Þjóðviljinn - 01.03.1963, Síða 5
TöítudágUr 1. marz 1963
ÞJÓÐVILJINN
SÍÐA 5
Kjaradeilur á að leysa með
samningum en ekki valdboði
ÞINCSJÁ ÞIÖÐVILjANS
í gær fór allur fundartíminn í neðri deild Al-
þingis í umræður um frumvarp ríkisstjórnarinn-
ár um hámarksþóknun fyrir verkfræðistörf. Þetta
vár önnur umræða málsins og varð ekki lokið
én frestað.
Frumvarp þetta var lagt fyrir
Alþingi á sl. hausti til staðfest-
ingar á bráðabirgðalögum, sem
út voru gefin 2. maí 1962 þess
éfnis, að ný gjaldskrá, sem
Véfkfræðingafélag Islands hafði
éamþykkt að taka skyldi gildi
1. maí sl. kæmi ekki til fram-
kvæmda, heldur skyldi gilda á-
tram svo sem verið hefði g.iald-
skrá félagsins frá 19. apríl 1955
ásamt lögleyfðum uppbótum.
Á þingfundinum í gær mæiti
Einar Ingimundarson (1) fyrir
nefndaráliti meirihluta allsheri-
amefndar neðri deildar, sem
leggur til að frumvarpið verði
samþykkt með þeirri breytingu
að ákvæðin um hámarksþókn-
un vérkfræðinga eftir gjald-
skránni frá 1955 skuli gilda þar
til nýir samningar um kaup og
kjör vérkfræðinga. sem starfa
hjá ríkisstofnunum, hafa tekið
gildi. Meirihluta nefndarinnar
skipa þrír fulltrúar stjórnar-
flokkanna, auk Einars þeir
Unnar Stefánsson (A) og Alfreð
Gíslason fógeti (I).
Gunnar Jóhannsson, fulltrúi
Alþýðubandalagsins í allsherj-
arnefnd mælti fyrir nefndaráliti
sínu sem fyrsta minnihluta,
sem leggur til, að frumvarpið
verði fellt. Flutti Gunnar all-
langa ræðu, þar sem hann rakti
ítarlega þau rök, sem verkfræð-
ingar og samtök þeirra hafa
fært gegn samþykkt þessa
frumvarps. Til viðbótar lagði
hann ríka áherzlu á þá marg-
Einar I. Gunnar
yfirlýstu stefnu verkalýðshreyf-
ingarinnar og launasamtaka að
ófært væri með öllu að leysa
deilur um kaup og kjör með
löggjöf. Slíkar deilur yrði að
leysa með samningum en ekki
valdboði, hvort sem það kæmi
fram í formi bráðabirgðalaga
eða lagasamþykkt frá Alþingi
Þessvegna lagði hann til að
frumvarp ríkisstjómarinnar
yrði fellt, en með því væri þó
engin afstaða tekin til gjald-
skrár Verkfræðingafélags ís-
lands frá 1. maí 1962.
Björn Björnsson (F) skilaði
einnig séráliti í allsherjamefnd
og leggur til að frumvarpið
verði afgreitt með svofelldri
rökstuddri dagskrá: ,,Með skír-
skotun til þess, að aðrar stéttir
hliðstæðar verkfræðingum, svo
NIREX sjóeimingartœki
Önnur orkuþörf tækjanna er mjög lítil. T.d. er
samanlögð stærð rafmótora við tæki, sem fram=
leiða allt að 2,5 tonn af ferskvatni á sólarhring,
aðeins 1 kw.
Smíðuð eru tæki, sem afkasta frá 1 til 65 tonnum
af fersku vatni á sólarhring.
Tæki þessi spara tankrými fyrir vatn, sem nota
má fyrir olíu eða annað, er þarf til þess að lengja
mögulegan veiðitíma hjá fiskiskpum eða sigl-
ingartíma hjá flutningaskipum.
NÁNARI UPPLÝ SINGAR YEITIR
LANDSSMIÐJAN
Sími 20680.
NIREX sjóeimingartœki
eima neyzluvatn úr sjó og nýtá til þess hita úr
kælivatni frá t.d. skipsvélum
rj fiJllÓÖ UIJH íiliwl'h ’lUJLttn K1 íiíbil ' '4
Til framleiðslu á eínu tonni
fersku vatni á sólarhring þarf 65 C
heitt kælivatn frá 120 ha vél.
UTGERÐARMENN
sem arkitektar, enduskoðendur
o.fl. verðleggja sjálfir þjónustu
sem þær selja frá skrifstofum
eða verkstofum, þykir deildinni
ekki ástæða til staðfestlngar á
bráðabirgðalögum þeim, sem
frumvarpið fjallar um og tek-
ur því fyrir næsta mál á dag-
skrá“. Mælti Björn fyrir þessu
nefndaráliti sínu.
Auk framangreindra tók Ing-
ólfur Jónsson ráðherra (í) til
máls við umræðurnar í gær og
hélt uppi vörnum fyrir setn-
ingu bráðabirgðalaganna. Taldi
hann gjaldskrá Verkfræðinga-
félagsins frá 1955 tóma „vit-
BjÖrn Ingólfur
leysu“, en ræddi síðan m.a. um
launamismun í Rússlandi og
verkfallsbönn þar. Einnig tók
Einar Ingimundarson aftur til
máls.
Síðastur talaði við þessar
umræðum í gær Einar Olgeirs-
son. Flutti hann breytingatil-
lögu við breytingatillögu
giffllf þá, sem
meirihluti
allsherjar-
nefndar hafði
borið fram.
efnislega á þá
leið að gjald-
skrá sú sem
lögin gera
ráð fyrir að
þóknun fyrir verkfræðistörf sé
greidd eftir falli úr gildi 1. j,úlí
n.k. þ.e. þegar kjaradómur á
að hafa gengið frá launaflokk-
un og stigum opinberra starfs-
manna. Var umræðunni frestað
þegar Einar hafði lokið máli
sínu og lýst framangreindri til-
lögu.
Önnur þing-
mól í gœr
örstuttur fundur var haldinn
í sameinuðu þingi 1 gær og
lýsti þingforseti því þá yfir að
Karl Kristjánsson (F) myndi
dveljast á sjúkrahúsi um stund-
arsakir og tæki varamaður
hans, Valtýr Kristjánsson bóndi
í Nesi, sæti hans á þingi á
meðan.
1 efri deild mælti Emil Jóns-
son félagsmálaráðherra fyrir
þrem frumvörpum: um bygg-
ingarsjóð aldraðs fólks, happ-
drætti dvalarheimilis aldraðra
sjómanna og
heimilishjálp í
viðlögum. Þá
var samþykkt
við 2. umræðu
sala Bakkasels
í öxnadals-
hreppi, rædd
frumvörp um
sjómannalög, kirkjugarða o.fl.
Ný þingmól
Tvö ný þingskjöl komu fram
í gær. Stjómarfrumvarp um
aðstoð ríkisins við kaupstaði og
kauptún vegna landskaupa, þar
sem gert er ráð fyrir að ríkis-
sjóður leggi árlega fram 2 millj.
króna á árunum 1963—72 sem
ríkisstjóminni yrði heimilað að
lána kaupstöðum og kauptúnum
til þess að kaupa lönd og lóðir
innan takmarka hlutaðeigandi
sveitarfélags. Þá bera þrír í-
haldsþingmenn, Matthías Á.
Mathiesen, Pétur Sigurðsson og
Guðlaugur Gíslason. fram til-
lögu til þingsályktunar um að
ríkisstjómin láti fara fram
endurskoðun á löggjöfinni um
stéttarfélög og vinnudeilur.
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: ívar H. Jónsson. Magnús Kjartansson, Sigurð-
ur Guðmundsson (áb)
Fréttaritstjórar: Jón Bjamason, Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstjó’-’^ auriiýsingar. prentsmiðja: Skólavörðust. 19-
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 65 á mánuði
Ihaldsblöðin með
lygina að vopni
17'átæklegur og vesæll hlýtur málstaður Morg-
A unblaðsins og Vísis að vera, að svo mjög
skuli treyst á lygi um andstæðinginn honum til
hnjóðs. Lygin bláköld er flennt í forsíðufyrir-
sögn í gær: „Kommúnis’tar taka afstöðu með
Rússum“, þar sem reynt er að finna því stað
að í skrifum Þjóðviljans um njósnamálið felist,
að blaðið taki afstöðu með tilraunum Rússa til
njósna. Þessi blákalda lygi, sem ekki er flugu-
fótur fyrir, er svo bir’t annars staðar í blaðinu
í ýmsum myndum, ásamt dylgjum um að sós-
íalistar séu reiðubúnir að njósna fyrir Rússa.
Ætlunin er að svívirða Sósíalistaflokkinn með
njósnabrigzlum vegna þess að Ragnar Gunnars-
son hafi einu sinni verið í flokknum. Sésí þetta
glöggt ef hugleidd er spurning sem Þjóðv. varp-
aði fram í gær: Á að kenna SjálfstæðisfJokknum
um og gera hann ábyrgan fyrir samanlagðri
sakaskrá manna úr þeim flokki sem jáíað hafa
á sig saknæmt athæfi eða hlotið dóm? Slíkur
áróður væri á sama stigi og það sem nú er
flennt yfir síður Morgunblaðsins og V.ísis.
¥ blaði Benedikts Gröndals, Alþýðublaðinu, er
skrifað nokkuð á annan veg, þó tilgangurinn
sé hinn sami. Hugleiðingar ritstjórans um njósn-
ir eru að vísu með nokkrum uppgerðarblæ, ef
tekið er tillit til þess að hann mun hafa ver-
ið starfsmaður „upplýsingaþjónustu“ bandaríska
hersins á íslandi á stríðsárunum, en þó kann að
vera að eftirfarandi niðurlagsorð bendi til þekk-
ingaratriða: „í njósnum er öllum hugsanlegum
brögðum beitt. Njósnastarfsemi er sjálf algert
lögbrot og hún dregur með sér #Ut sem hægí er
að nota. Til skamms tíma hafa íslendingar tal-
ið að þeir væru nokkurn veginn lausir við þessa
plágu í landi sínu, nema ef til vill á stríðsár-
unum. En svo er sannarlega ekki“.
Ijjóðviljinn benti í gær á hinar kerfisbundnu
* og ósvífnu persónunjósnir sem Bandaríkja-
menn hafa stundað hér á landi og komið hafa
m.a. fram í atvinnumismunun. Vildi ekki Bene-
dikt Gröndal, ef hann kynni að hafa aðstöðu til
vegna fyrri sambanda, upplýsa, hvort t.d. væri
búið að útvíkka þá kommúnistaspjaldskrá, sem
erlent herveldi var að koma sér upp á stríðsár-
unum, með því að taka einnig Alþýðuflokks-
menn og Framsóknarmenn upp til hópa og
hvern Sjálfstæðisflokksmann sem sýnt hefði
einhverntíma þann manndóm að vera andvíg-
ur hersetu á íslandi, 1 spjaldskrárkassana í vissu
sendiráði hér í borginni? Eða hvort hann hefði
nokkurn tíma um það heyrt, að íslenzkir menn
létu no’ta sig fyrir kaup til að gefa vissar „skýrsl-
ur“ um íslenzka samborgara sína til afnota fyrir
pá spjaldskrá, og alveg sérstaklega upplýsingar
um stjórnmálaskoðanir íslenzkra manna? Eftii
skrifum Alþýðublaðsins í gær fordæmir ritstjóri
þess hvers konar njósnir á íslandi, eins og Þjóð-
viljinn hefur gert umbúðalaust, og mun því ljúft
að svara þessum spurningum, hvort sem hann
veit eitthvað um málið eða ekkert.