Þjóðviljinn - 23.12.1962, Side 8

Þjóðviljinn - 23.12.1962, Side 8
8 SÍÐA ÞJOÐVILJINN Sunnudagur 23. desember 1962 Hin furðulega eftirliking „blaðfiðrildisins" á visnu Iaufi er svo nákvæm að á vsengjum þess smáir blettir sem minna á sveppi á rotnandi laufblöðum. eru Þetta er árla morguns í sept- ember, við strönd lítils vatns á Norðursjálandi. Kerlingar- vellan mjakast yfir spegilslétt- an vatnsflötinn líkt og eimur upp af potti rétt fyrir suðu. Blesönd stikar varfærnislega út í og sendir um leið viðvörunar- merki félögum sínum, sem leynast í reyrþykkninu. Og þama nálgast krabbinn, grip- armalangur, svartur og ógeðs- legur, þar sem hann ber við ljósan malarbotninn. Hann er vanur að athafna sig um nætur og ætti að hafa tekið á sig náð- ir undir bakkasyllunni fyrir löngu, en eitthvað óvænt hlýt- ur að hafa dvalið hann. Ég er kominn hingað í þeim erindum að ræna vatnið einni af þess mörgu geddum; en mér liggur ekkert á að hefjast handa. Rísandi dagur hvetur næstum til hljóðrar íhygii, þar sem hægt er að njóta hins ó- skilgreinda ilms af vatni, frjóu mýrlendi, gróskuríku grasi — og rotnun, hinni ilmsterku sam- setningu lífs og dauða í ríki náttúrunnar. Stór að sjá og ágæt — en að vísu nokkuð árdagsföl — gæg- ist upp sólin að baki mér og stráir silfri á tilkomumikið víravirki köngulóarinnar; en uppi við engjastíginn stendur belgvíður mjólkurbrúsi með hattkollinn út 1 vangann. og stimir á þunnmálmin. Nýr dagur — hikandi, í reif- um Staurinn Lágt brak rýfur'hina eðlilegu kyrrð. Eitthvað dýrið hefur gert skyssu; . . ratað rangan veg . . Væddur gúmmískóm læðist ég hljóðlaust út að sefgróðr- inum, þaðan sem hljóðið barst. Flosbrún puntstráin teygja sig mót krítarbláum grunni him- insins eins og kræsilegir Castro-vindlar, en sefslíðrin hneigja odda að vatnsfletinum og hylja að mestu gamlan og feyskinn staur skammt undan bakkanum. Dýrið sem fór veg- arvillt, er hinsvegar hvergi að sjá. Hvaðeina andar friði og kyrrð. Ljómandi morgundögg á grasinu dreifir huganum. Nú er kominn tími til Veiða . . . Á broti úr sekúndu er sem leiftri rafgulu frá veðurbitna staumum álengdar . . . Furðulegt . . . I rauninni kostar það mann átak að gera sér þess allt í einu grein, hvemig staurinn um- myndast og flyzt yfir í dýra- ríkið. En varna er hann þó kominn, sefhegrinn, með háls og nef standandi beint upp t loftið. Ryðrauður og svart- flekkóttur leynir hann tilveru sinni innan um sefið, svo hann er næstum ósýnilegur. Það veldur undarlegri tilfinn- ingu að afhjúpa þannig eitt af meistaraverkum móður náttúru — meistaraverk hennar í þvi að búast dulargervi. Ég sezt á vatnsbakkann örfáa metra írá hinum hnakkakerta fugli. Þolinmæði áhugaveiðimanna er sem kunnugt er takmarka- laus. Liðnar eru tuttugu mínútur. Bóndinn hefur sótt mjólkur- brúsan sinn — og ég er búinn að fá dofa í annan fótinn. Aft- ur á móti haf,a maurflugumar rauðu vaknað af dofa svefnsins. Mig svíður . . . Komabarn getur varla orðið rassvotara en ég er. Og enn situr sefhegrinn hnakkakertur. Hann gjóar á mig gulu auga. Eg verð að standa upp og hreyfa mig. Fuglinn hreyfir líkamann all- an, án þess greint verði, i sam- ræmi við það sem ég flyt mig til, þannig að sjónarhomið er stöðugt hið sama. Hann verður fyrir alla muni að vlðhalda Ástralski tötraíiskur... .<tist í fljótu bragði lítið annað en skinin bcin. Langur gripsporður bans greinist í ótal anga og flygsur og broddar standa út úr mjóslegnum skrokknum. Er hægt að óska sér betri dulbúnings þegar lifað er innanum þara og þðngla? blekkingunni um feyskinn staur. Snilldariegt! Enn líður stundarfjórðungur. og mér kemur til hugar að forða fuglinum frá því að fá ríg í hálsinn, með því að rétta út handlegginn. Það kveður við þytur, og fuglinn er horf- inn langt út yfir spegilsléttan vatnsflötinn, í átt til sefsins handan við. Maður hafði efazt, — en sjón varð sögu ríkari. Staurinn var lífigæddur. Mœlislifran Er viö förum nokkrum þrep- um neðar f metorðastiga dýra- ríkisins, verður á vegi okkar fiðrildi, sem nálgast sefhegrann í tækni grímubúnaðar, jafnvel tekur honum fram í nákvæmni eftiriíkingar, ef á annað borð er um þann möguleika að ræða. Það er ekki að ástæðulausu, að vísindamaður einn hefur gefið ætt þess nafnið mælirinn, því að á meðan hún er á lirfustig- inu og hefur enn ekki þanið út hina fögru vængi sína. er lífsferill hennar haria hlykkj- óttur, ef svo má að orði kom- ast. Með smáum vörtu-fótum skýtur hún upp kryppu og teygir síðan úr sér, eins og allt hennar líf sé undir því komið að mæla þá vegalengd, sem hún kemst. Svo velnærð og bústin sem hún er af nýútsprungnum laufblöðunum á vorin, yrði hún Ijúffengur biti í gogg margs fuglsungans, ef móðir náttúra hefði ekki gætt hana árangurs- ríkri vöm. Fiðrildisætt þessi greinist í margar kvíslir, sem halda sig hver í sínu sér- stæða umhverfi. Mýrar-mællr inn fyrirfinnst t.d. á blöðku- jurtum í júlímánuði, ef heppn- in er með. Heimilisfang birki- mælísins er geymt í sjálfu nafni hans; en hinsvegar býr tegund sú, er náttsvölustél nefnist, j blöðum caprifolíunn- ar. Þrátt fyrir stóran útlitsmun hafa lirfurnar það sameiginlegt, að lögun þeirra og litur fer jafnan nákvæmlega eftir blöð- um þeim og greinum, sem þær lifa á. Þegar þær verða áskynja um einhverja hættu á ferð, soga þær öftustu vörtufætuma fasta, teygja síðan stinnan lirfubolinn og líkjast þannig blaðstúf á jurt eða grein á tré. svo furðu gegnir. Samsvörunin við umhverfið er svo vel gerð, að ekki aðeins höfuð og fætur líkja eftir brumi á tré, heldur fyrirfinnast oft á bol lirfunnar vörtur og aðrir smáhnúðar, sem gera eftirlíkinguna nánast fullkomna. Vissulega mjög innilokuð til- vera, þetta. En hún eykur mjög á sennileika frásögunnar um vísindamanninn, sem átti að baki 30 ára rannsóknir á skor- dýrum, en lét blekkjast af mælis-lirfu — og sótti trjá- klippuna sína til að fjariægja slikan „teinung" af rósarunna, sem hann hélt sér hefði yfir- sézt fyrr um vorið. En eins og dæmi finnast um ótrúlegustu dulargervi lirfanna. þannig eru líka önnur dæmi um fullþroska fiðrildi, sem gædd eru hæfileikanum til að Lirfur mælifiðrildanna eru dá- samleg dæmi um dulargervi i ríki náttúrunnar. Þegar þær standa beint út í loftið i þeirri varnarstöðu sem Iirfurnar tvær á teikningunni cru í, er erfitt >ð sjá mun á þeim og grein- unum. Jbs líkja eftir umhverfi sinu á mjög fullkominn hátt. Undir sólheitum himni Af- ríku, þar sem skordýralífið er hvað mest og fjölbreytilegast, lifa fiðrildistegundir, sem eru búnar þannig vængjum, að neðraborð þeirra \t;— það sem upp snýr, þegar þau eru í hvíldarstellingum — tekur á sig lit og lögun þess umhverfis þar sem þær eiga heima, hver um sig. I vesturhéruðunum, meðfram hinum rauðleitu bökkum Senegal-fl.jótsins, eru fiðrildin búin < samsvarandi rauðri „floskápu". Fiðrildin í v s ■l L <

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.