Þjóðviljinn - 21.05.1963, Síða 10
10 SÍÐA
ÞlðÐVIUINK
Þriðjudagurinn 21. mai 1963
GWEN BRISTOW:
r
I
HAMINGJU
LEIT
myrkrinu. Andartak skalf hún
við tilhugsunina um fífldirfsku
hans, þvi að synir Donu Manu-
elu myndu ekki hika við að
skjóta hvaða karlmann, sem
þeir sæju sniglast um túnið
fyrir neðan svefnherbergi systr-
anna. „Jolhn“, hvíslaði hún.
„Veiztu hvar þú ert staddur?“
„Já, já“, sagði John. „Ég er
óboðinn gestur hér“. Rödd hans
var svo lág að hún heyrði
hana naumast yfir þytinn í lauf-
inu, en hún hélt að hún hefði
þó þekkt þennan glaðlega
stríðnishreim hvar sem væri í
heiminum. „Ég var úti á fram-
túninu“, hélt hann áfram, „þeg-
ar ég heyrði einhvern syngja
fyrir innan vegginn. í>að gat
verið þú, svo að ég gekk nær
og hlustaði. Orðin voru ensk
og það var ekki Florinda og þá
vissi ég að það varst þú. Og
svo klifraði ég yfir“. Hann hló
hljóðlaust. „Það var mikið
hættuspil, en mig langaði svo
til að bjóða þér góða nótt með
kossi. Hefurðu nokkuð á móti
því?“
Hann tók hana í fang sér og
kyssti hana. Andartak hafði
Garnet hugmynd um skrjáfið í
laufinu og hárið á Jolhn sem
vindurinn feykti í andlit henni,
en svo vissi hún ekkert framar
annað en það að John hélt
henni þétt að sér og hún elsk-
aði hann. Hún elskaði styrk
hans og hlýju og mildi, og hún
vildi eiga hann a]lan og að
eilífu.
Hún hafði ekki hugmynd um
Hárorei&lon
P E R M A. Garðsenda 21.
siml 33968 Hárgreiðsln. oe
snyrtistofa
Dömnr, hárgreiðsla við
allra hæfi.
TJARN ARSTOFAN,
Tjamargötu 10. Vonarstræt-
ismegin Simi 14662
Hárgreiðsln- og snyrtistofa
STETND OG DÓDÓ
Laugavegi 11 sími 24616.
Hárgreiðslustofan
S Ó L E V
Sólvallagötu 72
Sími 14853
Hargreiðslnstofa
ADSTDRBÆJAR
(Maria Guðmundsc'óttir)
Laugavegi 13 sími 14656.
Nnddstofa á sama stað.
hvað timanum leið. En allt í
einu fór hurðin að skellast í
vindinum. Dymar voru allar
ólæstar og svo illa frá þeim
gengið að þær fuku upp við
minnsta vindblæ ef þeim var
ekki því betur lokað. Gamet
hrökk í kút, en John sagði „uss“
og hún stóð grafkyrr og hann
hélt um mitti hennar og hinni
hendinni um höfuð hennar og
kyssti ó hennj hárið. Andar-
taki síðar heyrðu þau rödd
einnar smátelpunnar sem hafði
vaknað við skellina. Ljós birt-
ist í hinum enda gangsins og
rödd Donu Manuelu hrópaði að
þetta værj ekki annað en vind-
urinn og hún skyldi loka.
John dró Garnetu inn í skugg-
ann undir trjánum. Hann hvísl-
aði i eyra henni: „Þú ert ekki
hrædd. eða hvað? Hún getur
ekki læst þig úti“.
Gamet fór að hlæja hljóð-
laust. Hún var svo hamingju-
söm að hún gat ekki við það
ráðið. Hún hvíslaði að John
„Hvað gerir Dona Manuela ef
hún kemur auga á okkur?"
„Áreiðanlega eitthvað skelfi-
legt“. sagði John og það var
líka hlátur í rödd hans. „En
ég trúi þvi ekki að hún geti
séð okkur. «Ég get varla séð
þig sjálfur".
f dyrunum birtist fyrirferðar-
mikil] , v P°nu Manuelu,
enn fyrirferðarmeiri en fyrr
vegna sjalsins sem hún hafði
brugðið yfir náttkjólinn. Bak
við hana stóð þjónustustúlka
með kerti. Til allrar hamingju
stóðu John og Garnet alveg út
við múrinn. en Dona Manuela
hafði heyrt einhverja hreyf-
ingu. „Quién está ahí?“ spurði
hún hátt.
„Svaraðu henni“, hvíslaði
John. Garnet hrópaði á móti,
sagði nafnið sitt og að hún
hefði farið út til að fá sér
ferskt loft.
Dona Manuda endurtók nafn
hennar hvössum rómi.
„Si senora", sagði Gamet.
Hún var enn að hlæja, en
um leið fann hún til nokkurs
ótta við það að Dona Manuela
þrifi til sín ljósið og kæmi vag-
andi út. Hún vjssi ekki hvað
myndi koma fyrir ef hún fyndi
John hjá henni. Sennilega
myndu þau bæði vera rekin
burt með smán. Henni hefði svo
sem staðið á sama um það, þótt
hún yrði rekin burt ásamt
John, en Dona Manuela hafði
verið henni svo góð að hún
vildi ógjarnan sýna henni van-
þakklæti. Til allrar hamingju
var golan köld og Dona Manu-
ela hafði drukkið mikið af
angélica og var mjög syfjuð.
Hún kallaði aftur fil Garnetar
að hún yröi að fara í rúmið taf-
arlaust ef hún vildi ekki að næt-
urgolan leiddi yfir hana sæg
af sjúkdómum sem Gamet hafði
aldrei heyrt nefnda fyrr. Garn-
et svaraði að hún kæmi undir
ems. Litla stúlkan hrópaði aft-
ur og Dona Manuela gaf þjón-
ustustúlkunni olnbogaskot, sneri
sér við og fór inn í bamaher-
bergið. „Nú verð ég að fara“,
sagði Gamet við John.
Hann tók fastar utan um
hana. Hann strauk fingrunum
niður gagnaugað og eftir vang-
anum á henni. Garnet hugsaði
með sér: ég vildi óska að ég
gæti séð augun hans. Núna
‘horfir hann á mig eins og þegar
hann horfir á fjallahliðarnar
þegar þær eru þaktar blóm-
um.
„Já“, hvíslaði John með sem-
ingi. „Þú verður víst að fara.
Hvenær getum við hitzt aft-
ur?“
„Á morgun“.
„f fyrramálið?“
„Eins snemma og þú vilt".
„Strax og bjart er orðið. Á
almenningstúninu, o.lífulundin-
um að austanverðu". Hann
kyssti hana á augun. „Góða nótt,
vina mín“
Hún neyddi sjálfa sig til að
sleppa honum. Hún dró sjalið
yfir höfuðið svo að ekki sæist
of mikið í andlit henni og þaut
heim að húsinu. En henni til
mikils léttis var Dona Manu-
ela farin inn til bamsins og
gangurinn var auður og dimm-
■ur.
Gamet stanzaði í dyrunum
og leit til baka. Það brakaði í
gamla sítrónutrénu þegar John
greip í grein sveiflaði sér upp
og stökk yfir múrinn. Gamet
sendi honum fingurkoss um
leið og hún lokaði dyrunum.
Nú gekk hún úr skugga um
að þær væru vél lokaðar. Út
úr einu svefnherberginu barst
rödd Donu Manuelu, mjúk og
þýð. meðan hún róaði bamið
og reyndi að svæfa það. Garn-
et þreifaði sig áfram eftir gang-
inum og að herbergi sínu, þar
sem Ijósrák við gólfið sýndi að
Florinda hafði látið ljósið loga
til að vísa henni leið.
Florinda svaf. Þegar Garnat
hafði fullvissað sig um að Stef-
án svæfi líka vært, gekk hún
að speglinum og tók úr sér hár-
nálamar. Hún brosti til spegil-
myndar sinnar. í daufu ljósinu
var eins og andlitið á henni
væri sjálflýsandi. Þetta var í
fyrsta skipti sem henni hafði
í alvöm fundizt hún vera
falleg. ,
Þegar stúlkan kom með morg-
unsúkkulaðið, þaut Gamet
í skyndi framúr rúminu og
opnaði hlerana, til að aðgæta,
hvernig veðrið væri. Það hafði
lygnt. en úti var þoka og loftið
kalt og rakt. Florinda rak upp
hljóð og Garnet lokaði hler-
unum. Florinda sat uppi í rúm-
inu, dreypti á súkkulaðinu og
skammaðist eins og vanalega
út í fólk sem rak mann á fæt-
ur á svona ókristilegum tíma.
Hún nöldraði ævinlega en allt-
af fór hún á fætur. því að hún
hafði ánægju af útreiðunum á
morgnanna. En hún flýtti sér
ekki af stað eins og Gamet, og
hún var enn að geispa og teygja
sig þegar Garnet fór út. Garnet
sagði í dyrunum að hún myndi
ekki ríða út þennan morgun.
Hún sagði ekki hvers vegna,
en hún gerði sér í hugarlund
að Florinda gæti sér þess til.
Hún tók Stefán með sér og
famn Luisu, bamfóstruna hans.
að drekka súkkulaðið sitt í úti-
eldhúsinu. Garnet fékk henni
barnið og sagðist ætla að
ganga yfir í olífulundinn.
Hún gekk á milli trjánna.
Næturþokan var að hverfa, en
það eimdi enn eftir af henni
og i austri sáust purpuralitjr
fjallatindar uppúr þokunni.
Þeir voru eins og plómur í
rjómaskál. Kringum hana voru
trén fersk eftir vætuna. Þegar
hún kom inn á milli þeirra,
ýrðu blöðin smádropum á
vanga henmar. Hún heyrði fugl-
ana kvaka og fann hressandi
ilminn frá enginu. Stigurinn
beygði og hún kom auga á John.
Hann stóð með fótinn á
steini, með olnbogann á hnénu
og horfði á svart og gyllt fiðr-
ildi sem hafði flögrað niður á
trjágrein. Þegar hann heyrði
skrjáfið í pilsum hennar, sneri
SKOTTA
■' ....
Slökkvistöðin
vill ráða nokkra menn til vinnu vegna sumar-
leyfa stöðvarvarða, um þriggja mánaða skeið
frá 1. júní n.k.
SLÖKKVILIÐSSTJÓRINN t REYKJAVÍK.
RÚMAR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
KYNNIÐ YÐUR
MODEL 1963
^ Sími 24204
•Sw^BIÖRNSSON & CO. P.O. 80X 1584 • REYKMVlK
TÚjrrnri
<g%>0
i® King Features Syndicate, Inc., 1862. Worid rlghts reserved. '0 '2?
Villi. Pabbi heimtar að þú leggir ekki bílnum fyrir fram-
an húsið. Hann segist ekki vilja springa í Ioft upp.
KOSNINGASKRIFSTOFUR
ALÞÝÐUBANDALAGSINS
V estur landsk jör-
dæmi
Kosningaskrifstofan er að
félagsheimilinu REIN
AKRANESI. opið frá kl
til 11. — SÍMl 630.
Kosningaskrifst. 1 VEST-
MANNAEYJDM ER AÐ
BÁRDGÖTD 9 (Hólshúsi),
opið frá kl 5 til 7 og 8 til
10 — SÍMI 570.
Reykjaneskjördæmi
Kosningaskrifstofan er i
ÞINGHÓL. KÓPAVOGI. opið
frá 4—10. SlMI 36746.
Kosningaskrifstofan í HAFN-
ARFIRÐI er í GÓÐTEMPL-
ARAHÚSINU uppi, sími 50273
Norðurlandskjör-
dæmi vestra.i.
Kosningaskrifstofa að SUÐ
URGÖTU 10. SIGLUFIRÐI.
opið frá kl. 10 til 7. — SlMI
194.
Norðurlandskjör-
dæmi eystra
Kosningaskrifstofan á AK
UREYRI ER AÐ STRAND-
GOTU 7. opið allan daginn
— SÍMI 2965.
Austurlandskjör
dæmi
Kosningaskrifstofan i NES-
KAUPSTAÐ ER AÐ MIÐ
STRÆM 22. opið allan dag-
inn.
Suðurlandskjör-
dæmi
Á SELFOSSI er kosninga-
skrifstofan að AUSTURVEGI
10. — SÍMI 253.
Sængurfatnaður
— hvftur og mislitur
Rest bezt koddar.
Dúnsængur.
Gæsadúnsængur.
Koddar.
Vöggusængur og svæflar.
Skólavörðustig 21
Verð að passa mig.
Er með kött.
Hann hreyfir sig ekki
Er hann eitthvað bilaður? Steinsofandi og kötturinn
lika.
V0GAR — HEIMAR
Reglusaman mann vantar her-
bergi í sumar. Æskilegt væri
að fá fæði á sama stað. —
Dpplýsingar í síma 36026.
T ryggvi Emilsson
Framhald af 7. síðu.
æri sem yfir land okkar hefur
gengið í aflaföngum hefur stór-
auður fárra vaxið gífurlega, en
aftur á móti hefur vinnudagur
erfiðismanna lengzt úr hófi
fram. Þessar aðstæður hljóta
að þjappa fólkinu saman til
nýrrar öflugrar sóknar, og ef
auðmönnunum á ekki að tak-
ast að kaupa sér til fylgis helft-
ina af skólamenntuðu fólki
með því að mýkja smávegis
upp dýnurnar í stólunum ár-
lega, þá verður baráttan fyrir
almennt stórbættum lífskjörum
að vera yfirgnæfandi í þjóð-
lífinu. Yfirgnæfandi, svo eftir
því verði tekið að erfiðismenn
ætla sér ekki að viðurkenna
rangfengin völd auðfólks yfir
aflaverðmætunum, yfir kaupi
og kjörum, yfir dómsvaldinu og
yfir þjóðmenningunni.
Með hverjum klukkutíman-
um sem auðmönnum tekst að
lengja vinnudag verkamannsins
með gylliboðum um helgi-
dagakaup og næturvinnu, vex
hættan, frístundunum fækkar,
og tími til bóklesturs eða fræði-
iðkana fellur andaður 1 hendur
manna,. En mesta og alvarleg-
asta hættan er ef menn fara
að sætta sig við hnignunina,
þegar fólkinu blátt áfram ber
að sækja fram.
Það er svo alvarlegt mál, að
fólk skuli í dag sætta sig við
þá þróun að vinnudagurinn
lengist úr hófi fram, að hefja
verður öfluga sókn gegn beim
ósóma og má segja að heiður
íslenzkrar menningar liggi við.
Verkamenn mega ekki stinga
höfði í sand vinnuþrælkunar,
meðan auðmenn draga tii sín
auð fjár á kostnað atvinnuveg-
anna. þar sem auðsöfnun á
aðra hönd, en ofþreyta á hina.
boðar iifandi dauða íslenzkrar
þjóðmenningar.
Kröfur verkamanna um
stytían vinnudag án skerðingar
á heildartckjum eru kröfur um
rétt þeirra til að iifa eins og
menn. Kröfur um sjálfsagða
hlutdeild í menningarlífi, kröf-
ur um vaxandi þjóðmenningu.
Það er meir en hálfopinbert
mál að valdamennirnir sækja
nú á, að „kippa ieið Islands
af stafni" En það tekst beim
aldrei ef almennitfgur í 'and-
inu heldur vöku *isinni, aflai
sér fræðslu, brj’n.jar sig með
þekkingu og krefst réttar sín«.