Þjóðviljinn - 10.07.1963, Síða 1
DimUINN
Miðvikudagur 10. ]úlí 1963 — 28. árgangur — 151. íölublað.
Ekkert samkomulag enn
í verkfræiingadeilunni
SI. laugardag hófust viðræð- ingum scm Þjóðviljinn aflaði ið í algeru verkfalli síðan f
ur milli fulltrúa Stéttarfélags sér í gær hafa þær enn eng- júnílok er þeir hófust handa
verkfræðinga og atvinnurek- an árangur borið. um að knýja fram samnmga.
enda en samkvæmt upplýs- Verkfræðingar hafa nú ver-
Síldaraflinn
orðinn
357.962 mál
og tunnur
1 skýrslu Fiskifélags Is-
lands um síldveiðina í síð-
ustu viku segir að reyt-
ingsafli hafi verið á mið-
unum fyrir austan, veður
gott en þoka nokkuð haml-
að veiði.
Vikuaflinn var 120.043
mál og tunnur (í fyrra
97.850) og var heildaraflinn
í vikulok orðinn 357.962
mál og tunnur (í fyrra
206.554).
Aflinn skiptist þannig
eftir hagnýtingu:
I salt, uppsaltaðar tunnur
47.120.
f bræðslu, mál 297.942.
I frystingu, uppmældar
tunnur 12.900.
1 vikulokin höfðu 205
skip fengið einhvem afla,
þar af 166 500 mál og tunn-
ur og þar yfir. Er birt
skrá yfir þau á 2. síðu.
Lang aflahæsta skipið var
Sigurpáll með 8922 mál og
tunnur og næstur kom Sig-
urður Bjarnason frá Akur-
eyri með 7378 mál og tunn-
ur. Engin önnur skip höfðu
aflað yfir 6000 mál.
Ágæt síldveiði í fyrrinótt —
mikil söltun nyrðra í gærdag
Heildarsöltunin
á sunnudagskvöld
var 56.665 tunnur
Siglufirði í gær. — Heildar-
söltun á öllu landinu nam sl.
sunnudagskvöld 56.665 tunnum og
skiptist hún svo eftir stöðum:
Raufarhöfn
Siglufjörður
Norðfjörður
Ólafsfjörður
Seyðisfjörður
Dalvík
Hrísey
Húsavík
Þórshöfn
Bakkafjörður
Reyðarfjörður
Vopnafjörður
20.336
14.080
7.064
2.525
4.151
1.230
1.652
2.446
328
140
1.158
1.521
tunnur
Samkvæmt upplýskig-
um fréttaritara Þjóð-
viljans á Siglufirði í
gærkvöld hefur síðan
fyrir helgi verið stanz-
lítil sölíun á Siglufirði
og í gær var þar saltað
á hverri einustu söltun-
arstöð en þær eru yfir
20 talsins. Sagði frétía-
ritarinn að síðustu tvo
sólarhringa, þ.e. frá
sunnudagskv. til þriðju-
dagskvölds væri búið að
salta á Siglufirði 23—25
þúsund 'funnur og er það
langmesta söltunin á
sumrinu.
í fyrrinótt var ágætis síldveiði
vestan til á Sléttugrunni og var
síldarleitinni í gærmorgun kunn-
ugt um 56 skip með rösklega 35
þúsund mál og tunnur sem til-
kynnt höfðu um afla sinn. Síld-
in var góð og feit og fór að
langmestu leyti í söltun en aðeins
smáslattar af hverju skipi fóru
í bræðslu. Var saltað í gær af
kappi á öllum söltunarstöðvum
norðanlands frá Langanesi til
Siglufjarðar. Flest skipin fóru að
sjálfsögðu til Siglufjarðar og
Raufarhafnar en til Siglufjarðar
var 9-10 tíma sigling af miðun-
um.
Engin síldveiði var Austan-
lands í gær enda bræla á mið-
unum.
Aflahæsta skipið í fyrrinótt var
Sigurpáll er fékk um 2000 mál
sem hann fór með til Ólafsfjarð-
ar.
Myndin cr tekin á flugvclMnum við Moskvu þegar kínverska sendinefndin kom þangað. Formenn
samninganefndanna sjást á myndinni, Mihaíl Súsloff til vinstri og Xeng Sjaó Ping til hægri.
Hlé á viðræðunum í Moskvu
milli kommúnistaflokkanna
MOSKVU 9/7 —• Gert hefur verið hlé á viðræðum komm-
únistaflokka Kína og Sovétríkjanna sem hófust í Moskvu
á föstudaginn. Kínversku fulltrúarnir mættu ekki á fund-
arstaðnum á tilsettum tíma í morgun og síðar um dag-
inn var það haft eftir góðum heimildum að viðræðunum
hefði verið frestað að ósk Kínverja sem vildu fá ný
fyrirmœli frá yfirboðurum sínum í Peking.
Samkvæmt sömu heimildum
verða viðræðumar teknar aftur
upp fyrir hádegi á morgun, en
þá verður ræðzt við í aðalstöðv-
um miðstj. sovézka flokksins.
Þegar það fréttist að kínversku
samningamennimir sjö hefðu
ekki mætt til fundar í morgun,
kom strax upp sá orðrómur í
Moskvu, að viðræðunum væri
Samningar tókust við
málara á laugardaginn
Engir fundir með skipasmiðum yfir helgina
■ Á laugardagskvöld voru undirritaðir samningar milli málara og
málarameistara, en Málarafélagið hafði boðað vinnustöðvun gagn-
vart meisturum frá og með miðnætti s.l. laugardag.
■ Tímakaup málara (dagv.) verður nú kr. 38,94 og h^fur því
hækkað um 19% frá því að samningar hófust í maí, en þar er
innifalin 4% hækkun tímakaups og 1% hækkun verkfæragjalds, sem
tók gildi 1. júní s.l. en þá var samningaumleitunum fresíað um sinn.
Eins og segir hér að fram-
an voru samningarnir undir-
ritaðir seint á laugardag, og
hækkar tfmakaup um 12,5%
auk nokkurrar hækkunar á
verkfæragjaldi. Hækkunin á
tímakaupinu er því hin sama
og samanlagðar þær hækk-
anir, sem almennu verkalýðs-
félögin hafa fengið á þessu
ári.
Málarafélagið setti fram
kröfur sínar þann 19. mai
í vor og var þar krafizt
kjarabóta, sem námu sem
næst 20%. Samningaumleit-
anir hófust skömmu síðar en
var frestað með bráðabirgða-
samkomulagi um 4 % kaup-
hækkun og 1% hækkun verk-
færagjalds frá 1. júní að
telja. Fyrir þann tíma var
tímakaup málara að með-
töldu orlofi og verkfæra-
gjaldi kr. 32,72 en er nú sam-
kvæmt hinum nýja samningi
kr. 38,94, en það er að öllu
samanlögðu 19% kauphækk-
un.
Málarafélagið er fyrsta iðn-
aðarmannafélagið, sem samið
hefur verið við á þessu
ári, en eins og kunnugt er
hefur Vinnuveitendasamband-
ið þrjózkast við að semja við
þau um svipaðar hækkanir og
önnur verkalýðsfélög.
Ekkert gerðist í
deilu skipasmiða
Engir samningafundir voru
hins vegar með skipasmiðum
og vinnuveitendum yfir helg-
ina, en síðasti samningafund-
ur þeirra stóð sem kunnugt
er til kl. 7 á laugardagsmorg-
uninn. En þess verður að
vænta, að vinnuveitendur láti
af hinni furðulegu afstöðu
sinni að hindra samninga við
einstök félög vikum saman
eins og þar hefur verið gert.
slitið. Fram eftir degi reynd-
ist hvergi unnt að fá neitt að
vita með vissu um hvort viðræð-
unum yrði haldið áfram og neit-
uðu allir aðilar sem fréttamenn
leituðu til að láta nokkuð uppi.
Það var ekki fyrr en leið á dag-
inn að það hafðist upp að nýr
fundur yrði með samninganefnd-
unum á morgun.
Litlar líkur á sáttum
Orðrómurinn um viðræðuslit
var að því leyti ekki fjarri lagi
að í Moskvu er það almenn skoð-
un að ekkert hafi miðað í sam-
komulagsátt á fundunum fram
að þessu, enda þótt ekki hafi
verið látið neitt opinberlega uppi
um hvað samningamönnunum
hefur farið á milli.
Samninganefndirnar munu hafa
gert grein lyrir sjónarmiðum
flokka sinna og ekkert það komið
fram á fundunum hingað til sem
gefi til kynna að um málamiðlun
geti verið að ræða eins og nú
horfir.
Gagnkvæmar ásakanir flokk-
anna og ríkisstjómanna hafa
einmitt ágerzt síðustu daga og
þykir það ekki spá góðu um
niðurstöðu viðræðnanna.
Atkvæðisrcttur eftir
mannfjölda?
Ýmsar sögur ganga um það
sem gerzt hefur á fundunum og
kveðst fréttaritari Reuters þannig
hafa það eftir áreiðanlegri heim-
ild að Kínverjar hafi þegar í
upphafi viðræðnanna krafizt þess
að ef haldin yrði ný alþjóðaráð-
stefna kommúnistaflokkanna yrði
reglum um atkvæðisrétt flokk-
anna breytt þannig að hver fengi
atkvæðamagn f samræmi við
fólksfjölda í landi hans og fé-
lagatölu flokksins. Ekki var bess
getið hvernig þeirri kröfu hef^
verið tekið.
Vöruskipta-
jöfnuðurinn
óhagstœður
um 72 millj.
I MAl-MANUÐI varð vörusklpta-
jöfnuðurinn við útlönd óhag-
stæður um 30,8 milljónir
króna. Fimm fyrstu mánuði
ársiins voru vöruskiptin ó-
hagstæð um samtals 72,5
milljónir króna.
ÚTFLUTNINGURINN í maí sl.
nam 377,9 millj. króna, en
innflutningurinn 408,8 millj-
jónum. I maí-mánuði í fyrra
varð vöruskiptajöfnuðurinn ó-
hagstæður um 19,3 millj.
króna. Þá voru fluttar út
vörur fyrir 394,0 millj. króna
en inn fyrir 374,6 milljónir.
FIMM FYRSTU MÁNUÐI þessa
árs voru fluttar út vörur héð-
an fyrir 1563,8 millj. króna,
en inn fyrir 1636,4 milljónir.
Sömu mánuði í fyrra voru
vöruskiptin við útlönd hag-
stæð um 167,0 millj. króna.
Þá nam útflutningurinn sam-
tais 1521,9 milljónum króna
en innflutningurinn 1354,8
milljónum.
67 þús. mál og t.
til Neskaupstaðar
Neskaupstað 9. júlí. — Síldar-
bræðslan hér er búin að taka
á móti 60 þús. málum til bræðslu.
Saltaðar hafa verið 7000 tunn-
ur á fjórum söltunarstöðvum.
Bræla er nú á miðunum og hafa
skipin haldið norður eftir.
R. S.
Jaíntefíi
og biðskák
hjá Fríðriki
1 3. umferð Piatigorskisskák-
mótsins í Los Angelles urðu úr-
slit þau að Petrosjan vann Benkö
og Najdorf og Gligoric gerðu
jafntefli. Biðskákir urðu hjá
Friðrikj og Reshevsky, Panno og
Keresi og er staðan í báðum
skákunum jöfn.
1 4. umferð gerðu Benkö og
Gligoric jafntefli en aðrar skák-
ir fóru í bið. Friðrik tefldi við
Keres og var það hörð skák.
Lenti Friðrik í miklu tímahraki,
þurfti að leika 8 síðustu leik-
ina á 2 mínútum. Komu þejr
með jafnt lið út úr þeim svipt-
inum. Najdorf á betri stöðu gegn
Reshevsky en staðan í biðskák
þeirra Petrosjans og Pannos er
jöfn.
Panno vann biðskákina við
Reshevsky úr 2. umferð.
Að loknum þessum fjórum
umferðum er staðan þessi: 1.
Gligoric 2V2, 2. Najdorf 2 og 1
bið, 3. Keres 1% og 2 bið, 4.
Petrosjan 1% og 1 bið, 5.-7.
Friðrik, Panno og Reshevsky 1
og 2 bið, 8. Benkö V2.
Biðskákir voru tefldar í gær
en 5. umferð verður tefld í dag
og hefur Friðrik þá svart gegn
Petrosjan.
Síðustu fréttir
Biðskák Friðriks og Reshev-
"kys úr 3 umferð varð jafn.
‘efli Friðrik á betra í biðskák-
inni vfð Keres.
/»