Þjóðviljinn - 01.05.1963, Blaðsíða 5
V
Miðvikudagur 1. maí 19«S
ÞlðÐVIUINN
SlÐA 5
Réykjavíkurmótið í knattspyrnu
Þróttur og Valur skildu
jöfn eftir allgóðan leik
í hálfgerðri slyddu og kalsaveðri léku Þrótt-
ur og Valur þriðja leik Reykjavíkurmótsins, og
þettá veðurfar gerði völlinn sjálfan leiðinlegan
og erfiðan á alla lund.
Það merkilega gerðist bó. að
leikunnn í heild var töluvert
fjörlega leikinn. Brá oft fyrir
gcðum leik, þar sem bæði lið
gerðu sér grein fyrir að sam-
leikur er lykill að skemmtileg-
um og sigursælum leik.
1 annan stað var skemmti-
legt að sjá að bæði iið virtust
hafa úthald og þann hraða sem
þarf til að gefa leiknum þá
spennu sem áhorfandinn kann
að meta. Leikmenn og lið mega
nefnilega ekki gleyma því að
áhorfandinn verður að hafa
sitt gaman, og það fær hann
fyrst og fremst i leikjum sem
éru fjörlega leiknir og með
hraða. Þar sem barizt er um
knött af lífsgleði unga manns-
ins. þar sem bak við og undir
kyndir vilji og kraftur og vit.
Valur nær sigri
Fyrstu mínúturnar var leik-
urinn jafn og skiptust liðin á
að sækja, og var það Valur
sem fyrst ógnaði marki Þrótt-
ar. Gerðu Valsmenn áhlaup
vinstra megin og komst Matt-
hias Hjartarsson allnærri marki
og skaut og mátti ekki miklu
muna, en Guttormi í marki
Þróttar tókst að slá knöttinn í
hom.
Hægri armur Vals var tölu-
vert virkur og tókst hvað eftir
annað að brjótast í gegnum
hægri arm vamar Þróttar. A
13. mínútu náðu þeir Stein-
grímur Dagbjartsson og Berg-
steinn Magnússon góðum og
hröðum samleik sem endaði
með hörku skoti frá Bergsteini
sem Guttormur fékk ekki rönd
við reist.
En Þróttarar voi*u ekki á þvi
að gefast upp og sóttu fast en
tókst ekki að jafna í næstu
lotu, en næstu tíu mínútur voru
nokkuð jafnar. Enn eru það Vals
menn sem ógna og er Stein-
grímur í góðu færi, en beitir
fætinum rangt og lyftir knett-
inum hátt yfir, og aftur nokkru
síðar er Steingrímur í sæmi-
legu færi, en skotið var lint og
Þróttari bjargar í hom.
Þróttarar sækja alltaf og
ógna marki Vals þótt þeim tak-
ist ekki að skapa sér opin tæki-
færi. Leikurinn er alltaf nokk-
uð jafn, þó Valsmenn eigi ör-
lítið meira í honum. Nokkru
fyrir lok hálfleiksins má litlu
muna við mark Vals er þröng
hafði myndast og Valsmaður
bjargað við linu, en það endar
rheð því að Björgvin í mark-
inu nær knettinum af tilviljun
og bjargar.
Þegar sex mínútur eru eftir
losnar Axel, sem verið hafði í
„haldi“ hjá Ormari. og er hann
ekki seinn á sér upp og skorar
óverjandi fyrir Björgvin sem
að vísu fór of fljótt og of langt
útúr markinu.
Valsmenn sækja meir það
sem eftir er, en ekkert gerist.
Síðari hálfleikur er ekki
nema sjö mínútna gamall beg-
ar Valur gerir áhlaup hægra
megin og tekst Bergsteini að
senda knöttinn vel fyrir, en
þar er þá kominn hinn ungi
efnilegi Bergsveinn sem skall-
ar rétt og fallega í mark. Það
var skalli en ekki „stang" eins
og svo margir knattspyrnumenn
gera og kalla skalla!
Næstu 25 mínúturnar gerist
ekkl mikið sem verulega er i
frásögur færandi, nema hvað
báðir berjast og oft með góð-
um tilraunum til samleiks.
Valur á mun meira í þessum
hálfleik og almennt var gert
ráð fyrir að Valur myndi
vinna. Þó tekst þeim ekki að
skapa sér verulega opin tæki-
færi þótt sókn þeirra sé meiri.
Á 33. mínútu er dæmd auka-
spyma á Val nokkuð fyrir ut-
an vítateig til vinstri og er
spyrnt vel fyrir markið. Sækja
Þróttarar hart og ná því að
skalla tvisvar í slá, en lotunni
lauk með þvi að Jens skaut
hörku skoti í hom marksins ó-
verjandi fyrir Björgvin. ‘Jafn-
tefli 2:2.
Litlu síðar munaði ekki
miklu að Haukur skoraði;
breytti hann stefnu á skoti er
stefndi á markmann, en það
fór aðeins fyrir ofan slána.
Og við þetta sat. Eftir gangi
og tækifærum var Valur nær
sigrinum, þótt allt- gæti gerzt.
LXÐIN:
Valur náði betri leik nú en
á móti KR um daginn. Sérstak-
lega voru framverðimir virk-
ari og uppbyggilegri fyrir fram-
herjana en þá.
Þórsteinn Friðþjófsson átti
góðan leik, og staðsetningar
bakvarða Vals voru betri en
um daginn, sérstaklega Þór-
steins. Björn Júlíusson lék nú
fyrir Guðmund sem meiddist
um daginn og slapp sæmilega
frá því.
Björgvin í markinu átti
mjög góðan leik yfirleitt.
Framlínan var oft skemmti-
lega virk. Steingrími nefur
aukist kraftur og samleikur
þeirra Bergsteins og hans var
oft skemmtilegur. Bergsveinn
sýndi enn að þar er góður efni-
viður á ferðinni, en þeir Matt-
hías og hann náðu ekki eins
vel saman. Hans gerir margt
laglega en þyrfti að vera fljót-
ari í aðgerðum sínum.
Lið Þróttar ætti ekki að burfa
að kvíða framtiðinni ef þeir
halda saman. Það virðist sem
nú sé að skapast það sem svo
erfitt hefur verið að fá í lið-
ið og það er baráttuvilji og
hraði, eða forsvaranleg bjálf-
un. Þar hefur Gabor Verið beim
góð sending.
Verulega veika hlekki í lið-
inu er naumast að finna, og
yfirleitt fellur það vel saman.
Beztir voru Guttormur í mark-
inu, sem er greinilega gott efni
og maður sem lætur ekkert
raska ró sinni. Miðvörðurinn
Jón Björgvinsson er sterkur og
ákveðinn. Með betra skipulagi
gæti Þróttur þétt vöm sína
mun betur.
Axel og Haukur áttu nokkuð
góðan leik, þótt þéir næðu ekki
sínu bezta.
Dómari var Carl Bergmann.
— Áhoríendur voru fáir.
Frímann.
Nýtt landslið Brasilíu
PELE skoraði 3
mörk hjá Frökkum
PARÍS — Landslið Brasilítu
er nú komið í keppnisferðalag
til Evrópu. Liðið sigraði lands-
lið Frakklands s.l. sunnudag
með 3:2 eftir harða keppni en
mjög góðan leik. Pele skoraði
öll mörk Brasilíu.
Fyrsta markið setti Pele á
29. mínútu með frábæru 50
metra skoti. Fyrri hálfleikur
var annars jafn en honum
lauk með 1:0.
Lið Brasilíu hefur nú verið
yngt upp til muna. Fimm val-
inkunnar kempur eru horfnar
Innanfélags-
mót
Innanfélagsmót verður hald-
ið fimmtudaginn’2. maí n.k. á
Melavellinum kl. 17,30-
Keppt verður í eftirtöldum
greinum:
600 m. hlaupi sveina 15 ára
og yngri.
100 m. hlaupi 1 > i
800 — —
1500 — —
Kúluvarpi.
Frjálsíþróttadeild KR.
PELE
úr liðinu: Markvörðurinn Gyl-
mar, Didi, Nilton Santos. Zos-
imo og miðherjinn Vava.
Eftirtaldar kempur prýða nú
lið heimsmeistaranna: Mauro,
Zito. Lima, Mengalvio, Caut-
inho, Pele, Pepe allir frá ,San-
tos“. Marcos, Ney, Eduardo
(allir frá „Cortinthians"),
Manga Rildo Garrincha. Am-
arildo, Zagallo (allir frá „Bota-
fogo“). Altair, Dario, Palmeiro
(allir frá „Fluminense"), Djal-
ma Santos og Zequinha (báðir
frá „Palmeiras").
I
Kröfuganga og útikndur verkalfísfélaganna í Rcm 'Jjivík
1. MAÍ
KeFst með ]5ví að safnast verður saman í Von-
arstræti við Iðnó kl. 14.00 en þaðan leggur
k'rofugangan af stað og gengið um Vonar-
stræti, Suðurgötu, Aðalstræti, Hafnarstræti,
Hverfísgötu, Fraklcastfg, Slcólavörðustig,
Bankastræti og Lækjargötu að Miðbæjar-
barnaskóla, en þar hefst útifundur að göngu
lokinni.
Ræðumenn á útifundi verðu:
Eðvarð Sigurðsson, formaður Dagsbrúnar,
Björn Þorsteinsson, sagnfræðingur?
Jón Pétursson, símamaður og
Hannibal Valdimarsson, forseti A.S.f.
FUNDARSTJÖRI: Jon Sn. Þorleifsson, formaður Trésmiðafélags Reykjavíkur. — Lúðrasveit verka-
* lýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika í göngunni og á útifundinum.
MERKI DAGSINS
— merki Alþýðusambands íslands verður selt á
götunum og kostar það kr. 10.00. — Merkin
verða afgreidd á skrifstofu Dagsbrúnar í Al-
þýðuhúsinu við Hverfisgötu og á skrifstofu Fé-
lags járniðnaðarmanna, Skipholti 19.
1. MAlNEFND VERKALYÐSFÉLAGA I REYKJAVlK.
I
I
!
i
t
l
i