Þjóðviljinn - 27.07.1963, Side 10
Sænskir sérfræðingar rann-
saka orsakir ísaga-brunans
I
Fjórir þilfarsbátar
eru gerðir út frá
Grenivík og stunda
miðin á Grímseyjar-
sundi í sumar. Stærð
10 til 12 tonn. Fiskirí
hefur verið sáratregt
í sumar og undan-
farna daga hefur ver-
ið langur óviðriskafli.
En síðastl. fimmtu-
dag var fyrsti góð-
viðrisdagurinn og
voru bátamir að
leggja upp skömmu
eftir hádegið.
i
Þarna sjást þrjár beitingastúlkur á Grcnivík i sumar. Þær hafa stillt sér fyrir framan lóða-
balana og heita Sigurlín a, Hólmfríður og Þórey.
i
I
i
Hér sést landformaðurinn Gunnþór Björnsson á bryggjunni og er að ljúka vtið að koma lóða-
bölunum um borð á fyrsta degi eftir óviðriskafla undanfarna daga. Báturinn heitir Brúni
EA 71.
BÖLVADUR PÍRINGUR
!
Aflinn hefur jafnvel hrapað
njður í þúsund pund í róðri.
Þetta sagði mér Gunnþór
Björnsson. landformaður á
Brúna EA 71.
Ekkert frystihús er á
Grenivík; leggja bátamir
upp afla sinn í Hrísey og
Dalvik og er hugur í þorps-
búum að eignast slíkt at-
vinnufyrirtæki. Gamla
bryggjan liggur beint fyrir
opnu hafi og stendur nú fyr-
ir dyrum bygging á hafnar-
garði. sem liggur í suðvest-
ur og kemur til með að kosta
fjórar milljónir.
Þrir stórir bátar eru gerð-
ir út frá Grenivík. Þeir eru
nú á síldveiðum, en róa frá
Grenivik á vetram.
Blóminn af karlmönnum
er þannig fjarrverandi úr
þorpinu heilu árstíðirnar á
sagii stúikan
stóru bátunum. Þeir heita
Vörður, Vonin og Oddgeir,
— nýr bátur. sem kom til
Grenivíkur í vor.
í beituskúmum hjá Brúna
voru þrjár stúlkur að beita
fyrir næsta róður og höfðu
«áð furðu miklum flýti.
Ein er fimmtán ára og
tvær seytján ára.
Þær kvörtuðu yfir afla-
leysinu í sumar og kváðu
þetta ekki einleikið.
— Sést nokkuð nema lúða,
segi ég.
Þá fóru þær að hlæja.—
Sjómenn telja kvenfólk í
spilinu. ef lúða stingur upp
kollinum. Nei, -— engin lúða.
Enginn fiskur yfirleitt. Þetta
er bölvaður píringur, sagði
ein stúlknanna hressilega.
Svo stilltu þær sér fyrir
framan lóðabala fyrir utan
beitningaskúrinn og létu
smella af sér mynd.
Þær heita Sigurlína Ax-
elsdóttir. Hólmfríður Svein-
bjömsdóttir og Þórey Gunn-
þórsdóttir. — Þær eru bara
viljugar, greyin. sagði land-
formaðurinn. g.m.
Aðalfundur Lands-
sambands veiðifél.
lög til Veiðimálastofnunarinnar
Talið mögulegt
að um sjálfs-
íkviknun hafi
verið að ræða
Undanfarið hefur dvalizt hér
á landi sérfræðingur frá AGA
í Svíþjóð Sten Mogensen að
nafni til þess að rannsaka orsak-
ir Isaga-brunans. Sérfræðingurinn
fór utan í gær og hafði með
sér öll gögn, er hann hafði feng-
íð í hendur og verður málið nú
rannsakað nánar af sérfræðlng-
um AGA-verksmiðjanna.
Eins og kunnugt er, var í fyrstu
tahð víst, að eldsupptökin hefðu
átt rætur að rekja til þess að
starfsmaður í verksm. bar heitan
lykil að gasleka á hylki, og varð
íkviknunin í þann mund. Hinn
sænski sérfræðingur sem hér hef-
ur dvalið að undanfömu, gerði
ýmsar tilraunir til þess að kom-
ast að raun um, hvort íkviknun-
in hefði getað átt sér stað af
þeim sökum. Niðurstöður af
þeim athugunum þóttu leiða í
ljós, að ekki væri unnt að slá
þvi föstu, að kviknað hefði í á
þann hátt. Þykir jafnvel senni-
legra að um sjálísíkviknun hafi
verið að ræða, vegna örs gasút-
streymis úr hylkinu, þótt sú til-
gáta sé ekki sönnuð heldur.
★
Þjóðviljinn sneri sér í gær til
forstjóra Isaga, og kvað hann
hinn sænska sérfræðing hafa haft
með sér utan öll gögn varð-
andi þetta mál og yrði það rann-
sakað nánar af sérfræðingum
AGA-verksmiðjanna. Væri þetta
gert í samráði við rannsóknarlög-
regluna hér og yrði nú beðið
með frekari rannsókn, þar til
búið væri að vinna úr þessum
gögnum af sérfræðingum verk-
smiðjanna í Svíþjóð.
Ekki kvaðst forstjórinn geta
sagt um, hvenær þær niðurstöð-
ur myndu liggja fyrir, en óskað
hefði verið eftir því, að rann-
sókninni yrði hraðað sem mest
og yrðu niðurstöður hennar þá
birtar svo fljótt sem unnt væri.
Eiga Kínverjar
nú kjarnavopn
PEKING 27/7 — Formaður kín-
versku friðamefndarinnar lýsti
þvi yfir í dag. að sú einokun á
kjamavopnum, sem nú ætti sér
stað, myndi rofin innan skamms.
Hann lýsti þessu yfir á fjölmenn-
um fundi í Peking.
Fundur þessi var haldinn til
að minnast Kóreustríðsins. Var
fundurinn fjölsóttur, um tíu þús-
und manns hlýddu á þessa yfir-
lýsingu. Það er fréttastofan Hið
nýja Kína, sem þetta tilkynnir
í dag.
Landssamband veiðifélaga hélt
aðalfund sinn I Borgarnesi 20.
júlí sl. Fundinn sátu fulltrúar
veiðifélaga úr þremur lands-
fjórðungum.
Veiðimálastjóri, Þór Guðjóns-
son, flutti erindi um veiðimál og
sýndi litskuggamyndir. Rætt var
meðal annars um endurskoðun
laxveiðilaganna. Fundurinn þakk-
aði Alþingi og ríkisstjóm fyrir
framtak við byggingu laxeldis-
stöðvarinnar í Kollafirði. Jafn-
framt skoraði hann á ríkisstjóm-
ina að auka verulega fjárfram-
til þess að hún geti mætt ört
vaxandi þörf fyrir leiðbeiningar-
starfsemi, og rannsóknir í þágu
veiðimála. Á fundinum rikti mik-
ill áhugi fyrir eflingu samtak-
anna, og taldi hann þörf á að
stofnuð yrði veiðifélög við vatna-
svæði þar, sem þau væru ekki
fyrir.
Stjóm Landssambands veiði-
félaga var endurkosin, en í henni
eiga sæti Þórir Steinþórsson,
skólastjóri, Reykholti, formaður,
Hinrik Þórðarson, Útverkum.. og
Óskar Teitsson Víðidalstungu.
Bdur /
geymsluporti hjá Sindra
I fyrrakvöld kvlknaði í rusli í gcymsluporti Sindra við Höfða-
tún. Varð mikill rcykur af bálinu og slökkviliðið kvatt á vcttvang.
(Ljósmynd Þjóðviljans A. K.).
Ingi R.varð 7.-8. af 20
keppendum í Halle-mótinu
í síðusTu um'ferð svæð-
ismótsins í Halle í Aust-
ur-Þýzkalandi gerði
Ingi R. Jóhannsson jafn-
tefli við Trifunovic og
hafnaði því í sjöunda til
áttunda sæti af 20 kepp-
endum.
Sigurvegari varð Ungverjinn
Portisch með 1372 vinning, en
Daninn Bent Larsen varð annar
með 13 vinninga.
Næstir og jafnir í 3. og 4. sæti
urðu þeir Ivkof og Robatsch með
12 vinninga hvor. Verða þeir því
að heyja einvígi sín á milli um
það hvor rétt eigi til þátttöku
í millisvæðamótinu svonefnda, en
þrír efstu menn á hverju svæðis-
móti halda áfram keppni á
millisvæðamótinu, þar sem gert
er út um hverjir taki þátt í á-
skorendamótinu síðar. Er gert
ráð fyrir að skákeinvfgi þeirra
Ivkofs og Robatsch verði háð í
haust.
1 5. og 6. sæti í Halle urðu
þeir Melich og Uhlmann með 11
vinninga hvor, en í næstu sæt-
um og jafnir voru svo þeir Ingi
R. Jóhannsson og Trifunovic með
IOV2 vinning hvor.
Frammistaða Inga á þessu
skákmóti hefur verið með mikl-
um ágætum og honum til sóma,
þar sem langflestir andstæðing-
ar hans vora ýmist stórmeistarar
(t.d. allir þeir sem urðu ofar að
vinningum en hann nema Mal-
ich) eða alþjóölegir meistarar.
t