Þjóðviljinn - 27.09.1962, Qupperneq 12
Þjóðviljinn
Fimmtudagur 27. september 1962 — 27. árgangur — 209. tölublað.
LEGGJUNUM
VOPNAFIRÐI 26/9 (Frá
fréttaritara) — Fyrstu
giinguin er nú lokið hér um
slóðir. Lömb virðast með
rýrara móti en fullorðið fé
sæmilega útlítandi.
Gangnamenn fundu á
leið sinni nokkur hreindýr
hálfdauð eða dauð. Lóg-
uðu þeir tveim eða þrem,
sem voru alveg reisa af
megurð. Giíkað er á að
ormaveiki valdi þessum
hreindýradauða.
Nýkomin
Hreindýrin hafa verið að
nema hér land á síðustu
árum. Fá þau liér betri
haga en í eldri heimkynn-
um sínum.
Einn gangnamaður, Ein-
ar Runó'.fsson á Ásbrands-
stiiðum, gekk fram á hrein-
dýr sem virðist hafa dreg-
iít áfram síðan í vor á
blóðugum Iegg.iak.júkunum.
Var að s.iá að klaufirnar
hefðu kalið af þvi á iill-
uni fótum allt upp að
léggjahöfðum. Gizka menn
á að dýrið hafi lent í sjálf-
heldu þar sem það stóð
í yatni í frostum i vor.
Dýr þeita sem svo illa
var leikið var nýlega dautt
þegar Einar fann það á
Háreksstaðahálsi.
Girni særir kind
Einar fann einnig í göng-
unum kind sem hafði lent
með fótinn i lykk.ju á
nælonþráðarspotta. Hafði
girnið herzt að fætinum
ofan við klaufirnar og
skprizt þar inn í bein. Er
þetta víti til varnaðar fyr-
ir fiskimenn að fleygja
ekki frá sér spottum úr
svona efni á víðavangi þar
sem þeir geta orðið að
skaða
Negrum meinuð
skóluvist í USA
OXFORD, Mississippi 26/9 — Bandaríska blökku-
stúdentinum James Meredith var í dag meinað í
þriðja sinn að hefja háskólanám í Mississippi-há-
skólanum í Oxford. Yfirvöld í Mississippi eru á-
kveðin í að halda kynþáttamisréttinu áfram, enda
þótt blökkufólk eigi rétt á námi samkvæmt banda-
rískum lögum.
Hótíðasamkoma
ó laugardaginn
Seint í gærkvöld eða nótt voru Anna Borg og Paul
Reumert væntanteg hingaö til Reykjavíkur. Hjónin veröa
| heiöursgestir Norræna félagsins á íslandi á hátíöarsam-
komu í Þjóðleikhúsinu n.k. laugardagskvöld, en til sam-
komunnar er efnt í tilefni 40 ára afmælis félagsins
þann dag. Sjá þau hjón um aöalskemmtiatriöin á sam-
komunni, en auk þeirra koma fram m.a. tónlistamenn
frá Noregi og Svíþjóö.
Sósíalistar, Kópavogi
Félagsfundur í Þinghól
föstudaginn 28. þ.m. kl. 8,30
e.h. Fundarefni; bæjarmál
og félagsmál.
STJÓRNIN.
Anna Borg mun lesa upp sög-
una Soninn eftir Gunnar Gunn-
arsson og kvæðið um hina fimm
norrænu svani eftir danska
skáldið Seedroff Pedersen. Poul
Reumert les kvæðið Þorgeir í
Vik eftir Ibsen og bæði flytja
þau saman siðastá þáttinn í
leikriti Jóhanns Sigurjónssonar
Fjalla-Eyvindi. Önnur skemmti-
atriði verða þau, að ungur
norskur þaritonsaungvari,
Olav Eriksen, syngur einsöng
við undirleik Árna Kristjáns-
sonar, þá ieikur sænski fiðlu-
leikarinn Crafood einleik á fiðlu
og aðstoðar kona hans á píanó.
Kristinn Hallsson syngur finnsk
Framhald á 11. síðu.
Meredith kom til Oxford í
fylgd með lögfræðingi frá banda-
ríska dómsmáiaráðuneytinu. Áð-
ur hafði stjórnin í Washington
og dómstólarnir kveðið upp úr-
skurð að kynþáttamisréttið við
háskólana í suðurríkjunum væri
ólöglegt, og að Meredith iskyldi
fá innritun í háskólann ef hann
óskaði þess.
Ríkisstjóri á vettvang
Ríkisstjórinn i Mississiþpi.
Ross Barnett. hefur sjáifur haft
sig mjög í frammi í þessu máli.
Hefur hann gefið hávaðasamar
yfirlýsingar um það að hann
kjósi heldur að láta setja sig í
fangelsi en að heimila b’.ökku-
fólki sömu réttindi og hvítum
mönnum. Jafnframt skorar hann
á alla aðra embættismenn í
Mississippi að gefa sams konar
yfiriýsingar, en segja af sér
embætti ella. Þá hefur þessi rík-
isstjóri sjálfur Staðið við inn-
gang háskólans og tvivegis mein-
að Meredith inng'öngu í háskóla-
bygginguna.
Ofurefli við innganginn
Þegar Meredith kom til há-
skóians í dag, voru sex ríkis-
lögreglumenn i fylgd með hon-
um. Þar voru þá fyrir þrír bíl-
ar umferðarlögreglunnar í Miss-
issippi, og hafði þeim verið lagt
fyrir innganginn. Barnett ríkis-
stjóri var sjálfur ekki til staðar
í þetta 'Sinn, en í hans stað var
Paul Johnson vararíkisstjóri á
Barnett ríkisstjóri.
staðnum. Hann neitaði fjórum
sinnum tilmælum fulltrúa dóms-
málaráðuneytisins um að hleypa
Meredith inn. Urðii Meredith og
fylgdarmenn hans að víkja fyr-
ir ofurefiinu og hverfa á brott
við svo búið.
Framhald á 11. síðu.
Hin„ raunhœfa kjarabar-
átta" gerðardómsmanna
Úvenjulegur atburður í Reykjavík:
Faðirinn tók ó
móti syni sínum
í gær íæddist hjónunum Guð-
þjörgu Hannesdóttur og Ragn-
ari Jakobssyni rafvirkja,
Grundargerði 16 sonur, sem
ekki er ■{ frásögu færandi, ef
iæðinguna hefði ekki borið
svo brátt að, að ljósmóðirin,
sem þó brá fljótt við, er á hana
var kal að, var ekki komin í
*æka tíð og tók faðirinn sjálfur
-á móti barn nu Mun það ó-
venjulegt hér í Reykjavík
a.m.k. að feðurnir ta.ki sjálfir
4 móti börnum slnum, enda
hætt við. að það yrði lítið úr
mörgum þeirra við þann starfa.
Fréttamaður hjá Þjóðviljan-
íum hringdi í Ragnar í gærkvöld
og spurði hann hvernig fæð-
ingin hefði gengið. Sagði hann,
að hún hefði gengið ágætlega
og móður og barni heilsazt vel.
Lét hann lítið yfir því, þótt
hann hefði orðið að taka að sér
ljósmóðurstarfið enda orðinn
því vanui', því eins og hann
sagði: Þetta er þriðja þarnið
sem ég hef feng ð sjálfur upp
í hendurnar. Konan er svo fljót
að þessu, að ljósmóðirin var
ekki kornin, þótt ekkert stæði
á henni að koma. Þetta er
sjötta barn þeirra Guðbjargar
og Ragnars og hefur hann því
tekið á móti helmingi barna
sinna sjálfur lijá konu! sihnL
Blöð gerðardómsflokkanna
halda áfram að hamast út í
þá forystumenn verkamanna
og sjómanna, sem beitt hafa
sér fyrir bættum kjörum
þessara stétta undanfarið. Og
svo upphef.ja þau vaðal um
eigin baráttu fyrir „raunhæf-
um“ kjarabótum. í málefn-
um sjómanna hafa bæði hin
„raunhæfa kjarabarátta‘‘ og
lýðræðisást þeirra komið
fram. I>að er rétf að líta að-
eins á „afrekaskrána“ h,iá
þeim í ár.
★
í vetur Ieið flutti ríkis-
stjórnin lagafrumvarp á Al-
þingi um gerðardóm til þess
að ákveða fiskverð til sjó-
manna, en þeir voru áður
samningsaðilar um verðið.
Einn ákafasti talsmaður þessa
frumvarps var Pétur Sig-
urðsson (ætli sjómenn kann-
ist við kauðann?) og hélt
hann því meðal annars fram,
að sjómenn liefðu ,iú eftir
sem áður samningsréttinn í
sínum höndum. Þeir semdu
bara um hlutaskiptin við út-
gerðarmeuu, en fiskverðið
skyldi svo sannarlega ákveð-
ast af gerðardómi. Og allir
þingmenn stjórnarflokkanna
sameinuðust um það að taka
þennan samningsrétt af sjó-
miiinnum.
Og svo kom að kjarasamn-
ingum á sumarsíldveiðum. I>á
setti Emil Jónsson GERÐAR-
DÓIVISLÖG til þess að bjarga
fjárkúgurum LÍÚ frá því að
g’ef^st upp fyrir1 samtaka-i
mætti bátasjómanna, sem
ráðnir voru í að láta ekki
kúga upp á sig vcrrj kjiiruni
en verið hiifðu. En til þess
að tryggja það, að kröfur
LÍÚ um Iækkuð kjiir sjó-
manna næðu fram að ganga,
skreið Jón Sigurðsson (ætli
sjómenn kannist við hann?)
inn í gerðardóminn, í stað
bess að fylkja sjómanna-
samtökunum til baráttu gegn
beim og hindra þannig, að
hinar ósvífnu kriifur LÍÚ-
valdsins næðu frant að ganiga.
— Jú. þeir hafa svo sannar-
lega bað „raunhæfa kjara-
baráttu“ —
sjómenn.
fyrir aðra en
Ekki er hún beldur „klén“
lýðræðisást þessara siimu
verkalýðsforingja. Á kjiirskrá
Sjómannafélags Reykjavíkur
eru tugir manna, sem ekki
hafa á sjó komið árum sam-
an. Það gerir svo minna til
þótt starfandi sjómenn. séu
ekki í félaginu. Landliðið
sér um lýðræðið.
Og aðeins eitt dæmi enn
um lýðræðisástina. í togara-
verkfallinu i vetur (og- sum-
ar má víst segja) var ekki
haldinn einn einasti fundur
enda stóð verkfallið’
nú heldur ekki nema rúm-
lega þrjá mánuði. svo það var
kannski varla von, að
tími ynnist til að lialda fund.
Gerðardómsmenn eru alltaf
önnum kafnir og mega ekki
eyða alltof miklum tima í
að hlusta á starfandi sjómenn
á almennum félagsfundi. l>á
hefðu þeir líklegast engan
tíma ti! þess að setja gerðar-
dómslög og sitja í gerðardóm-
ilm!