Þjóðviljinn - 19.05.1963, Side 6
g SlÐA
ÞIÓÐVILIINN
Sunnudagurirm 19. maí 1963
þjóðarinnar. Ef fallizt sé á þau
landamæri sem Þýzkalandi
voru ákveðin eftir stríðið, sé
semeining þýzku landshlut-
anna þarmeð gefin upp á bát-
ínn og þá skammt í viðurkenn-
ingu ó „fríríkinu Vestur-Ber-
lín“, sagöi Riedel.
Myndu þeir vilja fara
þangað aftur?
Norddeutsdher Rundfunk
sem sendi ót sjónvarpsdag-
skrána vísar allri gagnrýni á
bug og bendir á að vesturþýzk
blöð hafi yfirleitt viðurkennt
að iýsingar hennar hafi verið
sannleikanum samkvæmt.
En útvarpið hefur aðra dag-
skrá í undirbúningi, sem
stjórnarvöldin i Bonn eru enn
hræddari við. Ætlunin er að
spyrja 20.000 úrtak vestur-
þýzkra borgara sem eitt sinn
áttu heima í Worclaw ýmissa
spuminga og þeirrar helztrar,
hvort þeir myndu kæra sig um
að fara þangað aftur ef borgin
kæmist aftur í þýzkar hendur.
Ráðamenn i Bonn óttast að
niðurstaða þessarar athugunar,
sem er sú fyrsta sem gerð hef-
ur verið af þessu tagi, myndi
verða að aðeins lítill hluti íyrri
Wroclawbúa myndi kæra sig
um að fara þangað, þótt þeim
stæði það til boða. Slík niður-
staða myndi grafa undan því
meginatriði í utanríkisstefnu
Adenauersstjórnarinnar að hin
fomu þýzku austurhéruð séu
enn þýzkt land, en aðeins
„undir pólskri stjóm til bróða-
birgða".
Þurrkur í
Suður-Kínu
Þurkurinn sem hrjáir suður-
hluta Kína, og þá einkum hér-
uðin Vantúng, Kvangsí og
Fúkén, er að öllum Iíkindum
sá versti sem orðið hefur í
landinu frá því að alþýðulýð-
vcldið var stofnað fyrir 13
árum. Frá þcssu skýrði Peking-
útvarpið um hclgina.
„N/osnurur j
friBurins" \
ennóferli j
Félagsskapur sá sem ;
nefnir sig „njósnara frið- :
arins" hefur enn haft sig |
í frammi í Bretlanöi, en j
það var hann sem um
páskana dreifði bæklingi ■
með ýmsum leynilegum :
upplýsingum um kjarn- j
orkuvarnir Breta. Blaðið J
„The Guardian“ segir að
þeir hafi nú nýlega lok- ■
að i yfir átta klukkutima j
fjörutíu leynisímum í j
stöðvum kjarnorkuvarn- J
anna með því að hringja J
látlaust í þá. Þá skýrir
blaöið frá því að þeir hafi :
nýlega komizt inn í aðal- :
stöðvar brezku leyniþjón- J
ustunnar og tekið þar J
myndir af fjölda starfs- J
manna. J
Flokksleiðtogar
í Tékkóslðvakíu
sviptir stöðum
PRAG 14/5 — Einn af helztu
forystumönnum Kommúmsta-
flokks Tékkóslóvakíu. Karel
Bacilek. hefur verið sviptur
tveimur trúnaðarstöðum sínum,
bæði sem fulltrúi í forsæti mið-
stjórnar flokksins og fyrsti rit-
ari miðstjómar hinnar sióv-
ösku deildar hans. Bruno Koeh-
ler hefur einnig verið vikið úr
starfi sem einn af riturum mið-
stjómar. Engin skýring er gef-
in á brottrekstrunum, en á bað
er bent að báðir þessir menn
höfðu sig mikið í frammi í
málaferlunum gegn Rudolf
Slansky og félögum i ársiok
1952.
Summy Duvis
f/ýr ófre/sið
heimu i USA
Hinn fjölhæfi bandaríski
listamaður Sammy Davis jr.
undirritaði i síðustu viku
þriggja ára samning við
brezka útvarpið BBC og
skýrði jafnframt frá því að
hann hefði í hyggju að bú-
setja sig í Bretlandi fyrir fullt
og alit.
,.Hér hef ég fundið frelsið",
segir hinn þeldökki söngvari.
dansari og leikari, sem hlaut
geysimikið lof fyrir sjón-
varpsdagskrá í BBC á sunnu-
daginni var. Hann er að leita
að húsi í London og þar á að
vera nóg húsrými fyrir „a. m.
k. sjö börn“, eins og hann
segir. Davis er kvæntur
sænsku lei'kkonunni Mai Britt
og eiga þau saman eitt barn,
en hafa tekið annað til fóst-
urs.
„Mér ge'ðjast l'íka Vel að
brezkum bömum", segir
Sammy. „Um daginn ávarpaði
lítill strákhnokki mig með
orðunum „Góðan dag, herra,"
í stað ,,Hæ, þú þarna" sem
maður heyrir alltaf heima.
Slíkt hefur aldrei komið fyrir
mig áður.
Óleysanlegt
dcemi við
stúdentspróf
Stúdentspróf í stærðfræði fór
fram í Danmörku á þriðjudag-
inn var. Kom í ijós að mistök
höfðu orðið varðandi þriðja
og síðasta dæmið sem nem-
endum var gcrt að rcikna og
eyddu margir nemendanna
miklum tíma í að leysa það
óleysanlega. Dæmið var úr
hornafræði og var þar prcntuð
talan 67,34 í stað 77,34. Mis-
tökin áttu sér stað cr höfundur
dæmanna færði tölurnar úr
handbók sinni í handritið sem
hann skilaði til prentsmiðj-
unnar. Prófendur hafa fengið
fyrirmæli um að taka tillit til
þessara mistaka er þeir dæma
úrlausnimar.
Stærðfræðiprófið hófst kl. níu
um morguninn, og varð ekki
Vart við mistökin fyrr en tveim
klukkustundum síðar. Kennslu-
yfirvöldin reyndu að gera öll-
um mentaskólunum viðvart
um mistökin og sendu þeim
leiðréttingu i tíma en það reynd-
ist ekki kleift.
1 stúdentsprófum i stærðfræði
bæði í Noregi og Finnlandi var
lagt fyrir nemendur að leysa
dæmi sem alls ekki fyrirfannst
í lesefni nemendanna. Hefur
þetta orsakað mikla gremju og
hafa nemendur heimtað leið-
réttingu sinna mála.
Sjón varpsdagskrá frá pólskrí
borg veldur fjaðrafokí í Bonn
Dagskrá sem eínn af kunn-
ustu sjónvarpsmönnum Vestur-
Þýzkalands, Jiirgen Ncven du
Mont, annaðist og f jallaði um
daglcgt líf manna í pólsku
borginni Wroclaw, scm áður
bar þýzka nafnið Brcslau, hef-
ur valdið fjaðrafoki í Bonn.
Ráðamenn þar eru æfir yfir
því að í dagskránni, sem sjón-
varpað var í síðustu viku, kcm-
ur glögglega i Ijós að Wroclaw
er nú algerlcga pólsk borg og
að fjörutíu prósent íbúanna
hafa fæðzt þar.
Samtök þeirra Þjóðverja sem
reknir voru úr hinum fyrri
þýzsku austurhéruðum eftir
striðið eða flúðu þaðan undan
sókn sovéthersins hafa sig mik-
ið í frammi í Vestur-Þýzka-
landi. Efst á stefnuskrá ‘þeirra
er endurheimt þessara héraða,
með valdi ef ekki vili betur, og
þau bregða ævinlega snöggt
við, ef reynt er að segja Vest-
ur-Þjóðverjum sannleikann um
hvemig nú háttar til í þessum
héruðum og það með að þau
eru endanlega úr sögunni sem
þýzkt land.
„Kommúnistaáróður"
Eins og vanalega gripu for-
ráðamenn þessara samtaka nú
til þess að stimpla frásögn du
Mont af borgarlífi í Wroclaw
sem kommúnistaáróður. —
Breslau var ekki sýnd eins og
hún er í raun og veru, sagði
formaður fyrir Bund de Ver-
triebenen, Hans Kriiger, heldur
eins og kommúnistaáróðurinn
vill að menn í öðrum löndum
og þá sérstaklega Vestur-
Þjóðverjar halda að hún sé.
Fyrir skömmu kvartaði einn
af þingmönnum Kristilegra
demókrata yfir því að flokkur
hans hefði alltof lítil áhrif á
sjónvarpið. Nú segir annar
þingmaður sama flokks, Clem-
ent Riedel, að foringjar flótta-
mannanna hafi fulla ástæðu til
að vera óánægðir út af dag-
skrá du Mont. Hann hafi virt
að vettugi átthagarétt þýzku
Fríðarverðlaun Balzans
afhent Jóhannesi páfa
Jóhannes páfi flytur þalckarávarp sitt.
voru vcitt fyrir friðarstarf
hans, cn það var í annað sinn
síðan Italía var sameinuð, að
páff kom í forsetahöllina. 1
þakkarræðu sinni ítrekaði
páfi enn fyrri orð sín um
nauðsyn þess að friður verði
varðveittur í heiminum.
„Friður sem ekki byggist á
ótta“, sagði páfi, „né á gagn-
kvæmri tortryggni; sem ekki
sé tryggður með ógnuninni
um voðalega eyðileggingu sem
myndi tortíma mannkyninu",
heldur sannur friður, sem
byggðist á réttlææti og sann-
leika, friður varanleika, friður
varanlegrar velmegunar,
tryggrar framtíðar hinnar
ungu kynslóðar, fjölskyldanna
og þjóðanna. Páfi lýsti trú
sinni á sigur þessarar háleitu
hugsjónar, þótt hann gerði
ekki lítið úr örðugleikunum.
Það var Segni, forseti Italíu,
sem afhenti verðlaunin, en
prófessor Arangio Ruiz, ritari
Balzanstofnunarinnar. gerði
grein fyrir úthlutun verðlaun-
anna og verðleikum þeirra,
sem þau hlutu að þessu sinni,
en þeir voru: Tónskáldið víð-
fræga Paul Hindemith, aust-
urríski líffræðingurinn Frisch,
sem getið hefur sér mikla
frægð fyrir að þýða „tungu-
mál“ býflugnanna, sovézki
stærðfræðingurinn Kolmon-
goroff, sem gert hefur margar
merkar uppgötvanir í undir-
stöðugreinum stærðfræðinn-
ar, og bandaríski sagnfræðing-
urinn Morison, sem einkum
er þekktur fyrir rannsóknir
sínar á sjóferðasögu Banda-
ríkjanna.
Öðrum ítölskuhi vcrð-
launum úthlutað
Sama daginn og Balzán-
verðlaunin voru afhent, var
úthlutað öðrum miklum verð-
launum í Róm. Það var í-
talska akademían sem veitti
þau úr sjóði þeim sem kennd-
ur er við Antonio Feltrinelli,
en sá sjóður er stofnaður af
Feltrinelli, hinum athafna-
sama forleggjara í Mílanó.
Hin alþjóðlegu verðlaun úr
sjóðnum hlaut enski mynd-
höggvarinn heimskunni,
Henry Moore, en þau nema
25 milljónum líra, eða tæpum
2 milljónum króna. Verðlaun-
in sem veitt eru ítölskum
þegnum nema 5 milljónum
líra og hlutu þau að bessu
sinni kvikmyndasmiðurinn
Luchino Visconti. tónskáldið
Giorgio Ghedini og málarinn
Mino Maccari.
Hln alþjóðlegu Balzan-
verðlaun, sem nefnd eru eftir
stofnenda þcirra, ítalska for-
leggjaranum Balzan, voru
afhent { forsctahöllinni,
Quirínalc i Uóm fyrir nokkr-
um dögum. Athöfnin vakti
sérstaka athygli, því að Jó-
hanncs páfi kom sjálfur að
sækja verðlaunin sem honum
Þcir sem hl'utu Balzan-verðlaunin að þessu sinni: (efri röð)
Jóhannes páfi fyrir friðarstarf, Andrci Kolmogoroff fyrir
stærðfræðirannsóknir; (neðri röð) tónskáldið Hindemith,
líffræðingurinn Karl von Frisch og sagnfræðingurinn
Samuel Morison.
Visconti
Allir kostir setsófa, hallandi bak
Tekk á örmum.
Breytíst í tveggja manna svefnsófa
með einu handtaki.
Bólstraður með Lystadún.
Klæddur úrvals áklæði.
HÚSGAGNAVERZLUN AUSTURBÆJAR Skólavörðust. 16 Sími: 24620