Þjóðviljinn - 09.10.1962, Síða 5

Þjóðviljinn - 09.10.1962, Síða 5
MENNT ER MÁTTUR Notið f rístundirnar tiE hagkvæms náms í Bréfaskóla S í S 1. Skipulag og starí'shættir samvinnuféiaga: 5 bréf. Kennslugjald kr. 100 00. Kennari er Eiríkur Pálsson, lögfræðingur. 2. Fundarstjórn og fundarreglur: 3 bréf. kennslugjald kr. 200 00. Kennari Eiríkur Pálsson. 3. Bókfærsla I, byrjendaflokkur: 7 bréf. Kennslugjald kr. 350.00. Kennari Þorleifur Þórð- arson, forstjóri. 4. Bókfærsla II: 6 bréf, framhald fyrra flokks, sami kennari. Kennslugjald kr. 300.00. 5. Búreikningar: 7 bréf og bókin: „Leiðbeining- ar um færslu búreikninga". Kennari er Eyvindur Jónsson, búfræðingur. Kennslugjald kr. 150 00. 6. íslenzk réttritun: 6 bréf eftir kennarann Sveinbjörn Sigurjónsson, magister. Kennslugjald kr. 350.00. 7. íslenzk bragfræði: 3 bréf eftir kennarann Sveinbj. Sigurjónsson, mag. Kennslugj. kr. 150.00. 8. íslenzk málfræði: 6 bréf eftir kennarann Jón- as Kristjánsson, cand. mag. Kennslugj. kr. 350.00. 9. Enska I, byrjendaflokkuT: 7 bréf og ensk les- bók. — Kennari er Jón Magnússon, fíl. cand. Kennslugjald kr. 350.00. 10. Enska II: 7 bréf, auk leskafla, orðasafns og málfræði. Framhald fyrra flokks, sami kennari. Kennslugjald kr. 300.00. 11. Danska I, byrjendaflokkur: 5 bréf og Litla dönskubókin eftir kennarann Ágúst Sigurðsson, cand. mag. — Kennslugjald kr. 250.00. 12. Danska II: 8 bréf og kennslubók í dönsku eftir kennarann. Kennslugjald kr. 300.00. 13. Danska III: 8 bréf, svo og kennslubók, les- bók, orðasafn og stílhefti eftir kennarann. — Kennslugjald kr. 450.00. 14. Þýzka: 5 bréf, þýdd og samin af kennar- anum Ingvari Brynjólfssyni, menntaskólakennara, Kennslugjald kr. 350.00. 15. Franska: 10 bréf, þýdd og samin af kennar- anum Magnúsi G. Jónssyni, menntaskólakennara. 16. Spænska: 10 bréf, þýdd og samin af kennar- anum Magnúsi G. Jónssyni, menntaskólakennara. Kennslugjald kr. 450 00. 17. Esperanto: 8 bréf. Kennslugjald kr. 200.00. 18. Reikningur: 10 bréf. Þorleifur Þórðarson kennir. Kennslugjald kr. 400.00. 19. Algebra: 5 bréf eftir kennarann, Þórodd Oddss. menntaskólakennara. Kennslug. kr. 300.00. 20. Eðlisfræöi 6 bréf eftir kennarann vSigurð Ingimundarson, efnafr. Kennslugj. kr. 250.00. 21. Mótorfræði I: 6 bréf. Kennari: Andrés Guð- jónsson. Kennslugjald kr. 350. 22. Mótorfræði II. 6 bréf. Kennari: Andrés Guð- jónsson. Kennslugjald: kr. 350.00. 23. Siglingafræði: 4 bréf. Kennari Jónas Sigurðs- son stýrimannaskólakennari. Kennslugj. kr. 350.00. 24. Landbúnaðarvélar og verkfæri: 6 bréf. Kennari: Gunnar Gunnarsson. Kennslugjald kr. 150.00 25. Sálarfræði: 4 toréf, þýdd og tekin saman af kennaranum dr. Brodda Jóhannessyni og frú Val- toorgu Sigurðardóttur. Kennslugjald kr. 200.00. 26. Skák I. byrjendaflokkur: 5 bréf á sænsku. Kennari: Sveinn Kristinsson. Kennslugjald kr. 200.00 27. Skák II: 4 bréf. Kennari: Sveinn Kristins- son. Kennslugjald kr. 200.00. 28. Starfsfræðsla: Bókin „Hvað viltu verða“. Ólafur Gunnarsson, sálfræðingur svarar bréfum nemenda og gefur upplýsingar og leiðbeiningar vaxðandi starfs- og stöðuval. Kennslugj. kr. 200.00. Bréfin eru samin og svörin leiðrétt af ágætum kennurum í hverri grein. Skólinn leggur ekki til svara- og verkefnahefti, en mælist til, að nenrendur noti litlar stilabækur eða laus blöð. Áherzlu ber að leggja á það, að ganga sem bezt frá svörunum, skrifa greinilega og hafa spássiu fyrir leiðréttingar. Það er góð regla að skrifa aðeins í aðra hverja linu. Nemandi getur tekið eina námsgrein eða fleiri eftir því sem ástæður hans leyfa. Um leið og hann sækir um kennslu í einhverri grein, sendir hann kennslugjaldið fyrir þá námsgrein, eða vott- orð frá Sambandsfélagi um, að hann hafi greitt því kennslugjaldið, eða biður um fyrstu náms- bréfasendingu í póstkröfu. Nemandi verður að gæta þess, að gefa upp greinilegt heimilisfang. Nemanda eru svo send tvö fyrstu bréf námsgrein- arinnar. Hann svarar fyrst bréfi nr. 1 og sendir það til baka. Svarar bréfi nr. 2 meðan hann bíður eftir svari Bréfaskólans. Þegar skólinn fær svar nr. 1, sendir hann nemanda bréf nr. 3 og 1. bréf leiðrétt. Þegar skólinn fær svar nr. 2 sendir hann nemanda bréf nr. 4 og leiðrétt bréf nr. 2, og svo koil af kolli, þangað til flokkurinn er búinn. Svar við hverju bréfi verður að vera komið til skólans eigi síðar en 3 mánuðum eftir að bréfið var sent út. Annars verður litið svo á, að nem- andi hafi hætt námi, og hefur hann þá fyrirgert kennslugjaldi sínu. Undanþágu frá þessu getur skólinn veitt, ef ætla má, að póstsamgöngur hafi hamlað, eða nemandi hafi verið veikur. Innan þessara tímatakmarka ræður nemandi þvi sjálfur, hve mikill námshraði hans er, en heppilegast er fyrir hann að svara bréfunum eins fljótt og hann getur. Nýir nemendur fá inngöngu, hvenær sem er á starfstíma skólans. Þegar nemandi hefur lokið námi, fær hann vott- orð um það frá skólanum. Nemendur verða að skuldbinda sig til að sýna ekki óviðkomandi mönnum bréf skólans, né svör. Bréfaskólar eru mikið notaðir erlendis. Sam- vinnusambönd nágrannalanda okkar reka flest bréfaskóla. Þeir eru hentugir fyrir fólk á öllum aldri og hvaða atvinnu, sem það stundar. Nem- andinn getur notað frístundir sínar hvenær sem þær eru, til að lesa bréfin og svara þeim. Hann ræður sjálfur að miklu leyti námshraða sínum. Á þann hátt notast frístundirnar miklu betur en í venjulegum skólum. Bréfaskólarnir hafa og þann kost, að fól'k, sem búsett er á stöðum, þar sem lítið er um kennslukrafta, getur á þennan hátt notið kennslu færustu manna í hverri grein. Margir ágætir menn hafa sótt menntun sina í bréfaskóla. í ýmsum löndum eru skólarnir orðnir svo fullkomnir, að þeir kenna allt, sem þarf til stúdentprófs og í sumum greinum til háskóla- prófs. Þetta kennslufyrirkomulag hefur alls stað- ar reynzt mjög vel. TAKIÐ EFTIR. — Bréfaskóli SÍS veitir ungum og gömlum, konum og körlum, tækifæri til að nota frístundimar til að afla sér fróðleiks, sem allir hafa gagn af. Með bréfaskólanámi getið þér bætt yður missi fyrri námsára, aukið þekkingu yðar og möguleika á að komast áfram í lífinu. Þér getið gerzt nemandi, hvenær ársins sem er, og eruð ekki bundinn við námshraða annarra nemenda. Bréfaskóli S.Í.S. býður yður velkominn. Utanáskrif Bréfaskólans er: Bréfaskóli S.Í.S. Reykjavík. Undirritaður óskar að gerast nemandi í cftirtöldum námsgreinum: []] Vinsamlegast sendið gegn póstkröfu. ! j Greiðsla hjálögð kr. nafn heimilisfang Sd w X ÍH > P5 W K- *n > W o> r * g •z vK'r f . •: • . i « (- . • Þriðjudagur 9. október 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (5

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.