Þjóðviljinn - 10.07.1963, Side 3
Miðvikudagur 10. júli 1963
ÞIÖÐVIUINN
SlÐA
13
WASH’NWEAR
65% TERYLENE
35%COTTON
i öllrnn helztu fataverzlunnm landsins
Ljósmyndir
Fræðslumyndasafn ríkisins vill kaupa 24x36 mm
gegnsæjar litljósmyndir vegna útgáfu á flokkum
litskuggamynda. Sérstaklega er óskað eftir
myndum frá Þingvöllum, úr Reykjavík og úr
Gullbringu- og Kjósarsýslu, þar á meðal loft-
myndum. Myndir frá merkisstöðum annars stað-
ar á landinu koma einnig til greina.
Upplýsingar gefur forstöðumaður Fræðslumynda-
safnsins- Borgartúni 7, sími 18340.
Fræðslumyndasafn ríkisins.
bifreiðaieigan HJÓL
Hverflsgðtn 82
Siml 16-3?d
Tilboð óskast
í nokkrar fólksbifreiðir er verða sýndar í Rauð-
árporti miðvikudaginn 10. þ.m. kl. 1 til 3.
Tilboð verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5 sama
dag.
Sölunefnd varnarliðseigna.
Þríveldaviðræður hefjast í Moskvu á mánudag
Griðasáttmáli á milli Nato og
Varsjárbandalags til umræðu
V-:
PARÍS 9/7 — Fastaráð Atlanzhafsbandalagsins hefur að
undanfömu rætt möguleikann á að Nato og Varsjár-
bandalagið geri með sér griðasáttmála og er þeim umræð-
um í ráðinu enn ekki lokið. Sovétstjórnin hefur hvað
eftir annað gert tillögu um slíkan griðasáttmála og nú
síðast Krústjoff forsætisráðherra í ræðu fyrir nokkrum
dögum, þar sem hann sagði að griðasáttmáli milli hem-
aðarbandalaganna ætti að vera forsenda samkomulags um
stöðvun tilrauna með kjarnavopn.
Þau ummasli hans hafa þótt
benda ótvírætt til þess að sovét-
stjórnin muni leggja höfuð-
áherzlu á gerð slíks sáttmála,
þegar fulltrúar hennar, Banda-
ríkjanna og Bretlands koma
saman á fund í Moskvu á mánu-
daginn kemur til að gera enn
eina tilraun að koma á banni
við kjarnorkusprengingum.
Rætt 3. júlí
Fréttaritari frönsku fréttastof-
unnar AFP, Bemard Redmont,
segir að tillaga sovétstjómarinn-
ar um griðasáttmála hafi fyrst
verið rædd í Natoráðinu á fundi
þess 3. júlí og muni umræðum
um hana haldið áfram síðar.
Fulltrúar í ráðinu muni fá
tækifæri til að fylgjast með því
hvemig viðræðunum í Moskvu
um sprengingabann miðar áfram,
enda muni málið verða þeim
mjög viðkomandi, ef svo fer að
fuiltrúar þríveldanna koma sér
saman um að taka það á dagskrá
fundarins í Moskvu.
Spaak samþykkur
Vakin er athygli á því að það hafi
ekki komið á óvart að Krústjoff
forsætisráðherra skyldi nú að
nýju taka upp tillöguna um
griðasáttimála. 15. maí sl. hafði
einn helzti ráðamaður Nato,
Paul-Henri Spaak, sem var lengi
framkvæmdastjóri bandalagsins,
áður en hann tók við embætti
utanríkisráðherra Belgíu, sem
havn gegnir nú, sagt í viðtali
við málgagn sovétstjómarinnar,
„Isvestia", að hann væri bæði
hlynntur griðasáttmála milli
hemaðarbandalaganna í Evrópu
og tillögunni um kjamavopna-
laust svæði í Mið-Evrópu.
Viðræðut við Krústjoff
Spaak hefur nú um helgina
verið í Sovétiíkjunum og ræddi
hann lengi við Krústjoff suður í
Kíeff. Á það er minnt að Spaak
fór á fund Kennedys að lokinni
ráðstefnu Atlanzbandaiagsins í
Ottawa í síðasta mánuði og byk-
ir líklegt að Spaak hafi farið
á fund Krústjoffs í erilídum
Bandaríkjaforseta til að undirbúa
viðræður þær sem nú eru að
hefjast. Spaak er einnig sagður
hafa gert fastaráði Nato grein
fyrir erindi sínu austur áður en
hann lagði í ferðina.
Adenauer og de Gaulle
á móti
Það er haft fyrir satt að
stjómir Bandaríkjanna og Bret-
lands séu nú ekki jafnandvígar
því og áður að slíkur griðasátt-
máli verði gerður. Bandaríkja-
stjóm er þó sögð heldur vilja að
aðildarríki bandalaganna gefi há-
tíðlegar yfirlýsingar um að þau
séu andvíg árásarstríðum en að
undirritaður verði formlegur sátt-
máli.
Andstaða de Gaulle
Hins vegar eru stjómir Frakk-
lands og Vestur-Þýzkaiands sagð-
ar algerlega mótfallnar griða-
sáttmála og beri þær fyrir sig,
að með slíkum sáttmála myndi
Austur-Þýzkalandi, sem er í Var-
sjárbandalaginu, verða veitt ó-
bein viðurkenning.
Spaak ánægður
Krústjoff forsætisráðherra er
einlægur í ósk sinni um friðsam-
lega sambúð ríkjanna og enginn
vafi er á því að sambúð austurs
og vesturs hefur batnað. sagði
Spaak utanríkisráðherra, begar
hann kom heim til Brussel frá
Sovétríkjunum í dag.
Hann kvaðst mundu fara til
Parísar að skýra Natoráðinu frá
viðræðum sínum við Krústjoff.
Hann hefði ekki farið til Sovét-
ríkjanna til að gera neina samn-
inga.
Fundur í Washington
Kennedy forseti var í dag á
fundi Þjóðaröryggisráðsins þar
sem undirbúinn var fundurinn í
Moskvu á mánudaginn. Averell
Harriman ráðherra sem verður
fyrir bandarísku samningamönn-
unum var einnig á fundinum, en
hann heldur áleiðis tii Moskvu
á fimmtudag, en stanzar tvo
daga í London að ræða við
Hailsham lávarð sem verður fyr-
ir brezku samningamönnunum.
Enn furðuleg tíðindi í Profumomálinu
Einn elskhuganna sem talinn
var dauSur og grafinn á lífi?
Sovétríkin mót-
mæla herferðinni
gegn Kúrdum
MOSKVU 9/7 — Gromiko, utan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna, kall-
aði í dag á sinn fund sendiherra
Iraks í Moskvu og afhenti hon-
um mótmæli vegna herferðar Ir-
aksstjórnar á hendur Kúrdum
sem byggja norðurhluta landsins.
Var á það bent að herferðin gæti
haft í för með sér íhlutun ann-
arra ríkja og myndu Sovétríkin
telja öryggi sínu ógnað ef til þess
kæmi.
Gromiko kallaði einnig á
sendiherra nágrannalandanna
Tyrklands, írans og Sýriands og
varaði þau við þeim hættum sem
myndu hljótast af íhlutun 1 inn-
anlandsófriðinn 1 Irak. Sovét-
stjómin segist hafa í höndum
gögn sem sanni undirbúning í
löndum Cento-bandalagsins að
slíkri íhiutun.
LONDON 9/7 — Enn einn furðu-
legur angi Profumomálsins vek-
ur nú hvað mesta athygli í Bret-
landi. Einn af eiskhugum gleði-
konunnar „Mandy“ Rice-Davies,
vinkonu ungfrú Keeler, sem
menn vissu ekki betur cn væri
löngu dauður og grafinn er nú
sagður vera bráðlifandi og hafi
öðrum manni verið komið í gröf-
ina í hans stað.
En í dag gaf einn af þingmönn-
um Verkamannaflokksins, Ben
Parkin, í skyn á þingi, að Uach-
man væri enn á lífi, en annar
maður hefði verið færður til bál-
stofunnar í hans stað. 1 dag-
bók Edgewaresjúkrahússins segir
að maður að nafni Rachman hafi
komið þangað 29. nóvember og
látizt síðar um daginn af hjarta-
slagi. Líkinu hafi þá verið ek-
ið til bálstofunnar og það brennt.
Rachman sem hafði gert sér
vandræði Vestur-Indíumanna að
féþúfu með því að leigja þeim
ónýta hjalla fyrir okurverð átti
sér marga óvildarmenn. Undar-
legt þykir að hann sem talinn
var vellauðugur lét ekki eftir
sig nema sem svarar nokkrum
hunruðum þúsunda króna. Park-
in þingmaður lét orð liggja að
því að hann hefði talið heppi-
legast að hverfa áður en lögregl-
an kæmist á snoðir um marg-
víslega glæpaiðju hans. Hann
hafði nefnilega bæði vændis-
konur og ýmsan annan óþjóða-
lýð á sínum snærum.
Orðrómur hefur gengið um
að hann hafi sézt ljóslifandi
víðs vegar í Evrópu og þykir
jafnvel ekki grunlaust um að
ungfrú Rice-Davies sé enn á
hans vegum, en hana skortir
sízt fé, þótt ýmsar fyrri tekju-
lindir hennar séu nú þornaðar.
Duncan Sandys
fer til Guiana
LONDON 9/7 — Brezki sam-
veldismálaráðherrann, Duncan
Sandys, fór í dag til nýlendunn-
ar Brezku Guiana í Suður-Amer-
íku, en þar hefur verið algert
stjómleysi undanfamar ellefu
vikur, eftir verkföll sem stjóm
Jagans segir að andstæðingar
hennar hafi staðið að fyrir til-
hlutan bandarískra og brezkra
auðhringa. Brezki landstjórinn 1
nýlendunni hefur rofið bingið og
tekið völdin af hinni löglega
kjömu stjórn hennar. og eftir
það var verkföliunum hætt.
Grísku konungshjónin fengu
kaldar kveðjur í Lundúnum
Marilyn Rice-Davies
Náungi þessi hét — eða heitir
— Peter Rachman, en gekk und-
ir nafninu „Pólski Pétur“ í
undirheimum Lundúnaborgar.
Hann var — eða er — pólskur
gyðingur að uppruna og fékk
aldrei brezkan þegnrétt.
Hann var einn af fyrstu elsk-
hugum Rice-Davies sem var þá
enn á barnsaldri. Hann var tal-
inn hafa látizt 29. nóvember í
fyrra af eðlilegum orsökum og
varð vinkonu hans svo mjög um
fráfall hans að hún reyndi að
fyrirfara sér — það hefur hún
a.m.k. borið fyrir rétti.
LONDON 9/7 — Aldrei mun
hafa verið meiri viðbúnaður af
hálfu lögreglunnar í London við
móttöku erlends þjóðhöfðingja
en í dag þegar Páll Grikkja-
konungur og Friðrika drottning
hans komu þangað í opinbera
heimsókn. Samt tókst ekki að
koma í veg fyrir að þau hjón
væm minnt óþyrmilega á að
þau eru óvelkomnir gestir í
Bretíandi.
Fyrsta atvikið varð þegar
þau óku um götur borgarinn-
ar til Buckingham'hallar. Frú
Betty Ambatielos, brezk kona
sem gift er grískum sjómanna-
foringja, tókst að smjúga gegn-
um raðir lögreglumannanna.
Hún hljóp á eftjr vagni kon-
ungshjónanna og hrópaði: „Lát-
ið mann minn lausan, látið hann
iausan!“ Tony Ambatielos hef-
ur setið sextán ár í fangabúð-
um grísku fasistanna, þó að
hann hafi aldrei verið leiddur
fyrir rétt né hlotið neinn dóm.
Hann er einn af þúsundum
grískra verklýðssinna sem verið
hafa í grískum fangabúðum síð-
an borgarastríðinu lauk þar.
Hundrað manna nefndin
brezka sem berst gegn kjarna-
vopnum hafði safnað liði við
Buckinghamhöll til að minna
grísku konungshjónin á Lamb-
rakis, þingmanninn sem griskir
fasistar myrtu með vitund og
vi'lja stjórnarvaldanna. rétt eft-
ir að hann kom af fundi í
grísku friðarsamtökunum.
Þegar leið á kvöldið urðu
miklar róstur fyrir framan höll-
ina milli lögreglunnar og margra
hundraða manna sem reyndu að
brjótast gegnum hallarhliðin.
Lögreglunni tókst að loka járn-
hliðunum á síðustu stundu og
voru margir menn handteknjr
og sumir jlla leiknir.