Þjóðviljinn - 05.01.1963, Blaðsíða 4
4 StOA
ÞJÓÐVILHNN
Fösfeudöigu r 4. janúar 1963
Sérfræðingar í frjálsum
íþróttum hafa verið að
velta því fyrir sér hvort
hinn vinsæii og snjalli há-
stökkvari Valeri Brumel
Ieggi fyrir sig tugþraut þeg-
ar þar aö kemur.
Hann tók um daginn þált
í innanhússmóti í frjálsum
íþróttum. I*að virðist allt
benda til þcss að hann hafi
mikinn viðbragðsflýti, því
30 m hljóp hann á 3,8 sek.
og i langstökki fór hann
7,47, sem bendir til að hann
hafi hraða, og styrk úr há-
stökkinu hefur hann í fót-
unum. Hann sem sagt vann
báðar þessar greinar. I
kúluvarpi varð hann í öðru
sæti og varpaði kúlunni
15,07 m.
+ Sænska skautadrottningin
Ann Frei hefur æft sig vel
fyrir Evrópumeistaramótið og
heimsmeistaramótið í list-
hlaupi á skautum. Nýlegatók
hún þátt í vígslu nýrrar
skautahallar í London og er
myndin tekin við það tæki-
færi. Ann Frei er aðeins tví-
tug að aldri.
Myndin er af finnska skiða-
kappanum Ero Mántyranta.
-jb- Heimsmeistaramót stúd-
enta í handknattleik hófst í
Svíþjóð á nýársdag. Norska
liðið, sem nær eingöngu er
skipað landsliðsmönnum, tap-
aði fyrsta Ieik sínum gegn
Rúmenum — 22:11. Rúmcnar
höfðu mikla yfirburði, og eru
þeir taldir líklegastir sigur-
vegarar í mótinu. Rúmenar
sigruðu einnig á siðasta heims-
meistaramóti í handknattleik
1961.
'ír Danski knattspyrnumað-
urinn Harald Nielsen hefur
fengið tilboð um að fara til
annars félags, þegar samning-
ur hans við Bologna rennur
út 1. Júlí í ár. Nielsen gerðist
atvinnumaður í knattspyrnu
eftir olympíuleikana í Róm
1960. Hann hefur skoraö flest
mðrk allra á yfirstandaudi
knattspyrnutímahili á ftaliu.
Upphæðin sem boðin er í
Nielsen er sú hæsta sem boð-
in hefur verið í knattspyrnu-
mann frá Norðurlöndum —
4,5 milljónir króna. Nielsen,
sem er 23 ára gamall, hefur
enn ekki ákveðið hvort han.i
muni taka fcilbodinu.
+ Eero Mántyranta, finnski
skíðakappinn sem sigraði í 3C
km göngu i síðustu heims-
meistarakeppni, er einnig í
mjög góðri æfingu nú. Á ný-
ársdag sigraði hann í 15 km
göngu með yfirburðum og
voru þó allir beztu göngumenn
Finnlands í keppninni. Keppn-
in fór fram í Kyyjárvi í
grennd við Vasa í Vestur-
Finnlandi. Vcikko Hakulinen
varð nú að láta sér nægja að
keppa í „old boys”-fIokki.
Hann sigraði með yfirburðum
á tíma sem hefði nægt honum
til að ná 11. sæti i úrvals-
flokknum.
Ann Frei.
70 lönd munu taka bátt
í knattspyrnukeppni OL
Zflrich 3/1 — Samtals 70 lönd
hafa tilkynnt þátttöku í knatt-
spymukeppni olympiuleikanna
1964, segir í frétt frá Alþjóö i-
knattspyrnusambandinu.
Þar sem aðeins 16 lönd geta
samkvæmt reglunum sent lið í
sjálfa olympíukeppnina í Tokió.
er nauðsynlegt að láta úrtöku-
keppni fara fram. Olympíu-
nefnd Alþjóða-knattspymusam-
bandsins kemur saman til fund-
ar í Kairó seint í þessum mán-
uði til þess að raða niður leiki-
um í undankeppnina.
Þessi lönd hafa tilkynnt þátt-
töku (Frestur til að skila þátl-
tökutilkynningum er útruna-
inn); Albanía, A- og V.-Þýzka-
land, Hollenzku Vestur-Indíur.
Saudi-Arabía, Argentína, Ástr-
alía, Burma, Brasilía, Búlgaria
Ceylon, Chile, Formósa, Koi-
umbía, Norður-Kórea, Suð'ir-
Kórea, Dahomey, Danmörk, Eg-
yptaland, Spánn, USA, Etíóp-
fa, Ekvador, Finnland, Frakk-
land, Ghana, Bretland, Grikk-
land, Ungverjaland, Indland,
Indónesía, Iran, Island, ísraei
Italía, Kenya, Líbanon, Líber-
ía, Luxemburg, Malaja, Mai-
okkó, Mauritius, Mexíkó, Nig-
ería, Uganda, Pakistan, Pan-
ama, Paraguay, Holland, Perú
Filippseyjar, Pólland, Suður-
Hhodesia, Rúmenía, Senegal,
Singapore, Súdan, Svíþjóö,
Sviss. Suriname, Tékkóslóvak-
ía, Thailand, Togo, Túms
Sovétríkin, Júgóslavía, Tyrk-
land og Vietnam.
★ Vesturþjóðverjar og Finnar
munu heyja landskeppni ,
frjálsum íþróttum í Bremen á
næsta ári. Á næsta ári keppa
Vestnrþjóðverjar einnig við
Bandaríkjamanna í frjálsíþrótt-
um. Karlakeppnin fer fram í
Hannover 1. og 2. ágúst, en
kvcnnakeppnin í Braunsehweig
31. júli.
14 hoxarar
biðu bana
árið 1962
14 hnefaleikarar biðu bana i
keppni á síðasta ári, segir í
frétt bandaríska hnefaleika-
tímaritsins „The Ring”. 10
hinna föllnu voru atvinnumenn.
★
Ritstjóri tímaritsins, Nat
Fleischer, útnefnir „hnefaleik-
ara ársins” og þá sem næstir
honum koma. Nr. 1 að áliti
ritstjórans er heimsmeistarinn
í millivigt, Dick Tiger. Nr. 2
er heimsmeistarinn í veltivigr,
Emile Griffith. Heimsmeistar-
inn í þungavigt, Sonny Liston,
verður að láta sér nægja þriðja
sætið, og þar ó eftir kemur
Cassius Clay.
Silfurverðlaun
Tékka í HM í
knattspyrnu
Ovæntasti í
viðburðurinn 1962
Hvaða íþróttaviðburð teljið þér hafa kom-
ið mest á óVart á árinu 1962? Þannig hljóð-
aði spurning sem lögð var fyrir þekktustu
íþróttafréttaritara sósíalisku ríkjanna í lok
ársins.
Hér á eftir koma svörin. Hver
fréttaritari telur upp þrjá ó-
væntustu atburðina að eigin á-
liti:
Radu Calorastanu
Búkarest:
1. Sigur japönsku stúlknanna
í . heimsrneistarakeppninni í
blaki, sem batt enda á margra
ára sigurgöngu sovézku stúlkn-
anna í . þessari grein.
2. Tvqfaldur sigur Frakka i
100 m hlaupi Evrópumeistara-
mótsins í Belgrad. Reiknaði
ekki með öðru en þýzkum eða
pólskum sigri.
3. Sigur Olgu Orban-Szabos
í heimsmeistarakeppni í skylm-
ingum kvenna. Sigurinn var ó-
væntur þar sem fjórar sovézk-
ar stúlkur komust í úrslitin.
loan Chirila
Búkarest:
1. Silfurverðlaun Tékka i
heimsmeistarakeppninni í knatt-
spymu.
2. Heimsmet Ter-Ovanesians
í langstökki, þar sem Bahda-
ríkjamenn hafa verið einráðir
um áratugi.
3. Ósigur Pattersons með rot-
höggi í fyrstu lotu.
Pasja Michalev
Moskvu:
1. Sigur Edwards Sdobnik-
ovs (Sovétr.) í heimsmeistara-
keppninni í nútíma fimmtar-
þraut, sem fram fór í Mexíkó
City. Enginn hafði reiknað með
þeim úrslitum.
2. Það afrek Tékka að kom-
ast í annað sæti í heimsmeist-
arakeppninni i knattspymu.
3. Heimsmet áströlsku stúlk-
unnar Dawn Fraser í 100 m
skriðsundi — 59,9 sek. Hvern
hefði dreymt um að stúlka ætti
eftir að synda þessa vegalengd
undir einni mínútu?
I. Davidek
Prag:
1. Silfurverðlaun Tékka í
heimsmeistarakeppninni í knatt-
spymu.
2. Heimsmet Finnans Nikula
I stangarstökki — 4,94 m.
3. Það að Uruguaymenn
skyldu ná þriðja sæti sveita-
keppni á hein.smeistaramótinu
í hjólreiðum.
Jan Poppan
Prag:
1. Afrek Valeri Brumel í há-
stökki.
2. Silfurverðlaun Tékka í
heimsmeistarakeppninni í
knattspyrnu.
3. Heimsmet Sin Kin Dan i
400 m hlaupi kvenna — 51,9
sek.
Isívan Becs
Budapest:
1. Það að Tékkar skyldu kom-
ast í úrslitaleikinn gegn Brasil-
íu í HM í knattspymu.
2. Tími bandarísku stúlkunn-
ar Caroline House í 1500 m
skriðsundi kvenna. Þetta afrek
þætti gott í fremstu röð karla.
3. Sigur japönsku stúlknanna
í heimsmeistarakeppninni í
blaki.
Endre Tabak
Budapest:
1. Silfurverðláun Tékka á
HM í knattspymu.
2. Sigur Júgóslavans Ceracs
í heimsmeistarakeppnintti í fim-
leikum.
3. Heimsmet Dawn Frasers i
100 m skriðsundi kvenna —
59,9 sek.
Vihtor Sinicyn
Moskvu:
1. Afrek Valeri Brumels.
2. Silfurverðlaun Tékka á
HM í knattspymu.
3. Hæfileikar Frakkans Mich-
el Jazy til að halda sér í góðu
keppnisformi.
Alexander Jasnikov
Sofia:
1. Sigur Júgóslava (1:0) yfir
Ungverjum í knattspyrnukeppni
í Búdapest. Það voru 30 ár
liðin síðan Júgóslavar unnu
knattspymusigur í Ungverja-
landi.
2. Sigur Tékka (6:0) yfir
Austurríkismönnum í lands-
keppni í knattspymu í Vínax--
borg.
3. Tvöfaldur sigur Frakka í
100 m hlaupi á EM í Belgrad.
Eszua Almalech
Sofia:
1. Að Sovétmönnum skyldi
ekki takast að komast í fjög-
urra liða úrslitin á HM í Chile.
2. Sigur Piquemals í 100 m
hlaupi á EM f Belgrad.
3. Að bandarískum lyftinga-
mönnum skyldi ekki takast að
vinna ein einustu gullverðlaun
í heimsmeistarakeppninni í lyft-
ingum í Búdapest.
Hans Joachim Fibelkorn
Berlín:
1. Silfurverðlaun Tékka í HM
í knattspymu.
2. Bronzverðlaun Uruguay-
manna á heimsmeistarakeppn-
inni í hjólreiðum (100 km sveit-
arkeppni).
Berlín:
3. Afrek Brumels í hástökki.
Klaus Ulrich
Berlín:
1. Silfurverðlaun Tékka í
heimsmeistarakeppninni 1
knattspymu.
2. Heimsmet Bandaríkja-
mannsins Colonnys í sleggju-
kasti — 70,66 m.
3. Sigur tékkneska parsin*
Framhald á 10. síðu.
Recknageler
stöðugt
fremstur
Tímarit vesturþýzka
skíðasambandsins „Ski” út-
nefnir Austurþjóðverjann
Helmut Recknagel bezta
skíðastökkvara heims 1962.
Telur ritið hann hafa átt
þennan titil þrjú síðustu
árin í röð, og er víst eng-
inn á öðm máli.
Tímaritið styður álit sitt
mjög við skýrslu júgóslav-
neska íþróttaskýrslufræð-
ingsins Marko Rozman.
Næstir Recknagel koma
Norðmaðurinn Engan, þá
Austurríkismaðurinn Egger
og síðan Vesturþjóðverjam-
ir Bolkart og Happle.
Helmut Recknagel á afar
glæsilegan keppnisferil að
baki og hefur hann sýnt fá-
dæma öryggi og yfirburði
í skíðastökki um árabil.
Hann sigraði á síðustu ol-
ympíuleikum og sömuleið-
is í síðustu heimsmeistara-
keppni.
Ármenningar
— Glímnmenn!
Glímuæfingar Glímufélagsins
Ármanns hefjast að nýju í
kvöld eftir jólahléið. Fyrsta
æfingin hefst kl. 7 í kvöld f
íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar
við Lindargötu. Eldri sem ýngri
glímufélagar eru hvattir til að
mæta. Nýir félagar velkomnix’.
Glímudeild Ármanns.