Þjóðviljinn - 22.12.1962, Blaðsíða 12
Verzlanir opnar
til miðnættis —
rakarar loka 9
1 dag, laugardaginn 22. desem-
ber, eru sölubúðir opnar til kl.
12 á miðnætti.
Hakastofur eru opnar til kl.
9 í kvöld.
Títé i
Ungverjalandi
BEDGRAD 21/12 — Forseti
Júgóslavíu, Josep Titó, er á
heimleið frá Moskvu og kom við
í; Budapest í dag. Forseti og
forsætisráðherra Ungverjalands
tóku á móti honum á járnbraut-
arstöðinni og áttu við hann stutt-
ar viðræður, Fréttaritarar í
Belgrad telja. að sambúð Júgó-
slava og Sovétríkjanna muni
enn bat,na á næstunni, eftir
heimsókn Títós, enda þótt talið
sé víst, að Júgóslavía muni
h-alda hlutleysisstefnu sinni í
hernaðarátökum og standa á-
fram utan við herbandalög.
Titó sagði við komuna til
Budapest, að ummæli Krústjoffs
um alþjóðaástandið sýndu. að
hon-um væri umhugað, að nokk-
uð slaknaði á spennunni í átök-
um .austurs og vesturs. Júgó-
slavía er sannfærð um, sagði
Tító, að Sovétríkin æskja friðar
og vilja finna leið til lausnar
hinum háskalegu vandamálum.
Frásögn sú sem Alþýðublaðið
birti í gær af merkilegum og
háskalegum æfintýrum Guð-
mundar í. Guðmundssonar í
Paris hefur vakið mikla hrifn-
ingu meðal almennings. Frásögn
in hefur líka vakið upp ýmsar
hugleiðingar; þannig gerir
Austri allýtarlega grein fyrir
skoðun sinni á málinu á ann-
arri síðu blaðsins í dag. Enn-
fremur var hringt til blaðsins
seint í gærkvöldi og okkur til-
kynnt um tilorðningu eftirfar-
andi vísu:
Þessi mikla Frakklandsferð
fengi góðan endi
yrði líka umtalsverð
ef þeir stælu Gvendi.
Kjörelœma-
keppni
K jördæmakcppnin;
Austurland 61%
Reykjavík 56%
Norðurland, vestra 51%
Reykjaneskjördæmi 47%
Vesturland 45%
Vestfirðir 37%
Norðurland, eystra 33%
Suðuriand 31%
Þannig standa sk'ilin til
happdrætisins yfir allt
Iandið eins og komið var
inn í bækur í gærmorgun.
En þarna koma ekki
fram skil, sem eru póstlögð
og eru á leiðinni. Heildar-
tölur eru allt of lágar og
ættu að verða hvatning til
margra, sem hafa ennþá
miða undir höndum að
bregðast hart við og póst-
leggja sitt eftir þessa lesn-
ingu.
Gerum öll skil og eflum
málgagn okkar til stórra á-
taka á næstu mánuðum.
Laugardagur 22. desember 1962 — 27. árgangur — 281. tölublað.
I
Anægjulegir
endnrf undir
mikinn drykk, segir Jónk’
Kristófer. Það fer náttúrulega9
eftir því hvað kúnnarnir eru‘
margir.
!
H
II
Það er skemmtilegur söfn-
uður mættur til messu hjá
kaffiguðnum niðri á Skála.
Þar var Jón Kristófer, sem
hefur sagt frá og Jónas
Árnason, sem hefur skráð
söguna. Og þar var mættur
Ölafsvíkur-Kalli, sem kemur
albnikið við sögu I bókinni
um Syndina lævísa og lipra
eins og margir muna. Hann
er nýkominn heim — kom
fyrir þrem dögum, hafði siglt
á sænskum dalli síðan í vor.
Ert þú, Karl, jafn ánægður
með bókina og þessir tveir
menn,? spyrjum við.
Jónas mótmælir þessum
staðhæfingum; þeir Jón hafi
ekki einu sinni verið spurð-
ir álits.
En Karl svarar: Ég hef
aldrei skemmt mér jafnvel og
við lestur þessarar bókar. Ég
varð að leggja hana frá mér
öðru hvoru, ég hló svo mik-
ið. Hvort þeir hafi log,ið
nokkru á mig? Nei, blessað-
ur vertu, öðru nær. Þetta eru
hógværir menn og sannorðir.
Þar er líka kominn Rún-
ólfur Pétursson og beimr
umræðum að eilífum við-
fangsefnum. Skyggn maður
sá vel hífaðann sjómann úti
á Granda og varð að orði:
Þetta er eins og fljótandi hót-
el. Á manninum sátu fjórar
eilífðarverur og allar fullar.
Já ég hef tekiið eftir því
að mcnn þola misjafnlega
Runólfur þakkar Jóni við-
talið við andskotann í bókinni. jv
Jón segir að Jónas beri af^
því alla ábyrgð, en Jónas seg-^
ir að þetta sé einföld skrá-H
setniing á reynslu kynslóðanna fe
Og það er farið nánar út ®
í þessa sálma. Runólfur harm-b
ar það, að nú er hvorki sósí-™
alismi né heimspeki í brenni-B
víninu lengur. Það er alvcgj
voðalegt að vita til þess hvaðag
fólk drekkur nú á dögum. J
Já, segir Jón Kristófer, —B
mér fyndist mjög kvíðvæn-jj
legt að fara á fyllirí núna; B
ég veit ekki um hvað það||
ætti eiginlega að snúast.
Það var fitjað upp á «m-|
ræðum um guð og gildi hans^
fyrir mannfólkið. En Jón vark
því miður önnum kafinn, það™
er ekki svo Títið sem ráðsmað- B
urinn í Víðinesi þarf að út-sj
rétta. Hinsvegar er ekki ó-■
líklegt að þessir kappar hitt-J
ist bráðlega aftur og leysi þáB
þau vandamál sem eftirj
kunna að vera. (Ljósm. Þjóð.B
G. O.) *
UNDANRARNA DAGA hefur
verið suðaustan átt um land
allt, leiðindaveður sunnan og
Jélasöngvar
í Tjarnarbæ
Á morgun, Þorláksmessu, kl. 2,
e.h., verða Jólasöngvar fluttir í
Tjamarbæ á vegum Æskulýðs-
nefndar Þjóðkirkjunnar og
Æskulýðsráðs Reykjavíkur.
Ávörp flytja þeir, séra Óskar
J. Þorláksson, dómkirkjuprestur
og séra Ölafur Skúlason, æsku-
lýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar.
Lúðrasveitin Svanur mun leika
jólalög, og kórar úr kvenna-
skólanum og Unglingadeild Mið-
bæjarskólans munu syngja.
★
Einnig verður almennur söng-
ur, og verða þá kynnt ýms jóla-
lög. Jón G. Þórarinsson, söng-
stjóri mun stjórna bæði hljóm-
sveit, kórsöng og almennum
söng.
Allir eru velkomnir á meðan
húsrúm leyfir.
vestan, eins og jafnan í út-
synningi; gengið á með hörð-
um hríðaréljum, veðurhæð
8—10 vindstig í éljunum, hiti
um frostmark. Þetta veður-
Iag náði allt frá Mýrdal og
vestur og norður um í Húna-
flóa.
Á Norðausturlandinu hefur
aftur á móti verið gæðaveð-
ur, bjart í lofti og úrkomu-
laust, frá Austurlandi og
norður og vestur um í Eyja-
fjörð.
VEÐURSTOFAN spáði í gæi
þeim breytingum á veðrinu,
að hann gengi í dag til suð-
austanáttar mcð hlákublota
um allt land. En ekki mun
hlákan standa lengi við, því
búizt er við, að hann gangi
í suðvestrið aftur í nótt og
verði svipað veður á Þorláks-
messu og verið hefur undan-
farið.
... og vegirmr
1 gær fengum við upplýsingar
hjá Vegagerð ríkisins um færð
á nokkrum fjölförnustu vegun-
um.
4.U STURLEIÐIN (um Þrengslin
hélzt fær í gær, en talsverður
snjór var á kaflanum frá
Sandskeiði að Austurveginum
nýja.
MVALFJARÐARLEIÐ var fær.
HOLTAVÖRÐUHEIÐI tepptist í
fyrrinótt, opnaðist aftur sið-
degis í gær, þó aðeins fyrir
stóra bíla.
ÞAR FYRIR NORÐAN á leið-
ínni til Akureyrar og austur í
Þingeyjarsýslur voru allir
fjallvegir færir, enda miklu
skaplegra veður þar en fyrir
sunnan og vestan.
illlATTABREKKA hefur senni-
lega lokazt í fyrrinótt, en ætl-
unin var að moka hana í dag.
KERLINGASKARÐ á Snæfells-
nesi var fært, en
FRÓÐÁRHEIÐI aðeins stórum
bílum, en hana á að ryðja í
dag, og
ÚTNESVEGUR að Hellisheiði er
sömuleiðls aðeins fær stórum
bílum.
Um kl. 23.30 í gærkvöld mun-
aði litlu að stórslys yrði á
Skúlagötu á milli Vitastígs og
Barónsstigs vegna glannafengins
aksturs. Fimm ungir piltar óku
inn Skúlagötu á Chevorletbifreið
árgerð 1952 á ofsahraða. Allt í
einu missti ökumaðurinn stjórn-
ina á bifreiðinni og lenti hún á
Ijósastaur með þeim afleiðingum,
að einn piltanna hrökk út og
kastaðist í götuna en slapp þó ó-
meiddur. Bifreiðin rann siðan á-
fram um 100 metra og stað-
næmdist svo tæpt á götubrún-
inni, að hún vó salt í vindhvið-
unum og má furðulegt heita, að
hún skyldi ekki stingast fram af
og í sjóinn. Enginn piltanna
meiddist í árekstrinum við Ijósa-
staurinn. Þeir voru allir ó-
drukknir og engin hálka var á
götunni, þegar óliappúð vildi tiL
Ný bók Cuðmundar
Böðvarssonar
Ein bók sem líkleg er til að
lifa af „bókaflóðið" kom út í
gær, og verður eflaust mörguin
kært Iesefni um jólin Það er
ný Ijóðabók eftir GUÐMUND
BÖÐVARSSON.
Bókin heitir Saltkorn í mold,
og við fljóta yfirsýn virðist það
vera samfelldur ljóðabálkur um
látna menn og örlög þeirra.
Skáldið þykist statt í grafreit,
Hundrað eintök af bókinni eru
tölusett og árituð af höfundi og
fást hjá útgefanda.
!
jkeppnin
Guðmundur Böðvarsson.
slaldrar við leiðin, og segir sögu
þeirra er þar liggja neðar moldu.
Þetta er óvenjufalleg þók að
öllum ytri búnaði. Hún er prent-
uð í Hólum h.f. og útgefandi
er Bókfellsútgáfan.
BUENOS AIRES 21/12 — Lög-
reglan í La Banda í Argentínu
segist hafa afhjúpað nýtt sam-
særi gegn ríkisstjórninni og hef-
ur fangelsað um 30 kommúnista
og róttæka vinstrimenn.
KAIRO 21/12 — Þrír egypzkir
ríkisborgarar voru teknir af lífi
í dag. Þeir höfðu verið dæmdir
fyrir njósnir í þágu Israels-
manna.
15. delld: Selás og Smá-
lönd 86%
1. deild: Vesturbær 80%
5. deild: Norðurmýri 83%
11. deild: Smáíbúðahverfi,
vestann 76%
9. deiild: Kleppsholt 74%
10. dcild: Rauðárholt 66%
14. deild: Ilerskálakamp-
ur 65%
4. deild a: Þingholtin 64%
3. deild: Skerjafjörður og
Grímsstaðaholt 64%
4. deild b: Skuggahverfi
60%
8. deild a: Teigamir 60%
10. deild a: Ileimamír 56%
6. deild: Hlíðarnar 54%
8. deild b: Lækimir 53%
13. deild: Blesugróf 50%
2. dcild: Melarnir, Skjólin
og Seltjarnames 48%
12. deild: Sogamýri og
Gerðin 43%
Um mliðan dag í gær
stóðu þannig skil til happ-
drættisins hér í bænum.
Þetta er síðasta skrá, sem
birt verður fyrir jól, en
lokatölur birtast í fyrsta
blaði eftir hátíðina.
Stór stökk hafa gerzt hjá
mörgum og verulegur
skriður er kominn á söl-
una, en dagurinn í dag og
á morgun eru síðustu dagar
happdrættisins og verður
þá þrautreynt, hvemig
málin standa.
Aðeins tveir dagar til
stefnu.
Gerum öll skil þessa tvo
síðustu daga.
I
!
I
Dregið á morgun —gerið öll skil strax í dag
Opið á Þórsgötu 1 til kl. 12 á miðnœtti. Aðeins peningar - Enginn miði