Þjóðviljinn - 22.11.1962, Qupperneq 10
10 SÍÐA
ÞJÓÐVILJINN
Fimmtudagur 22. nóvember 1962
CHARLOTTE
ARMSTRONG:
GEGGJUN
— Herra Jonas og frú, sagði
drengurinn sléttmáll. — Jú, þau
éru farin fyrir löngu.
— Hvenær koma þau aftur?
spurði Jed stúlkuna.
Hún yppti öxlum: — Þau ætl-
Oðu í veizlu
— Nú ... jæja... Jed horfði
á sendilinn. Augu hans höfðu í
fyrstu tekið skýringu hans gilda
en svo dróst hula yfir þau.
Hann tók við drykkjupeningun-
um og fór.
Sendillinn, sem hét Jimmy
Reeser, rölti fram ganginn með
stút á munninum eins og hann
væri að blístra niióðlausan lag-
stúf. Hann fór r.iður i lyftu
Eddies. Þeir virtu hvor annan
fyrir sér með eins konar at-
vinnufyrirlitningu.
Jimmi hélt afram að blístra
hljóðlaust.
Maðurinn sem var í herbergi
nr. 807, átti heima á númer 821.
Það vissi Jimmi. Hann fc~£ði
ekki hugmynd um hver stu/kan
var. Hún var sem sé systiff Jon-
es... já, já. Hann vissl ekki
að hún væri neitt tengd Eddie.
Hann horfði upp í smíðajáms-
grindumar og hélt áfram að
blístra í hljóði. En hann trúði
þvi ekki að 821 hefði farið
þangað inn til að leita að herra
Jones. Jimmi vissi sitt af hverju
þótt hann hefði ekki hátt um
það.
Eddie vissi ekki, að Jimmi
kom beint úr herbergi 807. Hann
hafði lagt eyrun við, þegar beð-
ið var um 8. hæð. Hann hafði
einblint á sendilinn. Allt virtist
rólegt.
Þeir sigu niður á við, fálátir
hvor við aiman eins og atvinnu
þeirra sæmdi án þess að
skiptast á athugasemdum eða
slúðri eða upplýsingum.
Jed íhugaði málið meðan hann
blandaði drykkina handa þeim.
Hann hafði ekki verið að reyna
að leika óvæntan gest sem hitt-
ir engan heima. Enda datt hon-
um ekki í hug að sendillinn
hefði gleypt við því. En á hinn
bóginn hafði hann fengið nokkr-
ar upplýsingar. Herra Jones og
frú voru í raun og veru að
heiman. Hvaða stúlka var þetta
þá.
— Heitirðu nokkuð? spurði
hann blíðlega.
— Nell. Hún sagði það svo
viðutan, að hann gerði ráð fyr-
ir að það væri satt.
Engu að siður Jaug hann og
sagði: — Ég heiti John.“ Hann
rétti henni glas.
Hún drakk drjúgan teyg, leit
upp og hló til hans. „Þér vitið
alls ekki hvað þér eigið að
halda um mig, Þér eruð tauga-
óstyrkur. Og hlægilegur.
Hann svaraði ekki athuga-
'semdinni. Hann gekk að glugg-
anum og lagfærðj rimlatjöldin.
Svo settist hann á rúmið við
hliðina á henni. — Hvaðan
kemurðu, Nell?
— Kalifomíu.
—Hvaða hluta?
— Allri Kaliforníu.
— Það er ekki hægt. Kali-
fornia er of stór til þess.
— Hún er ekki svo stór.
— Frá San Francisco?
— Stundum.
— Frá Tulsa?
— Líka þaðan, sagði hún ró-
lega. íiún þuldí þetta eins' ’ög
einhverja innihaldslausa romsu.
— Hvar er Tulsa? spurði hann
gripinn skyndilegri tortryggni.
— í Kalifomíu. Hún ieit
undrandi á hann.
— Nell, sagði hann vingjam-
lega. — Þú ert að ljúga.
— Jæja.... já.... hvað um það?
sagði hún allt i einu glettin
eins og lítill kettlingur og hall-
aði sér upp að handlegg hans.
— Þú ert líka að ljúga að mér.
— Ég hef ekki sagt neitt.
— Þú lýgur nú samt.
Hann tók um höku hennar
með vinstri hendi sneri andliti
hennar til og virti það rann-
sakandi fyrir sér og hann undr-
aðist hve furðulega ærlegur
svipur hennar var. Þú lýgur. Ég
lýg. — Já ójá.... Nei, þetta var
ekki tilbúið. — þetta var eitt-
hvað undarlega frumstætt.
Hann kannaðist alls ekki við
þessa útgáfu af stúlku.
Varir hennar vom mjög nærri
vörum hans. þegar allt í einu
fór hrollur um hann. Hann sneri
eftirvæntingarfuliu andiitinu á
Neli til með hendinni og þrýsti
j'Vi upp að öxi sér. Vöðvarnir á
hálsi hans hnykluðust. Hann leit
um öxl
Þarna stóð lítii stúlka með
dökkar fléttur.... berfætt.... í
bleikum náttfötum Hún horfði
þögul á þau.
Villidýr hefði ekki getað gert
hánn skelfdari
7. KAFLI
Honum varð svo hverft við. að
honum fannst næstum sem hann
svifi í lausu lofti. Hann réð bet-
ur við rödd sína en önnur við-
bi'Ögð og honum tókst að stapia:
— Við höfurn áhorfendur. Hann
hafði ýtt við Nell svo að hún
settist upp. Hann hafði snúið
sér við án þess að rétta úr
hnjánum og sat nú allt í einu
á hinu rúminu — andspænis
barninu — og teygði höndina
eftir glasinu sínu....
Jed hafði o,ft séð böm og heyrt.
þótt hann hefði aldrei kynnzt
þeim náið. Hann hafði ekki á-
huga á þeim. Þau voru utan-
við hans svið, á sama hátt og
frímerkjasafnarar og múnkar og
súrrealistískir málarar. Þeir at-
burðÍT sem höfðu að vissu leyti
gert hann eldri en ár hans.
höfðu einnig stuggað við sam-
benginu í minningum hans.
Bemska hans sjálfs var ofur
fjariæg — næstum i annaTri til-
veru. Og hann umgekkst að-
eins fá ung hjón. svo að hann
þekkti engin böm.... átti þau
ekki að vinum Hann hefði tal-
að um ..krakkahóp" með svip-
uðum raddhreim og ..hænsna-
hóp‘‘ eða „mauraþúfu" Honum
fannst bau öll sömul pins og
hann skipti sér ekki af þeim.
Litla stúlkan með dökku aug-
un í breiða andlitinu var ektó
beinlínis fríð stúlka Hún var
nf mögur Of alvarleg
Nell sat í hnipri, studdist fram
á hanleggina. — Snáfaðu
þama inn aftur. sagði hún illi-
lega
— Mig langar....
Nell skreiddist þvert yfir
rúmið á hnjánum. — Inn með
þig. Snáfaðu inn aftur og sofn-
aðu. Hún læsti fingrunum í
magrar axlimar
Svona talaði enginn við Bunný
O Jones Hún var ekki vön
því að fólk kæmi skríðandi í
átt til hennar eins og krabbi.
Hún var ekki vön svona hörku.
Bunný varð hrædd Hún fór að
gráta
— Og haltu kjafti. sagði Nell.
— Átt þú hana? sagði Jed
kuldalega
— Ég á hana ekki. sagði Nell
reiðilega. — Þetta er krói Jones-
hjónanna.
— Nújá.... frænka þin.
Nell hló.
— Þú ert í fötunum hennar
SKALDVERK
GUNNARS GUNNARSSONAR
ALMENNA BÖKAFELAGIÐ
NÝ HEILDAROTGÁFA
í 8 bindum samtals um 5000
blaðsíður.
Fram til áramóta seljum við
heildarútgáfuna með afborg-
unarskilmálum fyrir aðeins
kr. 2.240,00. — 10% afsláttur
gegn staðgreiðslu.
Eftir áramót verður óhjá-
kvæmilegt að hækka verðið
verulega.
Þetta er einstakt tækifæri til
að eignast skáldverk eins
mesta rithöfundar íslands
fyrr og síðar.
Ég nndirritaður hef áhuga á að kaupa skáldverk Gunnars
Gunnarssonar og óska eftir nánari upplýsingum.
Nafn: ------------------------------------......................
ALMENNA
BÖKAFÉLAGIÐ
Heimili:
T'"
TJARNARGÖTU 16
Simi:
REYKJAVÍK
Setningarræðan
Framhald af 7. síðu.
var að færa allt í kaf, og kaup-
máttur launanna var orðinn ó-
þolandi lítill.
Með tilliti til þessa eru sívax-
andi ríkisafskipti enn síður
verjandi en ella hefði verið.
Stöndum á réttinum
En lang alvarlegast af öllu,
sem gerzt hefur í samskiptum
verkalýðssámtakanna og ríkis-
valdsins á seinni ámm, er þó
árásir þess á innri réttindi —
grundvallarréttindi — frjálsra
verkalýðssamtaka eins og rétt-
indi til að ráða því, hverjir séu
meðlimir samtakanna á hverj-
um tíma í því máli er spurn-
ingin um inngöngurétt einna
samtaka smámál. — Þann rétt,
að ákveða hverjir séu í
samtökin teknir tel ég að
meðlimir verkalýðssamtak-
anna megi aldrei láta úr
hendi sér. Og ég túlka .hiklaust
þá skoðun mta, að þegar dóm-
stóll, sem til þess er settur að
dæma um ágreiningsatriði milli
launþega og atvinnurekenda og
samtaka þeirra — fer að
'skipta sér af skipulagsmálum
annarra þessara samtaka —
segja fyrir um innri mál sam-
takanna. þá er hann kominn
út fyrir sitt hlutverk, og hlýt-
ur fyrr eða síðar að rekast á
ákvæði og anda sjálfrar stjórn-
arskrárinnar og lagaákvæða
ýmissa samtaka, sem byggt
hafa grundvöh siiín á félaga-
frelsinu. Hér á alþýðusam-
þandsþingi er oss vissulega
skylt að starfa á grundvelli al-
þýðusambandslaga sem alfrjáls-
ir kjörnir fulitrúar, jafn frjáls-
ir að því að taka afstöðu til
mála með neitandi afstöðu sem
játandi. Við skulum í hvívetna
reyna að hafa í huga í þessu
máli sem öðrum: Gjör rétt.
Þol eigi órétt. Ög þeim, sem
sérlega vandlegá vilja gæta
þess að virða lög og rétt, vil
ég segja þetta: íslenzkur höfð-
‘ ingi stómframmi fyrir eríénd-
um konungi og átti erfitt mál
að sækja. Er hann heilsaði
kóngi, féll hann á annað hnéð,
en steig fram hinum fæti. og
mælti:
Yðar hátign: „Ég lýt hátign-
inni, en stend á réttinum”.
Minnumst þess, góðir félagar,
að falla ekki á bæði kné —
leggjast ekki flatir gagnvart
virðulegum Félagsdómi, heldur
stöndum af fulln djörfung og
þrótti á réttinum. Verndum um-
fram allt rétt verkalýðssamtak-
anna til að ákveða, hverjir ger-
ist liðsmenn samtaka vorra.
— Læt ég svo útrætt um það
mál að sinni.
Listasafn ASÍ
Á þessu kjörtímabili mið-
stjómar hefur Alþýðusambandi
Islands verið fært að gjöf mik-
ið og dýrmæ'h málverkasafn.
Ég veit, að þið gleðjizt öll yfir
þeim glæsta höfðingsskap, sem
birtist i þessari gjöf. Ég veit
líka að þið fagnið einnig yfir
því trausti sem samtökum vor-
um er sýnt með því að fela
þeim varðveizlu þessara miklu
listafjársjóða. Ég þykist vita,
að þingið muni tjá gefandanum
hug sinn í einhverri mynd. En
ég vona, að bvað sem líður
skoðanamun okkar um pólitfsk
mál, eigum við þó einn vilja
og eina sál, þegar að því kem-
ur að vinna að stórbrotnu
menningarmáli eins og því að
koma upp veglegum listasafns-
byggingum vfir Listasafn Al-
þýðusambands Islands. Víst eru
ekki margir auðmenn i alþýðu-
samtökunum, en með samein-
uðu afli er 30.000 manna sam-
tökum létt verk að lyfta slíku
taki. án þess að nokkur verði
fátækari eftir.
Undir eigin þaki
Það er líka ánægjulegt að
geta tilkynnt bingheimi það, að
á þessu tímabili hefur Alþýðu-
sambandið komizt undir eigið
þak. Miðstjómin hefur með
samþykki fullskipaðrar sam-
bandsstjómar, keypt efstu hæð
í húseigninni Laugavegur 18 og
búið sambandinu þar hin á-
kjósanlegustu ytri starfsskil-
yrði.
Bygging orlofsheimilis
hefst í vor
Þá hefur á tímabilinu verið
unnið kappsamlega að undir-
búnmgi orlofsheimilismálsins.
Verður gerð nákvæm grein fyr-
ir þvi máli í skýrslunni og
væntanlegu nefti Vinnunnar.
Hér skal aðeins frá þvi skýrt,
að loksins hinn 19 október sl.
fékkst undirritaður samningur
við landbúnaðarráðherra um 12
hektara leiguland undir orlofs-
heimili verkalýðssamtakanna.
Sumarbústaðir hafa verið teikn-
aðir. Allmörg stéttarfélög hafa
þegar gerzt kaupendur sumar*
bústaða, svo að víst er að 18—
20 slíkir sumarbústaðir verða
reistir í landinu. Unnið er nú
að uppdráttum aðalbyggingar
og skipulagningu mannvirkja á
landinu. Landið hefur verið
hæðarmælt og kortlagt ná-
kvæmlega, og vonir standa til
að líkan af skipulagi landsins
geti verið til sýnis þingfull-
trúum hér í þingsalnum, áður
* en þingi lýkur. Byggingafram-
kvæmdir orlofsheimilisins geta
því hafizt á vori komanda.
t
Sl.191 félagsmaður
Megin verkefni þessa þings
eru auðvitað sem jafnan að
marka stefnu samtakanna í höf-
uðmálum næstu tvö árin. Verða
þegar í þingbyrjun lögð fram
drög að ályktun í verkalýðs-
málum, efnahagsmálum og at-
vinnumálum. ætti slíkt að geta
flýtt fyrir afgreiðslu þessara
aðaimála í nefndum.
Frumvarp til lagabreytinga
hefur miðstjómin einnig lagt
fram í þingbyrjun, svo og drög
að fjárhagsáætlun fyrir næstu
tvö ár (1963 og ’64) og væntir
að fái félagslega og skynsam-
lega afgreiðslu.
Samkvæmt skrá yfir félög
innan Alþýðusambands Islands,
sem tekin var saman í október
sl. samkvæmt seinustu árs-
skýrslum sambandsfélaganna, þ.
e. miðað við 1. janúar 1962, eru
í sambandinu fullgildir með-
limir 22159 karlar og 8211 konur
og auk þess 821 aukafélagi,
eða samtals 31190 félagar í 152
stéttarfélögum.
Góðir félagar, heiðruðu gestir.
Að þessum orðum sögðum,
ber ég fram bær óskir, að heil-
brigður félagsandi og réttlát af-
greiðsla mála í sararæmi við
Iög og þingsköp Alþýðusam-
bands Islands, megi ráða ríkj-
im á þessu þingti voru, og að
oss takist að ráða farsællega og
viturlcga fram úr þýðingarmlkl-
um vandamálum, sem þingsins
bíða. — Ég lýsi því yfir, að
28. þing A. S. I. er sett.
KARLMANNAFATAEFNI
Nýkomin frá Englandi. — Gott úrval.
Þ0RGILS Þ0RGILSS0N
Lækjargötu 6A. — Simi 19276.