Þjóðviljinn - 24.03.1962, Síða 7
de Gaulle að hrökkva eða
stökkva, skipa hernum að bæla
OAS niður eða kalla hann heim
og láta OAS og sjálfstæðishreyf-
ingu Serkja berjast til þrautar.
I rúmt ár hefur OAS feng-
ið að starfa óáreitt af
franska hernum, myrt menn
þúsundum saman, þar á meðal
franska hermenn, látið greipar
sópa um vopnabúr og fjárhirzl-
ur, þjálfað lið sitt, krafið skatta
af einstaklingum í Alsír og fyr-
irtækjum bæði þar og í Frakk-
landi sjálfu. Svo illa treystir
forseti Frakklands hernum að
hann hefur ekki borið við að
beita honum gegn uppreisnar-
‘ hreyfingunni, en í þess stað gert
: út sínar eigin hermdarverka-
sveitir til að vinna á OAS-
mönnum með þeirra eigin að-
ferðum. Hvað eftir annað hefur
OAS efnt til stórárása á þessa
„barbouzes“ eða gerviskeggiinga
eins og þeir eru kaliaðir. Fas-
istahreyfingin hefur haft betur
í viðureigninni við erindreka de
Gaulle, vegna þess að Salan á
leynilega bandamenn meðal
franskra embættismanna og
herforingja og fær jafnóðum að
vita allt sem ríki.sstjórnin ætlar
sér. Hann og félagar hans eru
eftirlýstir dauðamenn. en fara
þó allra sinna ferða um Alsír
og skreopa yfir til Spánar öðru
hvoru til að hi.tta samherja sina
frá Frakkland.i.
Enginn vafi er á að þorri
franskra hermanna sem
gegna herskyldu í Alsír fagnar
vopnahléinu og myndi berjast
gegn OAS ef þeim væri skipað
það, en öðru máli gegnir um
herforingjana og aðra atvinnu-
hermenn. Meðal þeirra á OAS
leynilega stuðningsmenn, sem
ibíða tækifæris að veita fasista-
hreyfingunni lið. de GauUe vill
í lengstu lög komast hjá að
leiða klofninginn í hernum í
ljós, og þess vegna hefur hann
enga skipun viljað gefa um at-
lögu gegn OAS. Afleiðing hiks
forsetans er að nú ræður OAS
lögum og lofum í hverfum Ev-
rópumanna í stórborgum Alsír.
Embættismenn Frakklands-
stjórnar sem ekki eru undir
niðri á bandi OAS mega búast
við dauða sínum dag hvern,
enda þótt þeir hafist við í víg-
girtum byggingum sem valið lið
gætir. Þeir sem eiga, að heita
að stjórna Aisír í nafni de
Gaulle eru einangraðir og á-
hrifalausir, vegna þess að hann
þorir ekki að heimila þeim að
beita hernum gegn OAS. Upp-
reisnarhreyfingin undirbýr því
óáreitt borgarastyrjöld til að
steypa de Gaulle af stóli og
set.ia í stað hans „ríkisstjórn
'þjóðlegrar einingar", sem á að
hafa það hlutverk að leggja Al-
sír aftur undir Frakkland og
banna Kommúnistaflokk Frakk-
iaijds.
Hermdarverk OAS eru framin
undir kjörorðinu gamai-
■kunna um baráttu gegn kom.m-
únismanum. Leigumorðingjar
samtakanna eru einkum settir
til höfuðs Serkjum sem eru
virkir í sjálfstæðishreyfingunni,
•félögum í Kommúnistaflokki Al-
sír og öðrum EVrópumönnum
sem hlynntir eru sjálfstæði
landsins. Fréttamenn frá A-
bandalagsríkjum sem -heimsækja
Salan í fylgsnum hans eru
fræddir á að OAS sé að verja
vestræna siðmenningu fyrir
kommúnismanum. Sjálfstæðis-
.hreyfing Serkja er í raunjnni
kommúnistisk, segja áróðurs-
menn OAS, og benda á aðstoð-
Ben Bella.
. ina sem útlagastjórnin hefur
fengið frá Sovétiikjunum ög
öðrum löndum Austur-Evrópu
og frá Kína. Yfirlýst stefna út-
lagastjórnarinnar er að byggja
upp sósíalistiskt þjóðfélag í Al-
sír en fylgja hlutleysisstefnu í
utanríkismálum. Þetta túlka
OAS-menn á þá lund að útlaga-
stjórnin sé staðráðin í að hafa
að engu samningana við Frakk-
landsstjóm jafnskjótt og hún
hefur fengið völdin í Alsír í
hendur.
Stjórn de Gaulle getur sjálfri
sér um kennt að þessi áróð-
ur fær hljómgrunn meðal
franskra herforingja og hjá
hægrisinnum í Frakklandi og í
Alsír. Forsetinn og ráðherrar
hans hafa haldið iþví fram að
iþeir ei.gi í höggi við tvennskon-
ar „öfgamenn“, lagt að jöfnu
hermdarverk fasistanna í OAS
og löglega stjórnmálabaráttu
franskra vinstri manna ge^n
ríkisstjóminni. Þessi afstaða
auðveldar fyilgismönnum OAS
undirróðursstarið í her, lögreglu
og embættiskerfi. Leigumorð-
ingjar fá óáreittir að stunda
iðju sína bæði í Alsír og Frakk
landi, en ,þegar alþýða Parísar
efnir til mótmælagöngu gegn
ihermdarverkunum er lögregl-
unni att á fólkið af þvílíkri
grimmd að átta manns eru
drepnir. Eitthvað virðist ríkis-
stjórnin hafa lært af mótmæla-
öldunni sem reis um a.llt Frakk-
land gegn þeim aðförum. Að
■minnsta kosti hefur Frey innan-
ríkisráðherra í fyrsta skipti
káltað OAS-menn þeirra rétta
nafni, fasista.
(^tyrjöldin ■ í Alsír hefur að
sögn útlagastjórnar Serkja
kostað milljón manna lífið,
franska stjórnin telur fallna
400.000. Hatrið sem svo ægilegt
iblóðbað hefur vakið verður ekki
kveðið niður á svipstundu með
nokkrum pennastrikum í Evian.
ömurlegur er ferill þeirra
frönsku stjórnmálamanna sem
eiga sök á þessu blóðbaði. Ára-
tugum saman reyndu Serkir að
afla sér mannréttinda með frið-
samlegu móti, en mættu ekki
öðru en svikum, hroka og of-
beldi. Ben Bella, Ben Khedda
og aðrir forustumenn Serkja
gistu frönsk fangelsi margsinn-
is áður en þeir sannfærðust um
að þjóð Alsír ætti ekki annan
kost en baráttu með vopnum til
að heimta frelsi sitt. Þegar
Mendés-France gerði sig líkleg-
an til að semja við Serki
skömmu eftir að uppreisnin
hófst, steypti íhaldið á franska
þinginu honum af stóli. í árs-
byrjun 1956, eftir tveggja ára.
styrjöld., unnu vinstri flokkarn-
ir sigur í kosningum og sósíal-
demókrataforinginn Guy Mollet
■komst til valda með loforði um
að semja frið í Alsír. Jafnskjótt
og hann varð fyrir tómatakasti
landnema í Algeirsborg gekk
hann á bak orða sinna og sendi
flokksbróður sinn Lacoste, sem
nú er einn af stuðningsmönn-
um OAS, til Alsír með þeim
fyrirmælum kð herða baráttuna
gegn Serkjum. Vorið 1958 gekk
orðrómur um að franska s.tjórn-
in hygðist taka upp samninga
við Serki. Þá stjórnuðu herfor-
ingjarnir Salan og Massu upp-
reisn í Alsír, kollvörpuðu þing-
ræðinu í Frakklandi með hót-
u.num um árás fallhlífaliðs á
París og hófu de Gaulle til
valda. Hann lét sér vel líka
hótunina um árás á París, segir
Soustelle, þáverandi samstarfs-
maður hans, í nýútkominni bók.
Salan var yfirhershöfðingi í
Alsír 1958, og hann studdi
de Gaulle til valda í þeirri trú
að þeir væru samherjar í bar-
áttunni gegn sjálfstæðishreyf-
ingu Serkja. Með þögninni ef
ekki öðru samsinnti de Gaulle
kröfu landnemanna og hers-
höfðingjanna um innlimun Al-
sír í Frakkland. Hann tók sér
meira að segja í munn í ræðu
í Alsír kjörorðið „Algérie Fran-
caise“, franskt Alsír. Hefði de
Gaulle stutt löglega stjórn
Frakklands en ekki uppreisnar-
mennina í maí 1958, hefði þess
verið kostur að semja frið þá
þegar. En hann kaus að blekkja
aðila sem hann var í raun og
veru ósammála til að lyfta sér
í valdastól. Síðan hefur tvö-
feldnin loðað við stjórnarathafn-
ir hans, dregið styrjöldina á
langinn og skapað skilyrði fyr-
ir OAS að festa rætur bæði í
Alsfr og Frakklandi. Lengi vel
neitaði de Gaulle með öllu að
eiga nokkur skipti við útlaga-
stjórnina. Síðan lét hann hvað
eftir annað samninga stranda á
kröfu um að vopnahlé yrði að
koma á undan nokkrum við-
ræðum um pólitísk viðfangs-
efni. Loks stóð það lengi fyrir
samningum að de Gaulle mein-
aði útlagastjórninni að hafa
samráð við Ben Bella og aðra
foringja sjálfstæðishrevfingar-
innar, sem Frakkar sviku í grið-
um á stjórnartíma Guy Mollet.
í. öllu þessu lét. de Gaulle undan
um síðir, en ekki fyrr en hann
hafði með framkomu sinni vak-
ið upp þann draug sem hann
hefur ekki enn reynzt maður
til að kveða niður. — M.T.Ó.
Fyrsta ár eru mánaðarlaun
barnakennara 3875 krónur
Kennaiaz flýja unnvörpum laun sem ekki er unnt að lifa á
Ég vil lítillega gera að um-
talsefni launakjör kennara.
Mikið hefur verið um þetta
efni ritað og rætt undanfarið.
En þrátt fyrir það hefur litið
verið talað um hin frægu
„byrjunarlaurí' kennara. Ég
er í vetur kennari við 8 mán.
skóla í nágrenni Reykjavíkur.
Ég gerði þá regin skyssu að
sækja um kennarastöðu án þess
að kynna mér nægiiega launa-
kjör byrjandans: Ríkið greiðir
kennara á fyrsta starfsári kr.
3875.00 á mánuði. Fyrir auka-
kennslu (yfirtíma) greiðir
sveitarfélagið mér (auðvitað
misjáfnt) kr. 750.00 á mán.
Kaup mitt er því samtals
4625.00 kr. á mán. f húsaleigu
fara kr. 1000.00 (2 herb.), kynd-
ing kr. 450, ljós kr, 150, sjúkra-
samlag 80 fyrir mig og konu
mína. Börn okkar tvö þarf að
klæða. Lásmark til þeirra hluta
er kr. 500. Þá munu eftir,®.
2445 kr. en það fer þá í fæði
fyrir okkur f.iögur í 30 daga
mánaðarins, eða rúml. 80 kr. á
dag. Þá er allt upp urið. Nú
er auðvitað ekki svo vel.að þess
ar 80 kr. fari óskiptar til mat-
arkau.pa. Margt annað óvænt
kemur til, sem óþarfi væri upp
að telja. Þó má nefna læknis-
hjálp, ef eitthvert okkar yrði
svo óhepoið að verða lasið. Þá
koma þar til meðalakauo. sem
maður getur vart „veitt“ sér.
Svo burfum við hiónin auðvit-
að að halda fatalörfunum við.
en hér hefi ég ekki reiknað
með einum eyri til beirra hluta.
Skemmtanir er óþarft að tala
um.
Ég segi aðeins frá þessu til
að gera fólki ljóst hve sára-
lág byrjunarlaun barnakennara
eru, og að ómögulegt er að lifa
mannsæmandi lífi af þeim.
Skyldu menn|i eins og Gylfi
Þ. ekki gera sér grein fyrir
hve mikil áhrif þessi lágu laun
hafa á kennarann, á starf hans
og þá auðvitað á uppfræðslu
barnanna? Kennarinn reynir að
sleppa frá vinnunni sem auð-
veldast, með sem minnstri
vinnu. HONUM finnst ekki
taka því að leggja á sig mikla
vinnu af einu eða neinu tagi
fyrir börnin eða skólann, sem
hann starfar við. Allt þetta
kemur því fram á starfinu.
Hver eru laun menntamála-
ráðherra? Hefur hann gert sér
Ijóst hve mikið fer til heimilis
hans á mánuði hverjum? Ekki
veit ég hversu há laun hans
eru. En ég veit, að hann hefur
iþó efni á því að éta, jefni á að
klæða sig, konu sína og börn
— og reyndar kosta þau tii
náms í dýrum háskólum utan
lands.
Auðvitað hlýtur mikill mun-
ur að vera, á launum mennta-
málaráðherra og venjulegs
bamakennara, en hver þjóðfé-
lagsþegn á þó heimdngu á að
hafa ofan í sig og á fyrir störf
sín, hver sem þau svo annars
eru.
Laun verkamanna eru mjög
lág og vart hægt að lifa af
þeim, en laun kennara á fyrsta
starfsári eru mun lægri, og
hefur sá þó lagt á sig að læra
til starfsins.
Skortur kennara var mikill sl.
haust og vita allir hvað veldur.
En hvernig verður ástandið
næsta haust? Ég veit um fjölda
kennara sem hugsa alvarlega
um að hætta kennslustörfum og
snúa sér að öðru. Á þetta bæði
við um menn á fullum launum,
og þó sérstaklega hina, sem em
rétt að byrja.
Ég trúi vart, að ráðherra vilji
ekki stöðva flótta þennan úr
kennarastétt. Við krefjumst að-
eins launa,. sem við getum lif-
að af. Barnakennari.
MINNI IBÚÐABYGGINGAR
STEFNA STJÓRNARINNAR
í umræðum um húsnæðismál
í efri deild Alþingis í gær hélt
Eggert G. Þorsteinsson því
fram, að ekkert væri óeðlilegt
við það þó íbúðabyggingum
hefði fækkað í Reykjavík á
viðrei.snarápunum, því það væri
í samræmi við stefnu ríkis-
stjórnarinnar að draga úr fjár-
festingu.
Alfreð Gíslason benti á að
Eggert væri hér að viðurkenna
að ríkisstjórniri hefði með ráðn-
um hug ráðizt á þá starfsemi
fólks að byggja íbúðir og tor-
veldað því þá lífsnauðsyn að
eignast íbúð. Mótmælti Alfreð
harðlega þeirri hugmynd að í-
búðarbyggingar væru munaður,
sem lofsvert væri að takmarka.
Til umræðu var stjórnarfmm-
varpið um breytingar á lögun-
um um húsnæðismálastofnun
Stjórnarflokkarnir felldu þar
allar breytingartillögur Al-
freðs, sem miðuðu að því að
lækka byggingarkostnað íbúða
og rýmka um lán til íbúða-
bygginga.
Reel Madrid vann
Standard Liege
MADRID 22/3 — Spánska knatt-
spyrnuliðið Real Madrid vann
belgíska liðið Standard Liege í
fyrri -leik þeirra í undanúrslit-
um Evrópubikarkeppninnar í
gærtovöld með 2 mörkum gegn
engu. Leikurinn fór fram á
Santiago Bernabou leikvangin-
um í Madrid og voru áhorf-
Laugardagur 24. marz 1962 — ÞJÓÐVILJINN —