Þjóðviljinn - 11.04.1962, Síða 1

Þjóðviljinn - 11.04.1962, Síða 1
Miðvikudasur 11. apríl 1962 — 27. árgangur — 83. tölublað Kennarar fd1 kauphœkkun til 11 prósent LOREN OG SCHELL FÁ OSCAR-VERÐLAUNIN Ríkisstjórnin sá sitt óvænna eftir að 90% kennara höfðu gengið frá uppsagnarbréfum • Einhvern næstu daga mun menntamálaráð- herra gefa út reglugerð um kauphækkun kenn- ara. Mun kaup kennara hækka um kr. 6.300 á ári eða tæp 9%. Kaup framhaldsskólakennara mun hækka um kr. 7,590 á ári eða 9,5 %. Kaup mennta- skólakennara mun hækka um kr. 9,500 á ári eða um 11%. Hækkun þessi verður reiknuð frá því að skólar hófust s.l. haust. • 90% uppsagnir Kauphækkun þessi er aíleið- ing af kjarabaráttu þeirri sem kennarasamtökin hafa háð nú um langt skeið. Eftir fjölmörg árangurslaus viðtöl við stjórn- arvötdin skipulögðu framhalds- skólakennarar uppsagnir og á stuttum tíma höfðu um 90% af öllum ' kennurum við framhalds- skólana í Reykjavík gengið frá uppsagnarbréfum. Skömmu síð- ar gripu 'barnakennarar til sama ráðs og einnig þar var þátttak- an um 90%. Uppsagnirnar voru miðaðar við næsta haust, þannig að stjórnarvöldin sáu fram á að skólahald gæti algerlega iagzt niður ef ekki yrði að gert. Það er þessi barátta kennar- anna sem veldur því að ríkis- stjórnin hefur nú séð sitt ó- vænna og heitið því að gefa út nýja reglugerð um kauphækk- anir. stjórnin ætla að reyna að halda ■ því fram að hér sé ekki um j kauphækkun að ræða heldur ■ breytta vinnutilhögun! Er það j í samfæmi við aðrar tilraunir : hennar til að fela kauphækkanir ■ sem læknar, verkfræðingar og ■ margir aðrir starfshópar hafa i fengið að undanförnu. • Kennaraskortur Þjóðviljinn hefur reynt að ■ ná samband; við forustumenn ! kennarasamtakanna um þetta j mál, en þeir vildu ekkert láta ■ eftir sér ha.fa á þessu stigi máls- j ins. Munu kennarar að sjálf- : sögðu eiga eftir að fjalla um það ■ í sinn hóp hvort kauphækkun j þessi nægi til þess að þeir breyti ■ ákvörðunum sínum um uppsögn j á starfi, og frétt hefur Þjóðvilj- j inn af því að ýmsir skólar sjái ■ fram á mikinn kennaraskort á j næsta hausti, þrátt fyrir þessar 5 breytingar. • 4% í viðbót í júní SANKTA MONICA 10/4. í gærkvöldi var Oscar-kvik- myndaverðlaununum banda- rísku úthlutað. „West Side Story“ var talin bezta banda- ríska kvikmyndin 1961 en verðlaun fyrir beztan Icik í aíalhlutvsrkin fengu Maxi- milian Schell fyrir leik sinn í „Dómnum í Niirnberg" og Sophia Loren fyrir leik sinn í „Tveim konum“. Bæði verðlaunin fyrir beztan leiik í aukahlutverkum hlutu leikarar í „West Side Story“, þau Rita Moreno og George Chakiris. Verðlaun fyr- ir beztu ileikstjórn fengu Rob- ert Wise og Jerome Robbins sem unnu saman- að „West Side Story“. Kvikmynd þessi hlaut alls ellefu verðlaun. ■Jr Svíinn Ingmar Bergman hlaut verðlaun fyrir gerð beztu erlendu kvikmyndarinnar. — ,,Troillspeiilet“. Aðrar kvik- myndir sem til greina þóttu koma voru meðal annars danska myndin „Harrý og herbergisþjónninn“ og jap- I „Tvær konur“ leikur Sophia Loren móður sem flýr frá Róm með dóitur sína á stríðsárunum til að forða hcnni frá karl- mönnum. A hrakningunum vcrða þær á vegi hermanna sem nauðga telpunni. Myndin sýnir þær mæðgur eftir þann atburð. Nýtt fyrirkomu-1 lag laune opin- berra starfsmanns Rlkisstjórain mun legg/þ. fyrir þetta þing frumvarp ti* Iaga um nýtt fyrirkomulag & launum opinberra starfs* manna. í umræðum um frumvarp > ið um Hæstarétt í neðri deilcá Alþingis í gær skýrði Bjaral Benediktsson dómsmálaráð-. herra frá þessu, en kvisazt liafði að ríkisstjórnin teldá sér ekki stætt á því að ger?fe ekkert í þessum málum áðu? en þiugi lyki. Vittorio de Sica. sem stjórnaði * myndinni „Tvær konur“, á- í samt Loren. Það hefur aldrei r m áður komið fyrir að Oscar- j verðlaun fyrir beztan leik séu £ veitt Ieikara í mynd sem ekki S er bandarísk. anska kvikmyndin „Ódauðleg ást“. ■Jr Verðlaunaafhendingin fór fram með pomp og pragt og var fjöldi „stjarna" og fyrir- manna innan bandaríska kvik- myndaiðnaðarins viðstaddir. Um tíma ætlaði þó allt að fara í uppnám þar sem hópur manna notaði tækifærið til að mótmæla kynþáttamisróttinu í kvi-kmyndaiðnaðinum í Holly- wood. Lögre-glan handtók marga þessara manna. „West Side Story“ hlaut 11 verðlaun Uppþot vegna kyn- þáttamisréttisins Eins og áður er ,sagt eru kauphækkanirnar til kennara 9—11%. Þeir fengu á síðasta ári 13,8% kauphækkun, og 1. júní í ár - fá þeir hina almennu 4% k-auphækkun í viðbót. Þá hafa barnakennarar fengið ýmsar lagfæringar aðrar, sem enn mætti telja til viðbótar. Kauphækkun sú sem nú verð- ur tilkynnt í hinni nýju reglu- gerð mun vera látin heita greiðsla fyrir 4 aukatíma á viku „vegna aukins undirbúnings" til kennslu, og þannig mun ríkis- BEN BELLA tilKUBA KAIRO 10/4 — Sendiráð Kúbu í Kaíró tilkynnti í dag að Mo- hemed Ben Bella, einn helzti leiðtogi Alsírmanna, hafi þegið boð Fidels .Castros um að heim- sækjá Kúbu. Einnig var tilkynnt að Kúba muni taka þátt í ráðstefnu hlut- lausra ríkja um efnahagsmái}. en Sameinaða arabalýðveldið og Júgóslavía hafa haft frumkvæð- ið að þeirri ráðstefnu. líkisstjórnin svarar Alþýðusambandinu; Hafnar verðlœkkun, kveðst hlynt hœkkun lœgstu launa 1 síðustu viku tilkynnti stjórn Alþýðusambandsins ríkissljórn- inni að hún liti svo á að við- ræðum þcssara aðila um kjara- mál væri lokið án árangurs hefði viðunandi svar ekki bor- izt í gær. I gærkvöld barzt blöð- um og útvarpi afrit af svari rík- isstjórnarinnar. Þar er hafnað af- dráttarlaust tillögum Alþýðusam- bandsins um kjarabætUr með lækkunum nefskatta, vaxta og svipuðum ráðstöfunum. Hins veg- ar býðst ríkisstjórnin til að mæla með við atvinnurekendur hækk- un á „launum þcirra verkamanna sem 'ægst cru launaðir". Bréf ríkisstjórnarinnar hljóðar ,svo: 1 (tilefni af bréfi Alþýðusam- bands Islands frá 6. þ.-m. vi-11 ríkisstjórnin rifja upp aðalatriði þess, sem fra-m hefur komið af ■ hennar hálfu í viðræðum á mi-lli hennar o.g miðstjórnar Alþýðu- sambandsins á undanförnum mánuðjum. Af tillögum Alþýðusambandsins •tafldi rí'kisstjórnin, að hugmyndin um sty-ttingu vinnu-tíma ón skerð- ingar heild-arlauna væri hin eina, sem leitt gæti til: raunveru-legra kjarabóta. Með- hagkvæmari vinnubrögðum á að vera hægt að fra-mleiða jafnmikið og nú á sty-ttri tí-ma og ná þannig kjara- bótum. Þetta -mál er nú í athug- un nefndar, sem Alþingi hefur kosið í því skyni. Hins ve-gar ben-ti ríkisstjórnin á það, að til- lögur Alþýðusambandsins um að ná kjarabótum með lækkunum á verði nauðsynjavöru væru ekki raunhæfar. Hér á landi hefur verið gengið len-gra en í nokkru landi öðru í þá átt að halda niðri verði nauðsy-njavöru með afnámi tolla, niðurgreiðslum og lágu-m flutningsgjöldum, og er ek-ki framkvæmanlegt að halda enn lengra á þeirri braut. í viðræðunum benti ríkisstjóm- in á það, að almennar launa- hækkanir mega ekki vera meisj en sem svarar aukningu franH leiðslu á mann og verðhækku©! útflutningsafurða, ef verðbó-lga ᧠ekki að hljótast af. Það jafnvæg|j er nú hefur náðst í íslenzku ef n#9 hagslífi, bætir skilyrðin fyrifj' framleiðsluaukingu, en samt eV1 ekki hægt að gera ráð fyrir, ai§ au-kning framleiðslu á mann ge-ti orðið meiri en 2—3% á ári ajf? meðaltaii næstu árin. Verð ú*«- flutningsafurða -hefur undanfariS' ár farið hækkandi, en er þó a{? meðaltali enn ekki orðið einð há-tt og. það var í árslok 1959S* Sú 4% almenn launahækkun senfe Framhald á 5. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.