Þjóðviljinn - 21.04.1963, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 21.04.1963, Qupperneq 12
-100% -75% -50% 25% Vinir Þjóðviijans skoruðu mark í gær. 225 þúsundun- um var náð og aðeins bet- ur — þótt mjóu munaði. Um leið og við færum öllum þeim, er hafa átt hlut að máli .hugheilar þakk- irf, viljum við segja þeim, að með framlögum sínum undanfarna daga hafa þeir leyst stórt vandamál fyrir Þjóðviljann. Fjöldi fólks hefur tekið þátt í þessum fyrsta áfanga og margir Iátið af vanefn- um. I gær barst blaðinu bréf frá manni búsettum á Siglufirði: I því segir m.a.: Ég hef séð á síðum Þjóð- viljans að nokkur fjárþröng er þar í bæ til útgáfu blaðsáns, og með það í huga að margt smátt ger- ir eitt stórt læt ég hér með ellilaun inín i einn mánuð sem ég bið þig að koma til blaðsins með eft- irfarandi kveðju. Af hörku og festu heylr stríð, hreysti þínu unni. Þú hefur varið land og lýð, lifðu á traustum grunni. Við vilium aðeins segja, að á meðan Þjóðviljinn á vini á borð við þennan mann, er hægt að sigrast á miklum erfiðleikum. Það tók tvær vikur í stað einnar að ná fyrri á- fanga söfnunarinnar. Við munum haida ótrauð á- fram og byrja á hinum síð- ari. Þar um viljum við ræða nánar við ykkur á þriðjudaginn kemur. Hér myndmni sest Ella Kristinsdóttir sjukraþjalian aðstoða unga stúlku við göngu- Kolbrun Olafsdóttir og verið lomuð æfingar Stulkan heitir Guðnður hefur fra fæðingu. (Lm. Þv. G.O.), Endurþjálfun öryrkja að Reykjalundi Endurþjálfun sjúklinga og öryrkja hefur ekki verið sinnt mikið hér á landi til þessa. Brautryðjandi á því sviði er Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra sem hefur um árabil rekið endurþjálfunarstöð fyrir lömuð böm að Sjafnargötu 14. Nú er þó svo komið að þjálf- unarstöð er nýtekin til starfa að Reykjalundi undir s-tjórn Hauks Þórðarsonar læknis. Haukur Þórðarson er eini læknirinn hér á landi, sem hefur fengið sérfræðiþjálfun á þessu sviði. Hann lauk námi í sérgreininni í Bandaríkjun- um árið 1962 við New York University Medical Center. Sérgrein hans nær yfir allar venjulegar nudd- og gigtlækn- ingar ásamt endurþjálfunar- lækningum. « Endurþjálfunin sem slík ev mjög ung í sögunni. Braut- ryðjandi hennar í Banda- ríkjunum er Howard Rusk læknisfræðiprófessor við New York háskóla. Hann byrjaði á þessu í seinni heimstyrj- öldinni og hélt svo áfram eft- ir stríð. Auk kennarastarf- ans er hann einn af ritstjór- uhi stórblaðsins New York Times og ráðunautur banda- rísku ríkisstjómarinnar í endurþjálfunarmálum. Bretar munu og vera komnir nokkuð langt í bessum málum og á Norðurlöndunum er vaxandi áhugi. Blaðamaður Þjóðviljans heimsótti Hauk á dögunum og gekk með honum um ríki hans. Tækii og aðstaða Fyrst komum við í lítið her- bergi þar sem þolprófaiiir fara fram. Úti í horni stend- ur reiðhjól með þeim ósköp- um gert að það er sama hvað knapinn þenur sig, — hann kemst ekki úr horninu. Með reiðhjólinu er hægt að sjá hvað hann notar mikið súrefni við ákveðið erfiði og þannig er hægt að ákvarða vinnuþol hans. Þarna inni eru líka tæki til að mæla tauga- og vöðvaviðbrögð og taka hjartalínurit. 1 næsta herbergi er svo nuddstofa með kolbogalampa og infra-rauðum lampa ásamt merkilegum tilfæringum til að gefa hita á stirða liði og vöðva. Þá er komið að sjálfri æf- ingastöðinni. Þar ráða ríkjum sjúkraþjálfaramir Ella Kol- brún Kristinsdóttir og Jón Ásgeirsson. Úrval tækja virð- ist gott, grind til gönguæfinga, lítill stigi, lyftingarlóð, hjól til að æfa með axlalið. Einnig margt fleira. Þar innaf er svo lítil sund laug. grunn að vísu, steypu- böð og sérstakt baðkar til að æfa hreyfingar í volgu vatni. Skortur á sjúkraþjálfum — Ertu svo ánægður með aðstöðuna hér, Haukur? — Já, við höfum góð tæki og þau eru mikils virði og nauðsynleg, en merkilegasta Haukur Þórðarson tækið er góður sjúkraþjálfi. Hann eða hún ræður úrslit- um um hvaða árangur næst. Góður sjúkraþjálfi þarf að hafa næstum ótakmarkaða þolinmæði, góða lund og svo auðvitað þekkingu á því sem hann er að gera. Það versta er að hér er skortur á hæfu starfsfólki. 1 Félagi íslenzkra sjúkraþjálfa munu nú vera um 30—40 manns, en mikið af því fólki er óvirkt, annaðhvort vegna aldurs. eða vegna þess að það hefur dregið sig til baka. Þetta vandamál hefur til dæmis alltaf verið tilfinnan- legt á Sjafnargötunni í æf- ingastöðinni þar og einnig í Hveragerði. Þess vegna hef- ur orðið að bjargast við er- lent fólk að miklu leyti. Úr þessum vanda verður tæpast bætt fyrr en hér er kominn skóli fyrir sjúkra- þjálfa á sama hátt og reist- ir hafa verið skólar fyrir hjúkrunarkonur og ljósmæður. — Hvað eru margir í þjálf- un hjá þér núna? — Nú eru hér 28 manns. sem fá samtals 60 meðferðir á viku. — Og hvaðan eru tækin? — Sumt er búið til hér á Reykjalundi, annað er keypt frá Bandaríkjunum. Annar Nú vandl sér að Þetta tæki myndu krakkarn- ir kalla „halíkrana”. Þetta er vélknúin Iyfta til að hjálpa sjúklingnum úr hjólastólum uppí sundlaugina og eins cr hægt að Iyfta þeim upp í rúm með henni. (Ljósm. G.O.). snyr Haukur annarri hlið málsins. — Oft hefur verið rætt um það ytra, hvort þessi endur- þjálfun örkumla fólks og sjúks borgi sig. Hvort ekki væri alveg eins gott að geyma það á hælum eða sjúkrahús- um. I Bandaríkjunum er þessi endurþjálfun talsvert dýrt fyrirtæki og þar eru engar almannatryggingar, en ríkið hefur tekið að sér að greiða kostnaðinn fyrir fólk sem ekki á annars úrkosta. Þegar þessi spurning kom Framhald á 2. síðu. Á þessari mynd er göngugrtindin, axlahjólið - (Ljósm. Þjóv. G. O.). og ióð í taugum. Sunnudagur 21. apríl 1963 — 28. órgangur — 90. tölublað. Sögulegur árekstur í Sandgerði jómenn gengu r © /■" í fyrrakvöld varð sögulegur árekstur í Sandgerði. Heldur út- gerð Guðmundar á Rafnkels- stöðum sömu styrjöldinni áfram við sjómenn sína og gerði hast- arlega tilraun til þess að hlunn- fara þá. Ctgerð Guðmundar býður upp á síldveiðisamninga L.Í.C., — dagsetta 20. nóvcmber i haust, — og er það 36,5% af heildarafla til sjómanna, cn gild- andi síldveiðisamningur Verka- lýðs- og sjómannafélagsins í Sandgerði cr 40% af heildar- afla. Skömmu fyrir miðnætti í fyrrakvöld var væntanlegum skipshöfnum á Víði II. og Jóni Garðari stefnt á fund skráning- arstjóra til skráningar fyrir síld- veiðar næstu daga. Fulltrúi út- gerðarinnar, Jónas Guðmundsson, sonur Guðmundar á Rafnkels- stöðum hafði setið á þriðja klukkutíma með væntanlegum skipshöfnum um borð í bátnum og haft í hótunum við sjómenn, ef þeir gengjust ekki inn á skil- mála L.Í.Ú. og eru margir af þessum mönnum þó félagsbundn- ir í Verkalýðs- og sjómanna- félaginu í Sandgerði. Jónas fylgdi þessum mönnum á fund skráningarstjóra og voru þar þá mættir tveir stjórnarmeðlimir úr sjómannafélaginu, þeir Margeir Sigurðsson, formaður, og Maron Björnsson. Skömmu eftir að fundur er hafinn snýr Jónas sér að skrán- ingarstjóra og gerir þá kröfu, að Margeir og Maroni sé vísað á dýr.' Fulltrúar sjómannafélags- ins vissu hinsvegar hvað var á seyði og mótmæltu harðlega fyr- ir hönd félagsins að skráð yrði upp á samninga L.l.Ú. og skor- uðu á sjþmennina að hafna þess- um samningum. Þetta varð til þess að báðar skipshafnirnar gengu út af skráningarstað án þess að samþykkja kjörin eða láta skrá sig samkvæmt þeim. Mikil óánægja ríkir hjá sjó- mönnum í Sandgerði út af klækjabrögðum Rafnkelsstaða- feðga og eiga þeir þó sízt skilið slíka framkomu eins og þeir eru búnir að mala gull úr greip- um Ægis fyrir þessa útgerð und- anfarin ár. Eru þeir Rafnkels- staðafeþga að verða þekktir lög- brjótar á Suðurnesjum. fyrir ut- an harðsvíruð fjármálabrögð. \ Orðsending \ | frá Kvenfélagi \ I Eins og undanfarin ár .- vcrðá kaffiveitingar 1. maí 9 | í Tjarnargötu 20 fyrir Coró- J J línusjóð. Skemmtun verður ■ i um kvöldið, aðgangur ó- keypis. Þær konur sem S vilja gefa kökur eru vin- J samlega beðnar að hafa ■ samband við einhverja eft- ^ irtalinna kvenna: Valgerð qj ur Gísladóttir, sími 11995. Margrét Sigurðardóttir | sími 35501. Elín Guð- mundsdóttir sími 15259. Jóhanna Magnúsdóttir sími 22248. Halldóra Krist- jánsdóttir sími 33586. Sig- | ríður Ólafsdóttir sími 16799. 1 Agnes Magnúsdóttir sími gj 16753. Margrét Ottósdóttir ” sími 17808. I efna til kröfu- göngu—útif undar Fundur vegna undirbúnings að 1. maí sem verkalýðsfélögin boðuðu til með bréfi 16. þ.m. var haldinn í fyrrakvöld. Var þar álcveðið að verkalýðs félögdn gengjust fyrir kröfu- göngu og útifundi 1. maí ag gerðar ýmsar ráðstafanir til und- irbúnings, kosnar starfsnefndir og fleira. Frá því hefur áður verið ský'’' hér í blaðinu að hin ólöglega st.jórn" Fulltrúaráðs verkalýðs- élaganna hafi samkvæmt sam- þykkt á hinum ólöglega aðal- fundi ráðsins í vetur ákveðið að rjúfa áratuga hefð um undir- búning 1. maí, þá að verkalýðs- félögin sjálf tilnefndu fulltrúa í 1. maí nefnd, en í þess stað yrði þessi svonefnda „stjórn“ Fulltraráðsins einráð um inni- hald og tilhögun dagsins. Þess- ari eindæma ósvífni hljóta verkalýðsfélögin að s.jálfsögðu að mótmæla með því að gangast sjálf fyrir kröfugöngu og öðrum hátíðahöldum dagsins. eins og nú hefur verið ákveðið. Xonan, menning- in og friðurinn Menningar- og friðarsamtök íslenzkra kvenna efna til fund- ar í MÍR salnum, Þingholtsstræti 27, annað kvöld, mánudaginri 22. apríl. og hefst hann kl. 8.30. A fundinum flytur Jóhanne skáld úr Kötlum erindi sem hann nefnir: Konan. menningin og friðurinn. Þá segir Kristín Tó”= lóttir frá heimsþingi kvenna í Moskvu sumarið 1963 og Ottesen skýrir frá undirbúnir" kvenna- ' ráðstefnu Eystrasaltsvikunnar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.