Þjóðviljinn - 01.12.1962, Side 12
I
Eslands—
erum við sjálfir
„Sjálfstæði Islands 1962”
er nafn á bæklingi, sem út
kemur í dag, fullveldisdaginn
1. desember. Höfundur er
Bjarni Benediktsson frá Hof-
teigi.
Samtök hemámsandstæð-
inga gefa bæklinginn út sem
einskonar fylgirit Dagfara,
tímarits sajntakanna, og verð-
ur hann seldur í bókaverzlun-
um frá og með deginum í
dag og kostar 25 krónur.
Bæklingurinn er 26 blað-
síður og efni hans skipt í
þrjá meginkafla. Hinn fyrsti
fjallar um árin sem liðin eru
frá stofnun lýðveldis á ís-
landi 1944, hemámið og áhrif
þess. í öðrum kafla er rætt
um Efnahagsbandalag Evrópu
og þær hættur sem steðja að
íslenzkri þjóð vegna ákvörð-
unar núverandi stjórnarvalda
um að Island gerist aðili að
bandalaginu hafi þau vald til
þess eftir næstu kosningar. I
þriðja kaflanum er vikið að
stöðu smáþióða í heiminum og
í lokin er drepið á þá niður-
lægingu sem leidd hefur ver-
ið yfir 1. desember hin síð-
ustu ár. Lokamálsgreinin er
svona:
„Samtök hernámsandstæð-
inga gefa þennan bækling út
í tilefni 1. desembers. Hann
er gefinn út til þess að túlk-
endur þcirra skoðana á ís-
lenzkum örlagamálum, sem
vér teljum í senn háskalcgar
og ábyrgðarlausar, taki ekki
einir til máls á þessum degi.
Og hann er gefinn út til þess,
að umræður um fullveldi vort
snúist ekki upp í hróp ein og
strákskap — til þess, að rök
þess týnist ekki í flækjum og
vífilengjum. Sjálfstæði fslands
er sannarlega ekki efni í bit-
bcin eða þrætucpli í pólitísk-
um átökum; fullveldi vort
getur að réttu lagi eklti verið
ágreiningsmál. Sjálfstæði fs-
lands — það erum vér sjálfir.
Að baki því hugtaki stendur
veruleiki vor sem þjóðar; það
er draumur íslendinga í for.
tíðinni, það er von þeirra um
framtímann. Vér viljum
halda þann draum í heiðri og
bera þá von á höndum”.
Bjarni Benediktsson.
Samtök hernáms-
andstæðinga gefa út
bæklinginn „Sjálf-
stæði íslands 1962“
í tilefni 1. des.
/ ís og myrkri, bók
Nansens á íslenzku
Ein af kunnustu bókum heim-
skautafarans Friðþjófs Nansens
er nú komin út á íslenzku og
ber heitið „í ís og myrkri”.
Hersteinn Pálsson ritstjóri
þýddi bókina, sem á frummál-
inu nefnist „Fram over Polhav-
et”. I henni segir frá frækileg-
asta þætti Fram-leiðangursins
norska á árunum 1893—96, þ. e.
þegar Friðþjófur Nansen fór við
annan mann frá leiðangursskip-
inu og gerði tilraun til að kom-
ast á norðurheimskautið, en
sneri síðan suður á bóginn og
komst til Franz Jósefs-lands eft-
ir miklar mannraunir. Förunaut-
var Fredrik Hjalmar Johansen
liðsforingi.
Þeir félagar lögðu upp í þessa
svaðilför, þegar skip þeirra,
Fram, hafði setið fast í ísnum
fyrir Síberíuströndum á annáð
ár. Ætluðu þeir að gera tilraun
til að komast á norðurheims-
skautið. Þeir höfðu allan búnað
sinn á þrem sleðum, sem hund-
um var beitt fyrir í fyrstu, en
þeir félagar urðu síðan að draga
sjálfir, er hundarnir höfðu allir
verið drepnir. I 15 mánuði börð-
ust þeir við ís og myrkur, kulda
og klæðleysi.
Bókin „I ís og myrkri” er rúm-
ar 300 blaðsíður; myndir fjöl-
margar, bæði ljósmyndir og
Nansens í þessari svaðilför teikningar. Útgefandi er ísafold.
Landsbankaútíbú
opnað í Háskólabíéi
1 dag opnar Landabanki Is-
lands nýtt útibú í húsi Háskóla-
bíós við Hagatorg og nefnist
það Vesturbæjarútibú. Verða þar
fyrst og fremst rekin almenn
sparisjóðs- og hlaupareiknings-
viðskipti en jafnframt verður
veitt þar önnur bankaþjónusta
eftir því sem kostur verður á,
svo scm kaup og sala erlends
gjaldeyris, afgreiðsla á innlend-
um og erlendum innheimtum og
venjuleg fyrirgreiðsla tékkávís-
ana.
Útibúið er í homi anddyris
bíósins gegnt miðasölunni. Gólf-
flötur þess er um 50 fermetrar
að flatarmáli. Húsgögn teiknuðu
arkitektamir Gunnlaugur Hall-
dórsson og Guðmundur Kr. Krist-
insson en Jónas Sólmundsson
húsgagnasmíðameistari smíðaði
þau. Starfsmenn útibúsins verða
þrír. Forstöðumaður verður
Hannes Þorsteinsson, sem verið
Myndin er tekin þegar þeir Fid- ^_
el Castro og Anastas Mikojan
kvöddust á flugvellinum í Hav-
ana þegar Mikojan hélt heim-
leiðis eftir nær fjögurra viikna
dvöl á Kúbu.
Ikranes! Akraaes!
Vönduð vinna
vekur athygli
Litmyndir sf., fyrirtæki í Hafn-
arfirði, er þekkt orðið fyrir að
skila frá sér góðri prentvinnu
þegar um vandaðri verk er að
ræða, litprentun o. s. frv. Nú
hefur Þjóðviljanum verið sent
sýnishorn af forgylltu jólakorti,
sem prentað er í Hafnarfirði,
og ber fagmönnum saman um
að vinna á því sé hin vandaðasta.
Það er ísl.-erlenda verzlunarfé-
lagið hf. sem sér um dreifingu
á j^essari gerð jólakorta.
Laugardagur 1- desember 1962 — 27. árgangur — 264. tölublac*
Þorvaléur í Sögu kosinn
formaður Verzlunarráðs
hefur fulltrúi í sparisjóðsdeild,
og gjaldkeri Sigurður Eiríksson.
Útibúið verður opið til afgreiðslu
kl. 10—15 og kl. 17—18.30 nema
laugardaga kl. 10—12.30.
Þetta er fjórða útibú Lands-
bankans í Reykjavík Hin eru
Austurbæjarútibú að Laugavegi
77, Vegamótaútibú að Laugavegi
15 og Langholtsútibú að Lang-
holtsvegi 43. Er útibúið að Lauga-
vegi 77 hið eina þeirra sem veit-
ir alla venjulega bankaþjónustu.
Hefur starfsemi útibúanna aukizt
mjög að undanförnu, enda veitir
bankinn nú ýmsa þjónustu sem
ekki var áður. T. d. má benda á
að í aðalbankanum og í Austur-
bæjarútibúi eru sérstakar deildir
sem taka að sér varðveizlu og
innheimtu alls konar verðbréfa,
útdrátt skuldabréfa og aðstoð
við að búa út ýmsar tegundir
þeirra. Þá er nú hægt að greiða
rafmagnsreikninga í aðalbank-
anum og öllum útibúunum.
Á fundi stjórnar Verzlunar-
ráðs Islands í fyrradag, fimmtu-
daginn 29. nóvember, fór fram
kosning formanns og varafor-
manna og skipun framkvæmda-
stjórnar.
Formaður var kosinn Þorvald-
ur Guðmundsson, forstjóri, og
varaformaður Egill Guttormsson,
stórkaupmaður. Annar varafor-
maður var kosinn Sveinn B. Val-
fells, forstjóri.
Framkvæmdastjórnina skipa
auk formannanna þeir Kristján
G. Gíslason, stórkaupmaður. Sig-
urður Magnússon, kaupmaður,
Othar Ellingsen, forstjóri, Magn-
ús J. Brynjólfsson. kaupmaður,
Haraldur Sveinsson, forstjóri, og
Sigurður Ó. Ólafsson, kaupmað-
ur.
Stjóm Verzlunarráðsins var í
haust kosin samkvæmt nýjum
lögum og er hún þannig skipuð:
Tilnefndir fulltrúar:
Félag ísl. iðnrekenda: Sveinn B.
Valfells og Magnús Víglundsson.
Varamenn: Gunnar J. Friðriks-
son og Sveinn S. Einarsson.
Félag ísl. stórkaupmanna: Kristj-
án G. Gíslason og Hilmar Feng-
er. Varamenn: Páll Þorgeirsson
og Sigfús Bjarnason.
Kaupmannasamtök Islands: Sig-
urður Magnússon og Isleifur
Jónsson. Varamenn: Jón Mathie-
sen og Bjöm Guðmundsson.
Sérgreinafélög: Gunnar Ásgeirs-
son og Haraldur Sveinsson. Vara-
menn: Hans Þórðarson og Birgir
Einarsson.
Kosnir fulltrúar í Reykjavík og
Hafnarfirði.
Aðalmenn: Gunnar Guðjónsson,
Magnús J. Brynjólfsson, Birgir
Kjaráh, Egill Guftormsson, Óth-
ar Ellingsen. Árni Ámason, Þor-
valdur Guðmundsson og Stefán
G. Björnsson.
Varamenn: Ólafur O. Johnson,
Sveinn Helgason, Kristján Jóh.
Kristjánsson, Hallgrímur Fr.
Hallgrímsson, Tómas Pétursson,
Bergur G. Gíslason, Haukur
Eggertsson og Bjöm Hallgríms-
son.
Kosnir fulltrúar utan Reykja-
víkur og Hafnarfjarðar:
Sigurður Ó. Ólafsson og Jónatan
Einarsson. Varamaður: Sigurður
Helgason.
2 konur meiðast
í umferðarslysum
Á áttunda tímanum í gærkvöld
urðu tvö umferðaslys hér í
Reykjavík. Um klukkan 19.00
varð Magdalena Sigurgeirsdóttir,
Vallargötu 27, Keflavík fyrir bif-
reið á mótum Nóatúns og Mið-
túns og meiddist hún á höfði og
mjöðm og var flutt í sjúkrahús.
Klukkan 19.50 varð önnur kona,
Guðmunda Guðmundsdóttir, Ljós
vallagötu 20, fyrir bifreið á mót-
um Hringbrautar og Laufásvegar
og meiddist hún á höfði og var
einnig flutt í sjúkrahús.
t| Loksins:
! Suleika
opnar útibú á
og
i Goethe
Ákveðið hefur verið, að Lands-
bankinn opni útibú á Húsavík
um áramótin. Mun bankinn yfir-
taka allan rekstur Sparisjóðs
Húsavíkur og verður starfsemi
hans lögð niður frá sama tíma.
Verður útibúið fyrst um sinn til
húsa í húsakynnum Sparisjóðs-
ins.
Þetta er 5 útibú Landsbanka
íslands utan Reykjavíkur en
bankinn hefur um áratugi rekið
eitt útibú í hverjum landsfjórð-
ungi, á Isafirði, Akureyri, Eski-
firði og Selfossi.
FullveEdisfagnaður Æsku-
lýðsfylkingarinnar í kvöld
Bazar Hringsins á sunnudaginn
» Æskulýðsfylkingin í Reykjavík efnir til full-
Féiagsvist og kvicanyndasíning Feldisf agnaðar f Hábæ í kvöld, laugardaginn 1.
verður í féiagsheimiiinu rein desember, kl. 9. Aðgöngumiðar verða afhen'tir í
1 "KS.S5 skrifstofu ÆFB í dag frá kl. 3 til 6. - ÆFR.
Margir fallegir munir, einkar
hentugir til jólagjafa verða seld-
ir á bazar Hringsins, sem hald-
inn verður í afgreiðslusal Al-
mennra trygginga í Pósthús-
stræti á morgun. Razarinn er
haldinn til ágóða fyrir Barna-
spítalasjóð og hafa félagskonur
sjálfar unnið þá muni sem
seldir verða. Auk bazarsins
standa Hringskonur fyrir kaffi-
sölu á Hótel Borg. Bazarinn
verður opnaður kl. 2 og opinn
frameftir kvöldi.
Á fundi sem Hringskonur áttu
með blaðamönnum sögðu þær
að þetta væri langstærsti baz-
arinn sem þær hafa nokkru
sinni haldið. Þær hafa unnið
að undirbúningi hans þrjú kvöld
í viku allt árið nema yfir sum-
armánuðina. Félagskonur
Hringnum eru nú um 200 oj
hafa þær safnað í Barnaspítala
sjóð í 18 ár og eiga nú loks
von á að álma sú sem honum
er æt]uð við Landsspítalann
verði fullbúin og tekin í notkun
á 60 ára afmæli félagsins í
janúar 1964. Núverandi formað-
ur félagsins er frú Sigfríður
Guðjónsdóttir og formaður fjár-
öflunamefndar frú Helga Björns-
dóttir.
Innbrotsþjjófar
staðnir ú verki
I fyrrinótt um kl. 1.30 var lög-
reglunni tilkynnt um að grun-
samlegir menn væru á ferli fyrir
utan Indriðabúð í Þingholts-
stræti 17. Lögreglan fór þegar
á staðinn og náði öðmm mann-
inum þar, en hini komst und-
an í bili á flótta, en var hand-
tekinn skömmu síðar. Piltar þess-
ir voru báðir innan við tvítugt.
Hafði annar þeirra farið inn í
verzlunina og fundust á honum
5 pakkalengjur af sígarettum.
!
I
Jón Helgason flytur |
fyrirlestur í Iðnó |
kl. 3 á morgun.
Jón Helgason prófessor ^
dvelst hér á landi um þess-
ar mundir á vegum Máls
og menningar. Koma tvær k
bækur frá hendi Jóns í af- Jll
mælisbókaflokki félagsins, ■
„Tvær kviður fornar“ og J
. Tuttugu erlend ljóð og ■
einu betur”. í ljóðaþýðing- ?
unum eru m.a. tvö kvæði ra
eftir þýzka konu, sem k
Goetlie nefndi Suleiku, en tq
samband hennar og Goet- k
hes er eitt hinna kynlegu ^
ævintýra heimsbókmennt- k
anna. Mun Jón rekja þá ™
sögu i fyrirlestri sem hann
heldur í Iðnó kl. 4 á morg
un.
I
Ý
k