Þjóðviljinn - 10.07.1963, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 10.07.1963, Blaðsíða 6
g SÍBA Haka-heimsóknin: HðÐVILUNN Miðvikudagur 10. júlí 1963 Landsliðið náði ekki saman, gerði jafntefli við fínnana Þriðji og síðasti leikur hins flnnska liðs Haka var við til- raunalandslið það sem lands- liðsnefnd hafði valið, og mun nokkur eftirvænting hafa ríkt um það hvernig til tækist. Veð- ur var hið bezta sem hægt er að óska, nema svolítil sól, svo að öll aðstaða var til að geta sýnt það sem í mönnum bjó. Því miður varð leikur lands- liðsins heldur tilþrifalítill frá upphafi til enda, og fátt kom fram sem benti til þess að vel hafi tekizt um valið, og það má raunar spyrja um leið: Hvemig er hægt að velja það sterkara? Finnska liðinu tókst betur upp það sem það var, en í heild var leikurinn lítið skemmtilegur. Samleikur Finn- anna var meira leikandi og þeim gekk betur að finna hver annan, þótt þeim tækist ekki að brjótast í gegn, nema örsjaldan og þá mistókst þeim skotin, eða Helgi Dan greip inní með ágætum, og má segja að hann hafi forðað íslenzka liðinu frá tapi með góðri mark- vörzlu. Annars var vöm íslenzka liðsins betri helmingur þess og þeir ljósu punktar sem fram komu voru í vöminni. Má þar nefna Helga aftur, sem sýndi enn einu sinni að þegar á reyn- ir stendur hann enn fyrir sínu, og aðrir gera ekki betur. Hann ásamt Bimi Helgasyni, voru beztu menn varnarinnar og liðsins. Björn var mjög virkur, bæði í sókn og vöm, og að öllum líkindum er framvarðarstaðan betri fyrir Bjöm. Tilraunin rrieð Jón Stefánsson sem bak- --------------------———S> ísafjörður— Hafnarfj. 2:1 Hafnfirðingar léku á ísafirði á laugardaginn í 2. deildar keppninni og töpuðu þar fyrir heimamönnum með litlum mun. Leikurinn var mjög lé- legur og hending ejn hver fara myndi með sigur. Oft var gróft leikið og fjöldi tækifæra fór forgörðum. mL.---—...... .... ■ ...___ Vaiur sigraði Meistaraflokkur Vals er i keppnisför í Noregi. Hafa Valsmenn nú leikið fyrsta leik sinn þar í landi og fengu sem mótherja úrvalslið frá Uppsölum. Valsmenn sigruðu með fjórum mörkum gegn einu og höfðu talsverða yfirburði. Alls munu Valsmenn leika fimm Ieiki í ferðinni, fjóra í Noregj og einn í Danmörku, gegn Lyngby. lilll Finnski markvörðurinn grípur hér vel inn í leikinn, handsamar knuttinn örugglcga. Þ.v. A.K. vörð var ekki misheppnuð og er Jón ekki alveg nýliði í stöðunni þótt hann leiki venju- lega miðvörð. Þá var nokkuð gaman að sjá nýjan mann í stöðu miðvarðar, en það var Keflvíkingurinn Sigurvin Ölafsson, og verður ekki annað sagt en að hann hafi sloppið nokkuð vel frá þessari fyrstu landsliðs-raun. Hann er frískur og hefur mik- inn baráftuviíjá, bg staðsetn- ingar hans voru furðu góðar. Hann vantar enn að vísu hreinni cpyrnur og meira hnit- miðaðar, og þegar hann hefur lagað þann ágalla ætti hann að geta orðið sterkur miðvörð- ur. Ámi Njálsson virðist ekki i sinni beztu þjálfun, og má vera að það auki á hörku hans, sem stundum er fullmikil. Sveinn Jónsson var veikasti hlekkur- inn f vöminni að þessu sinni. Annars féll vömin sem heild nokkuð vel saman og barðist með krafti. Framlínan sundurlaus og „bitlaus" Framlína sú sem reynd var náði mjög illa saman, og voru þar allir svipaðir. Gunnari Fel- ixsyni sem „leiðtoga“ línunnar tókst ekki að sameina þá um verkefnin. og sjálfur hefur hann átt mun betri leiki und- anfarið. Ellert við hlið hans var yfirleitt of seinn að af- greiða knöttinn, og var honum því ekki eins til aðstoðar og hefði mætt ætla af innherja. Svipað er að segja um Skúla Ágústsson, hinn innherjann; milli þeirra skapaðist aldrei það samband sem hefði þurft að vera. Sigurþór, útherjinn vinstri, var oft frískur og fljót- ur og barðist, en það rann mest útí sandinn vegna þess að sam- bandið vantaði á milli, bæði innávið og eins aftur við fram- vörðinn. Axel Axelsson sem hægri út- herji var naumast með í fyrstu 20 mínúturnar vegna þess að ekki var leikið á hann og þann tíma sem eftir var náði hann ekki því sem af honum var búizt, og var hann settur útaf í hálfleik! í hans stað kom svo Kári Ámason, og breytti það en-gu. Hann sem þó hefur oft komið á óvart gat ekki sýnt neitt sem verulega Iífgaði upp á leik framlínunnar. Það má því segja að allir hafi þessir menn leikið lakar en þeir eiga vanda til með lið- um sínum, hvernig sem á því stendur. Vafalaust verður þetta svona þar til leikmenn hafa tamið sér að Ieika knettinum yfirleitt strax og að þeir sem ekki hafa knöttinn séu á stöð- ugri hreyfingu til þess að vera tiltækir og eins til þess að Ir.f-'r' TTið gæzlu mótherjans. Framhald á 7. síðu Grísk-rómverks fjölbragðaglíma? Nei, þeir eru í knattspymu. Kári frá Akurcyri á í höggi viið einn Finnann. (Ljúsm. Þjóðv. A. K.). Finnarnir sigruðu Reykjavíkurúrva! Fjnnsku meistararnir Haka léku annan leik sinn hér á laugardag og mætfu þá liði gestgjafa sinna KRR. Finn- arnir sigruðu verðskuldað með 4 mörkum gegn tveimur. Leik- urinn var ekki skemmtilegur á að horfa, deyfð var yfir báð- um liðum og samleikurinn hjá okkar mÖnnum náði lítt fram að ganga. Finnamir voru all- an leikinn betra liðið og áttu mun meira i leiknum. Fyrri hálfleikur 1:1 Þrátt fyrir að sókn Finn- ani.a hafði verið mun þyngri strax frá byrjun leiksins, þá tókst þeim ekkj að nýta tæki- færin með fullum árangri. Kom þar til oft á tíðum ágæt markvarzla Geirs og svo fram- hjáspyrnur. Björn Helgason komst í all- sæmilegt færl á 20. mín. en spyrnfi framhjá og Baldvin var mínútu siðar í allgóðu færi en markvörður varði mjög vel. Tveimur mín. síðar leikur Björn upp kantinn hægra meg- in, sendir síðan knöttinn inná miðjuna til Baldvins sem leik- ur þar á markvörðinn, sem kom út á móti og skorar í autt markið; 1:0. Litlu síðar bjargar Árni marki með góðri staðsetningu á marklínunni en skotið hafði verið að marki og knötturinn lenti í einum okkar manna og breytti við það stefnunni sem hefði orðið vonlaus fyrir Geir að verja. Lathi hægri innherji. skapar sér ágætt tækiíæri á 36. mín. en spyrnir yfir, en íveimur minútum síðar fær hann sendingu inn á vítateig- inn og skorar óverjandi í stöng og inn — 1:1, Síðarj liálfleikur 3:1 . Annað mark Finnanna kom á 10. mín. síðari hálfleiks og var þar að verki miðfram- herjinn Tuuri, sem fékk á- gæta sendingu í opnu færi og skoraði óverjandi 2:1. Áður hafði Tuuri komizt tvívegis í allgóð tækifæri á 5. og 8. min. en i hvorugt sinnið tókst honum að skora. Reykjavikurúrvalið jafnaði á 14. mín. en það var Björn sem spymti fremur lausum og auðveldum bolta að marki sem markvörður hefði undir öllum kringumstæðum átt að geta varið. en hann missti knöttinri út úr höndunum á sér, sem rúllaði siðan í netið. — 2:2. Mínútu síðar fremur Halldór grófa bakhrindingu á miðfram- herjann og dómarinn dæmjr réttilega vítaspyrnu. Malm, hægri jnnherji, spyrnti með glæsilegu skoti út við stöng Ferðizt í Volkswagen — Akið sjálf nýjum bíl Höfum til leigu Volkswagen og Land-Rovei Sé bifreiðin tekin á leigu i einn mánuð eða lengri tíma, þá gefum við 10 — 20% afslátt á leigugjaldi. — Leigjum bifreiðir okkar allt niður i 3 tíma. MM\ BIFREIÐALEIGAN h.f. REYKJAVIK Klapparstig 40 sími 1-37-76. KEFIAVÍK Hringbraut 106 3Ími 1513. AKR^MES Suðurgötu 64 sími 1.70.' sem Geir tókst ekki að verja. — 3:2. Finnar fengu aukaspyrnu á vítateig á 25. min. og $kjóta að marki en skotið lendir í Ragnari og hrekkur síðan í hönd hans alveg óvart. Dóm- arinn, Grétar Norðfjörð. dæm- ir vítaspyrnu og leikmenn sem áhorfendur verða furðu lostn- ir. En Grétar er ósveigjanleg- ur og Malm framkvæmir spym- una og missir marks, spyrnti nokkuð hátt yfir. Gunnar Guðmannsson spyrnti á 34. mín. úr erfiðri stöðu, en miðframvörðurinn Valtonen bjargaði, metra frá marklínu. Fjórða mark Finnanna kom é 36 mín og setti það Tuuri sem fékk sendingu frá inn- herja. lagði síðan knöttinn lag- lega f.vrir sig og spyrnti ó- verjandi. — 4:2. Liðin Eins og áður segir átti finnska liðið mun meira í leiknum og voru betri að öllu leyti. Ekki $ýndu þeir þó neina stórkostlega knattspyrnu held- ur þetta sem við eigum að venjast en hafa þó yfirburði í leikni yfir okkar menn. Það gerði gæfumuninn. Beztir voru miðframv. Valtonen. h. ínnh. Malm og miðframh. Tuuri. Reykjavíkurúrvallð náði illa saman og áttj ekki góðan leik. Tvær breytingar voru á liðinu, Sveinn og Jens léku ekki með en í þpirra stað léku þeir Ragnar og Ásgeir. Skástir VQru Geir, Árni, Biarni. Bjðm og Gunnar G. Dómari var Grétar Norðfjörð. er dæmdi yf- irleitt vel að undanskjlinni vítasp.vrnunni sem hann mis- reiknaði sig á. — h. Framhald af 5. síðu. týna lífinu ef hann kasta$t ui úr hinum loftþétta stýrisklefa Oft eru fallhlífar notaðar til að koma allskonar vamingí á jörð niður. Þær skila ör- ugglega hinum litlu viðkvæmu mælitækjum sem send eru upp í allt að 50 km. hæð með loft- belgjum til rannsókna á' and- rúmsloftinu — en þ*r geta einnig.svifið niður með margra tonna byrði. Flutningaflugvélin Lockhe'dd Hercules er sérstaklega byggð fyrir slíka vöruafhendingu. Þar eru notaðar tvær fallhlíf- ar — önnur hrifsar vöruna út úr vélinni, og síðan opnast burð- arfallhlifin. Á þennan hátt er hægt að kasta nlður skotfær- um, brynvörðum bílum og þessháttar — og má partfið vega allt að 15 tonn. Fallhlífar eru einnig notað- ar til að bjarga fjarstýrðum flugvélum svo að þessir dýr- mætu grjpir fari ekki fyrjr lítið. . Þotur nota fallhlífar til að minnka hraðann við lendingu. Ef flugbrautin er of stutt, er þotta til mikils hagræðis því að nauðsynlegur „bruntími“ á braut styttist þá að miklum mun. Vf.ft* óti öuoMumm 759/0 iNtm&MTA ' MHm<tors*6isr6np k > 4 L

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.