Þjóðviljinn - 16.08.1963, Síða 10
Næstkomandi sunnudag veröur
— ef veður leyfir — haldinn
mikill hátíðisdagur allra þeirra,
er áhuga hafa á flugmálum.
Flugmálafélag fslands, sem á
máli herraþjóðarinnar nefnir sig
Iceland Aero Club, gengst þá
fyrir svonefndum Flugdegi. og
mun hann vera sá sjöundi í röð-
inni slíkra. ReykjavíkurflugvöH-
ur verður opnaður gestum kl.
eitt á sunnudag, en sjálf mun
hátíðin hefjast kl. tvö.
Dagskrá mótsins er mjög fjöl-
breytt. Baldvin Jónsson. forseta
Flugmálafélagsins, setur skernmt-
unina, en síðan verður hópflug
smáflugvéla og margskonar list-
ir leiknar til að gleðja áhorfend-
ann. Listflug verður sýnt á ein-
hverju, sem á fagmáli nefnist
Piper Club, oinnig verður flug-
tog með svfíflugur og ýmis fleiri
skemmtiatriði í ljósvakanum.
Að sjálfsögðu eru íslendingar
bæði fáir og smáir. og þess því
ekki að vænta, að Flugmálafélag
fslands — öðru nafni Iceiand
Aero Club — sýni þann stórhug
að standa eitt að slíku móti. Hið
svonefnda vamarlið á Keflavlk-
urvelli hefur því aumkvazt
yfir fólagið, og góðfúslega léð
fjórar þotur til hátíðahaldanna.
Er þess að vænta, að ljóðelskir
Reykvíkingar rifji upp fyrir sér
á sunnudaginn orð þjóðskálds-
ins á Morgunblaðinu, er svo
kveður: „Líkt og fljúgi flugvél
yfir 'I fjallatind með drunum
þungum '/ þannig veit ég. þjóð
mín, lifir / þríeinn guð í hjört-
um ungum.“
Aðgöngumerki að skemmtun
þessari munu kosta kr. 20 fyrir
fullorðna, en 10 fyrir böm. Sýn-
ingu lýkur um það bil kl. 16.30
Til þess að forðast umferðatrufl-
anir eru það eindregin tilmæli
lögreglunnar, að umferðin kofhi
öll frá Miklatorgi.
NATO ræðir griða-
sáttmála
Fastaráð Atlanzhafsbandalags-
ins kom saman á fund £ gær til
að ræða tillögu sovétstjómarinn-
ar um að gerður verði griðasátt-
máli milli þess og Varsjárbanda-
lagsins. Venjulega tekur ráðið
sér frí í ágústmánuði, en rétt
þótti engu að síður að kalla það
saman til að ræða þetta mál.
Vilhjálmur frá
Skáholti látinn
Sýning á
smiðavélum
Föstudagur 16. ágúst 1963 •— 172. tölublað — 28. árgangur.
Ný skáldsaga eftir
Indrlða G. í haust
*■»» v'*' m m . im wm m. mi wv w.a < > •**-> *■ >
Færeysk lúðrasveit
heldur hér tónleika
Næstkomandi laugardag mun
færeysk Iúðrasveit haida tón-
leika í Háskólabíói og á sunnu-
dag í Árbæ. Lúðrasveit þessi
sem heitir Havnar Hornorkest-
ur, kemur hingað til Iands í
tilefni 60 ára afmælis sveitar-
innar. Kemur lúðirasveitin á
vegum Lúðrasveitar Reykjavík-
ur og að nokkru í boði Reykja-
víkurborgar. Forsala aðgöngu-
miða er þegar hafin í Háskóla-
bíói.
f Havnar Homorkestur eru
30 menn og munu þeir flestir
búa í Hafnarbúðum meðan þeir
dveljast hér Stjómandi lúðra-
sveitarinnar er Pauli Christian-
sen en hann hefur annazt stjórn
lúðrasveita frá 17 ára aldri.
Einleikari er enski comet-snill-
ingurinn Robert Outhton. Havn-
ar Hornorkestur heldur hljóm-
leika í Háskólabíói laugardaginn
17. ágúst klukkan 7 og sunnu-
daginn 18 ágúst leika þeir í Ár-
bæ. Einnig munu þeir halda
hljómleika í nágrenni Reykja-
víkur, í Hafnarfirði, Keflavík,
Akranesi og á Selfossi.
Hljómlistanmennirnir munu
fara til Þingvalla í boði borgar-
stjórnarinnar. Færeyingafélagið
býður þeim að Gullfossi og
Geysi og einnig munu mennta-
málaráðherra og Lúðrasveit
Reykjavíkur halda þeim veizlur.
Dansleikur verður fyrir þá á
Hótel Borg 28. ágúst á vegum
Færeyingafélagsins og Lúðra-
sveitar Reykjavíkur.
Lúðrasveit þessi er sérstæð
að því Ieyti að í henni eru að-
eins málmblásturshljóðfæri
Ætlunin er að þetta boð veröi
upphaf nánari samskipta milli
íslenzkra og færeyskra lúðra-
sveita og stendur til að lúðra-
sveit Reykjavíkur fari til Fær-
eyja næsta sumar.
Miðasala er þegar hafin í
Háskólabíói og er verð aðgöngu-
miða kr. 40,00.
UM ÞESSAR MUNDIR stendur
yfir merkileg sýning í Lista-
mannaskálanum. Gefur þar að
Iíta nýjar, norskar smíðavól-
ar. Sýningin er opin almenn-
ingi, en þó einkum ætluð tag-
mönnum. Ekki getur leikmað-
ur dæmt um vélar þessar, en
þær virðast hinar vönduðustu.
Það er Tegle & Sönner Mask-
infabrikk frá Bryne i Noregi,
sem framleiðir vélamar ,en
umboðshafi hér á Iandi er
Geislahitun h.f.
Á SÝNINGUNNI eru margvís-
legar vélar. Má nefna þykkt-
arhefil, sem tekur niður í 1
mm spón, en beztu vélar fara
að jafnaði ekki neðar en í 3
mm. Þá má nefna mikinn og
vandaðann „fræsara", einnig
bútsög og slípivél. Mörgum
smið mun þykja fengur að
svonefndri „kombineraðri"
vél, en í henni eru fleiri vél-
ar, en hér verði taldar. Og að
Iokum má svo geta um vél, er
afréttari nefnist, en ekki veit
blaðamaðurinn. hver stuðning-
ur timburmönnum er í henni.
SÍNINGIN stendur fram á laug-
ardagskvöld.
I blaðinu Degi á Akureyri sem
út kom 9. þ.m. er birt viðtal við
Indriða G. Þorsteinsson rithöf-
und og segist hann þar vera að
Ieggja síðustu hönd á nýja skáld-
sögu sem út verður gefin í haust.
Hefur Indriði dvalizt á Akureyri
að undanförnu við ritun sög-
unnar og er hún að verða full-
búin til prentunar.
Indriði segir í viðtalipu að
sagan gerist á nokkrum haust-
kvöldum 1938 og fjalli um bænd-
ur og ákveðin einkenni þeirra
tíma. Þá segir hann að sagan
hafi heitið mörgum nöfnum í
handritinu en eins og er heitir
hún „LANr I SÁRUM“.
Þetta verður fjórða bók Ind-'
riða en hinar þrjár fyrri eru
Sæluvika, 79 af stöðinni og Þeir
sem guðirnir elska.
Indriði G. Þorsteinsson
Sunnudaginn 4. þ-m. and-
aðist Vilhjálmur skáld Guð-
mundsson frá Skáholti í Land-
spítalanum. Var banamein
hans lungnabólga. Vilhjálmur
hann hefði látizt af afleiðing-
borg aðfaranótt laugardags-
ins og var í fyrstu haldið að
hann hefði látist af afleiðing-
um meiðsla er harm hlaut á
höfði við fallið en svo reynd-
ist ekki vera.
Vilhjálmur var fæddur í
Skáholti við Bræðraborgar-
stíg 29. desember 1907 og
bjó alla tíð hér í Reykjavik.
Er hann öllum ljóðelskum
mönnum að góðu kunnurfyr-
ir skáldskap sinn en hann
gaf alls út eftir sig fjórar
ijóðabækur.
Nýtt landkynningar-
rit á enskri tungu
Njósnari dæmdur
NEW YORK 15/8. 38 ára gam-
all hermaður í bandariska flot-
anum, Nelson Drummond að
nafni, var í dag dæmdur i lífs-
tíðarfangelsi fyrir njósnir í þágu
Sovétríkjanna.
Drummiond er negri. Er hann
var handtekinn fundust hjá hon-
um leyniskjöl. í mánuðinum sem
leið var hann úrskurðaður sekur.
Eyðist hafarnar-
stofninn af eitri?
Þjóðviljanum hefur borizt fréttatilhynning frá Fugla-
verndunarfélagi íslands þar sem bent er á þá hættu að
síðustu leyfum hafarnarstofnsins hér á landi verði út-
rýmt á skömmum tíma með útburði eiturs, ef ekki verða
gerðar ráðstafanir til þess að grípa fljótt í taumanna-
Fer fréttatiilkynning félagsins um þetta efni hér á eftir:
„Snemma á þessu ári var
skipulagt félag óhugamanna um
fuglavernd og er eitt aðalmark-
mið þess að hindra að örninn
verði aldauða á íslandi. Félag-
ið hefur ráðið eftirlits og trún-
aðarmenn til þess að líta eftir
varpsvæðum arnanna.
Á þessu ári hafa svo vitað
er um, 3 pör auk unga og eggja
eyðilagzt. Enginn grunur leikur
á, að þetta sé af mannavöldum.
Mikil líkindi eru fyrir því, að
orsakir þessarar eyðileggingar,
sé útburður eiturs (strychnin).
Allmikið er eitrað á þessu svæði
samkvæmt lögum frá 1957 og
er það álitið að örninn taki
veiðibjöllu, sem drepizt hafi af
eitri, heim í hreiður, og þar
eð eitrið er í magainnihaldi hins
dauða fugls, nægi slíkt til þess
að drepa ungana. Ungar dráp-
ust við tvö hreiður sl. vor. Full-
<j>orðinn fugl heyr lengra dauða-
stríð og flýgur þá gjaman burt,
t.d. til hafs. Sl. vor fannst einn
sjórekinn við Breiðafjörð, og í
fyrra annar á svipuðum slóðum.
Skiljanlegt er að aðeins fáir
þeirra arna sem drepast koma
í leitirnar. Allt bendir til þess
að arnarstofni-nn sé í yfirvof-
andi hættu með að verða út-
rýmt hér í landinu og er það
álit flestra, að nær eingöngu sé
þetta af völdum eiturs. Verði
ekki bannað nú þegar að bera
út eitur á öllu landinu, mun
örskammt þar til síðasti örninn
deyr af þess völdum.
Að okkar dómi er það ein-
stætt, að löggjafarþing skuli
Framhald á 2. síðu.
Myndin er af amarunga og
fullorðnum erni er nýlega fund-
ust dauðir á Vesturlandi að því
er talíið er af völdum eiturs.
Haraldur J. Hamar blaða-
maður og Heimir Hannesson
lögfræðingur hafa hafið útgúfu-
á nýju riti er þeir nefna Ice-
Iand Review og er það gefið út
á ensku til kynningar á íslenzk-
um atvinnuvegum, útflutnings-
afurðum, þjóðlífi og menningu
íslendinga.
Ritið á að koma út fjórum
sinnum á ári og er prentað á
myndapappír og áherzla lögð á
vandaðan frágang og útlit. Hef-
ur Gísli B. Björnsson séð um
útlit blaðsins, brotið það um
og teiknað nýstárlega og
skemmtilega forsíðumynd.
Við undirbúning og útgáfu
þessa rits hefur verið haft sam-
ráð við opinbera aðila svo og
forustumenn helztu útflutnings-
fyrirtækja landsins. Mun utan-
ríkisráðuneytið, innflutnings- og
útflutningsaðliar, flugfélög,
ferðaskrifstofur og fleiri annazt
dreifingu ritsins eslendis en auk
þess verður það til sölu í bóka-
i Framhald á 2. síöu.
Flugdagur mei varnarliðsaðstoð um