Þjóðviljinn - 28.11.1962, Síða 2
ÞJÓÐVILJINN
Miðvikudagur 28, nóvember 1962
SlÐA 2
Aðalfundur Bandalags kvenna í Reykjavík:
V •H'V
Reykjavíkurborg hafi for-
göngu um íbúiabyggingar
Á aðalfundi Bandalags kvenna í Reykjavík áj
dögunum var samþykkt ályktun, þar sem bent er
á nauðsyn þess að bæjaryfirvöldin hafi forgöngu
um byggingar hagkvæmra íbúða, sem ýmist verði
leigðar með hóflegum kjörum eða seldar með
hagkvæmum afborgunarskilmálum.
Ályktun sú sem aðalfundur-
inn samþykkti í þessu efni fer
i heild hér á eftir:
Fundurinn lýsir ánægju
sinni yfir því, sem áunnizt
Eaksvlpur
mannsins
Út er komin ný bók eftir Guð-
mund L. Friðfinnsson á Egilsá,
skáldsagan „Baksvipir manns-
ins“. Bókin er 168 blaðsíður. út-
gefandi Isafold.
hefur með byggingu íbúðar-
húsnæðis á vegum borgarinn-
ar, en álítur þó nauðsynlegt,
að Reykjavíkurbær hafi for-
göngu um áframhaldandi
byggingar hagkvæmra íbúða
sem ýmist verði ieigðar með
hóflegum leigukjörum, eða
seldar með hagkvæmum af-
borgunarskilmálum. Sú tak-
mðrkun fylgi þó eignarrétti,
að flytji eigandi úr íbúðinni,
sé hann skyldur til þess að
afhenda hana aftur gegn end-
urgreiðslu samkvæmt mati.
Bendir fundurinn á i þessu
sambandi, að byggingarkostn-
Byrja æfingar á
Guðmundur L. Friðfinnsson
hefur á undanförnum árum ver-
ið mikilvirkur rithöfundur. .'vær
síðustu baekur hans, skáldsagan
„Hinum megin við heiminn"
sem út kom í hitteðfyrr. og
„Saga bóndans í Hrauni“ sem
út kom í fyrra vöktu athygli og
hlutu góða dóma.
„Spanskflugunni”
Ölafsvík — Leikfélag Ólafsvík-
ur er nú byrjað að æfa leikrit-
ið „Spanskfluguna". Leikstjóri
er Bjami Steingrímsson úr
Reykjavík .
aður er svo gífurlegur, að
efnalitlu fólki er ókleift að
byggja eða standa undir
venjulegum leigukjörum í
nýju húsnæði.
Kynnir sér starf
islenzku kirkj-
unnar
Um þessar mundir er staddur
hér á landi sænskur prestur,
Harald Nyström að nafni, en
hann er starfsmaður sænsku
kirkjunnar og annast mál er
varða samband hennar við
Lútherska heimssambandið.
Fréttamenn hittu Nyström að
máli nýl. og skýrði hann þeim
í stórum dráttum frá starfsemi
Lútherska heimssambandsins, en
það var stofnað í Lundi 1947.
Sambandið starfar á ýmsum svið-
um svo sem á vettvangi guð-
fræðilegra vísinda, félagsmála
og líknarmála og skiptist starf-
semi þess í deildir í samræmi
við það. í sambandinu eru nú
62 kirkjudeildir með um 55
milljónum manna.
Nyström mun dveljast hér á
landi viku tíma til þess að kynna
sér starfsemi íslenzku kirkjunn-
ar. Bað hann blöðin að færa ís-
lenzku þjóðinni og íslenzku
kirkjunni kveðjur frá Lútherska
heimssambandinu.
ígrún Jónsdóttir áttræð
Árið 1882 er eitthvert mesta
harðindaár, sem um getur á
íslandi öldina sem leið. ís lá
fyrir mestöllu Norðurlandi
iangt fram á vor og um sum-
arið gekk ákaflega skæður
mislingafaraldur. Sumir misstu
trúna á að hér væri byggilegt
og fluttu til Vesturheims, en
hinir voru fleiri sem buðu ör-
lögunum byrginn, gengu á
hólm við erfiðleikana og voru
staðráðnir í því að duga eða
drepast. Það átti eftir að rofa
til, og þetta fólk fékk ríkulega
goldna bjartsýni sína að lok-
um.
Meðal þeirra voru hjónin
Þuríður Sigurðardóttir og Jón
Friðfinnsson, sem þá bjuggu á
Stóra-Eyrarlandi við Akureyri.
Hinn 28. nóv. þetta ár fæddist
þeim dóttir, sem nefnd var
Sigrún. Örlagadísirnar hafa
strax staðið við vöggu hennar
og ætlað henni „líf og litu
góða“, því að hún fyllir átt-
unda tuginn nú í dag.
Þau hjónin fóru ekki var-
hluta af ungbarnadauða, frem-
ur en svo margir á þeim árum;
þau misstu þrjú börn í bemsku
en á legg komust fimm. Af
þeim eru nú látin Rósa verka-
kona og Finnur alþingism. og
ráðherra, en eftirlifandi auk
Sigrúnar Jóhann skósmiður á
Akureyri og Ingólfur hæsta-
réttarlögmaður í Reykjavík.
Sigrún ólst upp með foreldr-
um sínum; þegar hún var um
10 ára gömul fluttu þau aust-
ur á Harðbak á Melrakka-
sléttu og bjuggu þar í nokkur
ár, en fluttu þaðan til Akur-
eyrar og þar hefur Sigrún að
mestu dvalið síðan. Auk barna-
skólanáms naut Sigrún mennt-
unar í Hússtjórnarskóla merk-
iskonunnar Jóninnu Sigurðar-
dóttur og hafði sá skóli á að
skipa ýmsum afbragðskennur-
um. Sigrún vann að ýmsum
störfum fram eftir árum og
var foreldrum sínum hin bezta
stoð og stytta, þegar aldur
færðist yfir þau. Bjuggu þau
lengst af í Hafnarstræti 99, þar
sem nú stendur stórhýsið
Amaro.
Hinn 15. sept. 1928 giftist
Sigrún Karli Guðmundssyni
verkamanni og litlu síðar
byggði Jón faðir hennar húsið
Þingvallastræti 12 og fluttu þá
gömlu hjónin þangað og
bjuggu með Sigrúnu og Karli.
Önduðust þau í hárri elli, og
var Þuríður blind síðustu árin.
Hafa kunnugir sagt, að til þess
hafi verið tekið, hve Sigrún
hafi sýnt þéim mikla ástúð,
nærgætni og umhyggjusemi.
Sigrún starfaði mikið að fé-
lagsmálum, var lengi virkur
félagi í Goodtemplarareglunni
og alla tíð mikil bindindiskona.
Árið 1916 gekk hún í Verka-
kvennáfélagið Einingu og sat
þar lengi í stjóm sem gjald-
keri. Maður hennar hefur á-
vallt verið í hópi þeirra fram-
sæknustu í verkalýðshreyfing-
unni, enda þau hjón ákaflega
samhent og ávallt staðið hvort
við annars hlið í blíðu og
stríðu. Hefur hjónaband þeirra
verið með sérstökum ágætum.
Sigrún tók á sínum tíma af-
stöðu með hinum róttækari
hluta verkalýðshreyfingarinnar
og hefur alltaf skipað sér þeim
megin síðan. í afmælisgrein
sem Áskell Snorrason tónskáld
reit um Sigrúnu fyrir nokkr-
um árum er þetta haft eftir
henni: „Fjörutíu ára starf mitt
í verkalýðshreyfingunni hefur
fært mér mikla ánægju. Þar
lærði ég að skilja, að verka-
fólkið þarf að standa saman í
baráttunni." Sigrún • fylgist
mjög vel með stjómmálunum,
er rökvís og heldur með still-
ingu á sínum málstað og grein-
ir auðveidlega kjarnann frá
hisminu. Mun ekki ofmælt, að
þau hjón hafi um langt árabil
verið í fremstu röð þeirra
traustustu og stéttvisustu í
verkalýðshreyfingunni á Akur-
eyri. Sigrún var lengi útsöki-
maður Þjóðviljans á Akureyri.
Sigrúnu og Karli hefur ekki
orðið barna auðið, en ólu upp
að mestu bróðurson Sigrúnar,
Þór Ingólfsson, húsgagnasmið í
Reykjavík.
Sigrún er mikil gáfukona,
sem hún á kyn til, bókhneigð
og mjög ljóðelsk. Er mjög
gaman að heyra Sigrúnu segja
frá liðnum tíma, því að hún er
rninnug og íróð og hefur til að
bera skemmtilega frásagnar-
gáfu. Sigrún er ákaflega raun-
góð og má ekkert aumt sjá, án
þess að reyna eitthvað að bæta
úr.
Ævi Sigrúnar hefur aldrei
verið hávaðasöm, og hún hef-
ur aldrei barið neinar bumbur
til að vekja athygli á sér. Hún
hefur helgað sig heimili sínu,
það hefur verið henni hið heil-
aga vé. Orð Englendinga:
„Heimilið er vígi mitt“ má með
miklum sanni tileinka henni.
Frændi hennar Gunnar S. Hof-
dal sendi henni ljóðabréf á
sjötugsafmæli hennar. Eg tek
undir með honum, þegar hann
segir:
I björtum hugarheimi
er hlýtt og alitaf vor.
Og lífinu gefur gildi
til góðs að stóga spor
og líkna þeim sem líða
og lítið eiga þor.
Heimilið er þér heimur,
hjarta þínu kær.
í inni ástar og friðar
unaðsrósin grær.
Þín hugsól til ’ins hinzta
á heimilið geislum slær.
Sigrún er með afbrigðum
gestrisin og ættrækin, það er
alltaf tekið á móti öllum með
þessari traustu, hógværu hlýju
og vinsemd. Eg kynntist ekki
Sigrúnu fyrr en ég dvaldi á
Akureyri fyrir nokkrum árum.
Bjó ég þá í húsi þeirra hjóna
og kynntist mannkostum þeirra
og höfðingslund. Ef ég ætti að
semja yfirskrift fyrir þessari
fátæklegu afmælisgrein væri
það: Drengur góður. Eg man,
að mér fannst ákaflega skrítið
Vertíðarsaga eftir
Stefán f réttamann
Ægisútgáfan hefur gefið út
nýja bók eftir Stefán Jónsson
fréttamann. Bókin ber heátið
MlNIR MENN, vertíðarsaga.
Stcfán Jónsson.
Bók Stefáns er ekki, eins og
; margur kann að halda, samtals-
þættir, sem' hann er kunnastur
fyrir, heldur samfelld vertíðar-
saga úr útgerðarplássi einu. Lýst
þegar ég strákur heyrði þessi
orð höfð um konur. En þegar
ég fór að læra málfræði og
komst að því, að orðið var leitt
af drangur, skildi ég merking-
una: Drangurinn, kletturinn,
sem stendur fastur og óbifan-
legur hvað sem á dynur. Ein-
mitt þannig hefur Sigrún ver-
ið. Aldrei hvikað frá þeim
málstað, sem hún vissi sann-
astan, aldrei níðst á neinu, sem
henni var fyrir trúað.
Ellin hefur markað sínar
rúnir, en Sigrún hefur varð-
veitt glóð æskunnar í brjósti
sér. og þess vegna á ég bágt
með að sætta mig við það að
hún sé orðin gömul. Sigrún
hefur verið mikil gæfukona og
dísirnar sem stóðu hjá vögg-
unni í gömlu baðstofunni á
Eyrarlandi hafa aldrei misst
sjónar af henni. Eg þykist vita,
að hún horfi til baka með
miklu þakklæti og líti fram á
við til allra ókomnu áranna
með gleði og eftirvæntingu og
skynji að „dagarnir hafa enn
síin dularfullu bros“.
Þeir eru víst margir, sem
hugsa í dag til húsfreyjunnar
í Þingvallastræti 12 með virð-
ingu og þakklæti. Enga ósk á
ég henni betri en að hún njóti
góðrar heilsu á komandi dög-
um. Að lokum óska ég bónda
hennar til hamdngju með konu
sína og afmælisbaminu sjálfu
sendi ég hjartanlegustu ámað-
aróskir. ' >.
Jón Gunnlaugsson.
er lífi sjómanna við störf og
strit, skemmtanir og tómstunda-
iðju. Víða er komið við: Afla-
tregða og landlegur hrjá mann-
skapinn, mokafla bregður fyrir,
bakkus er dýrkaður og kvenfólk
kemur nokkuð við sögu. Nöfn-
um er víðast breytt, segir á
kápusíðu bókarinnar, en öll er
frásögnin byggð á staðreyndum.
Nokkur kaflaheiti bókarinnar:
Tvær krónur sjötíu og fimm.
Pétur tólfti og tóbakkus kon-
ungur. Mannvit í knéröri. Om-
aðu mér nú eina stund. Heims
um ból á páskum.
„Mínir menn“ er önnur bók-
in, sem út kemur eftir Stefán
Jónsson fréttamann. Hin fyrri,
„Krossfiskar og hrúðurkarlar",
kom út í fyrra fyrir jólin og
seldist þá gersamlega upp. Krist-
inn Jóhannsson hefur gert nokkr-
ar teikningar í hina nýju bók
Stefáns, sem er 227 bls. að lengd.
Flugeldagerð
á Akranesi
Akranes 22/11. — Nýlega tók
til starfa á Akranesi nýtt iðn-
fyrirtæki, sem framleiðir flug-
elda og skrautblys margskonar.
Fyrirtækið ber heitið Flugeldar
s.f. og er til húsa á Ægisbraut 27.
Fyrirtæki þetta var áður í Kópa-
vogi, en núverandi eigendur þess,
þeir Bjöm H. Bjömsson Stekkj-
arholti 3 og Krislmundur Árna-
son, Brekkubraut 23, keyptu
það í ágústmánuði síðastliðnum.
Við fyrirtækið starfa að jafn-,
aði 3—4 mánns, en það tók til
starfa 1. október Vinnan fer
fram i þrem húsum en þetta
er létt handavinna. Fyrirtæk-
iö er rekið að danskri fyrirmynd
og eftir dönskum reglum.
frájfeklu
Austurstræti 14 Sími 11687
Sendum hvert á land sem er
Góðir greiðsluskilmálar
. . á,
KIPAUTGCRÐ RIKISINN
M.s. Hekla
fer vestur um land í hringferð
1. des. Vörumóttaka í dag til
Patreksfjarðar, Sveinseyrar,
Bíldudals, Þingeyrar, Flateyrar,
Suðureyrar, ísafjarðar, Siglu-
fjarðar, Dalvíkur, Akureyrar,
Húsavíkur og Raufarhafnar.
Farseðlar seldir á föstudag.
M.s. Herðubreið
fer austur um land í hringferð
3. des. Vörumóttaka á fimmtu-
dag til Hornafjarðar, Djúpavogs,
Breiðdalsviikur, Stöðvarfjarðar,
Mjóafjarðar, Borgarfjaðar,
Vopnafjarðar, Bakkafjarðar,
Þórshafnar og Kópaskers. Far
seðlar seldir á mánudag.
M.s. Baldur
fer til Gilsfjarðar og Hvamms-
fjarðar hafna á fimmtudag.
Vörumóttaka í dag til Skarð-
stöðvar, Króksfjarðarness,
Hjallaness, Búðardals og Rifs-
hafnar.
Fullveldisfagnaður
Stúdentafélags Reykjavíkur
verður haldinn að Hótel Borg föstudaginn- 30. nóvem-
ber n.k. og hefst kl. 19 með borðhaldi.
Ræða: Birgir Kjaran, alþingismaður.
Einsöngur: Guðmundur Guðjónsson, óperusöngvari.
Gamanvísur eftir Guðmund Sigurðsson, Ævar Kvaran
leikari, syngur.
Aðgöngumiðar verða seldir á Hótel Borg (suðurdyr)
í dag, miðvikudag, kl. 17—19 og framvegis á skrifstofu
Hótel Borgar.