Þjóðviljinn - 05.12.1962, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 05.12.1962, Qupperneq 3
Míðvikudagur 5. desember 1962 ÞJOÐVILJINN SIÐA 3 Gefíð okkur vinnu! Myndin sýnir nokkurn hluta þeirra hundruða er héldu mótmælaíund í Hyde Park í London fyrir nokkrum dögum tlil þess að krefjast vinnu. Atvinnuleysi fer vaxandi i Bretiandi, og á einu spjaldinu sem sést á myndinni eru verkamenn í vinnu hvattir til að taka þátt í baráttu atvinnu- leysingja. Júgóslavar vilja gera tollasamning við EBE BRUSSEL 4/12 — Ráðherranefnd Efnahagsbanda- lagsins hefur ákveðið að hefja samningaviðræður við Júgóslavíu, Portúgal og Spán innan skamms. Einnig hefur hún ákveðið að standa fast á kröfu sinni um afnám brezka uppbótakerfisins á land- búnaðarvörum, og hefur það enn aukið erfiðleik- ana á inngöngu Breta í EBE. Ráðherranefnd 'Efnahagsbanda- lagsins kom saman til fundar í dag og samþykkti, að viðræður um tollasamning við Júgóslavíu skuli hefjast innan skamms. Þessi samþykkt kemur nokkuð á óvart, því að vitað er, að Vestur-Þjóðverjar hafa verið andvígir samningaviðræðum við Júgóslava. Vesturþýzka stjórnin sleit stjómmálasambandi við Júgóslava, er þeir síðarnefndu viðurkenndu stjóm Austur- Þýzkalands. Refskákin í Bonn: Nú biðla stjórnarflokkarnir báðir til sósía Idemókrata! BONN 4/12 — Foringjar kristilegra demó- krata og sósíaldemókrata ræddu í dag um möguleika á stjórnarsamstarfi. Þetta er talið mikið áfall fyrir flokk frjálsra demókrata,. enda hafa þeir nú svarað með því að bjóða sósíaldemókrötum samstarf líka. 1 Sambandsþinginu í Bonn hefur enginn einn flokkur meiri- hluta, en stóru flokkamir tveir, sósíaldemókratar og kristilegir demókratar hafa báðir nægilega marga þingmenn til að mynda stjórn með frjálsum demókrötum. Þriðji möguleikinn hefur hingað til verið talinn fjarlægastur, þ.e. að báðir stóm flokkamir stæðu saman að stjóm. Tékknesk dómsmól endurskoðuð PRAG 4/12. — Forseti Tékkó- slóvakíu og aðalritari kommún- istaflokks landsins, Antonin Novotny, lýsti því yfir í setn- ingarræðu á flokksþinginu í Prag í dag, að öll pólitísk dómsmái, sem dæmd vom á tímum pers- ónudýrkunarinnar 1949—1954 verði tekin til endurskoðunar af miðstjórn flokksins, svo að flokk- urinn geti dregið réttar álykt- anir af atburðum þess tíma. Frægast þessara mála em rétt- arhöldin gegn svonefndum Slanskyhóp, en fyrrverandi að- alritari flokksins Rudolf Slansky, og utanríkisráðherrann, Vladimir Clementi og nokkrir aðrir fyrr- verandi leiðtogar flokksins voru dæmdir til dauða og teknir af lífi.. Mikill hluti ræðunnar fjallaði um utanríkismál, m.a. landa- mæraþrætu Indlands og Kína, sem Novotny sagðist harma mjög að skyldi leiða til blóðsúthell- inga. WASHINGTON 4/12 — Kennedy forseti hefur veitt Edward Tell- er, sem nefndur hefur verið faðir kjarnorkusprengjunnar, hin frægu Enrico Fermi verðlaun. Verðlaunin em gullpeningur og 50.000 dollarar. 1 gærkvöld kom þingflokkur kristilegra demókrata saman til að ræða stjómarkreppuna og samþykkti þá að leita til sósí- aldemókrata um samstarf. Er Adenauer Jalinn hafa ráðið mestu um þessa samþykkt, en frjálsir demókratar vom famir áð tala í alvöru um að losna við Adenauer fyrir fullt og allt. Hins vegar er Erhard, efnahags- 'málaráðherra talinn hafa lagzt gegn viðræðum við sósíaldemó- krata. Sterkasta hótunin, sem Aden- auer getur beitt í refskákinni við frjálsa demókrata er sú, að breyta kosningalögunum þeim í óhag með aðstoð sósíaidemókrta. Hafa flokksmenn Adenauers samið drög að slíku fmmvarpi, sem myndi breyta kjördæma- skipuninni all verulega stóru flokkunum í hag, en litlum flokkum eins og frjálsum demó- krötum í óhag. Vitað er, að sósíaldemókratar setja engin skilyrði um, hve- nær Adenauer skuli draga sig í hlé, en vilja láta flokksmenn hans ráða því. Er nú talið, að Adenauer sé í mjög sterkri aðstöðu gagnvart frjálsum demó- krötum, sem eiga nú engan annan leik en að bjóða sósíal- demókrötum gull og græna skóga. Júgóslavar hafa ekki farið fram á aðild að bandalaginu, en hafa viljað gera gagnkvæman samn- ing um Iækkun við EBE. Má í þessu sambandi geta þess, að um Ieið og Tító heimsækir Sovétríkin, er mikið rætt um, að efnahagssamvinna Júgóslava við önnur sósíalistaríki muni vcrða stóraukin á næstunni. Spánverjar og Porl galar hafa einnig æskt viðræðna við banda- lagið og er vitað, að báðar þjóð- imar hafa áhuga fyrir að ger- ast aðiljar að bandalaginu. Ráð- herranefndin samþykkti í dag að hefja viðræður við ríkis- stjórnir einræðisherranna Franc- os og Salazars eftir nokkra mán- uði. Á ráðherrafundinum var á- kveðið, að Tyrkir skuli fá undir- búningsfrest í fimm ár, en þeir höfðu farið fram á að fá að gera tollasamning við Efnahags- bandalagið. Á þessu undirbún- ingsstigi fá Tyrkir forgangsað- stöðu umfram önnur lönd utan bandalagsins til að selja á mark- aði EBE tóbak og þurrk. ávexti. Undanfamar vikur hafa stöð- ugt verið að aukast erfiðleikar brezku stjómarinnar í tilraun- um hennar til að koma Bretum í Efnahagsbandalagið. Um leið og andstaðan gegn bandalaginu hefur stóraukizt heima fyrir, hafa samningaviðræður í Bruss^ el strandað á ágreiningi uni landbúnaðarmál. I Bretlandi eru bændum greiddar uppbætur á landbún- aðarvörur til að halda verðinu niðri, og krefjast löndin f EBE og þá fyrst og fremst Frakkar, að Bretar hætti þessum upp- bótargreiðslum, ef þeir vilji kom- ast í bandalagið. Þessu hafa Eretar neitað, og eftir kosninga- ósigur Ihaldsflokksins í auka- þingkosningunum á dögomum er talið víst, að brezka ríkis- stjómin muni alls ekki ganga að þessari kröfu bandaiagsríkj- anna, því að Ihaldsflokkurinn er dæmdur til að tapa í næstu kosningum, ef hann missir allt bændafylgið. Helzta fjármálablað Bretlands, Financial Times, sem hvað mest hefur barizt fyrir inngöngu Breta í EBE, lýsti yfir því fyrir nokkrum dögum, að aldrei yrði fallizt á þá kröfu að afnema uppbótarkerfið í landb únaðinum. Á ráðherrafundinum £ Brussel gerðust þau tíðindi í dag, að samþykkt var að hvika ekki frá þeirri kröfu, að Bretar afneml uppbótakcrfið áður en þeir ganga i bandalagið. Þykir nú komið í mikið óefni með samn- inga Breta við EBE, en viðræð- ur hefjast aftur eftir rúma viku. Indverjar fá MIG-véiar frá Sovétríkjunum, segir Nehru NÝJU DELHI, RAWALPINDI 4/12 Nehru, forsætisráðherra Indlands, viðurkenndi í dag, að Kínverjar hefðu dregið heri sína til baka frá landamærunum, eins og þeir hefðu lof- að. Hann sagði einnig, að Indverjar myndu fá MIG-þotur frá Sovétríkjunum fyrir ára- mót. 10. desember hefst ráðstefna sex hlut- lausra þjóða um landamæraerjurnar. Nehru, forsætisráðherra Ind- lands og Chavan, varnarmála- ráðherra, fullyrtu á þingi í dag, að Sovétríkin hafi lofað að standa við skuldbindingar sín- ar um sölu á MIG-þotum til Indverja og byggingu flugvéla- verksmiðja. Sagði Chevan, að fyrstu flugvélamar væru vænt- anlegar í þessum mánuði, og engin hæfa væri í þeim orðrómi, að Sovétríkin myndu hætta við að afhenda þær vegna landa- mæraerjanna. Nehru sagði, að hersveitir Kínverja virtust hafa hörfað víðast frá landamærunum, en herir þeirra væru enn á þeim svæðum, sem þeir gerðu tilkall til. Hann bætti því við, að vopnahléstilboðið væri enn til athugunar hjá ríkisstjóminni og Indverjar myndu ekki draga heri sína frá landamærunum, fyrr en einhver ákvörðun hefði ver- ið tekin. í Rawalpindi, höfuðborg Pak- istans, krafðist foringi stjómar- andstöðunnar þess í dag, að ríkisstjómin hætti við áfom sín um samningsviðræður vif indversku stjómina vegna Kas mírdeilunnar. Hann sagði, a< Pakistanbúar ættu ekkert ac Vesturveldin hafa eins oj kunnugt er lent í miklum vand- ræðum með Pakistana vegní vopnasendinganna 11 Indlands en oft hefur litlu munað, ac Kínverskir og evrópskir kommúnistar deila hart sendi forsætisráðherra Pakistan bréf í gær og fullvissaði hann um, að vopnin frá Bandaríkja- mönnum yrðu ekki notuð gegn Pakistönum (!), og var sú yfir- lýsing sennilega gefin eftir kröfu Bandaríkjamanna. Eftir tæpa viku hefst á Ceyl- on ráðstefna sex hlutlausra þjóða um landamæraerjur Ind- lands og Kína, og verða þar full- I verska fulltrúans trúar frá Ceylon, Arabíska sam- aðalritari franska bandslýðveldinu, Ghana, Kam- flokksins. Roland Leroy, sem bodsja, Burma og Indónesíu. ' skoraði á kínv. kommúnistaflokk- RÖM 4/12. — Til harðra árekstra kom í dag á flokksþingi ítalskra kommúnista, er fulltrúar Kín- verja og kommúnistaflokka í Evrópu báru hvor annan þung- um sökum. Kínverski fulltrúinn, Chao Yi-Min, sagði, að ítalski kommúnistaflokkurinn hefði svik- ið grundvallarlögmál marx-len- ínismans með því að gera þing- ið að vettvangi árása og gagn- rýni á bróðurflokk sinn. Chao Yi-Min var í ræðu sinni að svara ræðu Togliattis, for- ingja ítalskra kommúnista, sem gagnrýndi bæði Albani og Kín- verja í gær. Chao sagði, að á- rásirnar á Albani væru mjög alvarlegt mál, en hitt væri þó enn alvarlegra, að á þessu þingi hefði verið ráðizt beint að marx- leníniskri stefnu kínverskra kommúnista. Chao nefndi jekki Kommún- istaflokk Ráðstjómarríkjanna á nafn, en gagnrýndi hann óbeint fyrir að styðja stefnu Júgóslavá í alþjóðamálum. Hann sagði, að Tító væri svikari og í rauninni aðeins peð á taflborði banda- rísku heimsveldasinnanna. Nokkrir evrópskir kommúnista- leiðtogar svöruðu ræðu kín- í dag, m.a. kommúnista- inn að hætta að taka svo hagganlega og háskalega stöðu“. Hershöfðingi "œtur kjjósa Framhald af 7. síðu. Istuttu máli sagt: hlutimir hafa breytzt mikið sfðan 1958. á hveitibrauðsdögum 5. lýðveldsinsins. Þá stóðu allir flokkar nema einn við hlið foringjans. Víman er nú að miestu runnin af þeim sem áttu þar ekki heima. Mystík gaull- ismans er að gufa upp. Línum- ar hafa skýrzt, kosningakortið er orðið einfaldara. Vinstri öfl- in sameinaðri gegn sameinuðu afturhaldi. En betur má ef duga skal. Franska afturhald- ið er stjómmállega sterkar en nokkru sinni áður, það visn- ur markvisst að því að kæfa lýðræðið í landinu. Það sigiir hraðbyri inn í Bandaríki Evr- ópu, í kompaníi við stallsyst- ur sína handan Rínar, með sigurbros á vör. Þrátt fyr-ir aHt þykjumst við vita að það komi aldrei skipi sínu heilu í höfn. Loftur Guttormsson vegna Kasmírmálsins. Kaupmenn og kaup Fyrirliggjandi: Fallegt úrval af blússu- og kjólaefnum ifélég Kr. Þorvaldsson & Heildverzlun. Grettisgötu 6. — Símar 24730 og 24478. Co. f

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.