Þjóðviljinn - 11.04.1962, Side 9

Þjóðviljinn - 11.04.1962, Side 9
400 hnefaleikarar hafa verið drepnír í hringnum NEW YORK — Eftir andlát hnefaleikarans Benney Kid Paret, sem veitt var banahögg- ið á leikpallinum í Madison Square Garden níu dögum áð- ur, að leikdómurum, kcppn- ísvottum og læknum áhorfandi, án þess að nokkur þeirra teldi ástæðu til að taka í taumana, hefur enn vakið mcnn til um- hugsunar uin hve hnefaleikar eru hættuleg íþrótt: Annálar hncfaleikanna bera með sér aA á síðustu 56 árum hafa hvorki meira né minna cn um 400 v hnefaleikarar látizt af völdum áverka sem þeir hlutu „í hringnum“. Benney Kid. Paret er fyrsti heimsmeistarinn sem lætur líf- ið við vörn titilsins) en tveir áskorendur í heimsmeistara- keppni biðu bana eftir að hafa verið barðir í rot: Jimmy Dole frá Cleveland hlaut slíkan á- verka í keppni sinni við Sugar Ray Robinson um heimsmeist- aratitilinn í veltivigt árið 1947 að hann dó skömmu síðar. Englendingurinn Walter Croot dó árið 1897 eftir að hafa verið „talinn út“ í keppninni við Bandarík.iamanninn Jimmy Barry um heimsmeistaratitilinn í bantamvigt. Meðal kunnra hnefaleikara sem létust eftir að hafa beð- ið ósigur í hringnum má nefna Ernie Schaaf 1933, Prankie Jerome 1924, Lavem Roach og Sonny Boy West 1950, Sam Baroudi 1948 og Eddie Sanders, olympíumeistar- ann í þungavigt 1952, árið 1954. Andlát Emie Schaaf vakti á sínum tíma ekki minna umtal en dauði Parets nú. Þegar Schaaf féll meðvitundarlaus á pallinn í keppni við Primo Carnera, ætlaði allt vitlaust að verða í Madison Square Gard- en. Áhorfendur þóttust vissir um að brö,gð hefðu verið í tafli því að Schaaf féll við laust vinstrihandarhögg og voru menn sannfærðir um að aðeins væri um uppgerð að rreða: Schaaf hefði verið mútað til að gefa Carnera sigurinn. Þremur dögum síðar lézt Schaaf og hafði ekki komizt til meðvitu.ndar. Lögreglunni í New York hef- ur nú verið falið að rannsaka málsatvik í sambandi við dauða Parets. Hún á að ganga úr skugga um hvort andstæð- ingur hans og banamaður, Emile Griffithi hafi „gengið til drengilegrar keppni" eða hvort hann hafi „haft morð í huga“. Griffith sló Paret tuttugu sinnum í höfuðið og barðist höfuð hans við jámstólpa girðingarinnar í hvert sinn. Paret gat enga björg sér veitt og samkvæmt leikreglum hefði átt að stöðva barsmíðina löngu áður en dómarinn skarst í leik- inn. Það er vitað að Griffith bar hatur í brjósti til Parets og er ástæðan sögð sú að glæpa- mennirnir sem stjórna hnefa- leikum í Bandaríkjunum höfðu neytt Griffith til að „bíða ósigur" fyrir Paret síðast þeg- ar þeir áttust við. Þess mun hann nú hafa viljað hefna. Benny Paret hafði stundað hnefaleika frá því hann var unglingur, en þó lætur hann ekki mikið eftir sig: Hús sem hann hafði nýlega keypt í Mi- ami fyrir 20.000 dollara og Cadillac, en reiðufé átti hann ekkert fyrir utan það sem hann átti að fá fyrir þennan leik sem varð hans síðasti. Hlutur hans var 48.000 dollarar, en þá er eftir að draga frá hlut umboðsmanns hans og skatta. Ekkja hans fær þó einnig 10.000 dollara . í tryggingarfé frá hnefaleikasambandinu í New York og það greiðir einn- ig spítalakostnað hans. Reynir Karlsson þjálfar á Akureyri í sumar AKUREYRI 6. apríl — Eins og kunnugt er, hafa knatt- spyrnumenn Akureyrarfélag. anna leikið sem eitt lið í lands- mótum KSÍ undanfarin ár, og svo mun einnig verða á þessu keppnistímabili. Undirbúningi hefur þá ver- ið þannig hagað, að einn mað- ur hefur annazt þjálfun knatt- spymumannanna sameiginlega, á vegum Knattspyrnuráðs Ak- ureyrar. Af þessu fyrirkomu- lagi hefur leitt, að tiltölulega fáir menn hafa verið þjálfaðir, líklega 16'—18, en öðrum lít- ið eða ekkert sinnt. Leikir milli félaganna hafa verið fá- ir, og hefur það verið gert til þess meðal annars, að koma í veg fyrir sundrung milli félag- anna. Þrisvar sinnum hefur Knatt- spyrnuráð Akureyrar ráðið til sína crlenda þjálfara, og hef- ur árangur þeirra verið nokk- urt ágreiningsefni meðal manna. Miklu fé hefur verið eytt í þessu skyni og hefur Knatt- spyrnuráð orðið að afla þess á eigin spýtur án verulegrar aðstoðar annarra. Margir eru þeirrar skoðunar, að fyrir- komulag þetta sé rangt, þess í stað eigi félögin að annast þjálfun sinna manna, hvort um sig. Kapple:'kir milli þeirra séu margir, og heilbrigð samkeppni um að komast í hið sameigin- lega lið ÍBA. Nú hafa málin skipazt þann- ig, að félögin þjálfa lið sin, hvort í sínu lagi. Einar Helga- son hefur séð um undirbún- ing knattspyrnumanna úr KA, og heldur Þvi starfi áfram fil vqrs, en þá er óvíst hvað við tekur. Leikmenn Þórs hafa æft þjálfaralausir til þessa, en fá núna á næstunni til sín Reyni Karlsson úr Fram, Reykjavík, sem mun annast þjálfun leik- Framhald á 10. síðu Tuttugu sinnum barði Emile Griffith andstæðing sinn Kid Parðí í höfuðið þar sem hann lá bjargarlaus á reipunum og í hvert sinjg slóst höfuð hans í girðingarstólpann úr stáli. Dómarinn, Goldsteiu^ fylgdist vel með öllu (það sést í hann til vinstri á myndinni), eO skarst þó ekki í leikinn fyrr en um scinan. Sveinameistaramót inn á sunnui Sveinameistaramót íslands innanhúss var háð' Sl." sunnu- dag. Þetta er fyrsta sveina- mótið innanhúss og var fram- kvæmd mótsins góð — tók aðeins 70 mínútur. ÚRSLIT: Langstökk án atrennu: 1. Eínar Gíslason KR 2,78 2. Þór McDonald KR 2,77 3. Erl. Valdemarss. ÍR 2,70 4. Júlíus Hafstein ÍR 2,68 Þrístökk án atrcnnu: '1. Einar Gíslason KR 2. Róbert Hreiðarsson KR 7,98 '3. Jöliti's' l'Tr.fStéih ÍR " 7,77 4. Ari Jóhannsson ÍR 7,76 Hástökk án atrennu: 1. Júlíus Hafstein ÍR 1,25 2. Bragí Guðmundsson ÍR 1,10 Hástökk: 1. Erl. Valdemarsson ÍR 1,55 2. Einar Gíslaso.n KR 1.50 ■ 3. Július Hafstein ÍR 1.40 4. Ari Jóhannsson ÍR 1.40 Júiíus hlaut þriðja sæti er stokkið var aftur. Siglfirðingar senda 25-30 manns á landsmótið - keppa i öllum greinum Jónas Asgeírsson, 41 árs., átti lengst stökk í keppni á sunnudaginn og keppir á Akureyri SIGLUFIRÐI 9/4 —- í gær var mjög gott veður á Siglu- firði, sólskin og blíða og all- ur fjörðurinn er alhvítur af snjó. Góða veðrið var notað af skíðamönnum, sem eru að undirbúa sig undir keppni á Þórhallur Sveinsson Birgir Guðlaugsson landsmótinu á Akureyri um páskana, og voru haldin tvö skíðamót. Fyrir hádegi var keppt í göngu um það bil 9 km, í þrem aldursflokkum og gengu allir flokkarnir samtímis í brautinni. Keppni þessi var mjög skemmtileg og munaði aðeins örfáum sekúndum á þrem fyrstu mönnum. Sigurvegari varð Birgir Guðiaugsson, gekk á 32 mínútum sléttum. 2. Þórhallur Sve'nsson 32 mínútur og 17 sek. o,g þriðji Gunnar Guðmundsson 32.23,0. Þeir Þórhallur og Gunnar eru í 17—19 ára aldursfiokki. Sigurvegari í yngsta ald- ursflokki, 15—16 ára, varð Haraldur Erlendsson á 37 mínútum. 2. Jóhann P. Hall- dórsson 38,08 mín. 3. Björn B,- Olsen -38,49 mín.- Er tími - þessara drengja mjög góður og má gera ráð fyr.'r að þeir geti einhvern tíma sprett úr spori. Eftir -hádegi fór fram stökkkeppni og var sú keppni liður í Skíðamót; Siglufjarð- ar árið 1962. Sjaldan eru e.ins margir Siglfirðingar saman- komnir og þegar keppt er í stökki í góðu veðrj og dagur- inn í gær var engin undan- tekning. Kom m.kill fjöldi bæjarbúa til að ho.rfa a keppnina, sem fram fór í Stóra Bola. Sigurvegari varð Skarphéðinn Guðmundsson, stökk 39,5 og 41,5 m og hlaut 148 stig. Annar varð hinn kunni skíðagarpur Jónás Ás- geirsson, hlaut Jónas 142,5 stig og átti lengsta stökkið í brekkunni þennan daginn — 42,5 m. Þriðji varð Birgir Guðlaugsson, hlaut 140,3 stig. í flokki 17—19 ára sigr- aði Þórhallur Sveinsson, stökk 32,5 og 33 m og hlaut 125.2 slig. 2. Steingrímur Garðarsson, stökk 36,5 m qg 36 m og hlaut 124,3 stig. 3. Haukur Friðsteinsson, hlaut 121,9 stig. I flokki 15—16 ára sigraði Haukur Jónsson, hlaut 126,1 stig. 2. Örn Snorrason, hlaut 119.2 stig. ■Jónas ÁsgeirssöH* sem er-41 árs, átti lengsta stökkið sem fyiT segir. Hann hefur frá því hann var unglingur og er nú einn af þeim sem Sigl- firðingar senda til kcppni á landsmótið. Héðan frá Siglufirði fara eitthvað á milli 25 og 30 skiðamenn á landsmótið, sem lialdið verður á Akur- eyri um páskana og Siglfirðingar þátt í öllum keppnigreinum mótsins. Miðvikudagur 11. apríl 1962 — ÞJÖÐVILJINN 19

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.