Þjóðviljinn - 14.06.1963, Blaðsíða 1
■
wM £mv
:
'HyÝÝH A
Gullfoss var nýlagstur að bryggju í Reykjavík í gærmorgun og uppskipun
er tekin
Ágœf veiði í
fyrrinótf úf af
Langanesi
Géðar síldveiðihorfur—en
évíst um móttöku / lundi
Síðustu daga hefur verið ágæt
síldveiði við Langanes og stækkar
síldveiðiflotinn óðfluga dag frá degi
á þessum slóðum.
Síldarskip hvaðanæva af landinu
taka stefnuna norður að Langanesi,
en Austfjarðaskipin hafa oröið fyrst
á vettvang enda næst veiöisvæöinu.
Sérstaka athygli hefur vakið, hvaö
síldin er stór og falleg og virðist
þegar hæf til söltunar.
Hinsvegar er undirbúningur til
móttöku víðast í óiestri og hafa
menn heyrt á bátabylgjunum megna
óánægju sjómanna yfir þessu á-
standi. Þjóðviljinn hefur haft sam-
band við fréttaritara sína á síldar-
stöövunum á Norðausturlandi og
Austfjörðum og eru frásagnir peirra
birtar á 2. síðu.
í FXRRINÓTT var ágæt sild-
veiði 50—60 sjómílur norð-
austur af Langanesi og fengu
allmörg skip ágætan afla. og
sum fengu fullfermi. Veður
var ágætt og streymdu skip-
in á miðin.
hafin. (Ljósm. Þjóðv. A. K.).
GULLFOSS KOMINN HEIM
EFTIR BRUNANN MIKLA
I gærmorgun sigldi GuIIfoss
inn í Reykjavíkurhöfn í fyrsta
sinn eftir brunann mikla í Kaup-
mannahöfn í vetur. Skipið er allt
nýmálað og ekki ósvipaö gömlum
herramanni í nýjum kjólfötum.
Skipstjórinn, Kristján Aðalsteins-
son, Sigurlaugur Þorkelsson,
blaðafulltrúi Eimskips og Viggó
Maack verkfræðingur sýndu
fréttamönnum skipið síðdegis í
gær og skýrðu fyrir þeim þær
breytingar sem gerðar voru á
skipinu — sumar vegna brunans
og aðrar sem höfðu verið á-
kveðnar fyrirfram.
Afturskipið allt var að mestu
ónýtt eftir brunann og þar var
allt endumýjað, reyksalur og
borðsalur 2. farrýmis, farþega-
kjefar og vistarverur skipverja.
Eldurinn náði alla leið fram að
svokölluðum B-þiljum, en þar á
mjlli er stálplata sem var tfl
vamar. Emnlg tókst að ver'ja eld-
inum ledð að vélarrúmli því mflli
þess og öxulgangsins er stálþil
sem hægt er að hleypa niður.
Hefði eldurinn hinsvegar komizt
í vélina hefði tjónið orðið mikl-
um mun meira en þó varð.
Allt það sem endumýjað var
er nú með miklu léttari svip
en aður, Ijóslitar þiljur og létt
nýtízkuleg húsgögn. Einnig þurfti
að endumýja skipsskrokkinn að
aftan að mestu leyti og hefur að
sögn forráðamanna Eimskips
tekizt svo vel til um þá aðgerð,
að allur titringur er nú horfinn
úr skipinu, en áður hafði hann
verið farþegum á 2. farrými til
nokkurra óþæginda. Segja þeir
að skipið sé nú traustara en
nokkru sinni fyrr.
Reyksalur og borðsalur 1. far-
rýmis voru endumýjaðir sam-
kvæmt áætlun og er óhætt að
segja að þar hafi mjög vel tek-
izt til.
Fullbókað fram á vetur.
Upphafleg áætlun var sú að
Fells/r Bretastjárn
á Profumomálinu?
— Sjá 3. síðu
skipið færi úr klössuninni 23.
apríl í vor, en því seinkaði um
sjö vikur vegna brunans. Það er
vissulega mikið tjón, þrjár ferð-
ir féllu niður, aflar fuflbókaðar
og skipið varð af miklum flutn-
ingi.
Fullbókað er nú í allar sumar-
ferðimar og fyrstu vetrarferðina.
sem áætluð er 1. nóvember.
Sigurlaugur Þorkelsson og
Kristján skipstjóri voru sam-
dóma um að fólk léti mjög vel
af hinum ódýru vetrarferðum,
sem hafnar voru í vetur leið.
Kváðu þeir margt fólk hafa haft
orð á því að slíka ferð vildi það
fara aftur við fyrsta tækifæri,
f GÆRMORGUN voru þessl skip
á leijj til hafnar, ýmist við
Eyjafjörð eða á Austurlandi:
Náttfari 1550 mál, Dalaröst
650. Bára 600, Grótta 1700,
Eldborg 1250. Stefán Árnason
1300, Árnj Geir 700, Héðinn
1150, Oddgeir 1600, Sigur-
björg 600, Þorleifur Rögn-
valdsson 650, Margrét 1400
og Steingrímur trölli með
1500 mál.
FRÉTTARITARI Þjóðviljans á
Seyðisfirði símaði í gærkvöld,
að fyrsta sí'-d sumarsins hefði
boiizt þangað í gær. Skipin
sem þangað komu voru Dala-
röst NA með 650 mál en af
því fór eitthvað í frystingu
hjá Fiskiðjuverinu, Stefán
Árnason SF me3 fullfermi og
Þráinn NK með fullfermi.
SÍLDARLEITARSKIPn) Pétur
Thorsteinsson var statt á
veiðisvæðinu í gærmorgun.
Veiðihorfur eru taldar góð-
ar á þessum slóðum.
Lenti meðhöndina
í vél og meiddist
I gær varð það slys í prent-
smiðjunni Gutenberg að stúlka
að nafni Helga Ingvarsdóttir
lenti með vinstri höndina í vél
sem hún var að vinna við og
slasaðist talsvert. Var hún flutt
í slysavarðstofuna og síðan 1
Xjandakotsspítala.
Tekur trollið inn að aftan
Fyrir nokkru var sagt frá nýj-
um báti hér í blaðinu. Báturinn
er nýkominn hingað frá Noregi
og heitir Mjöll RE 10. Hann er
smíðaður úr tré og 40 tonn að
stærð. Undanfarna daga hefur
vcrið unnið að því að búa hann
út á humarveiðar og þegar ljós-
myndarinn átti leið framhjá á
dögunum var verið að koma fyr-
ir skutgálga, þannig að báturinn
mun „taka trollið inn að aftan“,
A myndínni sést að gálgarnir eru
í rauninni tveir, sitt hvoru megin
við skutinn, cn stífa á milli.
Hlerarnir koma svo upp í rúll-
urnar, sem hanga niður úr gálg-
anum. (Ljósm. Þjóðv. A. K.).
Dagsbrún hóf við-
ræður í gær við
vinnuveitendur
& Öðrum sáttafundi í norðlenzku kaupdeilunni lau
kl. 1 í fyrrinótt. Fundur hófst svo að nýju kl. 4 síðdeg:
í gær og var honum haldið áfram í gærkvöld og stó
hann enn er blaðið fór í prentun í nótt. Stjórn Síldai
verksmiðja ríkisins hefur -nú hafið þátttöku í viðræðui
um undir forystu Sveins Benediktssonar.
☆ Þá gerðist það nýtt í samningamálum verklýðsfélaj
anna í gær, að samningaviðræður hófust á milli Verk;
mannafélagsins Dagsbrúnar annars vegar og Vinnuvei
endasambands íslands hins vegar, eru samninganefndiri
ar skipaðar fjórum mönnum frá hvorum aðila.
Benedikt Gröndul utunríkisráiherru?!
Innan Alþýðuflokksins mun
nú vera rætt um breytingar
á ríkisstjórninni. Eins og
Þjóðviljinn hefur áður skýrt
frá hefur Guðmundur í. Guð-
mundsson utanríkisráðherra
um skeið haft hug á því að
hætta stjórnmálaafskiptum og
gerast sendiherra. Féllst hann
þó á að fresta ákvörðun um
það efni þar tfl eftir kosning-
ar, en það vakti athyglj að
þegar Haraldur Guðmundsson
hætti sendiherrastörfum í
Noregi fyrir skömmu, var
sendiherra íslands í Sviþjóð
fluttur þangað, en sendi-
herraembættið í Stokkhólmi
látið standa autt. Getur Guð-
mundur þannig sezt í sendi-
herraembætti fyrirvaralaust,
hvort sem hann velur sér
Stokkhólm eða færir sendi-
herra til og kýs annan stað.
Þessi áform munu hafa
komizt á dagskrá á nýjan
leik þegar eftir kosningamar,
er í ljós kom að Friðjón
Skarphéðinsson, forseti Sam-
einaðs þings, hafði fallið.
Mun Guðmundur nú leggja
til að hann fari tafarlaust í
sendiherraembættið, en Frið-
jón taki sæti á þingi.
í þessum bollaleggingum
munu ýmsir mæna á embætti
utanrikisráðherra en enginn
þó jafn löngunarfullum aug-
um og Benedikt Gröndal,
Eins og kunnugt er gaf hann
út bók um stefnu íslands í
utanríkismálum skömmu fyr-
ir kosningar^ til að sanna
hæfnj sína á þeim sviðum,
en sönnunin þótti að vísu
næsta bágborin. Munu ýmsir
ráðamenn í Sjálfstæðis-
flokknum þvertaka fyrir það
að Benedikf verði utanríkis-
ráðherra, en krefjast þess að •
Sjálfstæðisflokkurimn taki
við þvi ráðuneyti, ef Guð-
mundur hættir, en Alþýðu-
flokkurinn fái eitthvað ann-
að i staðinn.
Föstudagur 14. ’júní 1963 — 28- árgangur ■—■ 131. 'tölublað.
Einar Olgeirsson ritar grein í Þjóðviljann í dag og er IMn
birt á 4. síðu, — Greinina nefnir Einar
EFTIR K0SNINGAR