Þjóðviljinn - 22.12.1962, Blaðsíða 3
T-augawtegur 22. desember I9S2
SlOA 3
Forseti Allsherjarþingsins
Fátæku
eiga rétt
á hærra hráefnaverði!
NEW YORK 21/12 — Forseti Allsherjar-
þingsins, Zafrullah Khan, veitti auðvaldsríkj-
unum og nýlendustefnunni alvarlega áminn-
ingu í kveðjuræðu sinni í dag með því að
benda á, að fátæku, vanþróuðu löndin í heim-
inum þarfnast ekki fyrst og fremst gjafafjár
úr hendi þeirra ríku, heldur hins, að hráefnin
séu keypt á sanngjörnu verði.
Forseti Ailsherjarþings SÞ,
Zafrullah Khan frá Pakistan,
hélt kveðj.uræðu sína í dag og
skQraði eindregið á þjóðir heims.
ins að hefja viðtæka baráttu
gegn þrem mestu óvinum mann-
kynsins: fáfræði, hungri og
sjúkdómum.
„Heimsþróunin er senn kom-
im á það stig, að allar þjóðir
hafa hlotið sjálfstæði," sagði
Zafrullah Khas, „en við megum
ekki gleyma þeirri staðreynd, að
mannkynið getur ekki haldið á-
fram að lifa undir þeim að-
stæðum, að aðeins fjórði hluti
þess fái nægan mat en þrír
fjórðu hlutar svelti, að aðeins
fjórði hver maður sé við fulla
heilsu, en hinir séu meir eða
minna sjúkir, að aðeins tíundi
hluti mannkynsins geti hagnýtt
sér ávöxt þekkingarinnar og vís-
■
Myndin er af Skybolt-flugskeyti, en þeim er skotið í mark úr
flugvélum, sem flytja þau á lcið.
indanna, meðan níu tíundu
hlutar mannanna híma í
myrkviði fáfræðinnar.“
Zafrullah Khan sagði, að árið
sem er að líða hefði einkennzt
mjög af hinum miklu framförum
í vanþróuðu löndunum, og benti
á, að fátæku þjóðimar legðu nú
minni áherzlu á fjárhagslega og
tæknilega hjálp, en krefðust þess
í stað jafnréttis í viðskiptum
þjóða og réttlætis. Fátæku, óiðn-
væddu þjóðirnar framleiða nær
eingöngu hráefni til útflutnings,
og sagði Zafrullah, að þessar
þjóðir krefðust þess að fá hærra
og sanngjamara verð fyrir vör-
ur sínar svo að þær fengju
nokkurn hluta af verðmætinu,
sem sköpuð væru úr hráefhun-
um. Og hann lagði áherzlu á, að
fátæku löndin væru ekki með
þessu að biðja um ölmusu af
borði þeirra ríku heldur krefð-
ust þau þess sem sanngjamt
væri.
f ræðu sinn gat forsetinn þess,
að Allsherjarþing SÞ hefði sam-
þykkt að boða til alþjóðlegrar
ráðstefnu um verzlunar. og við-
skiptamál á næsta ári. Eins og
komið liefur fram i fréttum
greiddu Bandaríkin, Bretland og
fleiri auðvaldsríki atkvæði gegn
tillögunnl um alþjóðlega við-
skiptaráðstefnu og báru það fyrir
sig, að of stuttur tími væri ti'
að undirbúa hana. Hér er þó
annð og meira á bak við, enda
er verðlag hráefnanna raunveru-
Iega stórpólitískt mál.
Nýkoloníalisminn, arftaki
gömlu nýlendustefnunnar, er ein-
mitt í því fólglnn, að auðvalds-
ríkin hafa búið um sig í fyrri p v-
Iendum, sem þau liafa „gefið
sjálfstæði“ Þar hafa þau sett
upp fyrirtæki, sem selja ódýr
hráefni til auðvaldslandanna, og
þar er varan fullunnin. en síð-
an seld aftur á margföldu verði.
S-
Italir og Frakkar fá Pólaris-
Bretar
ems oi
WASHINGTON LONDON 21/12 — Sam-
komulag hefur nú tekizt milli MacMillans og
Kennedys um að Bretar fái Polariseldflaugar
í stað Skyboltflugskeytanna, en jafnframt
virðast Bandaríkjamenn ætla að láta Frakka
og Itali hafa sams konar eldflaugar.
Fundum þeirra Kennedys og
Macmillans er lokið og varð nið-
urstaðan sú, sem flestir væntu,
að Bretar áttu ekki annan kost
en að þiggja boð Bandaríkja-
manna um Polariseldflaugar í
stað Skybolteldflauganna. Þessi
úrslit málsins eru að sjálfsögðu
mikill ósigur fyrir Breta, sem
sjá nú ekki fram á að gela
komið sér upp eigin kjamorku-
her næstu árin. Talið er, að
byggingu kafbáta og annars út-
búnaðar fyrir Polariseldflaugam-
ar verði tæplega lokið fyrr en
1967, og þá má vænta þess, að
hemaðartækni hafi fleygt svo
fram, að slík vopn verði talin
úrelt.
LIMA 21/12 — Flutningabíll með
29 farþegum ók út af veginum
í fjallaskarði í Ayacucho í Perú
í gær. Allir sem vom í bílnum
létu lífið nema yngzti farþeginn.
komabarn.
Mikilverðast við ókvörðun
Bandaríkjamanna í Skyboltmál-
inu er, að nú vilja þeir slíta
samvinnun við Breta í kjarn-
orkumálum, sem staðið hefur
síðan í seinni heimsstyrjöldinni.
Aðstoð Breta við smíði atóm-
vopna í styrjöldinni leiddi til
þess, að þeir fengu einir Evr-
ópuþjóða að fylgjast með fram-
vindu kjamorkumála í USA. Nú
telja Bandaríkjamenn tíma til
kominn að Bretar setjist á bekk
með öðrum Evrópuþjóðum án
sérréttinda og njóti sömu kjara
og t.d. ítalir og Frakkar. Vit-
að er, að ítalir munu fá Polar-
iseldflaugar innan skamms, enda
fréttist það í dag, að þeir hefðu
þegar reynt þau, og fréttaritarar
í Washington telja sig vita með
vissu, að Frökkum hafi verið
boðnar Polariseldflaugar.
Lundúnablaðið The Daily Ex-
press segir í dag, að aðaltil-
gangur Bandaríkjamanna með
Skyboltmálinu sé að sýna de
Gaulle, forseta Frakklands, að
ekkert sérsamband sé milli
Bandaríkjanna og Bretlands og
þeir muni koma fram við Breta
héðan í frá á sama hátt og
önnur Evrópuveldi.
Diefenbaker, forsætisráðherra
Kanada, kom til Bahamaeyja í
aag og snæddi kvöldverð ásamt
þeim Kennedy og Macmillan.
Hann mun halda viðræðijm sín-
um áfram við brezka forsætis-
ráðherrann, eftir að Bandaríkja-
forseti er farinn heim á leið.
Aðalumræðuefnið er innganga
Breta í Efnahagsbandalag Evr-
ópu.
Hráefnaverðið er ákveðið af auð-
valdslöndunum og því er haldið
niðri eins og unnt er. Ríkidæmi
Bandaríkjanna er reist á slíku
arðráni í Rómönsku Amcríku og
evrópska auðvldið hefur smám
saman verið að koma upp þessu
kerfi um alla Asíu og Afriku í
samvinnu við bandaríska einok-
unarhringi, Það er því engin
tilviljun, að smáríkin í Asiu og
Afríku hafa haft forystu um
það í samvinnu við sósíalisku
ríkin, að alþjóðleg ráðstefna
yrði lialdin um hráefnaverðið,
en forysturíki auðvaldsins hafa
borizt hatrammlega gegn því.
Auk þessa má minna á, að
auðvaldsríkin með Bandaríkin
í fararbroddi hafa mikið reynt
að auglýsa örlæti sitt og miklar
fjárfúlgur hafa verið veittar til
fátækra þjóða á s'imistu árum.
En smáþjóðirr- "'’fa bent á,
að ekki þarf að ' ka hráefna-
verðið nema um nokkur prósent
til að vega upp á móti allri
þeirri fjárhagsaðsjoð, sem van-
þróuðum löndum hefur verið
látin í té.
Zafrullah Khan var ákaflega
hylltur á Allsherjarþinginu að
ræðu sinni lokinni og fjöjmargir
sendifulltrúar tóku til máls til
að þakka honum fyrir þessa
brýnu ábendingu.
Báðar þessar myndir eru frá Rómönsku Amcríku, sú efri frá Guaíe-
mala og sú neðri frá Venezuela. Nokkrir bandarískir einokunar-
hringir, United Fruit, Standard Oil o.fl. eru allsráðandi í þessum
löndum og eiga yfir 90% af öllum framleiðslu tækjum. Wall Street
ákveður hráefnaverðið og Hvíta húsið sér um, að innlendum lepp-
um sé haldið við stjómvölinn. Efri myndin minnir á þá stað-
reynd, að landið er auðugt, en íbúarnir eiga ekkert. Neðri myndin
sýnir lúxusvillur milljóneranna í Venzuela.
Þingmenn í Kongó:
Giezenga úr fangeisinu!
Burt með sendimenn USA!
LEOPOLDVILLE 21/12 — Kongóska þingið
hefur samþykkt að krefjast þess, að Antoine
Gizenga, foringi þeirra sem fylgt hafa stefnu
Lumumba, fyrrum forsætisráðherra, verði
tafarlaust leystur úr haldi. Stjórnarandstæð-
ingar hafa einnig krafizt þess, að mótmælt
verði afskiptum Bandaríkjamanna að Kongó-
málinu.
Mona Lisa
í Ameriku
WASHINGTON 21/12 — Mál-
verkið fræga af Monu Lisu var
í fyrsta sinn í sögunni til sýnis
í Bandaríkjunum á blaðamanna-
fundi í Washington í dag. Mál-
verkið var flutt í alúminíum-
kassa yfir Atlanzhaf til að verja
það loftlagsbreytingum, en
flutningur þess til Bandaríkj-
anna hefur verið gagnrýndur
nokkuð í Frakklandi, og voru
menn hræddir um, að Mona
Lisa yrði fyrir áfalli á leiðinni.
Kongóska þingið samþykkti í
dag að skora á ríkisstjómina
að leysa Antoine Giezenga,
fyrrum varaforsætisráðherra úr
haldi. Lumumba, fyrsti forsætis-
ráðherra Kongó, sem lét lífið f
baráttu sinni við nýkoloníalism-
ann, skipaði Giezenga eftirmann
sinn. Giezenga tók þó aldrei við
embætti forsætisráðherra, enda
höfðu leppar vesturveldanna 51!
völd í Leopoldville og flestir
helztu áhrifamenn í flokki Lum-
umba höfðu verið teknir af lífi.
Giezenga stjórnaði norðaustur
hluta Kongó frá Stanleyville, þar
til hann fór til Leopoldville til
að taka við embætti varafor-
sætisráðherra, sem honum hafði
verið boðið. Nokkru síðar var
hann handtekinn.
Bandaríkjastjóm hefur sent
nefnd hemaðarsérfræðinga til
Kongó og hefur sú ákvörðun vak-
ið undrun og reiði í Leopold-
ville. Stjórnarandstæðingar á
Kongóþingi hafa skorað á ríkis-
stjórnina að mótmæla komu
Bandaríkjamanna. Bandaríkja-
menn segjast nú vilja aðstoða
Sameinuðu þjóðirnar við að sam-
eina Kongó og steypa auðvalds-
leppnum Tsjombe í Katanga af
stóli. Stefna þeirra í Kongómál-
inu er nú í algerri mótsögn við
stefnu Breta og Frakka, sem
mesta sök eiga á því ásamt Belg-
um, að Tsjombe hefur hingað
þetta með öllum tiltækum ráð-
um, og má af þessum ummæl-
um sjá, að afskipti þeirra af
Kongómálinu er af pólitfskum
sérhagsmunum sprottin.
Talsmaður franska utanrikis-
ráðuneytisins lýsti því yfir í dag,
að Frökkum væri ekki kunnugt
um, að Kongó stafaði nokkur
hætta af Sovétríkjunum!
til borið sigur af hólmi í
viðureign sinni við SÞ. Banda-
rikjamenn munu hafa séð, hve
gífurlegar óvinsældir Vesturveld-
in hafa aflað sér í Afríku og
Asíu með framkomu sinni í
Kongó og vilja nú beita meiri
lagni, og var þetta mál eitt
helzta umræðuefni þeirra Kenne-
dys og Macmillans á Bahamaeyj-
um.
Andstæðingar Tsjombes í Kongó
og víðar hefðu áreiðanlega fagn-
að þeirri ákvörðun Bandaríkja-
manna að styðja í verki sam-
einingu Kongó, ef ekki værí
löngu orðið ljóst, að annar og
ógöfugri tilgangur liggur að
baki þessari breyttu stefnu
Bandaríkjastjómar. 'Tsjombe er
orðinn svo alræmdur auðvalds-
leppur í augum heimsins, að
engin stjómarvöld vilja nú tala
máli hans, og Bandaríkjamenn
telja því hyggilegra að beita fyr-
ir sig ríkisstjóminni í Leopold-
ville til að viðhalda fjárhags-
legum hagsmunum sínum. Stjóm-
málafréttaritarar benda á, að
talsmenn USA hafa ekki rök-
stutt stefnu stjórnarinnar und
anfama daga með þvi að steypa
verði Tsjombe af stóli, heldur
með hinu, að Sovétríkin hyggist
ná fótfestu í Kongó og ætli sér
að nota landið til að efla áhrif
sín í Afríku. Bandaríkjamenn
segja, að koma vattl í veg fyrir
Real Madríd
60 ára
MADRID 14/12 — Spánska í-
þróttafélagið fræga, Real Mad-
rid, er 60 ára um þessar mund-
ir. I tilefni þessara tímamóta
hefur verið opnuð sýning á
1053 verðmætum bikurum og
öðrum verðlaunagripum, sem
félagið hefur unnið. Þes^ sýn-
ing er i húsi listafélagsins í
höfuðborg Spánar.
Hátíðarsamkoma fór fram við
opnun sýningarinnar, og var
hún sett af forseta Real Mad-
rid, en hann heitir Augustin
Munoz Grandes.
Þama var sýnd kvikmyndin
„Saga bikaranna fimm“. Sýn-
ir hún úrslitaleikinn í öll fimm
skiptin sem Real Madrid vann
Evrópubikarkeppnina. Real
Madrid vann það einstaka af-
rek að vinna Evraópubikar-
inn fimm ár í röð, en nú er það
portúgalska liðið Benifica í
Lissabon, sem hefur bundið
enda á sigurgöngu Spánverj-
anna.
I 60 ára sögu sinni hefur
Real Madrid háð samtals 1366
leiki. Af þeim hefur félagið
unnið 794, 219 hefur lokið með
jafntefli, en 353 hafa tapazt.
A