Þjóðviljinn - 15.07.1962, Qupperneq 9
íþróttirnar hafo mjðg mikil
vaxtarskilyrði 6 íslandi
Þetta er fyrirsögn á heilsíðu-
grein, sem birtist í „Sports-
manden“ 5. júlí s.l., en höf-
undur hennar er Einar Öiseth,
sem var einn af þátttakendum
il þingi norrænna íþróttafrétta-
ritara, sem hér var haldið um
miðjan júní s.l.
Er greinilegt að Einar hefur
hrifizt af ýmsu sem fyrir aug-
un bar í ferð sinni hingað.
Ýmsir fleiri sem þátt tóku í
þinginu hafa skrifað um förina,
og má þar ef til vill sérstak-
lega geta um Torstein Tegner,
sem hefur skrifað þrjár langar
greinar í blað sitt Idrottsblad-
et, og kemur hann víða við um
menn og málefni, og dáist m.
a. mjög að sýningunni á „My
fair lady“.
Hér kemur svo grein Einars:
íþrótíaþing fyrir
fréttamenn
— Sögulandið ísland er dá-
lítið meira fyrir okkur Norð-
menn, en land sem við höfum
venjuleg samskipti við. Landið
er bundið Noregi langtum
sterkari böndum, fólkið er af
sama ættstofni, og blóðbönd
eru, sem kunnugt er sterkari
en nokkuð annað. Þessu kynnt-
umst við Norðmenn, sem dvöld-
um á íslandi í 10 daga í júní,
á þingi norrænna íþróttafrétta-
ritara. Þær móttökur, sem við
fengum og sú sterka skyld-
leikatilfinning sem við allstað-
ar fundum, sagði betur en
nokkuð annað, að sterkasti
hlekkurinn í hinni norrænu
keðju er ísland!
Þjóðareinkennum er haldið í
heiðri <íi þessu landi, og maður
þekkir ekki nokkra þjóð í
heiminum sem þekkir betur
söguna en íslendingarnir. Eig-
inleiki fólksins til að skrá er
undraverður, og einnig þráin
til að varðveita rninningar. Allt
þetta gerir sitt til þess að mað-
ur kynnist fólki, sem í raun
og veru vill gera eitthvað fyrir
norræna samvinnu, og vill
gera að raunveruleika hina
stóru hugsjón sem felst í þVí
hugtaki.
Þing íþróttafréttaritara er í
rauninni ekki sérstakt efni
fyrir blað.
Þau mál sem til umræðu
koma eru oftast þannig, að
rnaður sér ekki ástæðu til að
koma inn á þau í svona grein.
En um stjórnendur mótsins
getur maður a.m.k. sagt, að
iþróttafréttaritararnir á ís-
landi, (og hann nefnir nokkra
þeirra) eru fyrsta flokks.
Nótt og dag voru þeir til-
búnir til að gera það, sem
þeir gátu, til þess að dvölin
hér gæti orðið sem minnis-
stæðust. Og það er enginn vafi
á, að það tókst fullkomlega.
Það opinbera styður
íþróttirnar
9 Opinberir aðilar svo sem:
Utanhíklsráðuneytið, íþrótta-
sambandið, Reykjavíkurborg,
Loftleiðir, Flugfélag íslands, og
margir aðrir gerðu sitt með
veizlum og sýningaferðum, o.
s. fr. o. s. frv. Við fengum
einnig að kynnast svolítið ís-
lenzkum rþróttum, í sýningum
og knattspyrnu.
Með tilliti til fólksfjölda mun
ekkert land styðja meira í-
þróttirnar en ísland. Um allt
landið eru byggð íþróttamann-
virki, en það eru líka íþrótta-
áhugamenn sem stjórna þeim
málum- Þeir vita hvað íþrótt-
irnar þýða fyrir heilbrigði
fólksins ....
OFURMENNIÐ
Bidstrup teiknaði í Irand og Fo!k.
Reykjavfkurborg hefur byggt
fagran íþróttaleikvang, sem
Gísli Halldórsson hefur teikn-
að. Það mannvirki gæti- staðið
sem fyrirmynd fyrir norska
leikvangabyggjendur. Þar er
gert ráð fyrir rúmgóðum á-
horfendasvæðum, þar eru sam-
komusalir og búningsklefar.
Verið er að byggja i Reykja-
vík stórt íþróttahús, þar sem
íþróttasambandið og hin ýmsu
sérsambönd fá skrifstofur og
samkomusali. í sambandi við
þetta er svo verið að reisa
stóran u'þróttasal sem tekur allt
að 3000 áhorfendur.
Það er óhugsandi að Osló-
borg mundi byggja líkt þessu
fyrir íþróttal'ífið í Osló. Hér
heima eiga íþróttirnar í erfið-
leikum með að eignast sali. ..
íþróttaráðið í Osló getur
mikið lært af Reykjavík. Ef til
vill ættum við að sjá svo um
að fleiri íþróttaáhugamenn
væru kosnir til að stjórna mál-
um borgarinnar, i stað þess að
leggja höfuðáherzluna á hinar
pólitisku skoðanir þeirra.
Forseti íslands, hr. Ásgeir
Ásgeirsson, er t. d. gamall
'íþróttamaður.
Framúrskarandi
ferðamannaland
Hver sá sem heimsækir ís-
land veitir1 fljótt athygli hinum
sterku litum sem landið bað-
ast í. Þar er líka margt merki-
legt að sjá fyrir ferðamanninn:
Stórkostlegir fossar, goshverir,
gufuhverir, eldspúandi fjöll,
fögur fjöll, stærstu jökla í
Evrópu, brunahraunmyndanir
o. s. frv. o. s. frv., sem sýna
að Island sem ferðamannaland
er í fremstu röð.
Island er á öllum sviðum
land framfaranna, land mikill-
ar menningar og gestrisni, sem
á engan sinn líka. ísland vinn-
ur að þvii að byggja upp iðnað
sinn og getur þegar annað t. d.
áburðarþörf sinni. Miklar
byggingaframkvæmdir eru um
allt landið, og með miklu
meiri hraða en við eigum að
venjast hér heima í Noregi. ..
Síðast — en ekki sizt' —.
Islendingar meta rneira sam-
starfið við Noreg á sviði í-
þróttamála, en við nokkurt
annað land í heiminum. ÞAÐ
ættum við að hugsa um og —
taka tillit til.
Sundmót UMSB
Hið árlega sundmót U.M.S.B.*?1
var haldið að Varmalandi
sunnudaginn 1. júlí í björtu en
köldu veðri. Ái-angur í einstök-
um greinum varð sem hér seg-
ir.
KONUR:
50 nictra frjáls aðferð.
1. Ólöf Björnsd., R. 37,7 sek.
2. -3. Þóra Þórisd., R. 44,4 sek.
2.-3. Elín Björnsd., R. 44,4 sek.
100 metra bringusund.
1. Vigdís Guðjónsd., D. 1:44,9
2. Elín Magnúsdóttir, R. 1:54,2
300 metra frjáls aðfcrð.
1. Ölöf Björnsdóttir, R. 5:51,2
2. Elín Björnsdóttir, R. 6:29,1
4x50 metra boðsund
(bringa).
1. A-sveit Umf. Reykdæla:
Elín Björnsdóttir,
Jóhanna Björnsdóttir,
Ólöf Björnsd. 3:23,8 sek.
2. B-sveit Umf. Reykdæla:
Helga Magnúsdóttir,
Hlín Gunnarsdóttir,
Elín Magnúsdóttir,
Þóra Þórisdóttir: 3:52,5 sek.
KARLAR:
100 metrá bringusund.
1. Kristján Jóhannesson' 9t'.
1:32,5 sek.
2. Oddur Þórðarson, R. 1:38,7
100 m. frjáls aðferð.
1. Þó'rir Jónsson, R. 1:31,3
2. Kristj. Jóhanness., St. 1:37,1
50 mctra baksund.
1. Sig. Guðjónsson,. D. 47,4
2. Þórir Jónsson, R. 55,0
KONUR:
50 mctra baksund.
1. Ólöf Björnsdóttir, R. 51,8
2. Elín Björnsdóttir, R. 53,4
KARLAR:
3x50 metra þrísund.
1. A-sveit Umf. Reykdæla: :
Guðm. Magnússon,
Eiríkur Þórðarson,
Þórir Jónsson: 2:12,5 sek.
2. B-sveit Umf. Reykdæla:
Guðm. Kristinsson,
Þorv. Jónsscn: 2:51,7 sek.
Eiríkur Jónsson,
Umf. Reykdæla hlaut 61 stig.
Umf. Dagrenning hl. 10 stig
Umf. Stafholtstungna hl. 7 st.
DRENGIR:
50 m. frjáls aðferð.
1. Þórir Jónsson, R. 39,1
2. Þoi'valdur Jónsson, • R. 44,1
3. Hafsteinn Ingólfsson, D. 51,0
L-r.MOOm. bringusund. .
■lV 'ÞbfVfflchii' .Tónssoh',- R. 1:51.8
2. Hafsteinn Ingólfss. D. 1:55,1
3. Eiríkur Jónsson, R. 2:07,0
Stig í drengjasundi: Umf.
Reykdæla 13 stig. Umf. Dag-
renning 5 stig.
^BBB^pil wpMHpt
Sendibltl 1282.
Stotionblll m
Skodr
FBJCIA Sportblll OKTAVIA Fólksbm
TRAUST BODVSTAL - ORKUMIKLAR OG
VIÐURKENNDAR VELAR- HENTUGAR
ISLENZKUM AÐSTÆÐUM - LAST VERO
FÓSTSENDUM UPPLÝSINSAR
TÉKKNESKA BIFREIDAUMBODIð
LAUGAVEGI 17«• SÍMI 57881
Sunnudagur 15. júlí 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (Q