Þjóðviljinn - 28.11.1962, Síða 10

Þjóðviljinn - 28.11.1962, Síða 10
10 SÍÐA ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 28, nóvember 1962 CHARLOTTE ARMSTRONG: GEG6JUN inn að segja það sem hann ætl- aði að segja, — já, en seinna, því að næst kom röðin að Pétri. t>að væri ágætt að hringja seinna, þegar öll þessi spenna væri um garð gengin. Já. Það væri miklu betra. Það var að minnsta kosti eng- ipn vafi á því að Bunný var sofnuð núna. Nú var Rut til- neydd að líta upp, snúa til höfð- inu og hlusta kurteislega á ræðu- mann kvöldsins (Ó, hamingjan góða, hvað skyldi Pétur segja!) Bunný var níu ára og hún var áreiðanlega sofnuð. Veizlustjórinn reis á fætur eins og örlagavaldur. Rut setti frá sér glasið oS kjappaði með köld- um höndunum í takt við hina. — Mér er það mikil ánægja, sagði maðurinn, — að vera staddur héma . . . Hver hafði svo sem áhuga á því hve ánægð- ir þeir voru! Þeir voru alltaf svo ánægðir! Hún heyrði að veizlustjórinn dró andann dálítið þungt Pétur var búinn að snúa sér ögn til í stólnum, rétt eins og verið væri að segja eitthvað mjög athyglisvert, en auðvitað kom honum þetta ekkert við . . — Og mér er sérstök ánægja, sagði maðurinn, — að fá tæki- færi til . . . Þeir voru alltaf svo ánægðir! Rut brosti tómlega og fitlaði við vatnsglasið sitt, Hún varð að sýna að hún bæri traust til hans — þetta traust sem bjó undir hjartanu sem barðist svo ákaft. Jed ýtti henni frá sér og hon- um var það sönn ánægja. Það var hefnd gegn öllu kvenkyninu, sem hafði eyðilagt fyrir honum kvöldið. Hann bló að henni. Hann tók um olnbogann á henni og hélt henni frá sér. — Svona gengur þetta ekki fyrir sig, sagði hann. — Jú, reyndar veit ég að sumir ha]da því fram. En skrifaðu það bak við eyrað .... að það eru líka til menn sem eru vandlátir. Hann hló að reiði hennar og ballaði sér aftur upp að höfða- gaflinum. — Staðurinn, stundin og stúlkan. sagði hann háðslega. — Og ég vil velja þetta allt saman sjálfur, og þetta er hvorki eitt né neitt. Hún leit úf eins og hún ætl- aði að gefa frá sér öskur. Svo varð andlit hennar sljóiegt og hún varð aftur syfjuleg. Það var eins og hún væri máttlaus. — Þá ætla ég að kveðja Nell, sagði hann stuttur i spuna og horfði tortryggnislega á hana. — Hefurðu gert Þér það ljóst? Nú var vilji hennar að láta til sín taka ásamt hinu villi- mannslega eðli hennar, sem i upp- hafi — það skildi hann nú — hafði hrifið hann — og síðan gert hann órólegan. Hún var ekki syfjuð nei, langtífrá! Nú vissi hann að þessi dreymandi svipur var hættumerki. Ef til vill táknaði hann, að hluti af henni sofnaði í raun og veru, og það var ef til vill einmitt sá hluti sem hugsaði um framtíð- ina. Hann settist uPP og ýtti henni frá sér með beinum handleggj- um. Hann sá dálítið eftir því að hafa hlegið að henni. Hann velti fyrir sér hvernig hann ætti eig- inlega að sleppa burt árekstra- laust, án allt of mikilla vand- ræða. Hann sagði rólega: — Já, þú verður að fyrirgefa, en ég verð að fara núna. Við sjáumst kannski seinna, Nell. Það var eins og hún heyrði ekki hvað hann sagði. Svo var eins og hún heyrði ekki rödd hans — heldur eitthvað sem ekki var eins nærri og ekkj eins há- vært. Hún gaut augunum til dyra. Hann heyrði það líka. Það var barið lágt að dyrum á herbergi nr. 8Ó7. Nújá. Út til hægri, Jed Tow- ers! Jed umlaði lágt: — Ég fer út hina leiðina — gegnum her- bergi telpunnar. — Nei. Hún talaði ekki hærra en hann, hún hvislaði naumast, heldur hreyfði aðeins varim- ar. — Þú gerir það ekki. — Hún var einbeitt og þrjózkuleg. — Ef einhver finnur mig hér, sagði hann hljóðlaust, — þá missirðu vinnuna. Aftur var barið að dyrum, mjög varlega. Það var þolinmóð mannvera sem barði og myndi halda áfram að berja. Andlitið á Nell ljómaði af ill- girnislegri ánægju. Nei, nei. Ég segi bara .......að þú hafir ruðzt hingað inn. Ég segi að þú .... þú hafir ætlað að taka mig með vaidi Jed varð flóttalegur. Hann ef- aðist ekkert um að hún myndi gera Það. Já, hún myndi áreið- anlega gera það. Það var hann sannfræður um. Æ, fari það grá- bölvað ..... þetta var það and- styggilegasta! og æðisgengnasta! Og ef hún gerði það, — já, und- ir slíkum kringumstæðum var kvenmanninum alltaf trúað. — Bíddu hérna, sagði hún. — Ég veit hver það er. Þetta hljóðlausa samtal átti sér stað í næstum óhugnanlegri þögn. Kyrrðin lá eins og farg yfir herberginu. Fyrir neðan bygginguna var borgin hávær, en hátt uppi töluðu þau radd- laust í dauðakyrru herbergi, meðan einhver stóð fyrir utan og barði að dyrum, varlega og með eftirvæntingu. — Hver er þetta? — Jed var stirður af skelfingu. Hvemig átti hann að losna úr þessu ...... hvað átti hann að gera? — Það er Eddie frændi. Ég skal losna við hann. — Ég get sloppið út. Jed band- aði með hendinni Augu hans voru dökk. — Nei. Hún vissi að vilji hennar fjötraði hann. — Hvað þá? Hann nisti tönn- um. — Farðu þama inn. Hafðu Bil'inn sem Skyndihappdrættið kynnir ykkur í dag heitir VOLVO FAVOBIT og er mörgum kunnugur hér á landi. Hiinn er einn af þeim mörgu bílum sem sá heppni getur valið um eftir 23. desember, þ. e. eftir að dregið hefur verið í happdrættinu. Umboðsmaður Volvo, Gunnar Ásgeirsson, lét okkur góðfús- lega í té eftirfarandi upplýsingar um bílinn: VOLVO FAVOBIT er rúmgóð 5 manna bifreið, með 75 ha vél og 3ja hraða synchroniseruðum gírkassa. — VOLVO FAVOBIT er sérlega sterkbyggð og vönduð bifreið, enda hefur hún verið framleidd án verulegra grundvallarbreyb inga frá upphafi, og er nú árangur 18 ára stöðugrar þróun- ar og endurbóta. — VOLVO FAVOEIT er spameytin bif- reið, eyðir hérlendis aðeins 8 — S^líter pr 100 km. — VOLVO FAVOBIT er byggð fyrir kalda veðráttu og lélega vegi, enda er stórt miðstöðvarkerfi standard, vélin örugg í gagn í hvaða veðri sem er, og bifreiðin hefur stór 15” hjól, sem m.a. gera hana duglegri í snjó og annarri ófærð. — Yfirbyggingin er ryðvarin. — VOLVO FAVOBIT er með rúðusprautu, öryggisbeltum, aurhlífum og fleim. Þetta voru upplýsingar umboðsmannsins, og verður ekki af henni annað séð en að bifreiðin sé hin heppilegasta fyrir íslenzkar aðstæður En sem sagt þetta er einn af þeim bíl- um sem hinn hppni getur valið um. Skyndihappdrætti Þjóðviljans hljótt Hún vildi að hann ieynd- ist í herberginu. Hann reis hægt á fætur og sleppti henni. Hann gæti ýtt henni burt. Hann gæti flýtt sér inn í herbergi barnsins. Og hún gæti hrópað. Hún var byrjuð að opna munn. inn. Jed lét sem ekkert væri. tók flöskuna og stakk henni í vas- ann. Hún rétti honum glasið hans i skyndi. Og svo greip hún um olnbogann á ho.num. Hún ýtti honum áfram. Hún vísaði veginn. Nú var ekki lengur barið eins samfellt. — Nell? sagði rödd hljóðlega en dálítið kvíðin. — Nell? Neli sagði: — Hver er það? Rödd hennar var eins og hún væri að teygja sig og geispa. En allan tímann fylgdi hún Jed með augunum og vöðvarnir í andlitinu titruðu. Hana langaði jafnmikið til að gera uppistand — og að láta það ógert. — Það er Ed frændi. Er allt i lagi? Nell lyfti brúnum og leit á Jed. Hæddi hann. Það var eins og hún segði við hann: — Já. finnst þér það ekki? Hann umlaði: — Jæja, ég geri það þá. En flýttu þér. Hann fór inn í baðherbergið og lokaði á eftir sér, en ekki alveg. — Þú verður að afsaka. Eddie frændi, ég held ég hafi sofnað, heyrði hann hana segja ........ heyrði hana geispa. Jed Towers stóð frammi í bað- herberginu og formælti sjálfum sér. Hafði hún beitt hann göldr- um, eða hvað? Þetta voru öld- ungis fráleitar aðstæður. Hann leit á úrið sitt. Hann sagði við sjálfan sig, að þegar Eddie frændi hefði sig á bro.tt, þá skyldi hann sjálfur fylgja á eft- ir — tafarlaust. Og án orða. Án einnar einustu óþarfa hreyf- ingar. Já maður komst stundum i kynni við ókunnugt kvenfó'k af tilviljun. Stundum i járn- brautarlest eða í bar. Stundum gekk það ágætlega. Og ef hann hafði ekki ánægju af kunnings- skapnum, þá hvarf hann — snöggt og án iðrunar. Hvernig í ósköpunum hafði það atvikazt, að Jed Towers stóð þama og faldi sig bakvið hurð. Hann settist á baðkersbrúnina til að bíða Hann bölvaði og hugsaði um hvemig hann ætti a slepp burtu. Lyn sneri aftur frá símanum. Það svaraði enginn. Ég reyki eina sígarettu í viðbót — bara eina. Ég bíð þangað til tíu manns koma inn af götunni, tíu í viðbót. Ég get skrifað betra bréf. Það veit ég. Ég get að minnsta kosti reynt. 9. KAFLI Eddie sá, að frænka hans var ennþá í innisloppnum og það kom vonbrigðaglampi í augu hans. Hann sagði: — Ég kom með kókakóla. Vonbrigðin, gerðu rödd hans dapurlega Hann hélt á flöskunum í hendinni og hann gekk að skrifborðinu o.g stóð þar og horfð á bakkann, á skálina naeð bráðnandi ís og glasið sem Nell hafði drukkið úr. — Hvað er þetta? Það var ennþá ögn af whiskýi og engi- feröli í glasinu. Nell sagði; — Þetta tók svo iangan tíma. Eddie frændi. Ég varð þyrst. Ég skal skola glas- ið. Hún tók glasið úr auðsveipri hendi hans — Ég pantaði engi- feröl. sagði hún þrjózkulega, þegar hún sá órólegt augnaráð hans. — Frú Jones sagði að ég mætti það. — Það var vinsamlegt af henni, sagði Eddie. — Viltu ekki konfektmola? sagði Nell glaðlega. — Hún sagði að ég skyldi borða eins og ég vildi, — Ég held mig langi ekki í neitt, sagði Eddie. — Þakka AfSéttara tagi þér fyrir. Hann renndi dapur- legu augnaráði um allt herberg- ið. Nel] opnaði dymar inn í bað- herbergið. Hún gekk að vask- inum og skolaði glasið. Ekki einu sinni í speglinum horfðist hún í augu vð Jed. Ekki með hreyfingu, augnatilliti eða merki gaf hún til kynna, að hún vissi af honum þarna. Reið- in sauð í Jed. Hún misnotaði tök- in sem hún hafði á honum. Að- eins dálítið bros, augnaráð sem táknaði að þetta væri samsæri til að blekkja Eddie, hefði gert þetta léttbærara. En nei ........ hún hafði neytt hann til að lítii- lækka sig og nú naut hún þess að sjá hann auðmjúkan. > Hann hefði getað lamið hana. Hann nísti tönnum. Fyrr mátti nú vera barnfóstran! Eddie sagði: — Sefur litla stúlkan? Ég sé þú ert búin að loka dyrunum. Neli fór út úr baðherberginu og togaði í hurðina. Hún hefði lokað alveg, ef Jed hefði ekki haldið af öllu afli í hurðarhún- inn að innan. Þau toguðust á, þegjandi og með leynd, en hann sigraði að lokum. — Heyrirðu til hennar ef hún segir eitthvað? sagði Eddie á- hyggjufullur. — Ljósið var henni til óþæg- inda, laug Nell hin rólegasta. — Jæja, ef hún er sofnuð. þá er það henni ekki lengur til ó- þæginda, Eddie tók varlega í húninn og opnaði dyrnar. — Ég býst við að frú Jones vilji heldur að hurðin standi í hálfa gátt, Neil. — Jæja, þá, sagði hún kæru- leysislega. Hún beið eftir því að fá kókakólað. — Klukkan er orðin margt. Ég held það væri réttara, NeU, að þú færir úr fötunum hennar frú Jones. Það finnst mér satt að segja ..... Barkakýli Eddies kom upp um vandlætingu hans, þótt hann gætti tungu sinnar vandlega. — Ég ætlaði líka að gera það. Nell beit á vörina með falleg- um tönnunum. — En mér leið svo vel í þessu ..... óg það lá ekki svo lífið á ....“ Það hýmaði strax yfir Eddie. *— Já, auðvitað ætlaðirðu að gera það. Það veit ég vel. En .... Hann fitlaði við flöskulyk- il. — Heldurðu að þú ættir ekki að gera það núna? — Jú, Eddie frændi. Hún sett- ist auðsveip á litla bekkinn og fór úr inniskónum. Eddie fann svörtu skóna hennar og hún fór i þá. Svo tók hún úr sér eyma- lokkana með hægð. Hún 9etti þá í skartgripaskrinið. Hún fór að tína allt hitt saman líka, setj.a það á sinn stað. Eddie létti mjög mikið og hann varð rólegri. — Þetta er prýði- legt. Þú ert góð stúlka. Hún sneri til höfðinu og brosti til hans Hún reis á fætur og fór að losa um beltið á innislo.pp Rutar. Eddie sat niðurlútur. NeU sagði hógvær og dálítið Höfum til sölu Eftirtaldar hjólbarðastærðir undir ýmsar vinnu- vélar og stórar vörubifreiðir: 1400x20 20 strigalaga. 1600x24 24 strigalaga. 1600x25 24 strigalaga. 1800x24 20 strigalaga. 2100x25 44 strigalaga. SÖLUNEFND VARNARLIÐSEIGNA. Höfum til sölu nokkrar Reo Studebaker vörubifreiðir 5 tonpa. — Hentugar til vetrarflutninga. — Bifreiðir þessarj hafa reynzt mjög vel í snjóþyngstu héruðum landsins. — Ennfremur höfum við Mack Intemational vörubifreiðir 10 tonna. SÖLUNEFND VABNARLIÐSEIGNA. i

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.