Þjóðviljinn - 29.08.1963, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 29. ágúst
1963
ÞJðÐVlLJINN
SÍÐA 5
Er hægt með vísindqlegum aðferðum
AÐ STJÓRNA
HUGARSTARFSEMI
MANNSINS?
Frazier íleygði írá sér
burstanum, sem hann
var að nota, og stakk
höndunum í vasana . . .
„Gott og vel," sagði
hann, „hvað mundirðu
segja um það að móta
salarlíf manns að vild
binni? Heldurðu að þér
þætti það gaman? Eða
að breyta lundarfari
hans eftir því sem þér
sýndist? Láttu mig hafa
frjálsar hendur og ég
skal skapa hvaða mann-
berð sem vera skal ! . . .
Tökum börnin okkar og
höfum hönd í bagga
með þroska þeirra, á-
rangurinn skal verða
meiri en þig arunar ..."
„Það er ekki lítið sem
bú ætlar þér. Þú munt
ætla að keppa við guð,"
sagði ég hikandi.
„Já það er einkennilega
líkt með okkur tveim-
ur," sagði hann.
Ég komst snöggvast í
uppnám. „Þú heldur
það. Ætli þér verði ekki
mjórra muna vant,"
sagði ég og reyndi að
láta sem ekkert væri.
„Síður en svo’" sagði
hann . . „Þú veizt, að
börn guðs verða honum
ætíð til vonbrigða . .
Ég get ekki fullyrt að
ég verði aldrei fyrir
vonbrigðum, en áreið-
anlega miklu sjaldnar
en hann".
Hvað er nú þetta? Hver mað-
ur sem lesið hefur H. C. Wells
eða aðrar ,,vísindaskáldsögur“
mun óðar sjá það. Það er sag-
an af þeim vísindamanni, sem
heldur sig hafa fundið bann
galdur sem margir hafa lengi
leitað að, galdurinn að ná tök-
um á hug og hjarta almennimgs.
Þetta er tekið úr sögu eftir
3. F. Skinner. sem heitir Wald-
en.
En þó að þetta komi e.t.v.
ekki ókunnuglega fyrir sjónir,
hefur það samt nokkuð nýtt
að geyma. Því hann trúir því
að hegðun manna og hugarfari
geti og eigi að vera stjórnað
af vísindamönnum svo sem
„Frazier þeim, sem kallast vera
kennari og stjórnandi þess
framtíðarríkis, sem um er rætt
í bókinni Walden II., en Frazi-
er er sjálfur af hinni sömu
manngerð sem höf. sjálfur. en
hann er nánar tiltekið prófessor
í sálarfræði við Harvardháskóla
og einn hinna fnerkustu sálar-
fræðinga í Bandaríkjunum síð-
an William James leið.
Rafmagn og
heilastarfsemi
Dr. Skinner er það sem hér-
lendis mundi kallað að vera
„örlagatrúarmaður". Hann held-
ur því fram, að hver sem i-
myndar sér að hann hafi frjáls-
an vilja. blekki sig, því 5U
hegðun manns og hugarfar eig;
sér orsakir sem komi að utan.
„Duttlungar“. segir Skinner,
„eru aðeins nafn á hegðun. sem
ekki verður skýrð. að svo
komnu máli“, þessvegna ber
vísindamönnum að taka að sér
að stjórna fólkinu, svo það
hegði sér eins og því hentar
bezt, en fari sér ekki að voða.
Fæstir eru honum sammála.
jafnvel sumir sem ekki hafa
ófrægara nafn. og sumir æstir
andstöðumenn hans. En sé nán-
ar að gáð, vekur það einna
mesta furðu að svo margir vis-
indamenn. sem raun er á skuli
vera honum samdóma. í grund-
vallaratriðum; að unnt sé að
stjórna hegðun manna að tals-
verðu leyti, og að vísindin
vilji og geti vitað nógu mikið
um þá til þess að megna þetta.
og það á furðu nákvæman og
áhrifamikinn hátt. Með öðrum
orðum: vísindin virðast vera
komin vel á veg með að finna
aðferð til að veita hverjum
manni aðstoð til að forma hugs-
anir sínar, tilfinningar, gerðir.
m.ö.o. að stjórna örlögum hans.
Með nýjum og furðulega full-
komnum tækjum má nú rann-
saka heilastarfsemi hjá lifandi
mönnum og dýrum, og rekja iil
róta öll sálfræðileg viðbrögð.
Þessi aðferð er í því fólgin að
örfínu raftæki er stungið inn
í heilann. og látið otka á ýms-
ar heilafrumur. öll boð, sem
um heilann og taugarnar berast
gera það á þann hátt, að raf-
straumur fer á milli. Raunar
er straumur þessi ekki eingöngu
rafstraumur, heldur fara fram
efnabreytingar jafnframt, sem
ekki hafa minna gildi.
Fyrst er þess að geta, að raf-
magnið skapast með kemiskum
gagnverkunum innan frumunn-
ar sem boðin sendir. 1 öðru
lagi tuagaboðunum, sem flytja
frá frumu til frumu, er stjórnað
af kemiskum gagnverkunum.
sem fram fara í því sem kallast
synapsis, eða tengsl milli tauga-
fi-uma. í þriðja lagi, þegar boð-
in ná ákvörðunarstað. eru bað
sérstök efnasambönd (tauga-
hormón), sem verða fyrir svör-
um og stjórna þvi sem gera
skal. Það er þannig ekki tauga-
boðið sjálft, heldur efni no!áí-
urt sem það framleiðir, og kall-
ast acetylcholin. sem áhrif heí-
ur á vöðvann, sem skipunin
barst til, og kemur honum til
að kvika. Samkvæmt þessu eru
það ekki fyrst og fremst bein
áhrif rafstraumsins á heilann
sem vekja honum viðbrögð.
heldur engu síður þetta efni. og
þá er náðst hafa full tök á því.
Stúlka undir áhrifum lyfsins SLD sér kynjamyndir (ofsjónir) í sítrónu.
mun verða unnt að hafa af því
þau not, sem engan kann enn
að gruna.
Persónuleikanum
breytt?
Til þess að stjórna viðbrögð-
um taugakerfis og heila á þenn-
an hátt, er óhjákvæmilegt að
vita hvemig þau gerast og í
hverjum hluta heilans hvert
fyrir sig. Það verður að finna
ráð til að koma réttum skammti
af efnum á réttan stað i heil-
anum, og gegnum blóðrásar-
kerfi heilans, sem umlykur
heilafrumurnar, og ýmist gerir
að opna aðkomandi efnum í
blóðrásinni leið að þeim eða
að girða fyrir. Þessi efni mega
ekki heldur valda truflun á öðr-
um efnabreytingum í líkaman-
um né óþægilegum aukaverk-
unum.
Þetta er enganveginn auðvelt
viðfangs. Lífefnafræðingur, að
nafni S. Ropp segir svo: „Vís-
indamaður sem reynir að rann-
saka efnabreytingar sem hugs-
un og tilfinningar valda, er líkt
á vegi staddur og innbrotsþjóf-
ur, sem reyndi að opna fjár-
hirzlu í stóybanka með tann-
stöngli".
Þó að flestum vísindamönn-
um hljóti að vaxa í augum slík-
ir erfiðleikar, eru þó margir
þeirrar skoðunar að takast megi
að sigrast á þeim öllum. og það
£ náinni framtíð. Atómefnafræð-
ingur sem heitir Glenn T. Sea-
borg og er forseti kjarnorku-
nefndar Bandaríkjanna, gizkar
á að á næstu áratugum muni
finnast meðul. sem breytt geti
persónuleika hvers manns á
hvern hátt sem óskað er, og
látið breytinguna haldast. Þessi
trú hans styðst að nokkru leyti
við þær öru framfarir 1 þekk-
ingu, sem hinn fyrrnefndi raf-
magnskannari heilans hefur
leitt í ljós, en að öðru leyti við
þær óhemju framfarir sem orð-
ið hafa í eðlisfræði og lífeðlis-
fræði og líffræði. En mestar
vonir bindur hann við þá ó-
væntu þróun, sem orðið hefur
í uppgötvun lyfja sem áhrif
hafa á sálarlífið. Útbreiðsla
lyfja hefur farið ört vaxandi
síðustu tíu árin. en þá komu
fram tvö mjög merk róandi
lyf: Rauwolfia og chloroproma-
zine. Árangurinn varð óðar
framar öllum vonum. svo af bví
hlauzt það að farið var að leita
að öðrum meðulum sem hefðu
svipuð áhrif, og fannst af þeim
mikill fjöldi. Fæstir skilja
hvernig á því stendur, að bau
hafa áhrif, en það hafa þau
engu að síður. Þau breyta sál-
arlífinu, umhverfa tilfinningum,
skynjunum, lundarfari. hvötum.
hugsanaferli og breytni. Og
vísindamenn hafa þegar svo
mikla reynslu af þeim, að þeir
gera sér hinar glæsilegustu von-
ir um framhaldið.
Meðal þess sem einna mestur
gaumur hefur verið gefinn, eru
hin svonefndu „ofskynjunarlyf“
Nafnið er dálítið villandi, því
margt annað getur valdið of-
skynjunum, t.d. aspirín og koff-
ein í stórum skömmtum. lang-
vinn einangrun eða mikil
þreyta, svefnleysi, sultur, kvalir
eða áhyggjur, sérhver truflun
á jafnvægisástandi líkamans.
að þvi er snertir vökvamagn,
sölt. blóðsykur, súrefni eða ýms
önnur efni. Auk þess valda
þessi ofskynjunarlyf ekki ætíð
ofskynjunum, og þau hafa önn-
ur áhrif, eins og bráðum verð-
ur vikið að. Það sem er ein-
kennandi fyrir þau er það, að
þau geta valdið „dulsýnum" eða
því að, maður sér annað og
öðruvísi en eðlilegt er, en er
þó að meira eða minna leyti
með sjálfum sér og kann fót-
um sínum forráð.
Áhrif töfra-
jurtanna
Náttúran framleiðir fjölda af
slíkum efnum. og líklega hafa
mörg þeirra verið notuð um
langan tíma, jafnvel þúsundir
ára. Hið þekktasta af þeim er
unnið úr kvenblómi hampjurt-
arinnar, cannabis sativa. I
Bandaríkjunum er þetta kallað
marihuana, í Marokko er bað
kallað kief, og nöfnin eru jafn-
mörg tungumálum í löndun-
um, þar sem þetta þekkist.
Jurtin þrifst í öllum löndum
sem hafa temprað loftslag. I
Mexikó eru framleidd ýmis of-
skynjunarlyf, en þekktast er
„töfrasveppurinn“, í honum er
efni sem nú hefur tekizt að
Dagana 2.—6. september n.
k. mun Framleiðsluráð land-
búnaðarins halda námskeið fyr-
ir starfsmenn sláturhúsa. Nám-
skeiðið verður haldið á Akur-
eyri og fer verldeg kennsla
fram í sláturhúsi K.E.A., en
erindaflutningur fer fram á
Hótel K.E.A.
Erindi sem flutt verða fjalla
m.a. um meðferð sláturfjár,
kjötmat, verkstjórn, pökkun
innyfla, frystingu kjöts, hrein-
læti í sláturhúsum, heilbrigðis-
skoðun og fyrirkomulag í slát-
urhúsum.
Þeir sem erindi flytja á nám-
skeiðinu eru þeir Páll A. Páls-
framleiða í efnaverksmiðjum,
kallast psilocybin og farið
er að gera tilraunir með. I
Mexikó vex einnig kaktusteg-
und sú, sem meskalín er unnið
úr. Belladonna og fleiri efni
unnin úr jurtum af kartöflu-
ættinni, voru mikið notuð á
miðöldum af galdrakörlum- og
kerlingum í Evrópu. Sum af
þessum meðulum hafa verið
notuð öldum saman af ýmsum
trúflokkum til þess að gera
fólk frá sér numið við trúar-
athafnir, og koma því til að siá
leynda hluti, eða dulræna, en
á síðustu tímum er þetta mik-
ið notað af rithöfundum, skáld-
um og listamönnum til þess að
skerpa gáfurnar, auðvelda nið-
urskipun efnisr og leitast við að
ná yfirskilvitlegri sýn yfir bað.
Það er ómaksins vert að lesa
sumt af því sem þeir hafa um
þetta sagt. Dr. Gordon Wasson,
bankastjóri í New York, sem
hefur í hjáverkum athuganir á
sveppum, ræktuðum í rann-
sóknastofum. segir svo um til-
raunir sínar á sjálfum sér með
„töfrasveppinn": „Sýnir mínar
voru með björtum litum, og
alltaf fagrar ...... hallir al-
skreyttar hálfdýrum steinum ..
kynjadýr sem drógu konungs-
vagn. Seinna sýndist mér sem
veggurinn á húsinu okkar væri
horfinn, og sál mín flogin burt;
og mér þótti ég svífa í lausu
lofti og vera að horfa á fjöll-
ótt land, þar sem úlfaldalestir
sigu hægt um 'hlíðarnar en í
fjarska báru tindar við him-
in....“
Sálfræðingurinn Havelock
Ellis sá í meskalínvímu: „hvar
við mér blöstu grundir þar
sem dýrðlegum gimsteinum var
Framhald á 7. síðu.
son, yfirdýralæknir, Jónmundur
Ólafsson, kjötmatsformaður,
Guðlaugur Hannesson, gerla-
fræðingur, Adolf Petersen,
verkstjóri, Páll Lúðviksson
verkfræðingur, og Jón Reynir
Magnússon. verkfræðingur.
Verkleg kennsla fer fram i
slátrun, gærameðferð og með-
ferð og pökkun innyfla. Auk
þess verður farið í heimsókn til
Kaupfélags Norður-Þingeyinga,
Kópaskeri og sláturhús félags-
ins skoðað, en það er eit.t full-
komnasta sláturhús á landinu.
Forstöðumaður námskeiðsins
verður Jón Reynir Magnússon,
verkfræðingur.
Starfsmenn slátur-
húsa á námskeiði