Þjóðviljinn - 14.11.1962, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 14. nóvember 1962
ÞJÓÐYILJINN
SIÐA 3
Foríngi leyniþjónustu USA á Kúbu segir frá:
Undirbjuggu spellvirki og morð
meðan verið var að semja
'WVWWVWWWWWWWWVWWVWWWVWV\A/WWWWWW\/V\NAANWWVWWWWWWW
HAVANA og NEW YORK 13/11 — Það hefur
komið á daginn að eftir að samningaviðræður um
friðsamlega lausn Kúbudeilunnar voru hafnar á
vegum Sameinuðu þjóðanna, undirbjuggu úfsend-
ir erindrekar bandarísku leyniþjónustunnar C.I.A.
skemmdarverk og morð á Kúbu, sem áttu að lama
efnahagslíf landsins. Foringi erindrekanna sem
leyniþjónustan sendi til Kúbu hefur verið handtek-
inn og hann leysir frá skjóðunni í viðtölum sem
blöðin í Havana birta í dag undir stórum fyrir-
sögnum.
Flugumaður þessi heitir Miguel
Angel Orozco Crespo. Hann /ar
handtekinn ásamt félaga sínum,
Pedro Vera Ortiz, 2. nóvember,
en þeir höfðu verið settir á land
á Kúbu 20. október s.l., rétt áð-
/ stuttu múli
NÝJU DELHl 13/11 — Efri
deild indverska þingsins sam-
þykkti í dag einróma stefnu
stjórnar Nehrus i landamæra-
deilunni við Kínverja og sam-
þykkti ályktun um að halda
baráttunni áfram þar ti! „allir
Kínverjar hefðu verið hraktir
af indverskri grund“ f bardaga
sló á báðum vígstöðvunum í dag.
BONN 13/11 — Adenauer for-
sætisráðherra lagði af stað til
Washington i dag. en >ar mun
hann ræða við Kennedy forseta
um ýms alþjóðamál en þó fyrst
og fremst BerlínarmáHð
LONDON 13/11 — Verkamanna-
flokkurinn bar í dag fram til-
lögu um vantraust á stjórnina
fyrir þá ákvörðun hennar að láta
sprengja brezka kjarnasprengju
neðanjarðar i Nevadaeyðimörk.
LEOPOLDVILLE 13/11 —
Starfsmaður SÞ > Leopoldville
sagði í dag að könnunarfugvél-
ar SÞ hefðu staðfest að flug-
vélar úr her Katangastjórnar
hefðu gert árásir á skotmörk i
Norður-Katanga á laugardag-
inn. en sá hluti fylkisins er á
valdi sambandsstjórnar Kongó.
ur en Bandaríkjastjóm hóf of-
beldisaðgerðir sínar gegn Kúbu.
Höfuðverkefni þeirra og annarra
félaga þeirra \ar að vinna spell-
virki gegn mikilvægum miðstöðv-
ur efnahagslífsins á eynni. Hin-
ir í hópnum, Conrado Caballero,
Angel Hemandez, Luis Sierra og
Orlando Garcia, fóm aftur frá
Kúbu eftir tvo daga, sem notað-
ir höfðu verið til að fela vonn
og sprengiefni.
Þjálfaður í Guatemala og
Panama
Crespo segir í viðtölum sem
Havanablöðin birta frá því sem
á daga hans hefur drifið, síðan
hann fór frá Kúbu í maí 1959.
.Hann gerðist ejrindreki í banda-
rísku leyniþjónustunni og var
bjálfaður á hennar vegum í
Guatemala undir hina mis-
h/ppnaður innrás á "'Rúbu ’f apríl
í fyrra.
Hann lýsir nákvæmlega að-
ferðum leyniþjónustunnar við uð
fá landflótta Kúbumenn til að
gerast flugumenn hennar og líf-
inu í Guatemala, hemaðarþjálf-
un sinni í Panama og síðar á
ey einni undan vesturströnd
Florida.
Áttu að valda Kúbumönn”m
sem mestu efnahagstjóni
Samtímis þvi sem Crespo og
rnenn hans voru settir á land,
■; kk annar hópur spellvirkja á
land á eynni. Hlutverk hans var
a Z fremja skemmdarverk á
Matahambre-koparnámunum í
Pinar del Rio-fylki og nikkel-
námunum í Nicaro í Oriente-
fylki. Tilgangurinn var að va--a
Kúbumönnum sem mestu efna-
hagstjóni, segir Crespo í viðtöl-
unum.
I Matahambre var ætlunin að
koma fyrir sprengjum undir
staurum línubrautarinnar sem
flytur málminn frá námunum til
hafnarborgarinnar Santa Lucia.
Stauramir hefðu rifið með sér
háspennutaugina og lofthreins-
unartæki í námunum hefðu eyði-
lagzt. Gert var ráð fyrir að það
myndi kosta 400 námumenn líf-
ið og stöðva námugröftinn um
langan tíma.
Með aðstoð njósnaflugvéla
Þá skýrir Crespo frá því að
skemmdarverkin hafi verið -nd-
irbúin með hliðsjón af ljós-
myndum sem teknar höfðu verið
ú. bandarískum U-2-njósnaflug-
vélum. Crespo var sjálfur í hópi
þeirra sem lögðu á ráðin um
skemmdarverkin. en þeim var
stjómað af Bandaríkjamanni,
sem nefndist Bob Wall.
ögrunaraðgerð gegn Nicaragua
Þá hafði leyniþjónustan einnig
undirbúið árás á Nicaragua og
átti að láta líta svo út, sem
Kúbumenn stæðu að henni, og
nota hana síðan sem tilefni til
árásar á Kúbu. Þá hafði einnig
verið ráðgert að taka eyna Cayo
Romano undan strönd Kúbu og
setja þar á laggimar bráða-
birgðastjóm. sem Bandaríkin
áttu síðan að viðurkenna og
veita stuðning.
EkkJi í fyrsta skipti
Flugumenn bandarísku leyni-
þjónustunnar voru sem áður
segir handteknir 2. nóvember,
eða eftir að samningaviðræður
um friðsamlega lausn Kúbudeil-
unnar voru hafnar á vegum
Sameinuðu þjóðanna og er þetta
ekki í fyrsta skipti sem banda-
ríska leyniþjónustan fer sínu
fram, hvað svo sem Bandaríkja-
stjóm lætur í veðri vaka á al-
þ j óðavettvangi.
Sameiginlegar tillögur Sovét-
ríkjanna og Kúbu
Af viðræðunum í New York
er það að segja, að Sovétríkin
og Kúba hafa lagt fram sameig-
inlegar tillögur til lausnar deil-
unni, en ekki er enn vitað hverj-
ar þær eru. Fulltrúar stjóma
þeirra í New York ræddu í dag
í fyrsta sinn sameiginlega við
Ú Þant. framkvæmdastjóra SÞ,
og lögðu fyrir hann tillögumar,
sem munu vera niðurstaða af
viðræðum Mikojans og Castros
í Havana.
Spiegel - málið
Vantraust á Strauss
bor/8 fram á þingi
BONN 13/11 — Flokksstjóm sós-
íaldcmókrata í Vestur-Þýzka-
Iandi hefur ákveðið að berafram
tillögu á þingi um vantraust á
Franz-Josef Strauss landvama-
ráðherra vegna afskipta hans af
Spiegel-málinu.
Strauss viðurkenndi á þingi í
síðustu viku að hann hefði fyr-
irskipað hermálafulltrúa Vestur-
Þýzkalands í sendiráðinu í Mad-
rid að tilkynna spænskum yfir-
völdum að Conrad Ahlers, einn
af blaðamönnum vikuritsins Dcr
Spiegel sem var 1 orlofi á Spáni,
væri grunaður um landráð og
þess vegna hefði verið lýst eftir
honum. Spænska lögreglan hai d-
tók Ahlers í algeru heimildar-
leysi og sá um að hann væri
sendur til Vestur-Þýzkalands.
Ollenhauer, leiðtogi sósíal-
demókrata, sagði að tímabært
væri orðið að bera fram van-
traust á stjórn Adenauers til að
ganga úr skugga um hve langt
stiómarflokkamir vildu ganga
til að biarea Strauss.
'UjttyerÉcirrnenn - dSátaei^endi
rr'
Með hinum heimsþekktu Perkins diesel■
vélum býðst yður:
Óumdeild tœknileg gceði. —
® Bezta verðið á markaðnum. —
® Þrautreyndar vélar. —
Perkinsverksmiðjurnar eru stœrsti
framleiðandi heims í dieselvélum af
stcerðunum 30—125 hö. — sem báta-
vélar, Ijósavélar o.s.frv.
125 ha. bátavélin 6.354M með sjófor-
kceldu ferskvatnskerfi, olíuskiþtum gir-
kassa og niðurfcerslu 2:1, kostar aðeins
um 127 þúsund krónur með tollum. —
87 ha. iðnaðarvélin 6.3051, sem notuð
er sem Ijósavél, með frystivélum o.
s. frv. kostar aðeins um 55 þúsund
krónur með tollum.
0JP
dSó
LEITIB NANARI UPPLYSINGA,
Drótfarvélar h.f.
Það hafa gerzt svo mikil tíð-
indi undanfamar vikur að
lítið hefur borið á fregnum af
því sem gerzt heíur á þingi
Sameinuðu þjóðanna, og hef-
ur þó verið full ástæða til að
veita sumum þeirra athygli.
Þetta á einkum við um um-
ræður þingfulltrúa um til-
raunir með kjamorkuvopn og
einróma samþykkt þingsins
að þeim loknum að skora á
kjamorkuveldin að hætta
slíkum tilraunum frá og með
næstu áramótum. Sú tillaga
hlaut einróma samþykki á
þinginu, enda þótt ekki Tæri
algert samkomulag um orða-
lag hennar og sumir sætu því
heldur hjá við atkvæðagreiðsl-
una. Þau málalok sýna bæði
að enginn treystir sér til þess
að mæla kjamasprengingun-
um bót og mega einnig telj-
ast vottur þess. að betri horf-
bandarískir og brezkir en sov-
ézkir, hafa vefengt þessa
kenningu og haldið því fram
að með nýjustu mælitækjum
megi úr mikilli fjarlægð
ganga ömgglega úr skugga
um hvort kjamasprenging
hafi átt sér stað eða ekki. Á
hinni svonefndu Pugwash-
ráðstefnu vísindamanna sem
haldin var í London í haust,
en þar voru ýmsir nafntog-
uðustu vísindamenn heimsins
bæði úr austri og vestri, var
komizt að þeirri niðurstöóu,
að auðveld lausn á ágrein-
ingi stórveldanna um eftirlit
með sprengingatanni væri að
komið yrði upp sjálfvirkum,
innsigluðum mælitækjum í
öllum þeim löndum, sem bú-
ast mætti við að sprengingar
væm gerðar í. Þessi innsigl-
uðu mælitæki yrðu síðan með
vissu millibili send alþjóð-
Meirí likur á banni
viðkjarnatíiraunum
ur séu á samkomulagi milli
stórveldanna um bann við
slíkum tilraunum en verið
hefur.
Krústjoff, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, tilkynnii 7.
nóvember að sovézku til-
raunalotunni myndi lokið 20.
nóvember, og Kennedy Banda-
ríkjaforseti hefur sagt, að - 1-
raunum Bandaríkjanna í and-
rúmsloftinu sé lokið að þessu
sinni, en hann áskildi stjóm
sinni rétt til að halda áfram
sprengingum neðanjarðar. I
umræðunum á þingi SÞ kom
greinilega f ljós, að meiri-
hluti fulltrúa þar með hlut-
lausu ríkin í broddi fylkingar
var þoirrar slcoðunar að hætta
ætti þegar í stað og a.m.k. frá
áramótum, öllum tilraunum
með kjamavopn, í andrúms-
loftinu, úti f geimnurn,' neðah-
sjávar sem neðanjarðar. Á
það sjónarmið gátu Sovétrík-
in, ein kjarnorkuveldanna,
fallizt, enda hafa þau jafnan
talið, að ekki sé hægt að
gera greinarmun á sprenging-
unum eftir því hvar þær eru
gerðar, þótt þau hafi ekki
neitað hinu, að sprengingar
í andrúmsloftinu séu eitraðri
en þær sem gerðar eru undir
yfirborði jarðar. Röksemd
þeirra hefur verið, að fyrir
alla muni beri að binda enda
á vígbúnaðarkapphlaupið og
það verði þvi aðeins gert, að
allar tilraunir með kjarnavopn
séu bannaðar.
Vesturveldin hafa hins veg-
ar haldið því fram, að ekki
sé hægt að tryggja að staðið
sé við gerða samninga um
bann við sprengingum neðan-
jarðar, nema komið verði á
fót eftirliti á staðnum alls
staðar þar sem grunsamlegar
jarðhræringar eiga sér stað.
Vísindamenn, ekki síður
legri nefnd vísindamanna til
athugunar og myndu þeir þá
strax úppgötva, hvort brotið
hefði verið gegn bannina.
Þessi tillaga var send stjóm-
um stórveldanna og á
laugardaginn birtist í mál-
gagni sovézka kommúnista-
flokksins, Pravda, grein, þar
sem vikið var að henni og
sagt að hún „gæti leitt til
samkomulags" þar sem hún
ætti að vera til þess fallin
„að eyða tilbúnum efasemd-
um vesturveldanna".
Það er hins vegar eftir að
vita, hvort stjómir vestur-
veldanna kæra sig nokkuð um
að láta „eyða tilbúnum efa-
semdum" sínum. Brezka
stjómin hefur þannig ákveð-
ið að láta sprengja kjama-
sprengju neðanjarðar í Nev-
adaeyðimörkinni á næstunnij
og kemur þó enginn auga á
að hana reki nokkur nauðor
til þess, örmur þá en sú að
viðhalda vígbúnaðaræðnwi.
„Hafi stjómin lagt heilarm
í bleyti til að fínna allra ó-
heppilegasta tímann til að
boða nýja kjamasprengingu"*
sagði The Times í gær, * þá
hefur hún hitt beint í mark“.
Guardian telur sprenginguna
einnig algerlega óþarfa, en
segir að „ef hún verði gerð
alveg á næstunni, muni hún
sennilega ekká torvelda sam-
komulag um sprengingabann,
ef Sovétríkin vilja í rauntnsrri
slíkt bann“. Hið brezka bfað
setur þannig alla von sína á
að sovétstjómin láti ekki
augljósar tilraunir vesturveld-
anna til að spilla fyrir sam-
komulagi á sig fá — og fram-
koma hennar síðustu vikumar
gefur reyndar ástæðu til að
ætla, að blaðið verði ekki
fyrir vonbrigðum. ás.
VVA/VVVWVVWVVVVVVVWVVVVVV'WWVA./VVVVV\VVVV\'VVVVVVVVVVVVVVVVVV'VVVAVVVVVVVVV%VVV%I%
Ráðstafanir sem miða í
áff fi! sósialismans
ALGEIRSBORG 12/11 — Ben
Bella, forsætisráðherra Alsírs,
boðaði í ræðum sem hann hélt
um hclgina í austurhluta lands-
ins ýmsar stjórnarráðstafanir
sem stcfna i átt til að koma
á sósíalisma í landinu.
Meðal ráðstafana sem hann
sagði að stjórnin hefði í hyggju
að gera er að um 500 iðnfyrir-
tæki sem evrópskir eigendurhafa
yfirgefið muni sett undir stjóm
verkamannaráða.
Varðandi stórjarðir sem evr-
ópskir landnemar hafa farið frá
sagði Ben Bella, að þeim myndi
ekki verða skipt upp á milli serk-
neskra bænda, heldur myndu
þær reknar sem ríkisbú.
Þá tilkynnti hann að aUir
milliliðimir sem annazt hafasöla
á sítrusávöxtum og olífum til út-
landsins myndu lagðir niður.
Talið er að jarðir þær sem
evrópskir landnemar í Alsír hafa
yfirgefið séu samtals um ein
milljón hektarar og er það lang-
frjósamasti hluti ræktaðs lands
i Alsír.
I ræðum sínum minntist Ben
Bella einnig á þróun mála í öðr-
um löndum Afríku og réðst eink-
um á Tshombe í Katanga, sem
hann kallaði lepp erlendra auð-
hringa, og á Portúgala og sagði
að Serkir myndu senda sjálf-
boðaliða til Angóla til að berj-
ast gegn Portúgölum.
i