Þjóðviljinn - 05.07.1963, Qupperneq 8
3 SlÐA
ÞJÓÐVILIINN
Fimmtudagur 4.
'júlí 1563
GWEN BRISTOW:
JT
I
HAMINGJU
LEIT
— Ég ætlaði einmitt að fara
að kalla á þig. Gætirðu hugsað
þér að eiga þennan hér? Garnet
hafði sezt við hliðina á henni.
Florinda rétti fram hringinn
með stóra akvamarínsteininum.
—■ En ég get ekki tekið við
honum. Florinda. hrópaði Garn-
et.
— Æjú, taktu hann. Mig lang-
ar til að gefa þér hann. Finnst
þér hann ekki fallegur?
— Florinda yppti öxlum.
— Þetta er svq sem ekkert sér-
stakt verðmæti vina mín. Akva-
marín er enginn gimsteinn, auk
þess skiptir verðmætið mig ekki
máli. Hún fleygði steininum til
Gametar. Hún greip hann. Ljós-
ið endurspeglaðist á blágrænurn
fletinum. Kannski var hann ekki
sérstaklega dýrmætur. en hann
var að minnsta kosti verðmeiri
en svo að henni líkaði það að
Florinda skyldi kasta honum
svona. Henni datt dálítið í hug
og hún hrópaði:
— Heldurðu að ég hafi reiðzt
vegna þess að þú sagðir þetta
um John í gær Það er mesti
misskilningur. Ég vona að ég
sé ekki svo vitlaus að móðgast
yfir því að Þú segir þitt álit
þegar ég bið þið um það.
— Það veit ég vel. En ég
var fyrir löngu búinn að hugsa
um að ge'fa Þér þennan hring.
Ég vil ekki eiga hann. Ég reyndi
að gefa Donu Manuelu hann,
eins og þú manst, en hún vildi
heldur silfurhnappana. Finnst
þér hann ekki fallegur?
— Hann er dásamlegur. sagði
Gamet, — en ég vildi samt
heldur að þú ættir hann sjálf.
— Ég get ekki notað hann,
staðhæfði Florinda.
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og
snyrtistofa STEINtJ og DÓDÓ
Laugavegi 18 ni. h (lyfta)
Sími 24616.
P E R M A, Garðsenda 21,
sími 33968. Hárgreiðslu- og
snyrtistofa.
Dömur, hárgreiðsla við
alira hæfi.
TJARNARSTOFAN,
Tjamargötu 10. Vonarstrætis-
megin. — Sími 14662.
HÁRGREIÐSLUSTOFA
AUSTURBÆJAR
(María Guðmundsdóttir)
Laugavegi 13 — sími 14656.
— Nuddstofa á sama stað. —
— Þú þarft ekki að nota
hann sem hring, sagði Gamet
og sneri honum á alla vegu í
ljósinu. — Þú getur látið setja
hann í aðra umgerð. Haft hann
sem hálsmen í festi til dæmis.
Þú hefur gVo fallegan háls.
Florinda svaraði ekki. Garnet
leit upp. Florjnda sat og horfði
á hana og dálítið undrunarbros
lék um varir hennar. Þegar hún
sá brosið, áttaðf hún sig á því
sem hún hafði sagt. Hún hafði
verið að hugsa um sjálfa sig og
John og gleymt ákvörðuninni
sem hún hafði tekið í gistihús-
herberginu í New Orleans, að
minnast aldrei á brunaörin. Hún
fann hvernig hún kafroðnaði.
þegar Florinda sagði:
— Gamet, veiztu það, að all-
an þann tíma sem við höfum
þekkzt, heíurðu aldrei minnzt á
það einu orði að neitt væri at-
hugavert við hendumar á mér?
Gamt leit niður. — Ég ætl-
aði ekki að gera það, sagði
hún.
— En góða Gamet, þefta er
allt í lagi. sagði Florinda.
— Vertu ekki að roðna vegna
þess arna.
En Gamet treysti sér ekki til
að líta upp. — Viltu fyrirgefa
mér, ég skal aldrei minnast á
það framar.
— Já, en Gamet, það gerir
ekkert til. Líttu á mig, vina
mín. t
Garnet leit upp. Florinda
brosti ástúðlega til hennar.
— Ef þú hefðir spurt mig um
hendurnar á mér daginn góða í
New Orleans, þá hefði ég engu
getað svarað. Það var svo ný-
lega af staðið, og ég átti fullt
í fangi með að halda lífi í þeim.
Ég bjóst við að þú myndir
spyrja mig þegar ég fór úr
kjólnum, og ég ætlaði að segja
þér að ég hefði hrasað og dott-
ið inn í eldstóna. En þú spurð-
ir einskis. Ég vissi þá hvaða á-
lit ég hafði á þér. Ég vissi að
þú varst stórbrotin manneskja.
Ég gat ekki sagt þér það. Ég
gat ekki talað um hendurnar á
mér og allt í sambandi við þær.
En það get ég núna.
Gamet hristi höfuðið. — Þú
þarft þess ekki, Florinda.
— En ég hef ekkert á móti
því, Gamet. Sjáðu til, ég átti
langt samtal við Risann eina
nóttina og síðan hefur mér lið-
ið miklu betur. Það var eins
og hugur minn hreinsaðist allur.
Og þú ert bezta vinkona min
og ég vil ekki að neitt standi á
milli okkar.
— Þú þarft ekki að segja mér
það, sagði Garnet lágri röddu.
— Ég á við — ég held ég
viti það.
— Þú veizt það? En hversu
mikið?
— Ég gat mér þess til. Nótt-
ina eftir jarðskjálftann, Ég held
það hafi verið litla telpan þín.
Florinda kinkaði kolli. Hún
hrökk hvorki við né fór að
titra. Nú þoldi hún að minnzt
væri á þetta. Garnet hélt áfram.
— Þú gazt ekki talað um
bamið þitt og þú gazt ekki
heldur talað um hendumar á
þér. Þú þoldir ekki þegar þeir
brenndu sárið mitt í Archillette.
Og kvöldið sem kviknaði í
kjólnum þínum og þú hljóðað-
ir, þá var eins og allir bútamir
féllu saman.
Florinda hafði hlustað undr-
andi á orð Gametar: — Þú hef-
ur vitað þetta í þrjá mánuði og
þú hefur ekki sagt orð.
— Nei, og ég ætlaði mér ekki
að gera það núna heldur. Ég
vissi ekki að þú ættir hægara
með að tala um það.
—• Elsku vina mín, gagði Flor.
inda og nokkra stund þögðu
þær báðar.
Florjnda lyfti höndunum og
sneri þeim til og frá. — Þær
em ekki eins hræðilegar og þær
voru, finnst þér? Þær eru ekki
eins rauðar, en þær verða sjálf-
sagt alltaf Tjótar.
— En þú ert svo dugleg að
beita þeim. Og hanzkamir fara
þér svo vel.
— Ojá, já, ég er býsna dug-
leg. Þegar strákamir sjá á mér
hendumar og byrja að sPyrja,
þá gef ég þeim alTs konar bjána-
Teg fvör. Hún hreyfði fingurna.
— En sumt get ég ekki gert. Ég
get kreppt hnefana, sjáðu —
en ég get ekki teygt úr fingr-
unum. Ég get ekki náð yfir
áttund á píanóinu og ég get ekki
hreyft fingurna nógu hratt til
að Tejka á gítar. og eins og þú
hefur séð, þá get ég ekki saum-
að út. En ég bjarga mér samt.
Hún talaði rólega, rólegar en
Gamet hefði getað ímyndað sér,
að hún gæti talað um hendurnar
á sér. Florinda hélt áfram að
horfa á þær Qg sagði: — Ég
er fegin að þú skulir vita þetta.
Nú held ég Tíka að ég geti sagt:
— Gamet, viltu hjálpa mér með
þetta, ég er svo stirð. Það gat
ég ekki áður.
Hún leit aftur á Gametu:
— Jæja, nú er þetta búið og
gert og ég get taTað hreinskiln-
islega. Hún rétti fram handlegg-
inn og tók akvamarínhringinn.
— Garnet, ég mu,n aldrei nota
hann, hvorki sem hring né
hálsmen og ég skal segja þér
hvers vegna. Hann er gjöf frá
föður Titlu telpunnar minnar.
— Ó, sagði Gamet. — Þá skil
ég þig.
— Hann gaf mér margt og
mikið, hélt Florinda áfram.
— Hann var ríkur og hugulsam-
ur. Ef hún hefði ekki fæðzt,
hefði ég ekki tekið gjafir hans
hátíðlegar en annarra. En þeg-
ar ég horfði á hlutina sem
hann hafði gefið mér, þá gat
ég með engu móti borið þá eft-
ir að hún dó. Þess vegna seldi
ég það allt saman í New Orle-
ans. En skartgripasalinn vildi
ekki greiða mér nógu gott verð
fyrir hribginn, svo að ég hugs-
aði mér að selja hann seinna,
ef ég fengi tækifæri til. En svo
lenti ég hér. Ef þú vilt hring-
inn, þá máttu eiga hamn. en
þú skalt ekki halda að þú takir
neitt frá mér.
taka við hringnum. fyrst Flor-
inda hélt þvi til streitu, en
hún bjóst ekki við að hún
myndi nota hann. Florinda
horfði á hringinn og brosti að
endurminningum sínum.
— Það var indælis piltur,
sagði hún. — Afskaplega
skemmtilegur. Hann hristi af sér
brandarana. Hvað skyldi ann-
ars hafa orðið um hann. Hún
leit upp og það var eins og
henni hefði dottið eitthvað í
hug: ■— Heyrðu mig, Garnet.
— Já, hvað þá?
— Þú gætir komizt að því
fyrir mig, er það ekki?
— Komizt að því hvað um
hann varð? Já, en hvemig á ég
að fara að því?
— Þú gætir spurt. Það gæti
hugsazt að einhver af þessum
New York piltum sem allt mor-
ar hér af, þekkti hann. Ég vil
ógjarnan spyrja sjálf — sjáðu
til. hann skammaðist sín svo
hræðilega fyrfr þetta allt sam-
an, og uk þesg ætlaði hann að
fara að gifta sig, og ég vil ekki
að piltarnir fari aftur til New
York með einhverja vitneskju
sem gæti komið sér illa fyrir
hann. En hann var úr sömu
stétt og þú. Þú hefðir getað
þekkt hann. Kannski gerðir þú
það lika. Þú gætir sagt: ,,Já,
annars, það er gamall kunningi
minn — —“
— Auðvitað gæti ég það hæg-
lega, sagði Gamet. — Það er
skringileg tilhugsun að ég skuli
kannski hafa þekkt einhverja af
aðdáendum þínum frá þeim
tíma. Hvað hét hann?
Florjnda fékk henni hring-
inn. — Hérna. taktu við hon-
um. Hann var úr forrikri fjöl-
skyldu við Bleecker-stræti.
Hann hét Henry Trellen.
Garnet missti hringinn í gólf-
ið.
— Þekktirðu hann í alvöru?
spurði Florinda.
— Já, sagði Garnet. Hún gat
ekki sagt meira í svipinn.
Henry Trellen, þessi hátíðlegi
leiðindahundur — og Florinda
hafði rétt i þessu verið að segja
að hann hefði rifið af sér brand-
arana. Henry Trellen sem gekk
með henni um Broadway og
sagðist aldrei hafa komið í
Skartgripaskrínið og svaraði
henni með hátíðleik: — ,.Ég er
sannfærður um það, ungfrú
Cameron, að þær skemmtanir
sem Skartgripaskríhið hefur
upp á að bjóða, gæ'tu hvorki
verið yður til ánægju né upp-
byggingar." Henry Trellen og
Florinda! Með hásrl, hálfkaéfðri
röddu sagði hún; — Florinda,
hvenær þekktirðu Henry Trell-
en?
— Meðan ég var í Skart-
gripaskríninu. Ég sá hann síð-
ast kvöldið áður en ég fór frá
New York. Hann sagði mér —
ó, en Gamet! Florinda þagnaði.
— Já, já, hvenær var það?
Hvenær fórstu frá New York?
Florinda ]eit á hana stórum
undrunaraugum. Það var líka
undrunarhreimur í rödd hennar.
— í ágúst 1844. Hann sagði
mér að móðir hans hefði fundið
stúlku sem hann ætti að gift-
asf. Gamet, bað hann þín?
— Já, í september sama ár.
Rétt áður en ég hitti Oliver.
Sagði hann að móðir hans hefði
fundið handa honum stúlku?
— Já, hann sagði að það væri
indæl stúlka og kannski gæti
hún gert mann úr honum.
— Þá var hann að tala um
mig.
Florinda var fljótmælt og það
var eins og hún ættí eTfitt með
að átta sig á hugsunum sínum.
— Ég veit ekki af hverju ég er
svona hissa. Það voru ekki
margar manneskjur í New York
sem frú Trellen áleit standa
sér jafn'fætis. þannig að í þeim
hópi hafa naumast verið marg-
ar gjafvaxta ungmeyjar. Þú
varst vel ættuð, þú hafðir geng-
ið í góðan skóla, þú varst ung
og falleg og siðprúð — hún hef-
ur haldið að einmitt stúlka eins
S KOTTA
Pabbi. Þú ættir að minnsta kosti að gefa Jóa tækifæri til
þess að snúa regnklæðinu út.
Ábyrgðarstörf
Vér óskum að ráða nú þegar eða sem allra fyrst
tvo nýja starfsmenn á skrifstofu vora.
1. Tjónaeftirlitsmann í Brunadeild.
2. Skrifstofumann til að starfa við IBM vélar.
Samvinnuskóla eða hliðstæð menntun æskileg.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu vorri.
Sambandshúsinu 2. hæð.
Nýtt — Odýrt
GóIfteppadr&.Jar
3 m breidd 900/—■
GANGADREGLAR
1,35 m. breidd 295/,
SKOÐIÐ I
SÝNINGARGLUGGANN
Viðargólf
Höfum ávallt fyrirliggjandi hið þekkta danska
JUNKERS BEYKIPARKET í borðum. Afburða sterkt,
fallegt og ódýrt og mjög auðvelt að leggja. Einnig
fyrirliggjandi BW-EIKARPARKET í plötum 48x48 cm
að stærð.
Viðargólf, lökkuð með BLISTA plastlakki, þarf aldrei
að bóna — nægilegt er að strjúka yfir þau með
rökum klút.
Fallegt viðargólf er prýði sérhvers heimilis.
EGILL ÁRNASON
Slippfélagshúsinu v/Mýrargötu
Símar: 1-43-10 og 2-02-75.
Æ, — þar flaug kúlan stjórn-
laust út í buskann.