Þjóðviljinn - 27.07.1963, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 27.07.1963, Qupperneq 1
Laugardagur 27 166 'tölublað Góð aflahrota eftir þriggja vikna brælu Þúsundir týndu lífi í Júgóslavíu: Heil borg eyddist í ógurleg- um jarðskjálftum / gærdag BELGRAD 26/7 — Þúsundir manna létu lífið í ógurlegum jará-^_ skjálfta, sem varð í Makedóníu. Borgin Skoplje, sem telur 200,000 íbúa, varð harðast úti. Þrír fjórðu hlutar borgarinnar eru í rústum. Stærsta hótel borgarinnar, Hótel Makedónía hrundi til grunna og fórust allir sem þar bjuggu, um 300 manns. Trúlega flestir út- lendingar. Jarðskjálfti þessi átti upptök sín í 150 km. fjarlægð frá borginni og 66 km. fjær upptökunum en Skoplje er, hrundu hús til grunna. Hann kom fraim á jarðskjálftamælum víða um heim, m. a. í Reykjavík. Eftir margra daga brælu og landlegu komust síldveiðiskipin fyrir Norður- og Austurlandi aftur í veiði í fyrrakvöld og fyrrinótt og varð þetfa ein bezta aflahrota sumarsins. Milli 60 og 70 skip fengu afla, alls um 30 þúsund mál og tunnur. Klukkan 7 í gærmorgun hafði síldarleitinni á Raufarhöfn verið tilkynnt um afla 64 skipa á svæðinu frá Langanesi suður í Reyðarfjarðardýpi. Þessi 64 skip voru með um 30.000 tunnur, en auk þess var síldarleitinni kunn- ugt um að nokkur skip til við- bótar höfðu fengið afla, en ekki vitað hve mikið. Þetta er fyrsta verulega síld- veiðin á sumrinu, en nú hefur ver' nær 3ja vikna samfelld bræla á miðunum. Góðar horfur eru taldar á áframhaldandi veiði. Flest skipanna munu hafa farið til Raufarhafnar og Seyð- isfjarðar, einnig nokkur til Nes- kaupstaðar. Saltað var af kappi á öllum þessum stöðvuim í gær. Af norður- og vestursvæðinu voru harla litlar fréttir í gser, þó höfðu fundizt nokkrar góðar torfur djúpt út af Hraunhafna- tanga, en síldin þar var stygg og ill viðureignar. Þessi skip voru með 500 tunn- ur eða meira: Hamravík 700, Olafur Magn- ússon 700, Sæfari 850, Grótta 1300, Faxaborg 700, Oddgeir 1200, Hringver 500, Erlingur III. 700, Björg 600, Helgi Helgason 700, Þorbjörn 700, Jón Garðar 800, Fagiriklettur 700, Helgi Flóvents- Framhald á 2. síðu. Fyrsti kippurinn kom klukkan I fundist og 2000 alvarlega sasrðir. rúmlega 5 eftir íslenzkum tíma, hann var langur og mjög harður. Tvær þýzkar stúlkur, sem voru gestir á Hótel Makadónía segja frá því, að þær hafi verið að stíga fram úr rúmunum, þegar jarðskjálftinn reið yfir og hlaup- ið sem fætur toguðu út á götu. Ekki voru þær fyrr sloppnar út, en hótelbyggingin hrundi sam- an eins og spilaborg. Álitið. er að stúlkur þessar séu þær einu, sem sluppu lífs úr því húsi. Ekki var í gær hægt. að gera sér neina grein fyrir manntjón- inu og bar fréttum um það ekki saman. 1 frétt frá Aþenu seint i gærdag sagði að 300 lík hefðu Öttast var í gær að manntjón- ið væri ekki undir 10.000. Aðstaða öll til björgunar var ákaflega erfið í gær. Götumar þaktar braki og illar yfirferð- ar, skelfingu lostið fólk æddi um rústimar í blindni og hinir dauðu og særðu lágu sem hrá- viði innan um brakið. Flugmað- ur, sem flaug yfir borgina í gær, sagði svo frá að hún væri ver útleikin en eftir hina verstu loftárás, eldar væru víða uppi og yfir borginni lægi þykkt rykský. Allt samband við borgina rofn- aði þegar, vatns og rafkerfi urðu óvirk og allar samgöngur Síðustu fréttir: 10.000 fórust Þegai blaðiS var að fara í prentun höfðu þær fréftir síðast borizt af jarðskjálftanum mikla í Júgóslavíu, að meir en tíu þúsund manns hefðu farizt eða væri saknað. lögðust niður. Sambandslaust var við borgina frameftir gærdegin- um. Strax og fréttist um jarð- skjálftann sendi alþjóða Rauði- krossinn í Genf út hjálparbeiðni og júslavneskt her- og hjálp- arlið var sent á vettvang. Danski Rauði krossinn sendi þegar í gær flugvél með sjúkragögn áleiðis til Júgóslavíu, en sjúkrahúsin í Skoplje eru meira og minna í rústum og óstarfhæf. Sérstak- lega er skortur á blóðplasma og hefur Rauðj krossinn óskað gér- staklega eftir því. Einnig hefur verið óskað eftir sótthreinsun- arlyfjum. Borgin Skoplje er ekki sérstak- lega vinsæll ferðamannabær, en hefur verið rómuð fyrir fagrar byggingar. Hún var reist á rúst- um annarar borgar, sem hrundi í jarðskjálfta árið 1518. Talsvert snarpur jarðskjálfta- kippur varð á Italíu um líkt leyti og kippurinn varð i Skop- Ije. Nokkur skelfing greip um sig á ítalíu, en tjón varð ekkert. Útilit er fyrir að þessi jarð- skjálfti í Júgóslavíu sé einn hinn mesti sem orðið hefur í heiminum síðan 1930 og sá lang- skæðasti sem orðið hefur í Evr- ópu á þessu tímabili. Sá næst- Framhald á 2. síðu. A kortinu ar leiðin, sem Sigríður hafði farið, þegar hún fannst, merkt inn með striki. Oskjuvatn dýpsta stöðuvatn landsins—mældist 220 m. ánnst i gær og var hin hressasta Sigríöur Jóna Jónsdóttir, sem leitað hefur veri'ö aö undanfarið fannst síödegis í gær viö Skammá milli Arn- arvatns og Réttarvatns. Veiöimenn úr Reykjavík fundu Sigríði viö Skammá og hlynntu aö henni í tjöldum sín- um, en skömmu síöar kom hjálparsveit skáta á þessar slóöir og lét vita um, að Sigríður væri fundin. Nú eru sex sólarhringar frá því aö Sigríöur lagöi upp frá Kal- mannstungu, og ljóst er að hún hefur legiö úti í fimm nætur í versta veðri án þess að hafa nokkurn viðlegu- útbúnað, tjald eða svefnpoka. AKUREYRI 27/ 7 — Sigurjón Rist, vatnamæl- ingamaður, kom í dag til Akureyrar frá Öskju- vatni. Hefur hann dvalizt þar að undanförnu við mælingar á dýpi vatnsins. Sigurjón er fyrrver- andi formaður Ferðafélags Akureyrar, og bauð stjóm félagsins honum til kaffidrykkju síðdegis í dag, ásamt fréttamönnum. Töpuðu í 8. og 9. umferð I 8. og 9. umferð Evrópumeist- aramótsins í bridge í Badcn Bad- en töpuðu Islendingar fyrir Norðmönnum mcð 64 stigum gegn 107 eða 0:6 og fyrir Spáni með 79 stigum gegn 91 eða 1:5. Við þetta tækifæri skýrði Sigurjón frá niðurstöðum mæl- inganna á Öskjuvatni, en mörg- um hefur leikið hugur á að vita, hvort þar væri eigi að finna dýpsta vatn landsins. Sig- ‘ urjón og félagar hans fóru með j bát til Öskjuvatns og fluttu á kerru. sem hálfbelta dráttarvél dró frá vegarenda að vatninu. Tók sá flutningur hálfan þriðja dag, en a!ls fór hálfur mánuður í í þennan leiðangur. í bájnum er bergmálsdýptar- mælir, sem notaður var við mælingamar. Var vatnið mælt með tilliti til þess að kort- leggja botriinn. Valdir voru púnktar á ströndinni og siglt milli þeirra, þannig að net myndaðist af ferðum bátsins. Er þar skemmst frá að segja, að allt reyndist vatnið mjög djúpt, en mesta dýpi um 220 metrar. Er það því langdýpsta vatn landsjns, sem mælt hefur verið, og mjög ósennilegt, að annað finnist dýpra, því öll helztu vötn landsing hafa þegar verið mæld nema Hópið í Húnavatnssýslu, sem talið er fremur grunnt. Mesta dýpi, sem áður var kunnugt í hérlendu vatni, var 160 m í Hvalvatni. Önnur vötn dýpri en 100 m eru Þingvallavatn 114 m og Þórisvatn 109 m. Ennfremur Framhald á 2. síðu. Siðdegis í gær, er Þjóðviljinn átti tal við Henrý Hálfdánar- son hjá Slysavarnafélagi fs- lands, skýrði hann svo frá, að Sigriður hefði fundist við Skammá milli Réttarvatns'’ og Arnarvatns. Leitin að henni hefur verið mjög víðtæk, og hefur verið leitað bæði á landi og úr lofti. Fyrsf voru það bændur úr Borgarfirði. sem hófu leitina. menn frá Atvinnu- deild Háskólans, sem voru þarna staddir á tveim bílum tóku þátt í leitinni, en síðan fóru einnig af stað hjálparsveit skáta og björgunarsveit úr Reykjavík. Samkvæmt fregnum, er bár- Ofsaveður í Kópavogi 1 gærdag gerði ofsarok í Reykjavík og nágrenni. Er til marks um það, að veggir hrundu í hálfbyggðu bamaskólahúsi efst á Digraneshálsi. Fjórir veggir höfðu verið reistir, en voru ófrá- gengnir, og stóðust því ekki storminn. Ekki mun tjónið veru- legt utan vinnutjón. ust í gærkvöldi, voru það veiði- menn úr Reykjavík, sem fundu Sigríði við Skammá í gær. Hafa þeir dvalið þarna við veiðiskap hjá vötnunum undanfarið. Urðu þeir fyrst varir við hest Sig- ríðar. Ljóma, og var hann án reiðtýgja. Nokkru síðar fundu þeir Sigriði við ána og fóru með hana heim í tjöld sín og veittu henni aðhlynningu eftir beztu Slefu. Var hún dálítiB rugluð í ríminu eftir alla hrakn- ingana, en annars hin hressasta. Hjálparsveit skáta kom á þessar slóðjr síðdegis í gær og lét þá tafarlaust vita, að Sig- ríður væri fundin. Eins og fyrr segir var hún hi4 hressasta og vildi helzt halda áfram ferð sinni inn á Hveravelli. Ekki mun þó verða úr því ferðalagi að sinni, þar sem hún hafði tapað bæði hnakk og öðrum farangri, og biðu leitarmenn eftir bíl, sem flytti þá ásamt Framhald á 2. síðu. Sigríður Jónsdóttir með Ljóma sinn, vel útbúin tll ferðalaga eins og sjá má. 1 hrakningum sínum núna mun Sigríður hafa haft sama höfuðbúnað og sést á þessari mynd. — Bencdikt Gunnars- son tók myndina.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.