Þjóðviljinn - 23.08.1963, Side 1
Föstudagur 23. ágúst 1963 — 28. árgangur — 178. tölublað.
Reykvískir sjómenn fíæmdir
burt úr skiprúmum sírium
Sjá viðtal á síðu ©
Réttindalaus?
Sjómaður hefur beðið blaðið að koma á framfæri
eftirfarandi spurningu:
Er það rétt að vakthafandi stýrimaður á lög-
gæzluskipinu Ægi, þegar skipið rakst á vélbátinn
Fróðaklett GK 250 hafi verið réttindalaus? Eru
mikil brögð að því á löggæzluflota landsins, að
menn séu þar réttindalausir á vakt?
Þessum spurningum er hér með komið á fram-
færi við viðkomandi aðila.
Þing Samb. ísl. sveitarfélaga:
Mörg merk mál á
dagskrá þingsins
Þing Sambands íslenzkra
sveitarfélaga var sett í gær-
morgun með ávarpi for-
manns, Jónasar Guðmunds-
sonar. Þingið hófst klukkan
10 árdegis og situr að Hótel
Sögu. Að lokinni setningar-
ræðunni flutti borgarstjór-
inn í Reykjavík, Geir Hall-
grínísson, ávarp og að því
loknu skilaði kjörbréfanefnd
áliti sem hlaut einróma sam-
þykkt og allmörg ný sveit-
arfélög voru tekin í sam-
bandið.
Við forsetakjör hlaut Jónas
Guðmusdsson kosningu, en Auð-
ur Auðuns var kosin 1. vara-
forseti, 2. varaforseti Tómas
Jónsson. Ritarar voru kjörnir
þeir Jóhann Hermannsson frá
Húsavík og Páll Björgvinsson
frá Efra-Hvoli.
Að loknu kjöri embættismanna
var kosið í fastanefndir og for-
maður flutti skýrslu stjórnar
fyrir tímabilið 1959—1963, þá
voru lagðir fram reikningar
Framhald á 2. síðu.
Búi5 a5 salta í tæplega
400.000 tunnur síldar
Samkvæmt upplýsing-^
um Síldarútvegsnefnd-
ar var í gær búið að
salta í 394.000 tunnur á
öllu landinu. Lokið var
þá söltun á allri venju-
legri saltsíld í gerða
samninga og einnig lok-
ið að fullu sérverkun
síldar á Finnlandsmark-
að og hefur hún verið
stöðvuð. Eftir er að
verka nokkurt magn af
kryddsíld, sykursíld og
léttsaltaðri síld fyrir hin
ýmsu markaðslönd.
Stærsti kaupandi saltsíldar í
ár eru Sovétríkin með 120.000
tunnur, en mikið magn er einnig
selt til Svíþjóðar, Bandaríkjanna,
Vestur-Þýzkalands, Danmerkur
og Finnlands. Minna til annarra
Söltun hefur enn ekki verið
stöðvuð, enda verið að reyna
samninga um áframhaldandi sölu
og fer eftir árangri þeirrar við-
leitni hvenær stöðvun verður
boðuð.
I sumar hefur verið saltað
Framhald á 3. síðu
Myndin var tekin í gær að Hótel Sögu og sýnlr nokkra þingmenn á Sveitarstjórnarþingiinu að
störfum. (Ljósm. Þjóðv. G. O.).
Norsk hægristjórn
verður skammlíf
OSLÓ 22/8 — Atkvæðagreiðsla
um vantrauststiilöguna á hendur
sóaíaldemálkratas'tjótmar Ger-
hardsens forsætisráðherra í Nor-
egi fór ekki fram í kvöld eins
og búizt hafði verið við. Vitað
er þó að tillagan verður sam-
þykkt þegar þar að kemur og
verður því stjórninni ’ekki lengri
lífdaga auðið.
Talið er fullvist að hægri-
manninum Jolm Lymge verði
falið að mynda nýja stjórn en
öruggt er að sú stjórn verður
ákaflega skammlíf. Þingmaður
Sósíalistíska þjóðarflokksins,
Finn Gustavsen, skýrði frá því í
dag að hann og flokksbróðir
hans á þingi myndu hera fram
vantrauststillögu á stjórn borg-
araflokkanna þegar á fyrsta
degi.
Þingmannaskiptingin er þann-
ig, að hinir tveir þingmenn sósí-
alistíska þjóðarflokksins hafa
líf ríkisstjórnarinnar í hendi
sér, livort sem um er að ræða
stjórn Sósíaldemókrata eða
borgaraflokkanna.
Fullvíst er talið að John
Lynge verði ekki tilbúinn með
ráðherralista sinn fyrr en eftir
næstu helgi. Fjórir borgara-
flokkar munu taka þátt í stjórn-
inni og hafa fulltrúar þeirra
þegar sezt að samningaborðinu.
Búizt er við atkvæðagreiðslu um
vantraustið á morgun.
!
Undanfarið hafa all-
miklar umræður orðið
um smásíld þá, er
veiðist um þessar
mundir fyrir Suður-
landi. Hafa ummæli
fiskifræðinga hnigið í
þá átt, að hér sé um
varhugaverðar veiðar
að ræða, sem skaðað
geti fiskistofninn.
í sær lýsti Guðmundur út-
gerðarmaður á Rafnkelsstöð-
um því yfir, að hann bann-
Mlklar umrœSur um smásildarveiSi
Akranesbátar enn á miðin -
Raf nkelsstaðabóndi hættur
aði sínum bátum að veiða
smásíldina. Segist Guðmund-
ur litla trú hafa á þessum
veiðum, og telur þær „hálf-
gerða rányrkju". Persónulcga
kveðst hann telja veiðar á
smásíld „stórspillandi" og
vera þeim algörlega mótfall-.
inn
Ekki eru þó allir útgerðar-
menn þessu sammála. Þjóð-
viljinn átti í gær símtal við
Sturlaug Böðvarsson, útgerð-
armann á Akranesi. Stur-
laugur kvað hér um við-
kvæmt mál að ræða, en þó
myndi fyrirtæki hans halda
þessum veiðum áfram. Telur
hann of mikið úr því gert,
hve síldin sé smá. Þá sé það
og venjan, að síldjn fari
stækkandi er líði á haust. í
fyrradag hafi veiðst síld, sem
verið hafi 24—32 cm að
stærð, en þegar upp í þá
stærð sé komið sé síldin vel
vinnsluhæf.
Þá sagði Sturlaugur enn-
fremur, að sjómönnum og út-
gerðarmönnum blöskri, hve
miklu Norðmenn ausi upp af
smásíld. Sé þar um að ræða
síld, sem sé þrisvar sinnum
minni en sú, er hér veiðist,
og hafi þetta orðið Norð-
mönnum og Rússum að deilu-
efni.
Haraldur Böðvarsson gerir
út sex báta frá Akranesi, en
alls munu tólf bátar gerðir
þaðan út á þessar síldveiðar.
Ofsóknirnar
magnast í
S- Víetnam
Myndin sýnir Búddanunnur í
Suður-Víetnam sem syrgja
einn trúbróðir sinn sem brennt
hefur sig I hel til að mót-
mæla ofsóknum Diems ein-
ræðisherra. Diem hefur nú
enn hert á ofsóknunum. Her
hans, búinn bandarískum
vopnum hefur ráðist á búdda-
hofin og orðið nokkrum mönn-
um að bana. Á annað þús-
und manns hafa verið hand-
teknir og verða dregnir fyrir
herrétt. — SJÁ Frétt Á 3.
síðu.
Nýr forstjóri
Bæjarútgerð-
ar Hafnarfj.
Sem kunnugt er hrökklaðist
Öttar Hansson fiskifræðingur frá
störfum sem forstjóri Bæjarút-
gerðar Hafnarfjarðar sl. vetur
og drógu þau mál á eftir sér
þann dilk að upp úr slitnaði
samvinnu Sjálfstæðisflokks og
Framsóknar í bæjarmálum Hafn-
arfjarðar.
Hinn nýi meirihluti í útgerð-
arráði bæjarútgerðarinnar hef-
ur nú ákveðið að ráða Helga
Þórarinsson í stað Öttars. Helgi
hefur starfað hjá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna, en síðustu ár
hefur hann verið forstjóri Fisk-
iðjunnar á Isafirði.
i