Þjóðviljinn - 30.11.1962, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 30.11.1962, Blaðsíða 10
10 SIÐA ÞJÓÐVILJINN CHARLOTTE ARMSTRONG: GEGGJUN Stjórnmálaályktunin líka orðið fyrir vonbrigðum? Hnipruðu þau sig saman innan- við brynjuna eins og menn í virki? Hann sá þau ekki o.ft nú orðið. Það var fjölskylduhefð að skiptast nær eingöngu á góðum fréttum. Skyldu þau vera ham- ingjusöm í hjarta sínu? Það vildi hann helzt halda. Hann gerði ráð fyrir að barátt- an vlð tilveruna tæki einhvern tíma enda og þá væri hægt að setjast í helgan stein á einhvern hátt, setja upp augnblökur og gægjast aldrei út fyrir þær. En sá sem er ungur og berst fyrir tilveru sinni og framtíð, verður að vera vakandi. Verður að vera var um sig. Hann vill efcki láta troða á sér. Já, hann Jed Towers, sem sat á baðkerinu bakvið hurðina, hann var enginn heimskingi. Hann vissi hvemig átti að brjót- ast áfram i heiminum. Kjálka- vöðvar hans spenntust. Nú hafði hann sannarlega komizt inn á hliðarspor. Þú verður að koma þér héðan burt, Jed Towers! Þessi Eddie talaði án afláts. Hann talaði og talaði. — Og svo hugsaði ég með mér, sagði Eddie, — að það væri bezt að þú færir þér hægt fyrst í stað. Að þú létir þér nægja að taka að þér svona smástarf einstöku sinnum. Því er nefni- lega þannig farið, Nell, prédik- aði hann, — að þegar maður gerir eitthvað fyrir aðra, þá vinnur maður gott verk. Og þá borgar fólk með glöðu geði. Og þá vinnur þú þér inn aura. Þú gerir gagn. Það verðurðu að reyna að skilja. Smám saman verðurðu nógu frísk til að taka að þér erfiðari verkefni eða betri vinnu. Þú færð meiri áhuga. Qg þá hættirðu líka að vera svona eirðarlaus. — Þú ert búinn að segja þetta allt áður, sagði hún. Hún sveifl- aði öðrum fætinum. Eddie sá það og þagnaði. — Ertu þá að fara? tautaði hún. Hún hailaði höfðinu upp .að stólbakinu. Hún sneri vang- anum að honum. Hún lokaði augunum. — Nú tek ég kókakólaflösk- urnar. Nú líður áreiðanlega ekki á löngu áður en Joneshjónin koma heim. Kannski eftir tvo tíma. Ertu þreytt? | Hún svaraði ekki. Eddie reis á fætur og flöskurnar glömruðu hvor við aðra þegar hann tók þær upp. Hún andaði að sér djúpt og hægt. — Ég verð hérna í gistihúsinu, tautaði hann. Hann xenndi augunum um herbergið. Nú var orðið snyrtilegt inni. Allt leit út eins og það átti að gera. Hann tók glasið sem Nell hafði drukkið úr. Niðursokkinn í eigin hugsan- ir, áhyggjur og erfiðleika gekk Eddie í áttina að baðherberginu til að skola glasið. 10. KAFLI Aður en Jed mætti í spegl- ínum undrunar- og skelfingar- augnaráði litla mannsins, var hann búinn að átta sig á öllum aðstæðum. Hann viðurkenndi að hann hafði tapað leiknum í fyrstu lo.tu. Hann reis liðlega á fætur. Skelkuð augun fylgdust með hreyfingum hans í speglin- um. En Jed brosti. Það væri hægt að kippa þessu í lag. Mannshugurinn er svo vel úr garði gerður að hann drekkur i sig eins og segulband ýmis- legt sem hann heyrir, án þess það hafði haft nein sérstök áhrif. Jed skildi undir eins, að hann gæti ráðið við Eddie. og það væri líka honum til góðs. Af því sem hann hafði heyrt, skildist honum. að Eddie var engan veginn öruggur um Nell litlu, frænku sína. Eddie vissi að henni var ekki að treysta, svo að vægilega sé til orða tek- ið, þótt hann berðist við að trúa því að þetta bjargaðist allt. Allt þetta þvaður um traust hans og skilning ..... það var ekki annað en von, bæn. engin sann- færing. Já, Eddie átti mikið á hættu og Eddie bar mikla á- byrgð. Jed þurfti ekki annað en not- færa sér sjálfsbjargarhvöt Eddi- es. Þetta var ofur einfalt. Jed ætlaði að biðjast afsökunar. f rauninni hafði ekkert komið fyr- ir. Þau höfðu drukkið fáeina drykki ..... og honum þótti það leitt, en nú færi hann. Það var enginn skaði skeður og ástæðu- laust að fjölyrðá um það. Jed ætlaði að gera litla mann- inum þetta eins auðvelt og hann gat. Hann ætlaði að biðja hann að gera sér þann greiða að þegja um þetta. Vegna göíuglyndis Jeds, kæmist Eddie undan af- leiðingum af eigin glópsku. Eddie yrði því sárfeginn’ að ekki yrði minnzt á þetta framar. Síðan ætlaði Jed að kveðja Nell. Og svo ætlaði hann að fara. Þess vegna reis Jed brosandi á fætur, vitandi það að hann gat gripið til alúðar og þokka þeg- ar á þurfti að halda. Meðan hann var að standa upp og opna munninn, tók litli maðurinn við- bragð; hann gaf frá sér hljóð eins og mús og fór að hörfa aftur á bak til dyranna og sneri skelkuðu andlitinu að há- vöxnum líkama Jeds í dimmu, flisalögðu herberginu. Jed vildi ekki gera hann hræddari og stóð kyrr. En Nell þaut eins og köttur gegnum herbergi númer 807. Hún hélt á þunga stand-ösku- bakkanum í hendinni. Hún sveiflaði honum. Jed fleygði sér í átt til hennar með handlegg- inn á lofti en hann varð of seinn. Öskubakkinn skall á höf- uðkúpu Eddies. Lausi glerbakk- inn féll glamrandi niður á flísagólfið. Jed gaf frá sér hást reiðiöskur og þreif gripinn af henni og Nell hrópaði skerandi ei n satkvæ ðisorð. Hávaðinn var óskaplegur. Eddie var hinn eini sem ekk- ert hljóð gaf frá sér. Hann hneig niður og lá grafkyrr. Andartak var dauðaþögn. Svo fór síminn að hringja í herbergi 807 og um leið rak Bunný upp skelfingaróp í herbergi 809. Og glerskálin af öskubakkanum sem hafði staðið upp á rönd and- artak, valt áfram og lagðist loks útaf án þess að brotna. — Jæja ...... sgði Jed hásum rómi. — Þú ert .... Hann settist á hækjur hjá litla mann- inum sem lá þarna í hnipri. Nell sneri sér við og gekk að símanum. sem þegar var búinn að hringja fjórum sinnum. — Halló? Rödd hennar var óskýr og þokuleg. Jed snart gagnauga Eddies og breifaði á hálsi hans. — Já. frú Jones, sagði Nell. — Ég held ég hafi aðeins blund- að. Jed fann slagæð hreyfast und- ir fingrum sér. og loks þorði hann að draga andann á ný. — Hún er sofandi, sagði Nell blíðlega. (Og þá byrjaði Bunný að gráta). — Nei. það. hefur ekkert verið að. Þetta gengur allt prýðilega. Jed gat ekki að sér gert að hlusta eftir þessari rödd. Hún var kuldaleg ..... kannski með dálitlum undirtón, sem taka mátti fyrir hrifningu. Hann fann hvernig grátur bamsins nisti hann og það fór um hann hroll- ur. Hann leit niður á Eddie í örvæntingu. — Já, hún gerði það. Hún sofnaði strax eftir sögulesturinn, frú Jones. Ég vona að þér skemmtið yður vel. Með símann við eyrað sneri Nell sér við til að aðgæta hvað Jed hefðist að, og þau horfðu hvort á annað svipbrigðalaus. Hún lagði höndina yfir tólið. Barnið öskraði eins og villi- dýr í næsta herbergi! Eihs og villidýr! — Nei, þér þurfið ekkert að flýta yður, frú Jones, sagði Nell ástúðlega. — Mér er alveg sama .... hvað þá? Hún glennti upp augun og rödd hennar varð full undrunar. — Hávaði? Já — já, það eru víst brunabílar niðri á götunni sem þér heyrið í. — Hún lagði höndina yfir tólið og sagði milli fingranna; — Brunabílamir eru að aka framhjá, það er enginn Framhald af 7. síðu. meðal bænda. f því leikur hins vegar enginn vafi, hvað núver- andi valdhafar ætlast fyrir í þessum efnum. Þeir hafa þegar lýst fullu fylgi við inngöngu í E.B.E., enda þótt þeir taki nú að draga í land og slá var- nagla, er þeir finna andúð al- mennings og kosningar nálgast. Það hlýtur því að verða langmikilvægasta verkefni flokks vors um sinn að koma í veg fyrir inngöngu íslands í E.B.E., hvort held- ur sem um fulla aðild eða aukaaðild væri að ræða. Undir úrslitum þeirrar baráttu eru komin örlög þjóðarinnar og sjálfstæð til- vist. Alþingiskosningamar 1963 geta skorið úr um það, hvort Island verður innlimað í E.B.E. eða ekki. Yfirvofandi hætta á inngöngu Islands í Efnahagsbandalag Ev- rópu gerir það margfalt brýnna að hnekkja sem fyrst yfirráð- um núverandi valdhafa og sundra því liði, sem að þeim stendur. Þessi hætta kallar á framsækna stjórn, sem styðst við vinnandi stéttir og allt frjálshuga fólk í landinu. Það yrði hlutverk þeirrar stjórnar að bægja frá þeim voða, er þjóðinni stafar af E.B.E., að tryggja hlutleysi og sjálfstæði landsins, losa það úr tengslum við Atlanzhafsbandalagið og vísa bandariska hernum úr lhndi. Hún þarf að binda endi á alræði auðstéttarinnar á efnahagssviðinu og rétta til fulls hlut almennings í kjara- málum, tryggja meðal annars 8 stunda vinnudag, þar —m því verður við komið og með mánnsæmandi kaupi. Þá verður hún að beita sér fyrir stórstíg- um framförum í atvinnumálu; ,i bæði í samvinnu við fjölda- samtök alþýðunnar og alla at- vinnurekendur, sem vinna vilja að framförum og eflingu þjóð- arhags. Víðtækari samfylking en nokkru sinni fyrr Flokksþinginu er ljóst, að til þessa alls þarf stóríellt átak og mikinn sigur lýðræðisafl- anna í landinu. Hér verður að koma til víðtækari samfylking og meira samstarf en nokkru sinni fyrr. Aldrei hefur rlðið jafnmikið •i því cg nú, að vcrkalýðsstétt- in skilji til fulls forystu- hlutverk sitt með þjóðinni og að henni takist að skapa það bandalag við aðrar stéttir, er endast megí þjóðinni til bjarg- ar. Verkalýðsstéttin verður að tengjast traustari böndum við aðrar launastéttir. Samstarf allra launþega, jafnt í A.S.Í. sem B.S.R.B., er brýn nauðsyn. Launþegastéttimar eru um 70% landsmanna, og þær þurfa ekki að una kúgun fámennrar auð- klíku, ef þær þekkja hlutverk sitt og standa saman um hags- muni sína og rétt. Samstarf verkalýðs og bænda um verðlagsmál hófst fyrir 19 árum og stendur enn, enda þótt veigamikilli forsendu þess, vísi- tölutryggingu launþega, hafi verið kippt burt. Þetta sam- starf þarf að festa og auka stórlega. Þingið telur að alþýðan verði að láta málefni samvinnusam- takanna meir til sín taka og ger.a sér ljóst hve mikilvæg þau geta orðið í hagsmunabar- áttunni. Samvinna verkalýðs og bænda er nú brýnni en nokkru sinni fyrr, sökum þeirrar hættu, er steðjar að sjálfstæði landsins og framtíð íslenzks þjóðernis. • En bændastéttinni ætti að mega treysta flestum fremur til varðstöðu um .'s- lenzkt þjóðemi. Þá er og rík nauðsyn á að efla og bæta samstarf verka- lýðs og menntamanna. Auð- stéttin íslenzka hefur hafið sókn í ómenningarátt, sem reynzt getur hættulegt þjóðar- erfð vorri og þjóðmenningu. Hér verða þjóðhollir mennta- menn að spyrna við fótum í samvinnu við alþýðu landsins. Islenzkir menntamenn, skáld og rithöfundar hafa löngum stað- ið í fylkingarbrjósti í frelsis- baráttu þjóðarinnar á liðnum árum. Nú er þjóðerni voru og framtíð stefnt í bráðari hættu en fyrc, og veltur því á miklu, að þeir skipi sér til vamar við hlið verkamannsins og bóndans. Á þeim hvílir nú mikil ábyrgð. Mikilvægt er, að smáatvinnu- rekendur í útvegi, iðnaði og^ verzlun geri sér ljóst, að hagur þeirra og verkafólks fer sam- an. Það þarf að sýna þessum aðilum fram á* .«aA • ,þeir-: æ*gi enga samleið með auðklíkum Reykjavíkurvaldsins og leiða þeim fyrir sjónir þá hættu, er steðja myndi að sjálfstæðum atvinnurekstri þeirra og af- komu, ef ísland gengi í E.B.E. og erlent hringavald tæki að ryðja sér til rúms í íslenzku at- vinnulífi. I bandalagi þeirra stétta er berjast vilja fyrir íslenzku sjálfstæði og gegn innlimun landsins í erlent auðhringa- veldi, eiga einnig heima allir Föstudagur 30. nóvember 1962 þeir atvinnurekendur islenzkir, sem efla vilja íslenzkt atvinnu- þf og vinna að framförum þjóðarinnar á grundvelli efna- hagslegs ogstjómarfarslegsfull- veldis. Skilyrði fyrir árangursríkri sókn Flokksþingið gerir sér þess fulla grein að sú víðtæka sam- fylkingarbarátta, sem nú er nauðsynleg, krefst mikils starfs, lagni og víðsýni, og að átökin framundan eru bæði erfið og örlagarík. Lýðræðisöflin, flokk- ar og bandalög vinnustéttanna, þurfa að vinna mikinn sigur i næstu kosningum og mynda framsækna lýðræðisstjóm. Því aðeins verður hægt að knýja fram verulegar kjarabætur al- þýðu til handa og hnekkja því gjörræði, er vofir yfir lýðræð- islegum samtökum fólksins. Slíkur kosningasigur og ný framsækin ríkisstjóm, er jafn- framt helzta leiðin til að bægia frá aðsteðjandi hættu á inn- göngu Islands í E.B.E. Og til þess að slik ríkisstjóm getli orðið verkefni sínu vaxin og framkvæmt stefnuskrá sína án undansláttar, er nauðsynlegtj að að baki henni sé mjög sterk, einhuga og einbeitt samfylking alþýðunnar og traustur, öflugur og samstilltur verkalýðsflokk- ur, svo að tryggt sé, að aftur- haldinu takist ekki að gera að engu þann árangur, sem næst, og að unnt verði að halda sókninni áfram óslitið. Skil- yrðin fyrir árangri eru því mikil efling Sósíalistaflokks- ins og þeirrar víðtæku sam- fylkingar, sem hann keppir að. Það er hlutverk Sósíalista- flokksins að vinna nú hiklaust að framkvæmd þessara brýnu og mikilvægu verkefna og treystir þingið þvi, að flokks- stjórnin beiti öllum þeim þrótti, víðsýni og dirfsku, er flokkur vor býr yfir, því nú er þess meiri þörf en nokkru sinni íyrr. gillllii 7;ihM:í 7 ’ .’ ■ ‘ < •, , giflt Þjóðleikhásstjóri Framhald af 9. síðu. en það er svo annað mál, að ekki virðist öllum vaxa að- göngumiðaverðið í augum. Mættj í því sambandi benda á tvennt: 1) Dýrustu sætin í leikhúsinu ganga alltaf út fyrst (og gildir það jafnt Um al- mennar sýningar og barnasýn- ingar) og ódýrustu miðarnir seljast aldrei fyrr en allt annað er ófáanlegt. Þg er almanna- mál, að ódýrustu sætin á efstu svölum leikhússins gefi öðrum lítt eftir. f annan stað er sæl- gætissalan í leikhúsinu aldrei meiri en þegar bamalejkritin eru sýnd og sölustúlkurnar hafa eagt mér að dæmi væru þess að barn hafi keypt gottirí fyrir allt að 30 krónur í einu. Ég get ekki séð nnað en á þessum lið gætu foreldrar sparað drjúgan skilding. — Loks, sagði þjóðleikhús- stjóri, er þess að geta að við höfum ekki tekið strangt á því þótt foreldrar sætu undir börnum sínum á leiksýningun- um. Miðað hefur verið við 6 til 7 ára aldur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.