Þjóðviljinn - 10.07.1963, Side 4
4 SlÐA
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — SósíaJistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.),
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjórar: Jón Bjamason. Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstjóm. afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja: Skólavörðust. 19.
Sími 17-500 (5 línur). Askriftarverð kr. 65 á mánuði.
Tveir smánarblettír
á íslenzku þjóðhfi
í-|Rgar útiendingar koma hingað, — og við Islendingar erum mjög
næmir fyrir Iofi þeirra og viðkvæmir fyrir lasti, — þá dást
þeir mjög að mörgum íbúðum, að vélbúnum eldhúsum, fögrum hús-
gögnum og að tiltölulega stærri íbúðum almennings en jafnvel á
Norðurlöndum. En farj þeir að spyrja nákvæmar, kryfja málin til
mergjar, — hvernig unnið sé fyrir þessum ibúðum, þá reka þeir
upp stór augu. Og það er einkum tvennt, sem vekur undrun þeirra
og andúð:
Tlarnavinnan er hið fyrsta, sem þeir reka augun i. Bðrn við að
** selja blöð, börn í fiskvinnu, börn sem vinna jafnvel 10 tíma, —
börn, jafnvel í verksmiðjum. Fyrir meir en heilli öld var háð hin
harðasta barátta á Englandi gegn barnavinnunni. Dickens skrifaði
skáldsögur sínar sem svipu á þetta fyrirbrigði. Og þegar brezka
þingið fyrir meir en 100 árum hóf að takmarka með lögum vinnu-
tíma barna, rak auðvaldið upp ramakvein; fyrstu lagaskorðurnar
höfðu verið settar við harðstjórn og arðráni hins skefjalausa pen-
ingavalds. En Island auðvaldsins í dag lætur barnavinnu viðgang-
ast eins og ekkert sé. Það eru til lagabönn. Þeim er ekki fram-
fylgt. Reglugerð er ekki gefin út. Það er að flestu leyti búið betur
að þeim börnum, sem nú vaxa upp, en að fyrri kynslóðum ungum.
En á sviði barnavinnunnar erum við á eftir öðrum þjóðum. Við
ættum sjálf að finna þannig til skyldunnar, að við gerðum náúð-'
6ynlegar ráðstafanir. Eða er „snobbisminn" runninn okkur svo i
merg og blóð. að við förum fyrst að kippast við, ef útlendingar
skrifa um þetta f>rirbrigði í heimsblöðin?
¥ angl vinnutfminn er hitt fyrirbrigðið. I menningarlöndum Evrópu
er reglan fyrii daglegt Iíf hins vinnandi manns: 8 tíma vinna,
8 tíma svefn, 8 tímar helgaðir áhugaefnum, fjölskyldu og menn- j
ingarlífi. — Ef verkstjóri heimtaði 12 tíma vinnu af verkamanni,
myndi það hafa álíka áhrif á erlenda verkamanninn og svipuhögg
frá verkstjóranum á þann íslenzka. Slíkt eru einfaldlega hlutir,
sem ekki eru til í dæminu. Hinn langi vinnutími, sem unninn er
hér á landi, er bcinlínis dæmi um óstjórn atvinnurekendastéttar-
innar á atvinnulífinu og skefjalaust arðrán, sem yfirvöldin fram-
fylgja í umboði auðvaldsins með gengislækkunum og kerfisbund-
inni dýrtíð. Það er hægt að greiða það dagkaup fyrir 8 tfma, sem
nú er greitt fyrir 10 tíma. Til þess þarf um 32% hækkun á dag-
kaupi og niðurfcllingu eftirvinnu. Það er Ieikur einn að láta at-
vinnulífið standa undir slíku mcð dálítilH skynsemi í stjórn at-
vinnurekstrar og efnahagslífsins i heild. Og atvinnurckendastétt
Islands þarf á slikum kauphækkunum að halda til þess að hún
fari að sýna einhvern lit á hagkvæmum vinnubrögðum í efna-
hagslífi sínu.
¥ angi vlnnutiminn sviptir ekki aðeins hinn vinnandi mann menn-
■“^ ingarlífi, frelsi til raunverulegs fjölskyldu- og félagslíís. Langi
vinnutíminn er líka smátt og smátt að grafa undan heilsu verka- i
fólks, — ER AÐ STYTTA LlF MANNA UM MÖRG AR, JAFNVEL
ARATUGI. Læknarnir kalla sjúkdómana máske ekki ofþrælkun, .
nema í örfáum tiifellum, heldur ýmsum fínni nöfnum, — en sann- i
leikurinn er að menn hníga niður, veikjast og deyja fyrir aldur
fram af ofþrælkun á Islandi nú. Þess eru dæmi í verstððvum að
verkamenn vlnnl frá kl. 6 á morgnana til kl. 2 á nóttunni vikum
saman. Þetta minnir á þrældóminn á togurunum fyrir tíma vöku-
Iaga. Verkalýðshreyfingin þarf að taka þetta mál þannig tökum, að
hér verði tafarlaust breyting á. Það þarf að vekja allan almenning
til meðvitundar um að þetta óþolandi ástand verður að afnema og
gera, til þess að svo verði, þær breytingar á þjóðfélaginu, sem
nauðsynlegar reynast, — meðal annars að gerbreyta svo öllum
húsnæðislánum, að menn getl borgað íbúðlr sínar smátt og smátt
á 40—80 árum með 2—4% vöxtum, en verði ekki að þræla allri
fjölskyldunni út til að borga á "" '..........- ««« stendur
og notast tvær til þrjár aldir
ÞJðÐVILIINN
Miðvikudagur 10. iúlí 1963
Hvert vændismálið af öðru í
kjöifar Profumo-hneykslisins
LONDON 8/7 — Brezkir dómstólar virðast hafa fengið
ærið verkefni næstu mánuði eða jafnvel misseri þar sem
eru öll hin mörgu lögbrot sem komið hafa í dagsljós-
ið ásamt með Profumohneykslinu eða ekki verið hægt
að halda leyndum eftir að það var orðið opinskátt. Þann-
ig var í dag fyrir rétti í London tekið fyrir enn eitt
mál sem vinkona ráðherrans, ungfrú Kéeler, er viðrið-
in og sjálf stefndi hún einnig í dag fyrrverandi um-
boðsmanni sínum. - ,
Stefnan er á hendur manni
að nafni Robin Drury og vill
ungfrúin fá dóm fyrir því að
hann skili henni aftur segul-
böndum sem hún kveðst eiga.
Hún hafði talað inn á þessi
-«>
Nýtt njósnamál á brezka þinginu
Umræður umhvarf
Phiibys blaðamanns
LONDON 8/7 — Verkamanna-
flokkurinn hefur enn fengið
átyUu til árása á ríkissfjórn
Macmillans fyrir antlvaraleysi
i öryggismálum i þetta sInn
eru það afskipti stjórnarinnar
af máli Harolds Philbys. sem
gegndi á sínum tíma háum
stöðum í brezku leyniþjónust.
unni, en hvarf í Líbanon í
janúar s.I og hefur siðan að
sögn Heaths. aðstoðarutanrik-
isráðherra. dvalizt í landi
..austan járntjalds“.
Heath skýrði þinginu frá
atvikum varðandi hvarf Phil-
bvs fyrir nokkrum dögum. en
•' dag var málið aftur tekið
fyrir á brezka þinginu og vildu
þingmenn Verkamannaflokks.
ins. fá-. nánarjuppiýsingar um
það
Heath skýrði frá þvi. að PhiJ-
by hefði viðurkennt skömmu
áður en hann hvarf, að hann
hefði starfað fyrir sovézku
leyniþjónustuna og að hann
hefði jafnframt játað að hafa
gert þeim Donald Maclean o.g
Guy Burgess aðvart um að
komizt hefði upp um njósnir
þeirra i þágu Sovétríkjanna.
svo að þeir komust undan
brezku leyniþjónustunni þang-
að.
Philby hafði verið látinn
segja af sér störfum fyrir
brezku utanríkisþjónustuna
skömmu eftir að þeir Burgéss
og Maclean flúðu, en 1955
skýrðj Macmillan þinginu frá
því að hann hefðj ekki brotið
neitt af sér. Utanríkisráðuneyt-
ið hafði mæ’.t með honum þeg-
ar hann réðst til hinna kunnu
blaða „Economist" og ,,Ob-
server“ sem fréttamaður þeirra
í löndunum við botn Miðjarð-
arhafs.
Einn talsmaður Verka-
mannaflokksins, George Brown,
lét orð liggja að því á þingi
í dag að utanríkisráðuneytið
hefði komið honum í þessa
stöðu vegna þess að það vildi
hafa gagn af honum áfram
við lausn verkefna, sem hann
hafði áður unnið að, meðan
hann var í brezku leyniþjón-
ustunni. Því harðneitaði Heath
ráðherra.
Hins vegar vafðist honum
tunga um tönn, þegar hann
reyndi að svara áleitnum
spurningum þingmanna um
hvers vegna ekki hefði verið
hreyft við Philby í öll þau
mörgu skipti sem hann kom
heim til Bretlands eftir að
hann fók við fréttamannsstarf-
inu, enda þótt brezku stjóm-
NÝTÍZKT
HtlSGÖGN
HNOTAN
húsgagnaverzlnn
Þórsgötn h
Harold Philby
inni hlyti sð hafa verið kunn-
ugt þá um njósnaiðju hans í
þágu Sovétríkjanna.
segulbönd dagana 27. maj til
3. júní, eða rétt áður en upp-
víst varð um Profumohneyksl-
ið og höfðu þau verið í vörzlu
Drurys. í síðustu viku komst
upp að einn af kunningjum
Drurys hafði látið George
Wiggs, þingmann Verkamanna-
flokksins sem ko.m upp um
Profumo, vita um hvað væri
á þessum segulböndum, en
Wiggs hafði síðan látið vitn-
eskju sína ganga tjl Scotland
Yards og hefur lögreglan haf-
ið nýja rannsókn á grundv''”!
þeirrar vitneskju.
Varðandi árásina
Samkvæmt blaðafregnum
hafa segulböndin að geyma
upplýsingar varðandj árásina
sem Vestur-Indíumaðurinn
,,Lucky‘‘ Gordon gerði á ung-
frú Keeler, en hann var í síð-
asta mánuði dæmdur í þriggja
ára fangelsi fyrir hana. Gord-
on hefur áfrýjað dóminum.
Enn eitt vændismál
Einn landi hans, Raymond
Comacchio, sem átti að bera
vjtni Gordon til málsbóta í
réttarhöldunum gegn honum,
var í dag sjálfur leiddur fyr-
ir rétt í London, ákærður fyr-
ir að hafa stundað vændismiðl-
un. Lögreglan hafði ekki upp
á honum meðan málaferlin
gegn Gordon stóðu yfir.
Hann játaði að hann hefði
ekki haft fasta vinnu síðustu
tvö árin, en kvað það stafa af
veikindum. Lögreglan segir
hins vegar að hann sé heill
heilsu. en hafi látið konu sina
vinna fyrir þeim hjónum með
vændi, en hún var annars
starfsstúlka í kunnum klúbb
i London. Á heimili þeirra
hjóna fann lögreg'an reyrprik
og leðurólar sem hún heldur
fram að h.afi verið notuð ti'
að svala píslalosta sumra við-
skirtamannanna.
Fór tii veiða
íbreikrí
landhelgi
BRUSSEL 8/7 — Belgisk-
ur togarl, Kari II, fór í
dag á veiðar frá Zeebrugge
í Belgíu og var ferðinni
heitið að strönd Englands
í Seaford Bay í Sussex.
Skipstjórinn sendi Elísa-
betu drottningu og Mac-
millan forsætisráðherra
svohljóðandi skeyti áður
en lagt væri úr höfn: —
Förum til veiða í brezkri
landhelgi en erum ekki sjó-
ræningjar.
Skipstjórinn, Victor de
Paepe telur sig hafa rétt
til veiða í brezkri iand-
helgi, því að Karl konung-
ur annar af Englandi hafi
gefið borgurum Zeebrugge
rétt til slíkra veiða í þakk-
arskyni fyrir að þeir veittu
honum griðastað. þegar
hann varð að flýja land
undan Cromwell. Því er nú
haldið fram að þessi sér-
réttindi séu úr sögunni og
belgíska utanríkisráðuneyt-
ið hefur ráðið Paepe frá
því að reyna að njóta
þeirra.
Herðir viðskipta-
stríð gegn Kúbu
WASHINGTON 8/7 — Banda-
rikjastjóm hefur bannað öllum
bandarískum bönkum og öðr-
um fyrirtækjum að eiga nokk-
ur þau viðskipti við Kúbu sem
hafa myndu í för með sér yf-
irfærslu á peningum þangað
frá Bandarikjunum. nema hvað
kúbönsku flóttamönnunum
verður leyft að senda fé til
ættingja sjnna i heimalandinu.
Seíjum
ofaníburö
og fyllingarefni
frá Fífuhvammi í Kópavogi
Vegalengd írá Reykjavík 3—7 km.
Opið fra kl. 7.20 — 18,30 alla virka daga nema laugardaga
og á öðrum tíma eftir samkomulagi.
VÉLTÆKNI H.F.
Sími 38008.
KODACHROMi II
15 DIN
KODACHROME X
19 DIN
EKTACHROME
16 DIN