Þjóðviljinn - 22.02.1963, Side 12
i
Ási í Bæ biður að heilsa
jatómskáldum og bankastjórum
I
I
Ég náði rétt aðeins tali' af
Ása í Bæ áður en Herjólfur
fór frá Vestmanneyjum á
þriðjudagskvöldjð. Ásj hafði
verið á sjó allan daginn og
kom ekki að fyrr en seint og
síðarmeir, án þess að hafa
fundið það sem hanri var að
leita að, — loðnu. Hann var
tiltölulega kátur, þrátt fyrir
mótlæti síðustu daga og
vikna.
— Blessaður vertu, það þýð-
ir ekkert að tala við mig
núna. Þetta er enginn tími.
Ég gæti náttúrulega logið þig
fullan, ef við hefðum nógan
tíma.
— Þú ert innfæddur hér?
— Já, ég er einn af þess-
um góðu klassísku og hef allt-
af búið hér, stússað í ýmsu,
þó aðallega á sjó, en líka
dálítið á skrifstofu. Annars
hef ég verið í öllum and-
skotanum: ritstjóri, leikari,
söngvari, rithöfundur, kokkur,
skipstjóri, háseti á trillu í
mörg ár og skáld í léttum
tóni, orkt gamanvísur og
kviðlinga.
— Manstu hvenær lagjð
„Vertu sæl mey“ varð til?
— Já, ég orkti textann og
bjó til lagið úti á sjó árið
1941. Ég var að koma úr
róðri á trillu.
— Ertu ekki ánægður með
gengi þess?
— Ja mér er alveg sama.
Ég vissi alltaf að þetta var
ágætt hjá mér og það hefur
alltaf gengið meira og minna.
— Þú spilar á harmoniku?
— Nei. Guði sé lof. Bara
lauslega á gítar.
— Einhverntíma las ég að
þú hefðir oft haft hjá þér
skáld og undarlega menn a
bátnum?
— Atómskáld eru ekkj und-
arlegri en annað fólk og ég
gæti sagt þér margar sögur því
til sönnunar, en þá missirðu
af skipinu. Ég skal samt
segja þér eina af Steinari
Sigurjónssyni skáldi. Hann
kom hingað til Eyja og vann
hér um tíma sem prentari.
Honum þykir gott brennivín
pg einhvemtíma datt hon-
um í hug að heimsækja prest-
inn og tók kunningja sinn
með sér.
Séra Halldór Kolbeins er
hinn mesti höfðingi heim að
sækja og var lagt á borðið
af fínasta postulínssteíli frú-
arinnar. Skáldið og bakarinn
helltu útí hjá sér af nestinu
o% skáldið las upp prósa eft-
ir sig. Að því loknu vill
hann fá að heyra álit klerks-
ins, en sá gefur lítið útá.
Steinar stendur þá upp, þríf-
ur í dúkinn á borðinu og
helljr öllu postulíninu niður
á gólf. Þá stendur prestur-
inn upp og segir: Nú veit
ég að þú ert skáld og komdu
með meira postulín mamma!
Og ég get sagt þér það, að
atómskáld eru sízt lakari
fiskmenn en annað fólk og
aldrei hef ég haft eins kapp-
mikinn mann á skaki og
Steinar Sigurjónsson skáld.
— En eru skáldin þá eins
fiskin og annað fólk?
— Það held ég sé nú upp
og ofan, upp til hópa eru þeir
ekki lakari en aðrir. Annars
get ég sagt þér dálítið um
fiskimennskuna. Eftir að nyl-
onið kom til sögunnar er
miklu minni munur á mönn-
um en áður. Áður fyrr fór
það mikið eftir því sem
menn höfðu í höndunum. Hver
dútlaði með sínar græjur og
hafði sjtt lag, en nú eru al’ir
með það sama, énda er mun-
urinn orðinn miklu minni.
Ég var einu sinni með karii
einum á skaki. Við stóðum í
!
1
Föstudagur 22. febrúar 1963 — 28. árgangur — 44. tölublað.
Listasafnstillögunni
vísai til borgarráis
ÁSI í BÆ
vitlausum fiski og vorum með
sérstaka króka, sem við höfð-
um notað um tíma, allir nema
karlinn. Nú vildi svo til að
hann varð uppiskroppa með
sína og lét ég hann hafa af
mínum. Hann rennir og fær
ekkert. Þá hefur hann uppi
og segir: Búið hjá mér í dag* 1!
Ég gerði mig ekki ánægðan
með þau málalok og hefur
sjálfur uppi og skipti um á
færunum. Hnýf.,i mína króka
á hans faeri og hans á mitf
Nógur fiskur á bæði færin.
Svona var þetta skrítið.
Svo er náttúrulega ekki ai-
veg sama hvar er verið á
bátnum. Það fer nefnilega
ekki jafnvel á allstaðar.
— Nú verðum við líklega
að hætta Ási, því skipið fer
eftir kortér. Þú biður nátt-
úrlega að heilsa suður?
— Já ég bið að heilsa at-
ómskáldunum vinum mínum
og svo bankastjórunum. —
G.O.
Barnaheimilið í Rey
á að fá aukið landrými
Á fundi borgarstjórnar í gær flutti Adda Bára
Sigfúsdóttir tillögu um aukið landrými fyrir
barnaheimilið að Reykjahlíð og nokkrar aðrar úr-
bætur á málum þess. Sem vænta mátti fékkst
borgarstjórnaríhaldið ekki til þess að samþykkja
tillöguna en í Ijós kom við umræðurnar um hana
að einhver skriður mun nú loks vera kominn á
undirbúning að úrbótum í þessu efni og er þess
að vænta, að þetta mál verði látið hafa skjótan
framgang.
I framsöguræðu fyrir tillögu
sinni minnti Adda Bára á, að
hún hefði áður lagt það til i
borgarstjórn, að skipuð yrði sér-
stök nefnd til þess að fara með
málefni barnaheimilanna því það
væri ekki eðlilegt, að Fræðslu-
skrifstofan ein hefði á höndum
umsjón þeirra án þess að hafa
neinn ráðgefandi aðila sér við
hlið. Sagði Adda Bára, að þessi
tillaga sín hefði verið óþörf, ef
slík skipan hefði verið komin á.
Hún væri hins vegar flutt til þess
að bæta úr því sem vanrækt
hefði verið um árabil.
Adda Bára ræddi síðan ein-
6taka liði tillögu sinnar en hún
er birt í heild á 1. síðu blaðsins
í dag. Varðandi 1. lið hennar
Bráðkvadcfw"
Guðlaugur Bjamason hú->
gagnabólstrari Miðstræti 5
Reykjavík varð bráðkvaddn .i
verkstæði sínu í gær. Hann v,,r
rœkinn maður.
benti hún á, að í Reykjahlíð væru
mest drengir og væri ekki gott,
að þeir væru aldir upp ein-
göngu undir handleiðslu kven-
fólks. Við heimilið þyrfti að
vera karlmaður er gæti sinnt
drengjunum og leiðbeint þeim,
t.d. við smíðar o.fl. Að vísu væri
ráðsmaður á heimilinu, en hann
hefði verið ráðinn að því, er það
var í Kumbaravogi og þá til
þess að gæta kúa en ekki bama.
Síðan hefði bamaheimilið verið
flutt að Reykjahlíð svo og ráðs-
maðurinn en ekki kýrnar og
hefði hann nú ekki annað verk-
efni á heimilinu en að annast
ínnkaup í bænum. Gagnrýndi
hún harðlega þann hátt á rekstri
bamaheimilisins að hafa ráðs-
manninn þar áfram eftir að
verkenfi handa honum væru ekki
lengur fyrir hendi.
Þá snéri Adda máli sínu að
landleysi heimilisins. Það hefði
ekkert landrými til afnota, þótt
borgin ætti landið sem það
stendur á. Hefur Garðyrkjustöðin
landið til afnota og taldi Adda
Bára, að hún yrði að víkja fyr-
ir þörfum heimilisins.
Loks benti Adda Bára á þá
staðreynd, að barnaheimiljð hef-
ur enga útjgeymslu, þótt fullt
sé af skúrum rétt við húsið.
Þannjg er engin aðstaða til þess
að þurrka þvott innanhúss og
einnig vantar geymslur fyrir t.
d. reiðhjól drengjanna. Hefur
forstöðukonan orðið að grípa til
þess að taka föndurstofu er
innréttuð var í kjallaranum fyr-
ir þurrkherbergi og geymslu.
Garðyrkjustöðin hefði hins veg-
ar allá skúran-a nema hvað ráðs-
maðurinn hefði einhverja þeirra
til eigin nota
Birgir ísleifur Gunnarsson
taldi það óvenjulega aðferð að
segja föstum starfsmanni borg-
arinnar uþp starfj á þann hátt
sem .gert er ráð f.vrir í tillög-
unni Væri venja að það væri
ekki gert nemg eftir tillögu for-
stöðumanna viðkomandi stofn-
ana. Þá skýrðj hann svo frá. að
í janúar s.l. hefði borgarstjóri
falið fræðslustjóra borgarritara
og borgarverkfræðjngi að at-
huga um aukið landrými fyrjr
barnaheimiiið og ætti að girða
af reit í kringum búsið til af-
nota fyrir bað Qg síðar yrði
unnið að þvi að skipuleggia
svæðið í heild. Ennfremur skýrði
hann frá því. að sömu mönnum
hefði verið falið að gera ráð-
stafanir til bess að barnaheim-
ilið fengi afnot af skúrunum.
Lagði _hann tij að fyrsta Hð til-
lögu Öddu Báru yrði vísað tjl
Framhald á 5. síðu.
Fyrir skömmu cr lokið
bridgekcppni Tafl- og
bridgcklúbbsins og varð
svcit Tryggva Gísiasonar
sigurvegari í meistaraflokki.
Þótti það vel af sér vikið,
því að þessi sama sveit
sigraði fyrr í vetur í keppni
1. flokks TBR. Bridgespil-
ararnir cru, frá vinstri:
Ólafur Magnússon, Ólafur
Guttormsson, Tryggvi Gísla-
son, Magnús Ingimarsson
og Guðlaugur Nielsen. Á
myndina vantar Pál Bergs-
son. — Ljósm. Bj. Bj.
Eins og frá er sagt á
1. síðu blaðsins í dag
flutti Guðmundur Vig-
fússon á borgarstjórnar-
fundi í gær tillögu um að
hafinn verði undirbún-
ingur að byggingu Lista-
safns Reykjavíkur, „er
verði minnisvarði um
stofnun lýðveldis á ís-
landi 17. júní 1944.“
Þar sem framsöguræða Guð-
mundar fyrir tillögunni verður
birt í blaðinu í heild einhvern
næstu daga verður efni hennar
aðeins stuttlega rakið hér. Benti
Guðmundur á, að vel færi á
því, að höfuðborgin minntist lýð-
veldisstofnunarinnar á þennan
hátt. Jafnframt minnti hann á
hve hörmulega við búum á
þessu sviði í dag. I borginni er
ekki til nein listasafnsbygging
og enginn frambærilegur sýning-
arsalur þar sem listamenn geta
sýnt verk sín almenningi. Eina
almenna húsið til slíkra sýn-
inga er Listamannaskálinn sem
orðinn er gersamlega ónothæfur.
Guðmundur ræddi síðan hug-
mynd þá er í tillögu hans felst
og minnti á að þetta mál hefur
áður verið til umræðu í borgar-
ráði. Drap hann síðan á tillög-
ur listaverkanefndar Reykjavík-
ur frá 1959, er lagði til, að bær-
inn veitti árlega ákveðna upp-
hæð til kaupa á listaverkum.
Leitað yrði eftir úrvalsmyndum
hjá listamönnum til sýningar í
safninu ákveðinn tíma _og síð-
an keypti safnið nokk'rar af
myndunum. Með þessu móti gæf-
ist listamönnunum kostur á að
kynna almenningi verk sín og
jafnframt fengi safnið strax álit-
legan stofn listaverka til sýning-
ar án óhæfilegs kostnaðar. Sagði
Guðmundur, að þessi hugmynd
hefði fengið góðar undirtektir
ungra listamanna og lagði til
að þessi háttur yrði hafður á
við stofnun safnsins. Einnig
minnti hann á, að rætt hefði
verið um að velja væntanlegri
safnbyggingu stað á opnu svæði
á Laugarási.
Borgarstjóri kvað svo ráð fyr-
ir gert, að í væntanlegu ráð-
húsi yrði 500 fermetra skáli þar
sem hengja ætti upp málverk
og ennfremur yrði þar minni
sýningarsalur. Sagði hann, að
nú væri verið að ganga frá til-
löguuppdráttum að ráðhúsinu og
taldi, að réttara væri að leggja
áherzlu á byggingu þess fyrst
og þá úrbót nægja í bili í lista-
safnsmálunum. Einnig benti
hann á að heppilegt myndi að
tengja saman byggingu t.d. borg-
arleikhúss og listasafns eða sýn-
ingarsalar, sem Félag myndlist-
armanna hefur sótt um lóð und-
ir á Klambratúni og listasafns.
Þó kvaðst hann ekki í sjálfu
sér andvígur hugmyndinni una
listasafnsbyggingu á Laugarásn-
um er tími væri til kominn að
byggja framtíðar listasafn. Flutti
hann síðan á þessum forsendum
Framhald á 2. síðu.
Upplagið þraut
STARFSVAL, fjórða újgáfa
bókarinnar Hvað viltu verða?
eftjr Ólaf Gunnarsson, er ný-
komin út, aukin og endurbætt.
Bókin kqm út á mánudaginn,
en í gær, fimmtudag, frétti
Þjóðviljinn að upplagið. 1200
eintök, væri þrotið 'njá forlagi.
Er þetta óvenju ör sala nýrrar
bókar.
iallmifejpanfanir
^reyma fi! 1.1.
★ Fuliyrða má þegar, að að-
sókn verður mikil að „pressu-
ballinu" í hinum nýju veizlu-
sölum Sögu annan laugardag,
2. marz, því að aðgöngumiða-
panfanir hafa streymt til Blaða-
mannafélagsins síðustu tvo dag:-
ana, en eins og áður hefur ver-
ið skýrt frá er þessi fagnaður
ekki einungis ætlaður blaða-
mönnum og gestum þeirra heldur
opinn öllum almenningi.
★ Gunnar Gunnarsson rit-
höfundur flytur ræðu undir mat-
borðum, en auk þess mun Svala
Nielsen syngja einsöng og Krist-
inn Hallsson fara með nýja
skopkviðlinga. Dansað verður
fram eftir nóttunni.
4r Svala Niclsen er taRn ein
efnilegasta söngkonan sem fram
hefur komið hér síðustu árin.
Hún hefur sungið í Þjóðleikhúss.
kómum síðustu árin og var um
skeið við söngnám á ftalju. í
vetur söng hún eitt aðalhlut-
verkið í óperu Menottis „Amahl
og næturgestirnir“, sem Musica
Nova flutti í Tjarnarbæ, og
vakti þá mikla athygli.
í
«
1