Þjóðviljinn - 01.12.1962, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 01.12.1962, Qupperneq 6
6 SIÐA ÞJOÐ.VILJINN Laugardagur .1, desembex 196'z Atvlnnulaus í 18 mánuði fyrirfer sér Hann hafði verið atvinnulaus í átján mánuði. Hann átti eng- an að. öllum stóð á sama um hann. Það var ekki lengur þörf fyrir hann í þessum heimi. Hann klifraði upp í 75 metra háan brúarboga og þar bjóst hann til að stytta sér aldur, segja skilið við þennan heim, sem löngu hafði snúið við hon- um baki. Menn komu auga á hann og óðar voru ljósmyndar- ar og sjónvarparar komnir á vettvang. Heimurinn hafði allt í einu fengið áhuga á honum. Menn reyndu að telja honum hughvarf, en hann bað um það eitt að fá að vera í friði síðustu mínúturnar sem hann væri í þessum heimi. Og síðan steypti hann sér fram af brúarbogan- um. Hann hét Joseph Slavin. Hann var sextugur að aldri. Hann var einn af fjórum millj- ónum atvinnuleysingja í góss- enlandi auðvaldsins, Banda- ríkjunum. Ný refsilöggjöf í Svíþjóf Hertar refsingar fyrir kynferðisbrot, þannig fangelsi fyrir eiginmann er nauðgar konu sinni Sænska þingið hefur sam- um tekinn, myndi mannfélags- byggingin hrynja til grunna. þykkt allvíðtækar breyt- ingar á refsilöggjöf lands- ins og fór þar að mestu eft- ir tillögum ríkisstjórnarinn- ar sem settar voru fram eftir áratugalanga endur- skoðun á löggjöfinni. Hin nýja refsilöggjöf mun ganga í gildi þegar nauð- synlegar breytingar hafa verið gerðar á öðrum lög- um til samræmis við hana og er búizt við að það verði<j> 1. janúar 1965. Af umtöluð- um og umdeildum breyting- um á löggjöfinni má nefna ákvæði sem herða refsingu þeirra karlmanna sem koma fram vilja sínum við kon- ur með valdi (þeim er gef- ið nafnið „kvinnofridstör- are“, ,,kvennafriðrofi“), vændismiðlara, viðskipta- vina ungra vændiskvenna, bílþjófa, klámsala og fjár- hættuspilara. Til „kvennafriðrofa" eru einn- ig taldir þeir eiginmenn sem taka konur sínar nauðugar og urðu heitar deilur á þingi um þetta nýmæli, sem segir að dæma megi slíka menn í fang- elsi. Ein af konunum á sænska þinginu, frú Sjöberg, mælti fast gegn þessu ákvæði og kvaðst harma hve langt væri gengið til jafnaðar milli kynjanna. Eigin- maðurinn yrði að hafa óskertan rétt til konu sinnar, sagði frú Sjöberg. Þannig heíði það ætíð verið og þetta væri grundvöllur þess mannfélags sem við byggj- um í. Ef sá réttur væri af hon- Ef þetta ákvæði yrði samþykkt mætti eiga von á því, sagði frú- in, að eiginkona svaraði skamm- arorðum kokkálaðs bónda síns: „Bölvuð hóran þín“, með því að hreyta í hann: „Saurugi nauðg- arinn þinn“, og hafa til þess fulla stoð í lögum. En þingmenn tóku ekki tillit til aðvörunar frúarinnar, heldur samþykktu þetta ákvæði hinnar nýju refsi- löggjafar. Svo að sænskir eigin- menn vita nú á hverju þeir geta átt von, ef þeir fara ekki vel að konum sínum. Strangari ákvæði kynferðisafbrota 1 hinni nýju löggjöf eru strangari ákvæði varðandi ýms Rynferðisafbrot en voru í hinni gömlu. Þannig hafa verið þyngd- ar verulega refsingar fyrir vændismiðlun. Melludólgar geta átt á hættu allt að sex ára fang- elsi. Einnig aðrir sem hagnast á vændislifnaði, t.d. með því að leigja húsnæði til slíks, eiga fangelsisdóm yfir höfði sér. Nýtt er það ákvæði £ löggjöf- inni sem heimilar allt að sex mánaða fangelsisrefsingu handa þeim sem kaupir sér kyn- mök við stúlkur innan átján ára aldurs. Sé um kynvillu að ræða er aldurstakmarkið 21 ár. Skottulæknar sem eyða fóstr- um geta átt von á tveggja ára fangelsi. Kona sem sjálf eyðir fóstri sínu getur sloppið við alla refsingu, ef hún hefur sér eitt- hvað til málsbóta. Kona sem deyðir nýfætt barn sitt verður ekki dæmd fyrir morð, heldur dráp, og refsingin 'r mildari en iyrir venjulegf manndráp. Friðhelgi heimilisins Harðar er tekið á því en í fyrri lögum að friðhelgi heimil- isins sé rofin. Ryðjist menn að ástæðulausu og í heimildarleysi inn á annars heimili eða vinnu- stað getur það kostað tveggja ára fangelsi, ef um gróft brot er að ræða. Dæma má þann sem brýtur gegn almennu siðgæði með klámi, hvort sem er í formi rit- aðs máls eða myndar, og bæði höfundinn og þann sem breið- ir úr klámverkið, í allt að sex mánaða fangelsi. Sömu refsingu geta þeir átt von á sem standa fyrir fjárhættuspili eða leyfa það í húsnæði sem þeir ráða yf- ir. Fjárhættuspilaramir sjálfir fá aðeins sektir. / „Kommúnista- vörur" brenndar í Bandarílcjunum í Bandaríkjunum hefur sig nú mjög í frammi félags- skapur nokkur sem sett hef- ur sér það markmið að koma í veg fyrir öll við- skipfi víð sósíalistísku ríkin með því að hræða viðskipta- vini frá þeim smásöluverzl- unum sem selja vörur sem þaðan koma, „kommúnista- vörur“, og hefur honum að sögn orðið talsvert ágengt. Bandaríska vikublaðið News- week segir frá starfsemi þessa félagsskapar og er greinilegt af frásögninni að blaðið er lítið hrifið af honum. Upphafsmaður samtakanna er skottulæknir einn frá Mi'ámi, Jerome D. Harold að nafni, sem hefur sett sér það mark- mið að bannlýsa allar þjóð- hættulegar „kommúnistavörur", hvort sem um er að ræða pólskt svínakjöt, þýzkt jóla- trésskraut, júgóslavneskar tága- körfur, rússnesk loðskinn eða Tágakörfubrennan í Fort Wayne. ! í Sýning á abstrakt- verkum í Moskvu í mánudaginn var opnuð i I\ Moskvu sýning á 80 abstraktmálverkum eftir á5 listamenn. öll hafa verkin orðið til á síðustu tveim árum og Moskvufréttaritari Stock- holms Tidningen, sem var viðstaddur þennan mikla at- burð telur að þau standist flest hæstu kröfur á alþjóð- legum mælikvarða. Mest ber á verkum mynd- höggvarans Emst Néízvéstnís, ágæts listamanns sem lítið hefur verið sýndur áður. 1 viðtali við blaðamenn lagði hann sérstaka áherzlu á að sú abstraktlist sem hér væri sýnd ætti sér rætur í rússneskri hefð er ætti upphaf sitt i Chagall. Malévítsj og Kan- dinskí. Néízvéstní vakti líka athygli á því, að meirihluti þeirra sem ættu verk á sýn- ingunni væru konur: „Þær hafa alltaf tilfinningu fyrir hinu rétta, hinu ekta“, sagði hann. Myndhöggvara þessum hefur stundum verið líkt við Henry Moore, en sjálfum honum gremst slíkur saman- burður, segist vera í andstöðu við Moore. Meðal listaverka sem eink- um er tekið eftir eru stór abstraktmálverk, þar sem gjarnan er notazt við úrklipp- ur úr blöðum (Prövdu) og er höfundur þeirra Véra Préobrazjénskja 24 ára gam- all listamaður, Jankelévítsj, vekur og mikla athygli með fimm síðustu myndum sínum, sem hann kallar „Atómstöð- in“. Hann hefur málað í fjög- ur ár, dáist að Klee og hefur áður tekið þátt í einkasýn- ingu í Moskvuháskóla. Það er tekið fram að bessi sýning er opinber og þar með hafa stjórnarvöld viðurkennt tilverurétt abstraktlistar. Við slíkum tíðindum hefur v„rið búizt alllengi, abstraktiist hefur lengi verið að þreyía fyrir sér, en hefur lítið sézt oninberlega nema á sviði list- ðnaðar. Allmikið hefur verið um abstraktlistaverk í hein.a- húsum, og ekki óalgengt að ýmsir þekktir vísindamenn hafi styrkt unga listamenn til að vinna sjálfstr tt. Þess má einnig geta að í vor féllu ýmsir af helztu afturhalds- mönnunum í kosningu til stjómar listamannasan.tak- anna í Moskvu, og þótti það auðvitað góðs viti. Listamenn hafa einnig komið því til leiðar, að 10. desember verður opnuð í Tredjakofasafninu í Moskvu sýning á æskuverkum nokk- urra brautryöjenda í mynd- list, fæddra í Rússlandi þeirra Kandínskís, Chagalís og Malévítsj. Myndir þessar hafa ekki verið sýndar áður. Málverk eftir Kandínskí (1914). tékkneskan kristal, í Banda- ríkjunum. Hann stofnaði þá nefnd ,sem hann gaf heiti eitthvað á þessa leið „Nefnd til að vara við komu kommúnistísks vamings í búðirnar“. Þetta var í janúar s.l. og þó ekki sé lengra síðan hefur iðja hins þjóðholla skottulæknis þegar borið á- rangur. Ýms önnur samtök þjóðhollra kristinna og and- kommúnistískra Bandaríkja- manna, svo sem John Birch-fé- lagið og Krossfarar Krists, gengu í lið með hinum skelegga málsvara frjálsra amerískra svínslæra og brátt náði herferð þeirra yfir öll Bandaríkin. Þar sem bannað er í banda- rískum lögum að hafa uppi á- róður gegn kaupmönnum og leggja að íólki að verzla ekki við þá og þungar refsingar liggja við slíkum atvinnurógi, þá hafa verndarar þjóðholls varnings orðið að beita öðrum vopnum. Þar kom þeim í góðar þarfir hinn móðursjúki komm- únistaótti sem landlægur er i Bandaríkjunum, einkum þó i minni bæjum. Þegar vitnast um að einhver varningur frá sósíalistísku ríkjunum sé á boðstólum í verzlunum (og það er víða, því að Bandaríkin eiga nokkur viðskipti við þau flest), þá íara erindrekar hinna þjóð- hollu af stað og lauma að við- skiptamönnum verzlunarinnar spjöldum með áletrunum eins og þessari: „Kaupið ævinlega kommúnistiskar þrælabúðavör- ur í þessari verzlun“, Félagsskapur nokkur í Fort Wayne í Indiana, „Young Am- ericans for Freedom", uppgiitv- aði 200 júgóslavneskar tága- körfur í kjörbúð einni. Hann fór á stúfana og fékk forstjóra iyrirtækisins sem átti þessa kjörbúð og margar fleiri til að halda körfubrennu og var sjálf- ur borgarstjórinn fenginn til að halda ræðu við það tækifæri. Árvökulir borgarar í Columbus í Georgia fengu því ráðið að borgarstjórnin samþykkti að hver sá kaupmaður sem seldi kommúnistískan varning skyldi þurfa að kaupa sér sérstakt verzlunarleyfi fyrir þúsund dollara. Þessi andróður gegn komm- únistískum vamingi hefur sem áður segir borið þó nokkum árangur. Þannig hætti kjör- búðakeðja í Chicago við að selja þjóðhættulegar tágakörf- ur og herðatré og sjálfur Wool- worth-hringurinn (um 3.000 verzlanir) varð að láta í minni pokann og hætta að selja vam- ing af þessu tagi. En þess em líka dæmi að kaupmenn hafa látið móður- sýkisvaðalinn sér sem vind um eyrun þjóta. Forstjóri hins mikla verzlunarhúss í New York, Vlacy’s Strauss, sa^ðist ekki burfa að hlýða John Birch- mönnum í einu né neinu. Sumir kaupmenn hafa líka orðið þess varir að hatursáróð- urinn ber allt annan en tilætl- aðan árangur. Haft er eftir einum þeirra: „Þótt undarlegt megi virðast, sel ég núna meira af þessum vamingi en nokkru sinni fyrr“. Það væri því líklega hæpið - fyrir Vísis-menn og félaga að hvetja til þess að teknar yrðu upp hér á landi aðferðir skottulæknisins frá Miami. \A/WVWWWVWWWA<WAAAAAAA/WWV\AAAAAA Versta refsingin í ? _t Versta refsingin var ekki í S sú að verða að greiða skaða-J ; bætur eða vera dreginn fyrir; í rétt. Langtum verra var ' í taugaáfallið, sem fylgdi þvi í að láta lögreglubíl aka fram- $ úr sér á venjulegum vegi í með 210 km hraða! ; Þessa athugasemd hafa ; margir gert af þeim 140 í skellinöðrueigendum, sem; : undanfarinn mánuð hafa 5 • verið teknir fastir fyrir of; • hraðan akstur á ákveðinni? ' íeið í úthverfi Lundúnaborg- S ; ar. Það er leynilögreglan; ; Scotland Yard með sportbíl-| : ana sina, Daimler „SP 250“, £ » sem hefur valið þessa aðferð; »til að setja ofan í við unga | ; ökuþóra á tungumáli, sem| ; þeir skilja. ; vvwwwvwvwwwwwwwwwvwwww i i

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.