónur en hitt borgaði
ég út í xiföngum. Síðan hef ég
J'engið h ú sn æðismálastj órn arlá n,
fyrst 50 þúsund krónur, )xar nf
25 þúsund króna A-Uin með 7°'i)
vöxtum til 25 ára og svo 25
þúsund króna B-lán með 5|/,0'il
vöxtum til 15 ára. Þessi lán
iékk ég í marz 1960. Svo fékk
ég viðbótarlán í A-ílokki í júlí
1960 með 9% vöxtum til 25 ára.
Þessi húsnæðisstjórnarlán öll
eru á fvrsta veðrétti en víxil-
lánið á öðrum veðrétti. Loks
hef ég einnig fengið prívattán.
— Eru ekki vextirnir a.f öll-
um þessum lánum þúngur
baggi?
— Jú. vextimir af vfxilláninu
námu 3500 kr. á síðasta ári.
Aí 50 þúsund króna A-láninu
er afborgunin á ári kr. 5193,7.3,
af 25 þúsund króna A-láninu
2193.80 óg af 25 þús. króna B-
láninu kr. 1666.67 að viðbættum
vöxtúm, sem námu við fyrstu
afboi'gun kr. 916.66. Vextir eru
hinsvegar innifalnir í áður-
nefndum afborgunum A-Ián-
anra, þar sem þau greiðast með
jöfnum afborgunum. Eru vext-
ir því meginhluti heiidarafborg-
unarinnar fyrstu árin. Þannig
nam t. d. fyrsta afborgun 25
þús. króna A-iánsins krónum
1610.46 (hún var ekki íyrir heilt
ái') er skiptust þannig: afborg-
un kr. 381.30, vextir kr. 1166.66,
kpstnaður kr. 62.50. Má af þess-
um tölum sjá, að það er óhætt
að. fullyrða, að vaxtagreiðslur
koima mjög hart niður á hús-
toyggjendum.
Þessl niynd ai íjölskyldunni cr teliin í (íbúðinni að Stóragerði 18. Eysteinn situr með dóttxiírina Jóhönnu, sem er tveggja ára gömul, og
Sigríður með tvegg.ja mánaða gamla n son þeirra, — (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
— Þú hefur ekki átt kost á
að fá neitt lííeyrissjóðslán?
— Nei, ég er bifreiðasmiður
og við höfum engan lífeyx-issjóð.
— Hvernig gekk þér að lá
þessi húsnæðismálastjómarlán,
og er þetta hámai'k þess, sem
þar er hægt að fá?
— Þetta er hæsta )án sem
hægt er að fá. Það er dæmt
eftir þörí. Þegar ég sótti um
lánið, bjuggum við í íbúð, sem
var dæmd ófullnægjandi af
borgaria-kni. Ég hafði hana
held.ur ekki nema til vors 1960.
Þá t'ékk ég aðra til bráðabirgða
eða til 1. október um haustið
og flutlum við inn þá í bvrjun
anánaðarins. Þetta stóð allt í
járnum.
— Er ekki eríitt að kljúfa
þetta fyrir ykkur?
— Jú, en það var annað hvort
að hrökkva eða stökkva, þegar
tækifæri bauðst til þess að
koma sér upp íbúð. Og það ei
bezt að byrjá að byggja áður
en maður er kommn með þungt
heimili. Konán vann líka úti
íyrst í stað. Ég vona nú að þetta
sé komið yifir örðugasta hjall-
ann. Það þarf auðvitað ekki
mikið til, að maður fari á haus-
inn með þetta. Maður hefur
ekki efni á því að vera lengi
veikur. Meðan heilsan er góð
og nóg vinna er þetta i lagi.
Ég hef h'ka verið snaparidi eft-
ir allxi aukavinnu, sem ég hef
getað fengið, tvö síðustu árin.
og það hefur stundum verið
langur vinnutíminn. Konan
vann líka eins og víkingur bæði
úti og hér við húsið.
— Varstu búinn að læi’a, þeg-
ar þú byrjaðir að byggja?
— Já. ég er búinn að vera i
Bílasmiðjunni í 8 ár, lærði þar
íyrst og lauk námi 1957.
— Hvernig líkar ykkur ;xð
búa í svona sambýli?
— Vel, við höfum veiið sér-
slaklega heppin með sambýlis-
íólkið. ■ Við höfum í-eglur fyrir
húsið, sem er sérstaklega nauð-
synlegt, þótt raunar hafi ekki
komið héi- til neinna árekstra.
1 þessum stigagangi er flutt í
allar íbúðirnar nema eina og
6 erú nærri búnir að fuílgera
sínar íbúðir.
— En hvernig líkar þér að
búa í svona nýju bæjarhverfi?
— Skipulagningunni er mjög
ábótavant, þegar verið er að
koma upp svona hverfum, t.d.
hefur veiið vatnslaust mestan
hluta úr deginúm sti'ax á ann-
ani hæð í blokkinni þar til í
haust, en við höfum þui'ft að
gi'eiða vatnsskattinn eins og
aðrir fyrir það. Við skxifuðum
borgai'stjóra og báðum um
lækkun á gjaldinu en árangui-s-
laust. Loks var byggð dælu-
stöð en það verk tafðist, bæði
vegna vei'klallsins í vor og
vci'kfræðingaverkfallsins. Marg-
ir hér í nágrenninu voru búnir
að setja dælustöðvar í húsin
hjá sér, en það er á annað þús-
und króna aukakostnaður á
íbúð. 1 öðru lagi er afaxiangt í
yerzlanir hér í hverfinu. Það
er stytzt að l'ara niður á Grens-
ásveg. Það er uppundir klukku-
tíma leiðangur að i'ara í verzl-
anii',. Og um göturnar tala ég
ekki. Hins vegar er gatnag'ei'ð-
ai'gjaldið nimar 6 þúsund kr.
á þessa íbúð. Greiddum við það
allir í fyrrasumar. Heimtaugar-
gjaldið er aftur á. móti rúmar
1900 kónur á íbúð.
Það er orðið mjög áliðið
kvölds, svo að við Eysteinn slá-
um botninn í þessar sarwæður,
sem við höfum átt yfir kaffinu,
er húsfreyjan bar okkur. Ey-
steinn býðst til að aka mér
heim, því að hann á lítinn fjög-
ui'ra manna bíl, sem hann segir
mér á leiðinni, að hafi spai'að
honum mai'ga krónuna við
bvgginguna. Ég flutti í honum
allt sem ég gat. Það er hægt
að leggja aftursætiö niður og
opna hann að aftan-. svo að það
er þægilegt. Það er ómissandi
að hafa bíl, þegar maður er að
hyggja, snúningai’nir ei'u svo
margir og dýrt að kaupa bíl
með hvaða smáhlut sem er,
segir Eysteinn að lokum. Svo
kveð ég hann og þakka honum
íyrir viðtalið og akstui'inn með
þá ósk' í huga, að honum megi
takast að ljúka íbúðinni sinni
sem fyrst og að þau hjónin
megi lengi njóta ávaxtanna a£
atoi'ku þeirri og dugnaði, er
þau hafa sýnt við aö koma sér
upp þaki yjfir höfuðið.
S.V.F.
— ÞJÓL'VILJINN — Sunnudagur 25. febrúar 1962
Sunnudagur 25. febniar 1962 — ÞJÓÐVILJINN
U1