Þjóðviljinn - 20.11.1962, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 20.11.1962, Blaðsíða 4
4 SIÐA ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 20. nóvember 19Gi Brumel og Ter-Ovanesjan keppa I Bandaríkjunum Tveir frægustu frjálsíþróttamenn Sovétríkj- anna, heimsmethafarnir í hástökki og lang- stökki — Valeri Brumel og Igor Ter Ovanes- jan, munu fara í keppnisferðalag til Bandaríkj- anna í vetur. Verður nú fylgzt með því af miklum áhuga hver árangurinn verður þegar þeir félagar keppa við fræknustu menn Bandaríkjanna á innanhússmótum vestra. Igór Ter-Ovanesjan heíur stokkið 8,31 m. Ilann keppir við Ralph Boston á næstunni. USA-Sovétríkin 70:66 Rússar ógna í körfuknattleik NEW YORK — Sovézka landsliðið í körfuknattleik keppti við landslið Banda ríkjanna fyrir fáeinum dög- um. Leikurinn var æsi- spennandi frá upphafi til enda, en honum lauk með naumum sigri USA — 70:66. Eftir að heimsmeistarkeppninni í körfuknattleik, sem fara átti að fara í Maniia, var aflýst vegna þjösnaskapar stjórnar Filippseyja, þá buðu Banda- ríkjamenn sovézka landsliðinu til 'sín í Keppr.isfer.ð Bæði karla- og kvennaiandslið Sov- étríkjanna eru í ferðinni. Landsleikur karlaliðanna var háður í Madison Square Gard- en að viðstödtíu fjölmenni. Bandaríkjamenn hafa yfirleitt haft yfirburði yfir alla aðra í körfuknattleik, enda er í- þróttin geysiút’oreidd í USA og áhugi mikill. En nú kom í ljós að Sovétmenn höfðu í fullu tré við Bandaríkjamennina. í hálf- leik stóðu leikar 32:32. -jr Brezki hnefaleikarinn Terry Downes, fyrrv. heims- meistari í millivigt, hefur verið sviftur tithnum sem brezkur meistari í millivigt. Ástæðan er sú, að Downes neitaði að verja titiliinn innan lögboðins frests Brezka hnefale:kasambandið hefur nú ákveðið að John McCor- mak, G’?sgow, og George Aidrig-- kuli keppa um tit ilmn. i Kvennalandshð Sovétríkj- anna keppti víð bandarísku meistarana , kvennaflokki Nashville Business College. Sá leikur var líka geysilega jafn og spennandi og lauk honum með naumum sigrl sovézku stúlknanna — 59:57. ■4r Sænska skíðasambandið hefur fengið boð frá Skíða- sambandi Japans um að senda 6—8 göngumenn til Japan. Eiga Svíarnir að taka þátt í japanska skíðameist- aramótinu, sem hefst um mánaðamótin febrúar—marz. Japanir stefna að því að fá skíða-heimsmeistaramótið 1966 eða vetrar-olympíuleik- ana 1968 haidna í Japan. Brumel á, eins og kunnugt er heimsmet í hástökki — 2,27 m. og Ovan&sjan á heimsmetið í langstökki — 8,31 m. Einnig tekur þátt í keppnisferðinni einn efnilegasti millivega- lengdahl. sem nú er uppi, Val- eri Buisjev. Hann varð þriðji í 800 m. hlaupi á EM í haust, og hann hefur náð næstbezta tíma á vegaiengdinni í ár — 1.47,4 mín. (Jazy, Frakkl. 1.47,1). Bandaríska frjálsíþróttasarn- bandið hefur boðið þeim þre- menningunum að taka þátt í bandaríska innanhúss-meistara mótinu í Madiison Square Gard- en 23. febrúar. Auk þess er gert ráð fyrir að þeir taki þátt í nokkrum öðrum mótum. Bandaríkjamenn eiga í sín- um hópi skæðustu keppinauta sovézku heimsmethafanna. Það er John Thomas í hástökki (2;22 m.) og Ralp Boston í langstökki (8,28 m.). Bulisjev mun eflaust fá að etja kappi við hinn snjalla Beatty. Það má því vænta spennandi kepnpi milli þssara kappa og góðum árangri. Þeir Brumel og Thom- as hafa fjórum sinnum áður leitt saman hesta sína, og hef- ur Brumel alltaf farið með sig- ur af hólmi, — síðast í lands- keppni Sovétríkjanna og Bandaríkjanna í sumar. Þá setti hann heimsmet — 2,26 m, sem hann bætti enn síðar í sumar. Körfuknattleiksmót Reykjavíkur Ármann-KR 43:35 -03 ÍR-KFR 73:44 Meistaramót Reykjavíkur í körfuknattleik hélt áfram um helgina, og á laugardagskvöld voru háðir fyrstu leikirnir í meistaraflokki. Leikirnir í meistarflokki voru nokkuð jafnir og spennandi. Það vekur athygli að KR send- ir iið til keppni sem skipað er fleiri mönnum úr 2. flokki en löglegt er. Hinir ungu KR- ingar veittu Ármenningum harða keppni og höfðu forystu í stig- um nær allan lelkinn. Ármenn- ingar léku af talsverðu öryggi, enda hafa þeir i síum flokki vel þjálfaða og reynda leik- menn. KR nafði forystuna í hátfleik, .— ,21:14. en leiknum lauk með sigri Ármanns — 43:35. KFR-liðið var ákveðið og bar- áttufúst í leik sínum gegn Is- lands- og Raykjavíkurmeistur- unum, enda eiga þeir góða! keppnismenn. fR tefldi fram i sterkustu mönnum sínum og sigjaði með talsverðum yfir- burðum — 72:44. (í hálfleik: 37:22). ★ Norðurlandameistaramót unglinga í fimleikum fer fram í Helainki 8.—9. des- ember n.k. I fyrrakvöld fóru fram nokkr- ir leikir í yngri flokkunum. í öðrum flokki vann a-lið KR lið ÍR með 40:28. Dynamo fer tíl Japans TÓKlO -t- lanpanska., knatl;- spyrnusambandið tilkynnir, að sovézka knattsoyrnuliðið Dyna- mo frá Moskvu og ennfremur sænska landsliðið komi í heim- sókn til Japans í næsta mán- uði. Bæði þessi lið munu leika allmarga leiki víðs- vegar í Japan, og að lokum munu þau mætast í keppni í Tokíó 16. desember. Heimsókn þessara ágætu knattspyrnuliða verður þáttur í olympíuundirbúningi Japana, og einnig er þeim ætlað að auka almennan knattspyrnuá- huga í Japan. Tvíburasysturnar Beverley og Gloria Sayer. ir Þessar brezku stúlkur heita Beverlev og Gloria Sayer, og auðvitað eru þær tvíburar. Þær eru sagðar bráðsnjallar í borðtennis, sem er virisæl keppnisgrein viða erlendis. Bráðlega eiga þær að taka þátt í keppni Essex gegn Berkshire, en síðan verða þær báðar að fara í sjúkra- hús til uppskurðar — við sama sjúkdómnum. Víst er talið að þær verði búnar að ná sér og æfa vel áður en brezka meistaramótið fer fram í marzmánuði n.k. ?v6lWu* 2 Persons-bræður. > £ ir Tvíburarnir Roland og S Christian Persson náðu ná- g kvæmlega sama árangri bæði | í 100 m hlaupi og í lang- | stökki á skólameistaramótinu | í Stokkhólmi. Þeir kepptu | líka báðir í 200 m hlaupá, og | þá varð Roland (til hægri) 5 2/10 sk. á undan hinum bróð- | umurh'. „Bróðii minn kom | hálfri mínútu á undan mér í | heiminn, svo þið sjáið að ég S hef að mestu unnið upp for- | skotið,“ sagði Chirstian eftir | hlaupið: Þeir fæddust 23 maí I 1945. | ★ Sænska Skíðasambandið í hefur valið olympíulið í Svíþjóðar í alpagreinum, | og er liðið nú á för- | um til Val d’Isére í Frakk- | landi. Þar munu Svíarnir æfa J í mánaðartíma og taka síðan ? þátt í keppni í Frakklandi. I Nokkrir skíðamenn fara með | landsliðinu á eigin kostnað til ? að njóta þjálfunar við góð | skilyrði. AAAAAAAAAA/VVVVWAAAAA/lAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA/tA/VVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVV ★ Bikarkeppni hefur rutt sér? til rúms í Evrópu í knatt-j* spyrnu, handknattleik og^ körfuknattleik. Þetta fer einsí og eldur í sinu um álfuna og| virðist njóta vaxandi vin-í sælda. Nýlega var skýrt fráj því hér á síðunni aðungverski? unglingalandsliðsþjálfarinn 5 hefði lagt til að efnt verði? til Evrópubikarkeppni ung-? lingalandsliða í knattspyrnu. £ Nú hefur franska íþróttablað-j: ið „L’Equipe" fitjað upp á? enn einni Evrópubikarkepnni.| Það er Raymond Meyer semí skrifar greinina. Hann lec",ur? til að efnt verði til bikar-| keppni í frjálsum íþróttum áí hverju ári. Verði löndu.m? skipt í þrjá riðla eftir styrk-í leika. Á næsta ári leggurhann| til að skiptingin verði þannig:? A-riðill: Sovétríkin, Pólland,? Frakkland, V-Þýzkaland, Eng-| land og A-Þýzkaland. B-rið-? ill: Finnland, Ungverjaland,? Tékkóslóvakía, Svíþjóð ogá Italía. C-riðill: Júgóslavía,| Belgía, Rúmenía, Sviss, Holl-, S Noregur, Danm. Áusturríki,; Spánn, Portúgal og Grikkland.? Við söknum hér a.m.k. eins? lands. Annaðhvort er Meyer^ ekki sérlega vel að sér í| landafræði, eða þá að hann erj fákunnandi um frjálsar Ul þróttir í Evrópu. Lára miðill Bók, sem beðið hefur verið effir í bók þessari segir höfundur sr. Sveinn Víkingur frá dulhæfi- leikum og miðilsstarfi frú Láru Ágústsdóttur. Öllum ritdómendum ber saman um að hókin sé hvorttveggja í senn fróðleg og skemmtileg aflestrar. Kvöld vökuúfgáfan I ! 'JAS.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.