Þjóðviljinn - 22.12.1962, Blaðsíða 10
I
l
10 SÍÐA
ÞJÓÐVILJÍNN
GWEN BRISTOW:
w
I
HAMINGJU
LEIT
Sumarið 1844 lauk Garnet
Cameron burtfararprófi frá Sér-
ekóla ungfrú Wayne fyrir ung-
ar stúlkur. í>að var heimavistar-
skóli á sveitasetri í ofanverðu
Manhattan og Garnet hafði
stundað þar nám í fjögur ár.
Við skólauppsögnina fékk hún
þrenn verðlaun: í tónlist, reið-
mennsku og framkomu.
Garnet var átján og hálfs árs.
Hún var með svart hár og það
var svo slétt og skínandi að það
sýndist blátt í sólskini. Augun
voru grá og bráhárin löng og
svört og vangamir svo rjóðir,
að fólk bar henni iðulega á brýn
að hún málaði sig. Þótt hún væri
svona litrík. var hún alls ekki
fríð. Til þess var andlitið of
stórskorið. ennið o.f ferhymt,
hakan of sterkleg og varirnar of
þykkar og rauðar. En líkami
hermar var stinnur og grann-
vaxinn. hún var grönn um mitt-
ið og fötin fóru svo afbragðs
vel að vöxturinn fékk fyllilega
notið sín. í þá daga huidu kjói-
amir konur frá hálsi að ökla.
en blússan var eins og hún væri
steypt á hana og pilsið var hæfi-
lega skáskorið til að undirstrika
hið granna mitti án þess að vera
svo vítt að það hindr.aði yndis-
þokka í hreyfingum. Garn.et
hafði mjög fallegar hreyfingar.
Á skólanum hafði hún á hverj-
um degi gengið upp og niður
hririgstiga með bók á höfðinu.
Hún var hraust og heilbrigð.
það var hægt að sjá á henni.
og hún hafði mikinn áhuga á
lífinu. Gamet vildi gjaman fá
að vita allt um alla hluti. Hún
hafði ekki yfir neinu að kvarta
nema Því að lífið hafði gætt
han,a svo lítllli þekkingu. Hún
sagði sjalðan neitt. slíkt unphátt.
Gamet hafði verið vel upp alin
í svo mörg ár, að hún vissi að
enginn hafðj áhuga á skoðunum
ungrar stúlku.
Garnet átti heima í Union
Square í New York. f Union
Square stóðu húsin umhverfis
skemmtigarð. þar sem gosbrunn-
ur seytlaði allan daginn. Börn
skoppuðu gjörðum undir trján-
um og konur og karlar gengu
á gangstígunum. Hvort sem var
um hásumar eða trén stóðu nak-
in að vetrarlagi og gluggarnir
roðnuðu í lampaljósinu, hafði
Union Square á sér blæ velmeg-
unar. Allir gátu séð að þetta
var fín gata og þar bjó fínt
fólk Faðir Garnetar var Horace
Cameron, varabankastjóri í
banka í Wall Street. Móðir henn-
ar var töfrandi kona. sem til
þessa hafði lifað mjög notalegu
lífi og gerði ráð fyrir að það
vrði svo eftirleiðis. 'Gamet átti
tvo yngri bræður, Horace yngri
og Malcolm. sem gengu í latínu-
skóla sem bjuggu piltana undir
Columbiaháskólann. Þetta var
myndarieg fjölskylda, vel siðuð
og fáguð í athæfi. Þegar Garnet
fékk verðlaun sín og hneigði sig
kurteislega við skólauppsögnina
hjá ungfrú Wayne, sögðu vinkon-
ur móðurinnar, að hún væri fyr-
irmynd ungra stúlkna. Eða hún
þefði verið það. ef hún hefði
ekki haft þesga sterku liti og
hún hefði gjarnan mátt hafa fín-
legri andlitsdrætti. En hún var
að minnsta kosti indæl stúlkn
og á því var enginn vafi, að hún
fengi gott gjaforð.
Þeg.ar Gamet kom helm um
kvöldið. lagði hún prófvottorðin
■sín niður í kommóðuskúffu. Hún
lokaði skúffunni og stundi af
feginleik. Skóladagarnir voru á
enda. Eftir nokkrar vikur — þeg-
ar hún væri búin að fá nóg af
viðeigandi fötum — átti hún að
fara í leyfi með foreldrum sín-
um til Rockaway strandar. Þau
áttu að búa á fínu hóteli og
hitta sæg af fólki og hún þurfti
ekki framar að hugsa um kvenna-
skóla ungfrú Wayne. Loksins var
hún orðin fullorðin og hún var
viss um að eitthvað skemmtilegt
kæmi fyrir hana.
En það gerðist ekki neitt fyrst
í stað.
Hún fékk tvö hjónabandstil-
boð. sem hún hafnaði báðum
eins fljótt og hún gat. Fyrra
bónorðið kom frá ungum manni
sem hún hafði kynnzt um sum-
arið við Rockaway strönd. Hann
var vel ættaður, en Garnet þótti
hann svo heimskur, að það hefði
þurft að loka hann einhvers
staðar inni af eintómri samúð.
Eins og endranær sagði hún
ekki það sem henni var i hug.
Móðir hennar hafði kennt henni
að hafna bónorði á notalegan og
snyrtilegan hátt, og þegar hún
hryggbraut unga manninn fannst
honum sem Garnet myndi minn-
ast hans með ánægju meðan hún
lifði.
Hitt bónorðið átti sér stað í
september. þegar hún var aft-
ur komin til New York. Ungi
maðurinn hét Henry Trellen.
Foreldrunum þótti miður að hún
skyldi ekki taka honum, því a.ð
þetta var framúrskarandi ráða-
hagur. Henry Trellen var for-
ríkur og einkabarn. Hann bjó
með móður sinni sem var ekkja.
í dimmu, dýrindis húsi við
Bleecker stræti. Húsið minnti
Gamet á grafhýsi, móðir Henrys
minnti hana á marmaraengil á
legsteini og Henry sjálfur þótti
henni skelfing leiðinlegur. Henni
fannst hún gæti eins lokað sig
inni í kirkjugarði það sem hún
ætti eftir ólifað eins og að gift-
ast honum. Hún sagði þetta
ekki. Hún sagði að eftir langa
yfirvegun hefði hún komizt að
þeirri niðurstöðu að hún elskaði
hann ekki.
Foreldrarnir iétu það gott
heita. Þau höfðu gifzt af ást og
vildu að hún gerðj slíkt hið
sama. Hún hafði timann fyrir
sér og móðirin gætti þess að hún
fengi mörg tækifæri til að hitta
unga menn sem hún gæti valið
úr.
Gamet elskaði foreldra sína.
því þetta var gott fólk. Hana
langaði t,il að gera þeim til geðs.
En hún hafði andstyggð á ungu
mönnunum. sem kallaðir voru
góð mannsefni. Þeir voru oft
fríðir og stundum ríkir, en alltaf
voru þeir leiðinlegir. Þeir voru
svo úttroðnir af góðum siðum
að það var engu líkara en ungu
stúlkurnar væru ekki manneskj-
ur. Þegar þeir töluðu var einna
líkast þvi að einhver ímynduð
hula væri milli kynjanna. svo
að karlar og konur sæju ekki
hvort annað greinilega. Gamet
dansaði við þá og daðraði við þá,
ogþað gerði hún Ijómandi vel, en
hún hafði hreint enga ánægju
af því. Henni þótfi ekkert gam-
an að segja eitt og meina allt
annað. Aðferðir þær sem ungu
stúlkumar notuðu til að ná sér
í eiginmenn — hvískur, höfuð-
hristingar og blak með augna-
hárunum, þóttu henni skelfilega
hvimleiðar. Hún gat gert slíkt
hið sama, en hún hafði ekki á-
huga á þvi og hún varð leið á
því.
Auðvitað urðu ungar stúlkur
að eiga sér riddara. en Gamet
hélt að einhvers staðar í heimin-
um hlyti að vera til ungur mað-
ur sem gæti talað við hana eins
og skynsemi gædda vem sem
lifði í sama heimi og hann. Hún
sagði við sjálfa sig að slíkur
maður hlyti að vera til. Kannski
var hann meira að segja til í
New York.
En þótt hún hefði átt heima í
New York alla sina ævi. vissi
hún ekki sérlega mikið um borg-
ina. Gamet var oft að hugsa
um þetta um haustið. þegar hún
stóð við gluggann og horfði á
trén í Union Square, sem glóðu
rauð í októbernæðingnum. New
York — þessi fiöruga og spenn-
andi borg og hún fékk ekkert
að sjá af henni! Það voru svo
margir staðir í New York sem
hún mátti ekki heimsækja. svo
margar götur sem hún mátti
ekki ganga um.
New York tútnaði út með
miklum hraða Árið 1844 var
þetta o.rðin 400.000 manna borg,
íbúunum hafði fjölgað um 100
þúsund á tíu árum. Járnbraut
lá til Fíladelfíu og önnur til
White Plains og ferja gekk til
Brooklyn á fimm minútna fresti
og sporvagnar frá ráðhúsinu til
Harlem á kortérs fresti. Þama
voru ágæt almenningsbaðhús.
þar sem hægt var fyrir 25
sent að fara i steypibað eða
liggja í marmarakeri. Við Castle
Garden. rétt við brúna frá
Battaríinu voru tvær sundlaug-
ar, fyrir kar’a og hin fyrir kon-
ur. f skemmtigörðunum voru gos-
brunnar og í New York var bezta
brunalið í heimi.
Broadway byrjaði við Batter-
íið o-g lauk við fjórtándu götu.
Ef gengið var þennan spöl,-
mátti sjá alla frægustu staðina
í New York. Fjörugasti hluti
borgarinnar var City Hall Park.
Ef gengið var upp Broadway í
áttina að garðinum. fór maður
framhjá Asto.r House til vinstri
á hominu á Broadway og Vesey
stræti. Astor House var glæsi-
legasta hótel Ameríku. Það var
fimm hæðir og hvítar tröppur
lágu upp að útidyrunum milli
hvítra súina Þvert yfir Broad-
wav sást framhliðin á Barneys
skilti með hafmeyjum og sjó-
listasafninu. Á safninu var stórt
‘--Hr
ti'wuj-tt ‘tuttni r—yi i
fttt
wtjjw+fictt-Tte1!
\uttt-_mttn,\u
ÖRUGGARI
RÆSING
10% eldsneytis
spamaður,
H.F. EGILL ...VILHJAi-HSSHW
Laugardagur 22. desember 1962
FRA STALSTÓLUM — BRAUTARHOLTI 4:
Erum búnir að fá
KRÓMUÐU
ELDHOSSETTIN
Tökum á móti pöntunum í dag og á morgun fyrir
þá, sem vilja fá þau fyrir jól.
SENDUM HEIM
Seljum einnig KOLLA á kr. 150.00 og öTRAUBRETTI
á kr. 350.00 meðan birgðir endast.
BLOMAGRINDUR á kr. 340.00
SlMABORÐ á kr. 685.00
Athugið hversu verðið er hagkvæmt!
STALSTÓLAR Brautarholti 4
Sími 36562 — Reykjavík. «
Með því að kaupa
Jélolcort Rauða Krossins
styðjið þið Alsírsöfnunina.
Kortin eru gerð eftir myndum frú Barböru Árnason.
RAUÐI KROSS ISLANDS
VALVER—15692—VALVER—15692—VALVER—15692—VALVER—
ctj <t
oi
w
j Laugavegi 48.
<
^ Við aðstoðum
g yður við að
m
'T gleðja börnin.
VALVER
Baldursgötu 39. g
Sendum heim
og í póstkröfu §
um land allt. S
VALVER—15692—VALVER—15692—VALVER—15692—VALVER—
Tilkynning
Bankamir hafa opnar afgreiðslur fyrir hlaupareiknings-
og sparisjóðsviðskipti laugardaginn 22. desember frá kl.
17.00 til kl. 20.00, auk venjulegs afgreiðslutímaj eins og
hér segir:
LANDSBANKINN:
Austurbæjarútibú, Laugavegi 77,
Langholtsútibú, Langholtsvegi 43,
Vegamótaútibú, Laugavegi 15,
Vesturbæjarútibú, Háskólabíói, við Hagatorg.
BtJNAÐARBANKINN:
Austurbæjarútibú, Laugavegi 114,
Miðbæjarútibú, Laugavegi 3,
Vesturbæjarútibú, Vesturgötu 52.
0TVECSBANK1NN:
Sparlsjóðsdeild aðalbankans við Lækjartorg,
títibú, Laugavegi 105.
IÐNAÐARBANKINN:
Lækjargötu 10.
VERZLUN ARB ANKINN.
Utlbú, Laugavegi 172.
Auk þess verður tekið á móti fé af viðskiptamönnum
til innleggs eða geymslu á sömu stöðum og ennfremur
í Verzlunarbankanum við Bankastræti, frá kl. 0.30 til
kl. 2.00 eftir miðnætti.
Viðskiptamönnum aðalsetra bankanna skal sérstaklega
bent á að hagnýta sér hidnnstu útibúanna á ofangreind-
um afgreiðslutímum.
LANDSBANKI ÍSLAk
BCNAÐARBANKI ÍSlMh
tJTVEGSBANKI ÍSLANDS,
IÐNAÐARBANKI SSLANDS H/F,
VERZLUNARBANKI ISLANDS H/F.
I