Þjóðviljinn - 16.08.1963, Page 5
ÞIÓÐVILIINN
SÍÐA 5
Föstudagur 16. ágúst 1963
Það tók 9 ár að leggja veginn milli Hafnarfjarðar og Keflavíkur, sem þá
nefndist Keflavíkurvegur eða Suðurnesjavegur, en nú oftast Reykjanes-
braut. Gísli Sigurgeirsson verkstjóri, sem vann í veginum öll þessi 9 ár,
byrjaði í síðasta þætti að segja okkur frá vegum í Hafnarfirði fyrir alda-
mót, en síðan skruppum við norður á Laxárdalsheiði. Nú hverfum við
aftur til Hafnarfjarðar og Suðurnesja.
IUABREKKA
KAPELLUHRAUN
STRANDARHEIÐI
GlSLI SIGURGEIRSSON
SEGIRFRÁ
— Þú spyrð hvar byrjað hafi
verið á veginum til Keflavíkur,
svarar Gísli. Sumarið 1903 var
brúin yfir Lækinn í Hafnarfirði
hjá Apótekinu og lá aðalvegur-
inn suður sjávarmölina, sem
var erfiður og þungfær vegur
fyrir hesta með vagna. Sumarið
1903 var vegurinn lagður upp
með læknum að norðanverðu
og lagður vegur meðfram
„sýslumannstúninu", hann var
þá 1 m á hæð og nokkuð suð-
ur fyrir túnið. Um haustið var
byggð ný brú og var Jón Ein-
arsson, sá er ég gat um síðast,
við að hlaða brúarstöplana, en
hann hafði verið á skútu um
sumarið. Brú þessi stóð svo
þangað til gatan var steypt
1943 og lækurinn fluttur, þann-
ig að nú rennur hann beint í
sjó fram gegnum mölina. Þá
var ekkert hús á „moldarflöt-
inni“ sem svo var nefnd og
kom ekki fyrr en Einar Þor-
gilsson byggði þar verzlunarnús
sín 1907. Faðir minn, Sigurgeir
Gíslason. sá að nokkru um veg
þenna, en Kristján Auðunsson
stjórnaði verkinu. — Nú sést
þessi vegagerð ekki lengur.
Allt er horfið og breytt aðeins
minningin lifir hjá mér, s-em
var við að byggja þenna spotta.
og svÞ hjá öllum þeim fjólda
sem fór þenna veg í nær hálfa
öld; og svo hverxur það eins og
svo margt annað í glevmskunn-
ar haf, og finnst ekki framar.
Faðir minn, sem árið 1903
var verkstjóri hjá P. J. Thor-
steinsson í Hafnarfirði, sagði
starfi sínu lausu og tók að sér
stjórn á byggingu Keflavíkur-
vegarins og hófst vinna við
hann á þriðja í hvítasunnu
1904. Byrjað var við enda
Bröttugötu og vegurinn lagður
beint upp á hamarinn við Jiús
Gísla Bjarnasonar. sem nú er
Suðurgata 33. þvert yfir girð-
ingar og kálgarða. Þeir Andrés
Guðmundsson, faðir Jóns og
Gríms Andréssona og Eyjólf-
ur Kristjánsson frá Brúsastöð-
um Voru flokksstjórar.
Ékki var'legið við. en tiöld
höfð fyrir verkamenn til að
borða í, því langt þótti fyrir
þá sem heima áttu vestarlega
í firðinum að fara heim til mál-
tíða. En nú var oft heitur mat-
ur, okkur var færður fiskur
eða súpur. og þótti þetta nú
heldur fríðindi frá því begar
legið var frá.
Um sumarið var lagður vegur
suður fyrir Hvaleyrarholtið.
suður að Hellnahrauni og rudd-
ur slóði niður á gamla veginn
við sjólnn. — Þetta er okki
langur kafli, en víða var þó
erfitt: tvær brýr. önnur í Il!u-
brekku, fyrir framan hús Júlí-
usar Nýborg. en þar var fúl
vatnsrás og allill yfirferðar og
svo önnur vFir Ásbúðarlækinn.
Mýrarfen var farið yfir fyrir
sunnan Kaldárverksmiðjuna
(þar var fyrsta gosdrykkjaverk-
smiðja landsins) eða nánar til-
tekið fyrir framan húsin 67 og
69 við Suðurgötu og man ég að
þegar beljurnar voru að svamla
þar lágu þær alveg á kviðnum.
Rétt fyrir ofan Kaldá (þar sem
nú er Suðurgata 51, hús Eiríks
Pálssonar fyrrv. bæjarstjóra)
var grafinn brunnur og þaðan
var fyrsta vatnsveita bæjarins.
Það var stofnað hlutafélag <em
stóð að vatnsveitunni. Bænnn
keypti hana síðar. Vatnið var
leitt í pósta um bæinn á nokkr-
um stöðum og lengst vestur í
Akurgerðj, þriggja tommu æð.
Þegar við steyptum Strandgöt-
una 1941 rákumst við á þessi
gömlu irör, sero enn voru tsins
og ný.
Handafli okkar reyndist
margt erfitt sem nú þætti ekki
umtalsvert. Eins manns minn-
ist ég sérstaklega þetta sum-
ar. Ölafs Sigvaldasonar frá
Litlabæ. Hann var kátur karl
en heilsulítill og ósköp veikiu-
legur. Hann þyrsti óskaplega
við vinnuna og hafði ævinlega
með sér úti í vegi 3ja—4ra
lítra brúsa með vatni — og
hafði ævinlega tæmt hann að
kvöldi. Man ég að karlamir
undruðust hvar öll þessi ósköp
af vatni kæmust fyrir í bess-
um litla búki! Einu sinni var
það seinni hluta sumarsins, að
við Ölafur þessi vorum að ryðja
grjóti úr vegarstæðinu. Kom-
um við að afarstórum steini
og leizt ekki á blikuna. Ölafur
var kraftalítill og veiklaður, en
ég 11 ára strákur. En Ólafur
var ekki fyrir að gefast upp
og sagði að „út skyldi skrattinn“
Náðum við nú í 2 lyftitré, sem
svo voru nefnd og hafa verið
um 4 álnir á lengd með járn-
brydduðum fleygmynduðum
enda. Fórum við svo að vega
klettinn upp og erum að þang-
að til að kletturinn er kominn
út fyrir veglínu — og þar er
hann ennþá við gamla aflagða
vegarspottann á brúninni þar
sem farið er niður af Hvaleyr-
arholtinu sunnanverðu. Oft
minntumst við Ölafur síðar á
þetta bis og brostum að. — Nú
bíður steinninn þess, að hann
verði tekinn í hafnargarð eða
flaggstangarundirstöðu í ein-
hverjum blómsturgarði brodd-
borgara Hafnarfjarðar, svo eitt-
hvað sé nefnt; enginn veit um
slíikt. Þetta sumar var unnið
fyrir um 5000.80 krónur.
Sumarið 1905 hófst vinnan
við hin illræmdu Reykjanes-
hraun, sunnan Hvaleyrarholts,
sem í aldaraðir höfðu verið
örðug yfirferðar mönnum og
skepnum, — en nú átti að bæta
úr þvi, og var gjört.
Nú voru tjöld reist við hói
sem nefndur var Raudhóll, og
var talsvert myndarlegur áður
en mannshöndin byrjaði að
herja á hann. Nú er hann eng-
inn til — ekki hóll. heldur
gryfja djúp og heldur óhugn-
anleg á köflurn. Við þenna eld-
gígshól var tjaldað. CTr Rauð-
hól var tekinn ofaníburður í
allan veginn suður að Kapell-
unni. Nú var legið við og bótti
ekki tiltækilegt að fara heim
á kvöldin. (Syðstu húsin í
Hafnarfirði standa nú uppi á
holtinu sem tjaldað var undir).
Ég fór aldrei heim nema á
laugardögum. en þeir fullorðnu
skruppu heim einu sinni í viku.
Hræddur er ég um að onga
kynslóðin nú kynni því illa að
liggja við hjá Rauðhól, enda
enj aðrir tímar nú og annar
farkostur.
Sæmilega gekk að leggja, en
'erfitt var um efni í veginn,
sléttar og heilar klappir, en
ekkert sprengiefni til að auð-
velda efnisöflun. En allt fór
þetta einlhvernveginn, og vegur-
inn teygðist áfram.
Þetta sumar var bændafund-
urinn haldinn í Reykjavík út
af símamálinu þá var gefið
frí í veginum og fóru allir til
Reykjavíkur — nema „kúsk-
arnir“. Um kvöldið voru sumir
karíarnir harla æstir þegar
þeir komu og sögðu sumir að
verst hefði verið að fá ekki
að sjá blóðið úr körlunum. Svo
féll þetta allt í sömu skorður,
allir fóru út í veg — að hlaða,
rífa eða bera grjót, alltaf betta
sama, og svo var hlegið og
spaugað — og enginn minntist
framar á blóð.
Margra ágætra manna minn-
ist ég frá þessu sumri, og yrði
oflangt að telja þá. Jón Jónas-
son skólastjóri barnaskólans var
lítinn tíma í veginum betta
sumar. Hann er einn beirra
manna sem mér hefur bótt
vænst um af vandalausum
mönnum, fyrir hans framúr-
skarandi kennslu. en ég naut
þess alla mína skólatíð að hafa
hann fyrir kennara. Og þegar
ég hugsa um hvemig hinn bezti
kennari og fræðari eigi að vera
þá kemur mér ævinlega þessi
maður í hug.
Einn var sá staður á þessari
leið sem oft hefur verið nefnd-
ur „Gíslaskarð". Hafa sumir
haldið að skarðið sé kennt við
mig, en það er nú eittlhvað
annað! Gísli bakari (Gíslason)
var þá í broddi lífsins og hann
ásamt Þorsteini föður Víelsar í
Kletti vann mest og bezt að því
að brjóta úr þessu skarði, unz
Jón Einansson kom með bor-
vélar og klöppin stóðst ekki
snúning, þótt hún hefði komið
Gísla úr nærri hverri spjör
daglega og pískað út úr honum
Hér stendur Gísli Sigurgeirsson sjötugur við steininn sem hann — þá 11 ára drengur — og Ólafur
í Litlabæ, þreklaus heilsuleysingi, hjálpuðust að við að velta út úr vegarstæðinu á Hvalcyrarholti
fyrir 59 árum, — í þann tíð var ekki um annað að ræða en taka til höndunum ef lagfæra átti
vegarspotta.
og Steina gamla mörg heilan-
ker af svita sumarið 1905j»
Þetta sumar var svo veginum
komið suður í Kapelluhraunið.
en Kapéllan er mjög gamalt
mannvirki við gamla vegarslóð-
ann. Það gekk vel að brjóta
niður „Brunann", þótt ýmsir
hefðu næstum álitið ógeming
að leggja þar veg var þá þar
eitt allra bezta og fljótunnasta
vegarstæðið. En í dag væri 20
tonna jarðýta svosem eina til
tvær dagstundir að bygsya
veginn yfir Brunann, sem þá
tók marga menn í margar vik-
ur að gera. — Og gaman het’ði
verið að hafa slíka ýtu i stað-
inn fyrir handbörurnar sem við
vorum að kjótla grjótinu á í
hina 4ra mannhæða háu upp-
fyllingu úr Brunanum niður á
hraunin. — En fyllingin var
samt gerð, vegurinn kom, og
vagnar brunuðu þar upp og
niður.
Um haustið var kominn ak-
fær vegur 5 km á lengd, 3,5 m
breiður og vegarsamband við
„Ilraunin". Hraunin höfðu ver-
ið afskekkt sveit, þ.e. engin
samgöngutæki önnur en hest-
urinn og bakið á körlunum. og
það var vist mest notað til
flutnings í Hraunin. Þá voru í
Hraununum 12 býli í ábúð, og
var mér sagt að þeir hafi lif-
að þar ágætu lífi. Og haft var
eftir góðum heimildum að þar
hafi allir dáið úr elli! Það var
lifað þar reglusömu lífi, farið
snemma á fætur. og sennilega
snemma í rúmið. En nú var
þessi litla byggð að komasl
í nánari tengsl við umheiminn
— og þá skeður þaö að byggð-
in eyðist og nú eru þar aðeins
2 býli í byggð. Kostnaður þetta
sumar var einnig um 5000.00 kr
Sumarið 1906 þokaðist vegur-
inn suður Hraunin. Núorðið tók
um við ofaníburðinn í Rauða-
mcl og um haustið stóðu tjöld-
in okkar við melinn. Haustnótt
eina gerði slíkt aftakaveður ->f
suðaustri að tjöldin fuku ofan
■af okkur. Var. ekki annað að
gera en fella þau yfir dótið
og leita byggða. Paufuðumst við
í myrkrinu niður að Óttarsstöð-
um.
Þetta sumar var lokið við að
gera veginn suður fyrir Smala-
skála, hæð sunnan við Rauða-
mel. Ofan við Rauðamel, við
gamla veginn, er einn af brunn-
um þeim sem kenndir eru við
Guðmund biskup góða og
nefndur er Gvendarbrunnur.
Það er hola niður í slétta klöpp.
og það sem merkilegt er: þar
er oftast vatn o^hefur margur
maður þyrstur svalað þar þorsta
sínum, þótt ekki hafi vatnið
ævinlega verið sem álitlegast til
drykkjar. Það var betra vatn
í tfBrnunum við Hraunbæina.
en þangað leiðbeindum við
mörgum ferðamanninum sem
ætlaði að fara þar framhjá,
dauðþyrstur sjálfur með dauð-
þyrsta hesta. Margir héldu að
við kúskamir værum að gera
gys að sér að benda þeim á að
drekka úr tjömum sem eru á-
fastar við sjóinn. En í þessum
tjömum er afbragðsgott vatn, og
mín reynsla er sú að óhætt er.
og stundum gott, að drekka
í Straumsvík.
Nú erum við að komast suð-
ur í Almenning. Nú fer hraun-
ið að verða grösugra og smá-
skógarhríslur að sjást á víð og
dreif. Meira eftir því sem fjar-
lægist byggðina. Það er ævin-
lega svo og sýnir að manns-
höndin hefur átt sinn þátt í að
eyða skóginum, því skógur og
hrís hefur verið eldsneyti íbú-
anna þarna árhundruðum sam-
an. Nú er rafmagnið komið og
bráðum kemur hitagjafi frá
Krýsuvík — ef annar hitagjafi
verður ekki á undan: orka trá
sólunni.
Næst komum við í hinn iil-
ræmda Almenning — þar sem
huldufólk, draugar og svipir
gengu ljósum logum bæði næt-
ur og daga. Almenningurinn
var illræmdur fyrir hve eér-*
staklega ógreiðfær hann var og
illur yfirferðar, einkum að
vetrarlagi, og svo hefur Hall-
grími Péturssyní fundizt þegar
hann kom í Hraunin,- sennilega
á leið til Reykjavíkur — og
höfð er eftir honum vísan al-
kunna:
Úti stend ég, ekki glaður,
illa hlaðinn kaununum.
Þraut er að vera þurfamaður
þrælanna í Hraununum.
Við frásögn Gísla af vega-
gerðinni kemur við sögu mikill
fjöldi manna er of langt yxði
upp að telja, en marga þeirra
myndu gamlir Hafnfirðingar
þekkja. Og Gísli ber þeim öll-
um vel söguna. Það mætti ætla
af frásögn Gísla að þeir hafi
allir verið öðlingar, en em-
staka nokkuð einkennilegur.
Ýmislegt smáskemmtilegt hefur
gerzt þessi sumur, en víst má
satt kyrrt liggja.
Einn karl var þar af Álfta-
nesi og var margt skrítið eftir
honum haft. Einu sinni hafði
hann komið heim í kot sitt
með siginn rauðmaga. vildi láta
kerlu sína sjóða strax og segir:
„Slettu þama rauðmagahelm-
ingnum (en í því hnerrar kon-
an) guð blessi þig ofan í pott-
inn Gróa“. Sá hinn sami sagði
eitt sinn við samverkamann
sinn, er mun hafa strítt karli:
„Þó Marteinn sé bölvaður og
sterkastur þá er hann ekki
verri en þú, skítseyðis-lyga-
svíns-eitursílis-naglakjafturinn
þinn!“ Eina helgi skrapp kari
til Reykjavíkur. Ferðasagan var
á þessa leið: „Fór í kirkju fátt
fólk hjá Jóhanni karlinum í
dag, Teitur gamli í Háteigi,
Siggi gamli bóki og ég og fá-
einir hrosshausar h'kir honum.
Það var arð spássera úti. íom
ekki inn. Magnús Blöndal og
Framhald á 7. síðu.
ILLRÆMDASTI VEGARKAFLILANDSINS SKRADUR
i
t