Þjóðviljinn - 15.07.1962, Side 3
„Ætlum ekki að bregða fœti fyrir að þessi
náttúruauðœfi
verði nýtt"
Á ráðsteínunni. sem haldin
var á Akure.vri um síðustu
heigi, um virkjunarmál á
Norður. og Austurlandi. og
þá einkum virkjun Jökuilsár á
Fjöllum og hugsan’.ega stór-
iðju í framhaidi af virkjun-
unum, var rætt nokkuð um
kísilgúrvinnslu við Mývatn,
en súk vinnsfa hefur þann
kost að til hennar þarf til-
tölulega litla raforku og
jafnframt væri hægt að nýta
jarðvarmann i Námaskarðj í
sambandi við framleiðsiuna.
í Alþýðublaðinu sl. mið-
vikudag var á það bent. að
bygging kísilgúrverksmiðju
við Mývatn myndi hafa í för
■með sér. að þar risi upp 500
til 600 manna þorp i kringum
verksmiðjuna. en búizt er við,
að við hana muni starfa um
80 manns, ef af því verður
að henni verði komið á fót.
í sambandi við þessar um-
ræður kom Þjóðviljanum til
hugar, að hað væri fróðlegt
að heyra álit Mývetninga á
þessum ráðagerðum um
bvgginigu kísilgúrverksmiðju
þar í sveitinni. því að fáa
mun það mál varða öllu
meira heldur en einmitt þá.
Sneri blaðið sér bvi til Pét-
urs Jónssonar í Reynihlið nú
fyrir he’gina og lagði fyrir
hann nokkrar spurningar,
sem hann brást góðiúslega
við að svara. en í landi
Reykjahlíðar eða nágrenni
yrði kisilgúrverksmiðjan
væntanlega reist.
— Hvernig lýzt ykkur Mý-
vetningum á þá hugmynd, að
við Mývatn verði reist kísil-
g'Úrverksmiðj a?
— Við höfum en«a afstöðu
tekið til bessa máls ennþá,
enda er það enn sem komið
er aðeins á umræðustigi. Við
erum hins vegar ekkert
hræddir v:ð það og ætlum
okkur ekki að bregða fæti
fyrir það. að. þessi náttúru-
auðæfi verði nýtt.
— Yrði verksmíðjan ekki
reist í Reykjahlíð eða þar í
grennd?
— í áætlunum, sem gerðar
hafa verið. er gert ráð fyrir
að verksmiðjurnar verði
tvær. önnur niðri við vatnið,
þar sem leirinn verður þurrk-
aður. og yrði leiddur þangað
jarðlhiti. en síðan yrðj unnið
úr leirnum annars staðar. Nú
í sumar er verið að byrja að
leggja hingað raflínu frá
Laxárvirkjuninni og er byrj-
að að bora fyrir staurunum.
Á bvi verki að vera lokið í
haust. Hitt er svo annað mál,
hvort þar verður hægt að fá
næga orku fyrir kísilgúr-
verksmiðju. um það er mér
ekki kunnugt.
— Ef verksmiðjan kemst á
fót. skapast mikil vinna við
hana og má búast við að
kringum hana risi a.m.k. 500
til 600 manna þorp.
í vatninu og hann þornað þar og
fylgzt af áhuga með fréttum
af ráðstefnunni. bæði í blöð-
um og útvarpi.
Að lokum segir Pétur okk-
ur í almennum fréttum, að
nú sé mikill ferðamanna-
straumur í Mývatnssveit og
fari útlendingum sífellt
fjölgandi, sem þangað sækja.
Eru hótelin i Mývatnssveit
yfirfull af gestum, en þau
gsta tekið á móti um 50
manns.
Undanfarið hefur verið góð
sprettutíð og er sláttur byrj-
aður en nú stendur rúningur
yfir o.g hefst slátturinn ekki
af fullum krafti fyrr en hon-
um lýkur.
Kísilgúrleir við Mývatn. Leirnum hcfur verið dælt upp í vík
sprungið. — (Ljósm. Þjóðv. A. KJ,
— Já, þetta virðist vera
farið að ‘hafa áhrif strax. Það
eru ýmsir þegar farnir að
byggja yfir sig hér, sjalfsagt
í von um atvinnu i framtið-
inni. í Vogum, sem er næsta
jörð við Reykjaihlíð, er búið
að reisa 8 íbúðarhús og ann-
að eins hér í Reykjahlið.
— Hefur aldrei verið reynt
að vinna kísilgúr við Mý-
vatn?
— Nei. en það var reist hér
brennisiíeinsverksmiðja 1939
en sú starfsemi fór út um
þúfur. Svo köm Baldur Lín-
dal á fót tilraunaverksmiðju
1956 ti’- þess að vinna brenni-
stein úr gufunni úr borholun-
um við Námaskarð og gekk
sú vinnsla ágætlega. í vetur
voru hins vegar teknar hér
160 tunnur af kisilgúr og var
mest af því flutt út til Hol-
lands til rannsókna, en Hol-
lendingar 'hafa mikinn áhuga
á kísilgúrvinnslu við Mývatn.
— Áttuð þið Mývetningar
einhvern fulltrúa á ráðstefn-
unni á Akureyrí og hafið þið
ekki mikinn áhuga á þessu
máji?
— Sýslunefndarmaðurinn
okkar sat ráðstefnuna og það
heíur talsvert verið rætt um
þ'Stta manna á meðal en eng-
ir fundir verið haldnir hér
um málið. Menn hafa iíka
Þjéðln krefst svars
— Framhald af 1. síðu.
lega. Sú ákvörðun á að koma fyrir fund forsætis-
ráðherra EBE-landanna fyrir lok september, þ.e.
áður en Alþingi íslands gefst kostur á að taka
afstöðu til þess, hvort íaland skuli sækja um að-
ild eða ekki. Alþingi á ekki að komast að nið-
urstöðu í málinu, heldur er naumum þingmeiri-
hluta stjórnarflokkanna ætlað að leggja blessun
sína yfir ákvörðun stjórnarinnar.
• Með þessu hefur ríkisstjórnin misboðið Al-
þingi freklega, ekki sízt með tilliti til margend-
urtekinna yfirlýsinga um, að engar ákvarðanir
ýerði teknar í málinu, fyrr en Alþingi hafi mót-
að afstöðu sína.
• Þjóðin á heimtingu á því, að ríkisstjórnin
geri hreint fyrir sínum dyrum í þessu máli og
lýsi ummæli Adenauers dauð og ómerk. Ella verð-
ur litið svo. á, að allar yfirlýsingar hennar um að
Alþingi skuli marka stefnuna gagnvart Efnahags-
bandalaginu séu blekkingar einar til þess að
breiða yfir makk ráðherranna erlendis. Likast til
hefur Gylfa láðst að leggja nógu ríka áherzlu á
það við Adenauer, að honum væri ekki ætlað að
fleipra með þetta mál. • -
Pjörupr umræiur á vís-
índaráðstefnunni i H,!.
f fyrradas: hélt vísiiudaráð-
stefnan í Háskólanum áfram
störfum og voru þá flutt sex
erindi og spunnust allmiklar
umræður út af þeim.
Áskell Löve flutti inngangs-
orð fyrir erindunum en síðan
hófst flutningur þeirra. Trausti
Einarsson prófessor talaði um
jarðsögu íslands á tertiertímabil-
inu' en það tímabil jarðsög-
unnar stpð yfir fyrir nokkrum
tugum mi’-Ijóna ára. Ræddi hann
m.a. um bað, hvernig ísland
hefði byggzt upp af eldgosum.
Ennfremur ræddi hann um þá
kenningu, að á þeSsu íimabili
BRASILÍU 14/7 — Þjóðþingið í
Brasiííu samiþykkti í gærkveldi
hina nýju rikisstjórn da Rochas
forsætisráðherra, og er þar með
lokið stjórnarkreppunni i land-
inu sem staðið he.fur í fvær vik-
ur.
139 þingmenn greiddu atkvæði
með stjórninni en 63 gegn henni.
Tveir inenn hafa áður reynt
að mynda st.iórn á iþessum
tveim vikum, en báðum mis-
tekizt. Annar féll í ónáð hjá
þinginu en hinn hjá Goulart for-
setá. ”
hafi verið landbrú milli Evr-
ópu og Ameríku um Færeyjar,
ís'.and og Grænland, og hafnaði
þeirr’í skoðun að svo hefði ver-
ið, a.m.k. á síðari hluta tíma-
bilsins. Urðu talsvert fjörugar
umræður út af þessu erindi.
Þá fluitti Martin Schwartzbach
frá Köln yfirlitserindi um lofts-
lag á ýmsum skeiðum jarðsög-
unnar. Bandarískur vísindamað-
ur talaði um hafsbqtninn í Atl-
anzhafinu, Johannes Rasmussen
frá Færeyjum flutti erindi um
jarðfræðirannsóknir i Færeyj-
um oig tveir Svíar hé’.du fyrir-.
lestra um plöntugróður og sam-
bandið mi’.li landanna við Atl-
anzhaf.
T. gær var ráðstefnunni haldið
áfram og voru iþá á dagskrá 5
erindi og auk bess áttu að vera
umræður um efni þeirra. í dag
verður gert hlé á fundahöldum
og fara þátttakendur í ráðstefn -
unni í ferðalag að Gullfossi og'
Geysi, en á morgun verður hald-
ið áfram erindaflutningi og um-
ræðum.
Sovéfríkin telja sig hafa
rélf á síðusfu tilraununum
MOSKVA 13 7. — í tilkynn-
ingu sem Tass-fréttastofan sendi
út í dag segir að Sovétrikin hafi
rétt til að verða síðust kjarn-
orkuveldanna til að framkvæma
tilraunir með kjarnavopn, þar
sem Bandaríkin hafi hafið slík-
ar tilraunir. ' '
Jafnframt er þvi haldið fram
að vesturveldin, og þá fyrst og
fremst Bandaríkin, hafi ekki ó-
huga á því að hætta kjarn-
orkutilraunum, og að þau hafi
vísað á bug vísindalegum til-
lögum um alþjóðlegt bann við
þeim.
1 tilkynningunni segir meðal
annars: Sovétríkin hafa ekki að-
eins siðferðilegan og lagalegan
rétt til að verða síðust til- að
framkvæma kjarnorkutilraunir.
Öskin um frið og öryggi rétt-
lætir það einnig. Bandaríkin hófu
’slíkar tilraunir mörgum árum
á undan Sovétríkjunum. Bret-
land og Frakkland fullkomna
einnig og reyna stöðugt nýjar
gerðir kjarnavopna.
Tilraunir Sovétríkjanna eru að-
eins mótleikur við aðfarir vest-
urveldanna, segir í tilkyijnjng-
vnni.
Sunnudagur 15. júlí 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (J