Þjóðviljinn - 21.05.1963, Blaðsíða 6
g SÍÐA -
HOÐVILIINN
Þriójudagurinn 21. maí 1963
„Ossietzky óhæf fyrirmyncT
rnaríamb nazista lítilsvirt „Aætlanír Banda
Walter Lippmann um NATÓ-herinn
#
Vestur-Þýzkalandi
Nobclsverðlaunamaðurinn
Carl Ossietizky hefur nú aftur
orðið tilefni til deilna í Þýzka-
Iandi — og eru þó 25 ár liðin
frá því hann Iézt vcgna mis-
þyrminga í fangabúðum naz-
ista.
Skýjakljúfar
hæftulegri
en geimurinn
Bandarískt tryggingarfé-
lag hefur fallizt á aö líf-
tryggja bandarísku geim-
farana sjö. Hver líftrygging
nemur 100.000 dollurum og
verður greidd við „andlát
hvar sem er í geimnum eða
á jörðinni". Iðgjöldin eru
heldur hærri en ef um
væri að ræða flugmann
sem reynir nýjar flugvéla-
gerðir — en hins vegar
lægri en sú sem þeir verða
að greiða sem vinna á
hættulegustu stöðunum við
byggingu skýjakljúfa. _
— Við hneigjum oss í þögn
til minningar um hreysti og
hreinleika þessa manns sem
barðist með vopnum andans
fyrir því að gjöreyðingarvopn
stríðsins þögnuðu að endingu,
sagði Paul Nevermann, hinn
sósíaldemókratíski borgarstjóri
í Hamborg við minningarathöfn
í fæðingarborg Ossietzkys.
Friðarsinni ekki
til fyrirmyndar
En Dietrich Rollmann, þing-
maður úr hópi kristilegra
demókrata og einn helzti fyrir-
maður í Hamborg vildi ekki
taka þátt í því að heiðra minn-
ingu Ossietzkys:
— Á okkar tímum getum við
ekki ieyft okkur að hampa
friðarsinnum sem fyrirmynd
Þýzkalands. Þannig hljóðaði
opinbcr yfirlýsing Rollmanns.
í bréfi til borgarstjórans seg-
ir formaður kristilega demó-
krataflokksins í Hamborg. Er-
ick Blumenfeld. að hann harmi
örlög Ossietzkys. En á hinn
bóginn geti hann ekki skilið af-
stöðu hans, friðarverðlauna-
hafinn aðhylltist ævinlega þá
sem voru lengst til vinstri. Það
eru slíkir menn sem gjarna
vitna til hans nú.
Dómur þingmannsins
léttvægur
Vestur-Þýzka blaðið Die
Welt hefur deilt á Rollmann
vegna ummæla hans, þó án
þess að nefna nafn stjórnmála-
mannsins:
Carl von Ossietzky hefur
sparað þingmanninum það ó-
mak að gera það upp við sig
hvort hampa eigi honum eða
ekki. Því að Ossietzky lét lífið
vegna misþyrminga sem hann
varð fyrir í fangabúðum naz-
ista. I-Iér er því ekki um það að
ræða hvað við getum leyft okk-
ur heldur sjálfsagðan hlut, seg-
ir Die Welt um Rollmann og
minningarathöfnina.
Við minningarathöfn í Vest-
ur-Bcrlín sagði sósíaldemókrat-
íski þingmaðurinn, Adolf Arndt
að Ossietzky hefði verið áhrifa-
mikill maður sem staðið hefði
fyrir utan alla flokka og stjórn-
máiahópa. Ilann var áhrifa-
mikill maður cnda þótt hann
hafi ekki ráðið yfir öðrum
valdatækjum en hæfileika sín-
um til að sannfæra aðra, sagði
Arndt.
Bandalag til
aS steypc
de Gaulle
Pierre Pflimlin skoraði ný-
lega á flokk sinn, MRP, að taka
þátt í „miðbandalagi” sem við
næstu kosningar skal skipa sér
um frambjóðanda til að hindra
að de Gaulle verði endurkosinn,
ef hann býður sig fram aftur.
Næstu forsetakosningar í
Frakklandi eiga að fara fram
árið 1965. Enn er ekki víst
hvort de Gaulle verður í fram-
boði. hann verður þá orðinn
75 ára að aldri.
Formaður róttæka sósíalista-
flokksins, Maurice Faure. er
ásamt Pflimlin, einn helzti
baráttumaður fyrir „miðbanda-
Iaginu”. Báðir eru þeir ein-
dregið andvígir stofnsetningu
fransks kjarnorkuhers.
ríkjanna heimska
\\
!
I
i
!
BRIDGESTONE
MEST SELDU HJÓLBARÐAR Á ÍSLANDI
AÐRIR
OTSÖLUST AÐIR:
Hinn kunni bandaríski frétta-
skýrandi Walter Lippmann rit-
aði nýlega grein í New Vork
Herald Tribune og gagnrýndi
áætlanir um sameiginlegan
kjarnorkuher NATÖ-ríkjanna.
Sagði hann að íyrirætlanir
þessar væru hættuicg tilraun til
að verða við óskum Vestur-
Þjóðvcrja — í ljós getur komið
að bóluefnið sé raunar lifandi
vírus, sagði hann.
Undarleg viðleitni
— Við fyrstu sýn virðist við-
leitni bandarískra stjórnarvalda
til að fá Breta, Itali og einkum
Þjóðverja til að taka á móti
evrópskum kjarnaher harla
undarleg, segir Lippmann með-
al annars. Á sama tíma og
stjórnin fullyrðir að Banda-
ríkin hafi yfir að ráða nægileg-
um kjamaher til að verja
vestrið gerir hún allt til að
vekja áhuga Evrópumanna á
kjarnorkuáætlunum sínum.
Hvers vegna? Kjarnorkuáætl-
anir de Gaulle falla stjórninni
ekki í geð. Hún álítur viðleitni
Breta á þessu sviði ófullnægj-
andi. Því leggja ráðamennimir
sig alla fram við að koma á
marghliða kjarnorkuher, láta
Fró Japan |
i
Söluumboð R«ykjavík: GÚMBARÐINN
Brautarhoitj 8, simi 17984.
Söluumboð Akureyri: BRIDGESTONEUMBOÐIÐ.
Hafnarstræti 19, sími 1485.
| Kaupfó’ag S.-Borgfirðinga, Akranesi.
Hjalti Benónýsson, Akranesi.
Kaupfélag Borgnesjnga, Borgamesi.
Verzlunin Skemman, Ólafsvík.
Kaupfélag Króksfjarðar, Króks-
fjarðarnesi.
Vélsmiðjan Logi, Patreksfirði.
Kjartan R. Guðmundsson, ísafirði.
Kaupfélag Steingrimsfjarðar,
Hólmavík.
Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi. t Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga Fáskrúðsfirði.
Kaupfélag Skagfirðjnga, Sauðárkróki. 1 Kristján Imsland, Hornafirði.
VéSmiðjan Nejsti, Siglufirði. 1 Kaupfélag Vestur-Skaftfeliinga, Vík í Mýrdal.
Verzlunarfélag Austurlands, Egjlsstöðum. Kaupfélagið Þór, Hellu.
Verzlun Björns Bjamasonar, Kaupfélag Vestmannaeyja,
Ncskaupstað. Vestmannaeyjum.
Verzlun Elísar Guðnasonar, Kaupfélag Suðurnesja
Eskifirði. Keflavík.
Vexziunin Framsókn, Reyðarfirði. I Jón Guðmundsson Hafnarfirði.
Þjóðverja taka þátt í honum og
bera talsverðan hluta kostnað-
Þjóðverjar gírugir
Helzta ástæða þessarar kyn-
legu hegðunar er óttinn um að
Þjóðverjarnir feti í fótspor
Breta og Frakka og taki að
lýsa því yfir að þeir vilii koma
sér upp sínum eigin kjarn-
orkuher, þar sem þeir yrðu
annars flokks ríki ef þeir yrðu
ekki sjálfir kjarnorkuveldi.
— Það er að segja, skrifar
Lippmann, Þjóðverjum á að
finnast að þeir séu fyrsta
flokks Evrópuveldi, en án þess
að fá þeim raunverulega
kjamavopn í hendur. Um hin
evrópsku höf skal sigla marg-
hliða kjarnaher. Fáeinir Vest-
ur-Þjóðverjar verða meðal á-
hafnarinnar og vestur-þýzka
stjórnin mun borga hluta
kostnaðarins. Þjóðverjar munu
taka þátt i áætlunarstarfinu.
„Mjög heimskulegt"
Þessar þunglamalcgu og
flóknu áætlanir hafa einfald-
lega það markmið að bólusetja
Þjóðverjana til þess að þeir
missi löngunina til þess að
koma sér upp sínum eigin
kjarnahcr. Ég tel að þessar á-
ætlanir séu viðvaningslegar,
barnalegar og mjög heimsku-
legar. Að öllum líkindum mun
koma í Ijós að sá vírus sem
átti að vera dauður í bóluefn-
inu er bráðlifandi, segir Walt-
er Lippmann.
i
Hundurinn
afhjúpaði
njósnatækið
WASHINGTON 10/5 — Banda-
riska utanríkisráðuneytið hefur
skýrt frá því að ýlfrandi hund-
ur sem virðist eiga í erjum við
ósýnilegan fjandmann hafi orð-
ið til þess að afhjúpuð voru
eletrónísk hlustunartæki sem
falin voru undir gólfinu i íbúð
bandarisks utanríkisþjónustu-
manns.
Samkvæmt hinni ævintýra-
legu frásögn i-áðuneytisjns var
bandarískur öryggissérfræðjng-
ur að kanna íbúð bandarísks
hernaðarsendifulltrúa í ónafn-
greindu landi er hundur sendi-
fulltrúans vakti athyglj hans
með ýlfri og ólátum. Hundin-
um leið sýnilega illa og virt-
ist eiga ' tvísýnum bardaga
við ósýnilegan óvin í einu her-
bergishorninu.
Öryggissérfræðingnum þótti
þetta varia einleikið og tók að
rannsaka málið. Sá hann að
hróflað hafði verið við gólfinu
í hominu. Þá rauf hann ‘gólf-
ið og fann þar senditæki sem
sent gátu öll samtöl sem áttu
sér stað í herberginu.
Tækin voru útbúin þannig
að hljóðmerkin frá þeim voru
of há til þes-s að mannlegt eyra
greindi þau en þegar um ' und
var að ræða höfðu þau mik-
inn sársauka í för með sér.
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI:
REYKJAVÍK.
UMBOÐS- & HEILDVERZLU