Þjóðviljinn - 05.10.1962, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 05.10.1962, Blaðsíða 5
I Vinarbcrg 12 ár saklaus Þúsundir blaðadálka hef- ur blaöamaður einn í Vín- arborg skrifaö á síöustu ár- um, 1 því skyni að sannfæra dómsyfirvöldin um að sak- ]aus maður hafi setið í 12 ár saklaus bak við fang- elsisgrindurnar. Nú hefur hann loks hlotið þá upp- skeru erfiöis síns, afi mál fangans veröur tekið upp að nýju. í þessum mánuði verður tek- ið fyrir að nýju mál Erich Rebitzer sem fyrir 12 árum var dæmdur í ævilangt íangelsi fyr- ir þrefalt morð. Hann er nú 37 ára gamall. Það var árið 1948. 1 Fochler- Múhle í N eðra-Austurr íki var 3ja manna fjölskyida að nafni Mullei' myrt. Enda þótt rúm- iega milljón schillingar hefðu horfið úr herbergi fjölskyldunn- ar þar sem morðin vorai fram- in, þá var lögreglan þeirrar skoðunar í hálft annað ár að um sjálfsmorð heíði verið að ræða. Orðrómur varð til þess að að málið var tekið til rannsókn- ar að nýju, og það varð til þess að Erich Rebitzer var handtek- inn. Rebitzer játaði sekt sína en tók játninguna aftur eftir fá- einar klukkustundir, og fullyrti , einarðlega að hann væri sak- laus, allt þangað til aðalréttar- höidin hófust óg allt fram á þennan dag. Þegar hann var dæmdur þótt- ust dómarar hafa fundið Hkur fyrir sekt hans. Herra Muller, sem myrtur var, var skyldur Rebitzer og hafði komið í veg fyrir að hann hlyti arf. Ákær- andinn hélt því fram að Rebit- zer hefði viljað hefna þess. Ái'um saman hefur blaðamað- urinn Gustav Adolf Neumann i Vín með fjölmörgum greinum leitazt við að sýha fram á hald- leysi þeirra sannana sem leiddu til iífstíðarfangelsisins. Honum tókst að finna mikilsvarðandi vitni, sem aldrei voru yfirheyrð í réttarhöldun um. Hann hefur einnig kcmizt yfir kvikmynd, sem lögreglan 3ét gera af morðstaðnum meðan verið var að rannsaka morðin. Á myndinni sést m.a. klukka, og tíminn sem hún sýnir senn- ar að Rebitzer hlýtur að vera saklaus. Rebitzer hefur fjarvist- arsönnun íyrir þann tíma er morðið er framið. * Bátasala * Fasteignasala * Skipasala * \ átryggingar og verðbréfa- viðskipti. JÓN Ó. HJÖRLEIFSSON, viðskiptafræðingur. Tryggvagötu 8, 3. hæð. Símar 17270 — 20610. Heimasími 32869. H Ú S G Ö G N Fjöíbreytt árvaL Póstsendam. ftxel Eyjólfsson, ■kipholtl 7. Síml 1*111. ALUMINIUM Sléttar, báraðar og munstraðar plötur. Prófilar og rör. — Létt og sterk. Laugavcgi 178 — Sími 38000. VERKAMENN geta f engið' ‘ fasta' átvinnu. Járnsteypan Iif. Ánanaustum. — Sími 24407. Þvottakona óskast til hreingerninga í prentsmiðju. ÞIÓÐVILJINN tP Nýjungar í flugvélagerð Nszister þinga Miinchen — Um siðustu helgi var haldinn fundur fyrrvcrandi SS-manna í Bad Windsheim í Franken í Vestur-Þýzkalandi. Þessi samkoma gömiu nazist- anna var haldin fyrir luktum dyrum. Ekkert hefur verið látið uppi um umræður eða viðfangsefni l'undarins, en forráðamenn hans hafa greint frá því að SS-menn ; frá öðrum löndum hafi einnig verið þátttakendur. Þá bárust einnig heillaskeyti frá gömlum SS-mönnum á Norðurlöndum. Á sama tíma var haldið í Bad Godesberg við Bonn mót þeirra sem verðlaunaðir voru með ridd- arakrossi af Hitler. Hinn al- ræmdi NATO-hershöfðingi hans Speidel sendi samkomu þessari skevti þar sem segir m.a. að „herir Atlanzhafsbandalagsins í Þýzkalandi meti mikils riddara- mennsku og hermennskuhæfi- leika þeirra sem bera riddara- krossinn“. Speidel var einn af nánustu samstarfsmönnum Hitlers, m.a. hernámsstjóri í Frakklandi á heimstyrjaldarárunum. Nú er hann yfirmaður alls herafla Atlanzhafsbandalagsins í Mið- Evrópu. APN-fréttastofan greinir frá því, að tvær nýjar tegundir af sov- ézkum flugvélum séu í þann veg- inn að koma í notkun. Hér cr um að ræða merkar nýjungar í flugvélagerð. önnur er risastór farþegaþota „IL-62“. Hún flýgur' meö 900 km. hraða á klukkustund og jafnaði og rúmar 182 farþega. Farþegarýmið er á tveim hæð- um. Á neðri hæðinni er eldhús með nýtízku rafmagns-eldhúsá- höldum, veitingaborði og kæli- skápum. Einangrun flugvélarinnar er slík, að inni í henni heyrist svo að segja enginn hávaði. Á efri hæðinni er aðalfarþegarýmið. Sovétmenn hyggjast láta flug- véiar af þessari gerð vera í förum rnilli Moskvu og New York, og verður hvergi lent á leiðinni. Það er hinn kunni flug- vélaverkfræðingur S. Iljusjín, sem hefur ráðið gerð og smíði þessarar nýju vélá. I *Stn/iSJAVÍNMUSTOfA OO HtHifiUBU Nýjar þyrlur"" Þá hefur M. Mils-samstarfs- nefnd flugvélaverkfræðinga látið írá sér fara nýja tegund af þyrl- um, „MI-6“ og „V-8“. MI-6-þyrl- an er ætluð til þungaflutninga á langleiðum. V-8 getur flutt 24 farþega, en einnig er hægt að útbúa hana sem sjúkrahús og tekur hún- þá 14 sjúklinga. V/0 „EXP0RT- LJ0N“ flytur út margvíslegar teg- undir af sovézkum baðm- ullardúki, spunnu rayon- efni, silki og lérefti í fögr- um nýtízku litum og mynstrum fyrir allra þarfir. Skrifið til okkar: ,EXPORTL|ON‘ Smolenskaja pl., 32/34 Moscow, G-200, USSR. Föstudagur 5. október 1962 — ÞJÓÐVILJINN —

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.