Þjóðviljinn - 30.11.1962, Blaðsíða 4
4 SÍÐA
ÞJÓÐVILJINN
Föstudagur 30. nóvember 1962
Nýmæli á döfinni
Skíða -
Reykjav. - Bergen - Glasgow
í ráði er að reykvísk-
ir skíðamenn taki þátt
í borgakeppni þriggja
borga í marzmánuði n.
k. Það eru Reykjavík
— Bergen — Glasgow
sem ætlunin er að keppi
í Solfon, sem er nýr
skíðastaður skammt frá
Bergen.
Borgakeppni hefur farið fram
milli Bergen og Glasgow við-
stöðulítið síðan 1936, en nú hef-
ur Reykjavík verið boðið að
bætast í hópinn. Skíðaráð
Reykjavíkur hefur áhuga á að
taka þessu boði, en skíðasam-
tökin eiga við fjárhagsörðug-
leíka að etja, og það er óhjá-
kvæmilega kostnaðarsamt að að
senda hóp í slíkt keppnisferða
lag.
Gott áform.
Það er ekki að efa að slík ;
keppni gæti örvað skíðaíþrótt- j
ina hér. íslenzkt skíöafólk hef- J
ur of sjaldan fengið að spreyta
sig í keppnl við álíka sterk?
erlenda aðila.
Norðmenn hafa án efa yfir-1
höndina í keppni sem þessari.
Skotar munu eiga allgóða skíða-^"
menn, en ekkl er ólíklegt að
íslenzkir skíðamenn gætu lát-
ið að sér kveða í keppni við
þessa aðila í svigi og bruni.
. . en fjárhagserfiðleikar
Skíðaráð Reykjayíkur hefur
begar hafið undirbúning að því
að reyna að tryggja fjárhags-
lega möguleika fyrir þessa
keppni. Firmakeppni verður
skipulögð í vetur, og verður
hún stærri í sniðum en und-
anfarið, og vonandi munu fyr-
irtæki borgarinnar styrkja þá
ágætu starfsemi í vaxandi mæli.
Reynt verður að fjölga fyrir-
tækjum í keppninni, og verð-
ur hún að líkindum háð í á-
föngum og byrjar milli jóla og
nýárs, ef skíðafæri verður.
Sundmót Ægis
Hreinskilinn skíðakappi
Allir eru
//
VI
Það var mikill frægðarljómi um austur-
jrfska skíðakappann Toni Sailer fyrir nokkrum
árum. Sex ár eru liðin síðan hann vann sína
stærstu sigra á vetrar-olympíuleikunum í
Cortina. Nú er hann 27 ára gamall og orðinn
vel þekktur leikari — bæði í kvikmyndum og
á leiksviði.
Fátt mun nú vera eftir í fari
Toni Sailers sem minnir á
skíðaheimsmeistarann Toni
Sailer. í kvaða ljósi sér þessi
ungi leikari nú feril sinn sem
afreksmaður í skíðakeppni?
Fyrir skömmu skýrði hann frá
áliti sfnu í blaðaviðtali.
Einbeþni
„Erfiðleikarnir voru þessir:
Ég hlaut að keppa að sigri hvað
sem það kostaði — og samt
mátti ég alls ekki hugsa um
það!“ Þetta álítur Toni Sailer
vera það erfiðasta og flókn-
asta við skíðakeppni í alpa-
greinum. Þessi brennandi ákafi
í sigur og um leið nauðsynin
á því að hugsa ekki um hann.
Þessu má líkja við reiknings-
vél: Maður slær hverja tölu
VVVVVVVVVVWVVVWVVVVVVWWWVVVVVVWVV''
í Á skíði
I um helginalf
| Nú er skíðasnjórinn kom- J
| inn aftur, og borgarbúar ?
geta glaðzt yfir því að fá ;
tækifæri til að skrcppa á ;
skíði og váðra af sér borg- ;
arrykiö. S
Um helgina skipuleggja ;
skíðafélögin ferðir í alla t
skfðaskálana. Lagt vcrður ;
| af stað kl. 2 s.d. á morgun, ;
; iaugardag, og kl. 10 f.h. og í
; kl 1 eh á sunnudag. ;
; Það er gott skíðafæri. ;
I Skíðakapparnir munu í
; hugsa sér gott til glóðarinn- ;
; ar og ungir og gamlir ættu ;
| að nofæra sér hann og iðka ;
| holla og skemmtilega í- ;
; þrótt. *
WWWVWWWWWV'WWVWVWWVWWWW'
fyrir sig og má ekki hugsa um
' annáð’ ‘á ‘ méðan', “þÖt't'' í mánni
brenni áhuginn fyrir því að út-
koman verði. rétt, en um það|
má ekki hugsa því þá geturj
maður gert skyssu við einstaka
talnaliði. Þannig er það í skíða-
keppni. Maður veröur á hverju
augnabliki að einbeita sér að
vandanum sem er næstur. Ef
maður leyfir sér að víkja hug-
anum að sigurvoninni í lokin,
þá er voðinn vís í svig- eða
brunkeppni. örlítil eftirgjöf á
einbeitingunni að augnabliks-
vandanum býður hættunni
helm. í keppni hugsaði ég ein-
göngu um klettinn sem var
næstur, um vandasamt hlið
sem blasti við, um íshelluna
framundan, um varhugaverða
brekku sem ég var að steypast
niður í. Mig langaði til að
hugsa um sigurinn sem blasti
við, en ég vissi að ég myndi
tapa ef ég slakaði á einbeitr-
inni“.
Yfir strikið
„Ákafinn í sigur fylgdi manni
alltaf eins og laumufarþegi",
segir Toni Saller núna. Og
hann segir ennfremur að oft
hafl þessi ákafi kostað sig
sigurinn. Alltaf þegar hann var
ákafastur í að sigra — hvað
sem það kostaði — þá tapaði
hann.
„Hanakambs-keppnin" er
sönnun fyrir kenningunni
mini“, segir Saller. Mitt fjall,
minn Hanakambur, skíðaland
fyrir mig, og allir sögðu við
mig: Þetta verður keppni fyrir
þig!“ Mér fannst að þetta hlyti
að verða mín keppni, en sigur-
inn kom aldrei í minn hlut.“
„Leyndardómurinn“
Það er mjög algengt að fólk
haldi að afreksmenn í íþrótt-
um hafi einhvern töfralykil í
fórum sínum, en þannig reynir
almenningur að skýra yfirburði
þeirra. Oft er þetta ekki fjarri
lagi. Afreksmenn hafa oft eigin-
leika eða hagkvæm ráð til að
bera sem þeim Ánnst hjálpa sér
í keppni. Toni Sailer er að því
spurður í hverju leyndardóm-
,ur árangurs hans sé fólginn.
„Það var ákaft eintal hugans |
fyrir keppni", segir Sailer. „Það
hringsólaði alltaf um sama
kjarnann. Það var ósk, bæn
skipun, særing og allt að því
grátbænalestur. Toni Sailer tal-
aði við Toni Sailer: Farðu j
hægt Toni, heyrðu Toni, ’iú1
skalt fara þér hægt. skildu mig, i
Toni, hægt, hægt“. Og Toni j
Sailer viðurkennir nú; „Alltaf
þegar ég fór of hratt — ætlaði
mér um of — þá fór illa, ég
féll og tapaði.
Þetta er raunar ekkert leynd-
armál. Margir keppendur hafa
áreiðanlega svipaða sögu að
segja, þótt ekki hafi eintal sál-
arinnar ákallað þá jafn einarð-
lega til einbeitni. Og margur
keppandinn hefur sömu sögu
að segja um það. að viljinn
Guða. Gislason
jafnaði Isi.metið
í 50 m. baksundi
Sundmót Sundfélagsins Ægis fór fram í
Sundhöllinni á miðvikudagskvöldið, og voru
þátttakendur frá 7 félögum.
Skíðamaðurinn Toni Sailer.
hafi farið fram úr getunni.
Þeir hafa farið cf hratt og tap-
að.
Otti
„Varstu aldrei hræddur fyr-
ir keppni?“, er Toni Sailer
spurður.
„Allir eru hræddir. Ef þeir
viðurkenna það ekki, þá er það
aðeins vegna þess að þeir
skammast sín. Maður óskar
þess að keppninni yerði aflýst.
Maður þráir það meira að segja
oft að snjórinn hafi fært all-
ar skíðabrautir í kaf“, segir
kappinn í hreinskilni.
Toni Sailer álítur snjöllustu
samtíðarmenn sína í alpa-
greinunum vera ítalann Zeno
Colo, Norðmanninn Stein Erik-
sen Dg Austurríkismanninn
Christian Prawda.
Áður en sundið hófst ávarp-
aði Ari Guðmundsson gesti, og
minntist Sigurgeirs Guðjóns-
sonar sem lézt af slysförum ný-
lega, en hann var mikill sund-
áhugamaðuf. Hann var félaoi
í KR og tók um langt skeið
þátt í einstaklingssundi og síð-
ar í sundknattleik. Sigurgeir
var um langt skeið mjög virk-
ur í sundmálum almennt, og
boðinn og búinn að gera það
sem sem honum var falið.
Bað Ari Sundhallargesti að
rísa úr sætum sínum til virð-
ingar við hinn látna sundá-
hugamann, og stóðu allir þögl-
ir um stund.
Sundmót þetta var ekki str-
lega stórt í sniðum, og líktist
meira unglingasundmóti. því
unglingasundin voru í miklum
meirihluta Kemur það raunar
ekkí neitt á óvart, bví fátt er
um þátttakendur sem komnir
eru upp úr unglingaflokkunum.
i.uufiÍJI ic.unr?' nKrtrrrnf í
Guðmundur á
mettíma
Guðmundur Gíslason er sem
fyrr í sérflokki, og vann það
„frek að synda 50 m baksund á
mettíma, 30.9 en það met á
i.ann sjálfur. Aftur á móti var
tími hans á 100 m skriðsundinu
ekki sérlega góður miðað við
fyrri afrek. Hörður Finnsson
virtíst ekki sérlega vel upp-
lagður að þessu sinni.
Var því haldið fram af sund-
fróðum mönnum að sundlau 'in
væri ekki vel undir það búin
að halda í henni mót, hún væri
29 gráðu heit, sem er alltof
Ungverjinn Laszlo Papp mun
vera einn snjallasti hnefaleik-
ari Evrópu, og sá þeirra sem
mest er á dagskrá núna. Hann
sótti Evrópumeistaratitilinn í
millivigt í greipar Danans
Chr. Christensen fyrir fáein-
um árum. Nú fyrir skömmu
varði hann titil sinn gegn
Frakkanum Hippolyte Annex
og rotaði hann f 9. lotu. Áð-
ur hafði Annex unnið 38
kappleiki í röð. Papp á sér
langa og merkilega sögu sem
hnefaleikari. Hann hefur
þrisvar sinnum unnið gull-
verðlaun á olympíuleikunum
— 1948, 1952 og 1956. Þetta
er fátítt afrek. Síðan gerð-
ist hann atvinnumaður ár-
ið 1957. Hann er orðinn 38
ára gamall. Næst mun hann
verja titil sinn gegn Skot-
anum John „Cowboy" Mc-
Cormack í marzmánuði. Papp
hefur tilkynnt að hann muni
draga sig i hlé að þeim leik
lokum og hætta óvenjulega
löngum keppnisferli.
Á brezku samveldisleikun-
um í Perth í Ástralíu hefur
enn verið sett tvö heimsmet
f sundi. L. Lundgrove frá
Englandi settí heimsmet í 220
yarda baksundi kvenna —
2.35,2 mín. Hún átti sjálf
eldra metið, sem var 4/10 sek.
lakara. Sveit Ástralíu setti
heimsmet í 4x110 yarda boð-
sundi frjáls aðferð. Tíminn
var 3.43,9 mín.
Laszlo Papp.
utan úr heimi
Guðmundur Gíslason.
mikill hiti fyrir kepnnisfólk. og
svo hitt að ekki var nógu hátt i
í henni, eða svo að öllum öld-
um skolaði til baka til truflun-
ar fyrir sundfólkið.
Hrafnhildur Guðmundsdóttir
synti í aðeins einú sundi að
þessu sinni og vann það með
miklum yfirburðum, en það var
100 m bringusund kvenna. Var
það eina kvennasundið á mót-
inu, og gefur það til kynna að
ekki sé um auðugan garð að
gresja hvað snertir sundkonur.
Efnilegir unglingar
I bringusundi telpna var góð
þátttaka og eru þar vissulega
efnilegar stúlkur ef þær halda
áfram. Það sund vann Kolbrún
Guðmundsdóttir, og í öðru sæti
varð Matthildur Guðmundsdótt-
ir, og er þar sennilega á ferð-
inni gott efni.
í skriðsundi drengja var
einnig góð þátttaka og var úr-
slitaspretturinn. eins og svo oft
áður milli Guðmundar Þ. Harð-
arsonar og Davíðs Valgarðsson-
ar, og félagi Guðmundar bland-
aði sér svolítið í þessi loka-
átök. Annars átti Ægir 6 kepp-
endur í þessum hópi en kepp-
endur voru alls 13.
Það var líka athyglisvert að
drengjasveit Ægis var þriðja
í 4x50 m skriðsundi karla. eða
á undan sveitum KR og Hafn-
arfjarðar. Virðist sem Ægir sé
að fá upp unga menn sem geti
tekið upp merki Æeí.s f- fram-
tíðinni.
Nöfn þessara efnilegu ungu
manna Ægis eru: Guðberg
Kristinsson, Hilmar Sigurðsson,
Jóhann Héðinsson og Guð-
mundur Þ. Haröarson.
Hins vegar vann ÍR boðsund-
ið með nokkrum yiirburðum.
Framhald á bls. 8
Verzlunin Laugaveg 45,B - sími 24636 Skipholti 21 - Sími 24676