Þjóðviljinn - 14.11.1962, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 14.11.1962, Qupperneq 10
10 SÍÐA ÞJOÐVILJINN Miðvikudagur 14. nóvember 1962 CHARLOTTE ARMSTRONG: hvarf fyrir horn með fimm senta peninginn sinn til taks. „María . .“ „Já. Eddie “ svaraði róleg rödd konunnar hans ,JEr hún farin af stað?“ „Já. já.“ „Hvað er iangt síðan?“ „Hún fór af stað í tæka tíð.“ sagði konan hans. Allt sem hún sagði var róandi eins og hún vildi segja: „Hafðu ekki svona miklar áhyggjur. Eddie.“ „Fór hún með neðanjarðar- brautinni?“ „Auðvitað." „Heyrðu, María, mér finnst eig- inlega að ég ætti að vera hér eftir, þegar ég er búinn að vinna. Kað getur verið að hjónin komi seint heim. Maðurinn sagði að þau væru að fara í veizlu. Hef- lirðu nokkuð á móti því?“ lrAUs ekki“ „Mér finnst rétt ég bíði og verði henni samferða heim. finnst þér það ekki?“ „Jú, það er ágæt hugmynd. Eddie.“ „En fannst þér þetta annars ekki góð hugmynd. María? Að hún fengi tækifæri til að vinna sér svolítið inn sjálf skilurðu . i. að byrja á einhverju?" „Jú. það var ágætt. Eddie.“ „Og henni leizt líka vel á það, var það ekki?“ „Jú ljómandi vel." „Jæja.... já....“ Hann vildi helzt ekki rjúfa sambandið við Maríu og rödd hennar. sem gerði hann svo rólegan. „Heyrðu Eddie....“ ,Já....“ „Það getur vel verið að ég fari i bíó Frú Martin sagði að við gætum kannski farið sam- an.“ Eddie ók sér og deplaði augunum. Rödd konu hans hélt áfram: „Þú veizt. það er myndin sem okkur fannst heppilegast að hún fengi ekki að sjá....‘“ „Já“. „Og mér datt í hug að nota taekifærið “ „Já Já. Það er prýðilegt" „Vertu nú ekki svona áhyggju- fullur, Eddie,“ sagði Maria ró- andi. ,‘,Ég verð áreiðanlega kom- in heim löngu á undan þér og Nell.“ „Já já,“ sagði hann, Hann heyrði dálítið andvarp úr hinum enda simans ,Þú skalt endilega gera þetta,“ sagði hann með á- kefð „Góða skemmtun.“ „Þetta verður allt í lagi.“ sagði hún. (Vertu ekki svona áhyggju- fullur. Eddie). Hann gekk fyrir hornið og að lyftunni sinni Hann skimaði fram anddyrið og að útidyrun- um Hann rétti úr sér og þandi brjóstkassann — reyndi að líta út eins og hann væri alveg ör- uggur f herbergi númer 807 tók Rut rósrauða híalínið niður af herða- trénu og renndi því fimlega yfir skínandi hárið. Pétur renndi rennilásnum upp að aftan með GEGGJUN sterkum fingrum. Svo hneigði hún sig fyrir áhorfendum sinum. „Svona næstum því eins og prinsessa“ sagði Pétur i viður- kenningarróm .Finnst bér það ekki?“ „Jú. það finnst mér“ sagði áhorfandinn hátíðlega. Rut kyssti í hnakkagrófina á áhorfandanum. „Og nú kemur það allra skemmtilegasta" sagði hún Mikið gátu þau sprellað fyrir áhorfandann sinn og þau skemmtu sér ekki síður en hún. „Ha ha!“ Pétur sveiflaði út höndunum eins og hann vildi rýma til í kringum sig. Hann tók upp hlægilegu flíkina sína og Rut trítlaði til hans og strauk sér um brjóstið „Þú sagðir að hann væri með skott“, sagði áhorfandinn með fyrirlitningu í háu. björtu rödd- inni. „Hvað viltu kalla þetta hérna?“ sagði Pétur. Hann stakk höndunum undir jakkalöfin og allt í einu fór hann að stika fram og aftur um gólfið með kreppt hné eins og Groucho Ma-x. svo að iakkalöfin flögruðu kringum hann Áhorfandinn var alveg að springa af hlátri o,g veltist um eins o.g lítill fissandi hnykill. Bunný var ekki beinlínis fritt barn hugsaði Rut. en mikið var hún heillandi þegar hún hló. Það var hún alveg ómótstæði- leg Og sjálf tók hún andköf og stundi: „Æ, Pétur. hættu nú .... ó. hættu!“ „Nei Pétur ..... ó. hættu. — Pétur O. Jones!“ „Æ ekki meira Almáttugur. Augnaliturinn rennur út .....“ Hin hátíðlega búningsathöfn endaði í trylltri kæti Þá var barið varlega að dvr- um Aftur var eins og hönd gripi um hjartað á Rut og sleppti tak- inu svo fljótt að Það átti erfit.t með að byrja hinn reglulega slátt aftur 2 K A F L I „Jæja. þá erum við komin. herra Jones“ f dyrunum stóð Eddie og minnti á mús með ^eDlandi augun og teygðan háls- inn .Já Eddie Alveg stundvis Gott kvöld Komið inn fyrir“ „Þetta er Nell Mundro. bróð- urdóttir mín Nell ..... “ Eddie kom með innfyrir „Gott kvöld Nell“ Nú voru kjóllöfin á Pétri ekki lengur hægileg. nú lögðu þau aðeins áherzlu á virðuleik hans sem „ræðumanns kvöldsins" Rut gekk til móts við þau og var nú ung og glæsileg írú Fjörið og gáskinn var gersamlega horf- ið. „Gott kvöld. Nell,“ sagði hún. „Það var fallega gert af yður að koma alla leið hingað svona fyr- irvaralítið Voruð þér lengi á leiðinni?“ „Það tekur ekki iangan tíma með neðanjarðarbrautinni“ sagði Eddie Barkakýlið á honum gekk upp og niður. „Það er alls ekk- ert seinlegt. Hún fór beina leið hingað" Það var eins og hann væri hreykinn af bví að hún skyldi gera það. Stúlkan Nell sagði ekki neitt. Hún sýndist vera nítján eða tuttugu ára. Hún stóð dálítið feimnislega — með fæturna fast saman. Hún var i slitnum. svört- um skóm með offiserahælum — Hún stóð álút og horfði niður. Hárið á henni var gulbrúnt eins og Ijónsmakki. mjög stuttklippt og ekki sérlega liðað Hún var með engan hatt en hún var í dökkblárri kápu, dá- lítið úreltri i sniðinu og of stórri á hana Hún hélt höndunum ut- anum svarta tösku og Rut var því fegin að hún notaði ekki naglalakk. Svo hæddist hún að sjálfri sér i huganum fyrir að setja skapgerð og naglalakk i samband hvort við annað; henn- ar eigin neglur voru gljáandi rós. rauðar í sama lit og kjóllinn hennar En samt sem áður. „Viljið þér ekki fara úr káp- unni. Nell?“ Eddie sagði: „Farðu úr káp- unni, Nell. Farðu úr“ Stúlkan var í þokkalegum dökkum silki- kjól Hún stóð kyrr með káp- una á handleggnum eins og hún vissi ekki hvað hún ætti að gera við hana „Þér getið lagt hana þarna“, sagði Rut vingjarnlega. „Og töskuna vðar líka ..... Þér haf- ið auðvitað setið hjá börnum áður?“ ,.Já heima i Indiana“ sagði Eddie „Þá gerði hún bað oft. En ekki eins oft héma. Hún kom hingað fyrir hálfu ári“ „Jæja .....“ „Nú á hún heima hjá mér og konunni minni Hún er bróður- dóttir mín .....“ ..Finnst vður eaman ,að vera hérna Nell?" „Já. hennj finnst það mjög gaman“ sagði Eddie „Við höf- um svo rúmgóða íbúð — nóg pláss handa henni • Konunni minni þykir líka gaman að hafa hana“ Er stúlkan mállaus? hugsaði Rut Eddie var fljótmæltur og talaði eins og hann vildi breiða yfir eitthvað hjá stúlkunni sem gerði ekkert til að hjálpa honum. Eddie sasði- .Hvað ég vildi sagt hafa .... ég verð kyrr hér á hótelinu Ég á við það að ég verð hérna lika. Og ef þið skyld- uð koma seint heim. þá þurfið þið ekki að hafa neinar áhvggj- ur“ „Við komum áreiðanlega ekki mjög seint“ sagði Pétur rólega Það var eins og hann hefði sagt: „Við hvað eigið þér?“ Hann hélt á handklæði ’ hendinni og danglaði þvi kæruleysislega i gljáfægða skóna sína. „Ég á við það“ sagði Eddie og deplaði augunum „að ég verð Nell samferða heim“ Pétur leit upp og sagði með hægð: „Það er vingjamlegt af yður'* Rut heyrði að hann varð bæði glaður og undrandi Ein af hvimleiðustu skyldum eigin- mannsins er að fylgja barnfóstr- unni heim „En auðvitað hefði ég fylgt henni heim annars“. sagði Pétur Um leið og Rut sneri sér við var eins og hún yrði vör við örlítið lif undir hálfluktum augnalokunum. enda þótt stúlk- an stæði enn álút Þetta gekk allt svo seint. að hún sagði i skyndi til að binda endi á þetta: „Bunný Þetta er Nell Nell. þetta er Bunný" ,Sæl“ sagði stúlkan Rödd hennar var lág og hljómlaus. en það var þó hægt að nota hana. Hún gat talað „Konuna mina“ sagði Eddie. „langaði að skreppa í bíó og ég get alveg eins beðið héma“ Hann kyngdi og hreyfingin setti allan magra hálsinn á hreyf- ingu. „Okkur fannst þetta ágæt hugmynd fyrir Nell. Það eru mörg hjón, sem koma hingað á gistihúsið með böm með sér. Og fyrst ég er hérna lika ætti þetta að vera tilvalið" Hann gerði sig líklegan til að hverfa til lyftunnar aftur. Hann var taugaóstyrkur einn af þeim sem kemur með eilífar útskýringar. þótt enginn hafi á- huga á þeim. Og hann var dauð- hræddur um að gera eitthvað óviðeigandi Samvizkusamur. lítill náungi. „Eigum við ekki að sýna Nell herbergið þitt. Bunný?“ Rut gekk á undan „Þér getið lát- ið hurðina falla að stöfum milli herbergjanna, því að Bunný finnst ágætt að sofna í myrkri. Ég hafði hugsað mér að þér sætuð i herberginu okkar Nell. það er notalegra fyrir yður“ Bunný hafði farið á undan inn í herbergi nr. 809. Hún sett- ist mannalega á annað rúmið. sem skinnhundurinn hennar áð heiman var þegar kominn upp í. „Það er bezt hún fari i rúm- ið fljótlega" sagði Rut blíðlegá. „Þetta hefur verið erfiður dag- ur hjá henni og við þurfum að gera margt á morgun Þér vild- uð kannski lesa fyrir hana sögu? Ef þér hafið ekkert á móti þvi“ „Já. já“. sagði Nell sljólega. í „Það er indælt er það ekki Bunný ......“ Þetta var næst- um eins og hún þyrfti að ýta við einhverju níðþungu Rut sagði brosandi: „Heldurðu ekki að Nell langi í súkkulaðimola?" Bunný sótti kassann og rétti hann fram með glæsilegri hné- beygju, sem Rut hafði kennt henni Nell sagði: „Þakka þér kærlega fyrir'* og greip mola. j Rut létti töluvert Þetta var I fallega gert af henni Þá hlaut hún að hafa svolítinn skilning á börnum Fullorðin stúlka gat ómögulega verið svona sólgin í sælgæti. Það hlaut að hafa ver- ið barnsins vegna sem hún hafði verið svona snögg og græðgisleg. „Gerðu svo vel!“ Bunný fékk sér lika mola henni tll samlæt- is. Nú leið Rut betur. „Bunný er orðin svo stór“ hélt hún áfram. Ný sending Enskar ©g hollenzkar vetrarkápur MARKAÐURINN Laugavegi 89. Prentarar Vilium ráða nú begar tvo prentara. Mikil eítirvinna getur komið til greina. Kassagerð Reykjavikur Verkasnean Viljum ráða verkamenn . t'asta vinnu. Ko! og Salt VDNDUÐ F is u H Sigurþórjónsson &co Jlafmvstrceti 4- Sendisveinar Ahöfnin r. Brunfisch eyndi að bjarga þyrlunni en þær heilu og höldr.u ••.» tilraunir báru engan árangur. Eddy fór í vélbát og ský lagðist yfn -yn. lagði upp að klettinum þar sem flóttafólkið var að við sprengingar. klifra niður og innau ttundar voru þau öll komin skipið. Þykkt reykjar- .g alltaí öðru hvoru kváðu óskast strax. — Vinnutimi tyrir hádcgL Þurfa að hafa hjól. Þjóðviljinn é

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.