Þjóðviljinn - 30.08.1963, Síða 1
Föstudagur 30. ágúst 1963
argangur
tölublað.
Ágæt síldveiBi tvo
síðustu sólurhríngu
Ágæt síldveiði var í fyrradag og gær út
af Langanesi. Fyrra sólarhring fengu 42 skip
samtals um 30 þúsuhd mál á þessum slóðum
og í gær fengu mörg skip einnig ágætan afla.
Var stanzlaus löndun á Raufarhöfn sl. sól-
arhring en megnið af síldinni fer í bræðslu.
Samkvæmt upplýsingum síld-
arleitarinnar á Raufarh. síðdeg-
is í gær varð síldarleitarskipið
Pétur Thorsteinsson vart við síld
í gærmorgun 77 sjómílur aust-
norðaustur af Raufarhöfn og
fengu nokkur skip þar sæmileg-
Störf nefnd-
urínnor enn
á frumstigi
Eins og Þjóðviljinn
skýröi frá fyrir nokkru
{ hafa vinnuveitendasam-
j tökin og Alþýðusamband-
ið komiö sér saman um
skipun nefndar til þess
að athuga um greiðslu-
getu atvinnuveganna
j eins og gert var ráð fyr-
j ir í samningum þessara
■ aðila á sl. ári-
■
■
; Þjóðvil|inn hafði í gær tal
j af Bimi Jónssyni, sem er
■ formaður nefndarinnar og
; spurði hann frétta af störf-
! um hennar. Skýrði Björn
j blaðinu svo frá, að tveir
■ nefndarmenn, Hjalti Krist-
■ geirsson, hagfræðingur og
: Þorðvarður Alfonsson, fram-
: kvæmdastjóri, hefðu farið til
■ Noregs á vegum nefndarinn-
■ ar til þess að kynna sér
5 störf og vinnubrögð hagdcild-
: anna hjá vcrkalýðssamtökun-
• um og atvinnurekendasam-
■ bandinu norska. Hefðu þeir
: aflað ýmissa upplýsinga og
• gagna í þessári ferð.
■ Að öðru leytii er starf nefnd-
• arinnar í mótun í grundvall-
: aratriðum, og ekld að svo
j komnu máli unnt að skýra
■ frá, hvernig rannsókninni
■ verður hagað.
■
Bygglitgar-
framkvœmdir
ó Keldnahoiti
Framkvæmdir eru nú hafnar
við byggingu rannsóknarstöðvar
landbúnaðarins sem á að rísa á
Keldnaholti en áætlað er að að-
albyggingin verði komin undir
þak næsta haust.
Það er Byggingarfélagið Brú
sem hefur tekið að sér fram-
kvæmdirnar og hljóðaði tilboð
þess í verkið upp á 8.7 milljón-
ir en heildarkostnaður við húsið
komið undir þak er áætlaður 10
milljónir króna. Byggingin á að
verða tvær hæðir og kjallari og
gólfflötur hennar um 3000 ferm
an afla í morgun. 1 gær færðlst
síldin 10—12 mílur í norðvestur.
Síldin á þessu svæði er í stór-
um torfum en ákaflega stygg og
erfitt við hana að eiga. Var mik-
ið kastað í gær og fengu sum
skipin ágætan afla.
Á Raufarhöfn hefur verið
stanzlaus löndun síðan þessi
hrota hófst og biðu þar 2—3 skip
löndunar síðdegis í gær. Svo til
öll síldin hefur farið í bræðslu
en aðeins var þó borið við að
salta.
1 gær varð einnig vart síldar
um 40 sjómílur suðaustur af Sel-
ey.
Þessi skip höfðu tilkynnt um
afla sinn í gærmorgun til síld-
arleitarinnar:
Faxaborg 900, Gullver 1100,
Helga 1300, Sigfús Bergmann 750.
Mánaklettur 800, Sigurpáll 1500,
Sæúlfur 600, Hilmir 400, • Anna
800, Gtótta 800. Ólafur Tryggva-
son 1000, Guðmundur Þórðarson
Atvinnudeild-
inni synjað um
Korpúlfsstaði
A borgarráðsfundi 27. þ.m. var
lögð fram umsókn frá Atvinnu-
deild háskóla Islands. landbúnað-
ardeild, þar sem óskað er eftir
því að hún fái á leigu jörðina
Korpúlfsstaði. Borgarráð taldi
ekki unnt að verða við umsókn
þessari.
1300, Oddgeir 1400, Skagaröst 150,
Svanur RE 600, Tjaldur 600. Ámi
Geir 850, Runólfur 800, Baldvin
Þorvaldsson 350, Sólrún 1400, Jón
Garðar 900, Ólafur Magnússon
EA 1100. Helga Björg 550, Smári
550, Lómur 1300, Freyfaxi 600,
Ólafur Bekkur 900, Hugrún 650,
Skipaskagi 800, Bjarmi 300,
Hörður 500, Baldur 200, Vattar-
nes 1100, Víðir Su 300, Straum-
nes 90, Gullver 350, Sigurður
Bjarnason 400, Bára 450, Búðar-
fell 800, Þórkatla 700, Hoffell
200.
GLÆSILEGT HAFRANNSÓKNASKIP
Þetta glæsilega sovézka haf-
rannsóknaskip kom hingað tii
Reykjavíkur í gær til þess að
taka vatn og vistir og mun
það hafa hér viðdvöl í 5 daga.
Skipið sem heitir Poljus er «.
svo til nýtt, smíðað í Nep-
tuncskipasmíðastöðinni í Aust-
ur-Þýzkalandi og Iauk smíði
þess í fyrra, Það er 6800 tonn
að stærð mjög vandað að gerð
og búið fullkomnustu tækjum
til hafrannsókna.
Skipstjóri á Poljus heitir
Boris Kotsegut og sýndi hann
fréttamönnum skipið síðdegis
í gær. A skipinu eru 80 ó-
breyttir skipsmenn, 14 yfir-
menn og 30 vísindamenn.
Þetta er annar rannsóknar-
leiðangur skipsins og hefur
það að þessu sinni haft mán-
aðar útivist í Norðuratlanz-
hafi. en í fyrstu rannsóknar-
ferð sinni fór það m.a. til
Bcrmudaeyja og víðar um
V cs turatlanzhaf.
Er þetta í fyrsta sinn sem
slúpið kemur hingað og hafði
skipstjórinn orð á því við
fréttamann Þjóðviljans í gær
að fegursta Iandsýn sem hann
hefði séð hefði verið sú er
hann sá er hann sigldi skipi
sínu upp að suðaustur strönd
lslands.
Almcnningi mun gefinn
kostur á að skoða skipið á
morgun milli kl. 2—4 síðdegis.
Skipulagsmálin eitt þýðingarmesta
málefni íslenzkra sveitarfélaga
Eitt aðalmál 7. landsþings Sambands íslenzkra
sveitaríélaga voru skipulagsmál sveitarfélaga og
gerði þingið um það mál eftirfarandi þrjár álykt-
amr.
i
a. Kosning nefndar til að fjalla
um skipulagsmál.
7. landsþing Sambands íslenzka
sveitarfélaga telur skipulagsmál
sveitarfélaga eitt þýðingarmesta
málcfni, sem nú er á döfinni, og
ákveður því að kjósa 5 manna
ncfnd til þess að fjalla um frum-
varp það að skipulagslögum, er
nú liggur fyrir Alþingi. Nefndin
skal skila störfum til stjórnar
samtakanna. áður en frumvarpið
verður tekið til afgreiðslu á AI-
þingi.
I þessa nefnd voru kjömir:
Einar Halldórsson oddviti,
Garðahreppi, Gísli Halldórsson
^borgarfulltrúi, Reykjavík, Hjálm-
ar Ólafsson bæjarstjóri, Kópa-
vógi, Sigurður I. Sigurðsson odd-
viti. Selfossi, Björgvin Sæmunds-
son bæjarstjóri, Akranesi.
b. Endurskoðun byggingarlög-
gjafarinnar.
7. landsþing Sambands ísl.
sveitarfélaga telur eðlilegt að
endurskoðun byggingarlöggjafar-
innar sé tengd afgreiðslu frum-
varps þess til skipulagslaga, sem
nú liggur fyrir Alþingi. I þvi
sambandi leggur þingið ^herzlu
á að væntanleg byggingar- og
skipulagslöggjöf gildi fyrir landið
í heild.
Þingið bendir á samræmda
löggjöf nágrannalandanna sem
æskilega fyrirmynd í þessu efni.
c. Ráðstöfun skipulagsgjalda
7. landsþing Sambands ísL
sveitarfélaga vekur athygli á því,
að tekjur ríkissjóðs af skipulags-
gjaldi hafa á undanfömum árum
verið allmiklu meiri en fjárveit-
ingar til skipulagsmála, enda
þótt mikið skorti á, að skipu-
lagsskrifstofan sé fær um að
veita ýmsum sveitarfélögum
nægilega þjónustu.
Til þess að tryggja það, að
tekjur af skipulagsgjöldum séu
notaðar til skipulagsstarfa svo
sem lög gera ráð fyrir, telur
þingið eðlilegt, að tekjurnar
renni í sérstakan sjóð, sem ráð-
stafað sé til skipulagsstarfsins
að skipulagsnefnd ríkisins í sam-
ráðum við stjóm Sambands ís-
lenzkra sveitarfélaga.
Þá telur þingið rétt, að í skipu-
lagslögum sé heimild til handa
sveitarfélagi, sem þess óskar, að
taka skipulagsmál innan síns
lögsagnammdæmis í sínar hend-
ur undir yfimmsjón skipulags-
skrifstofunnar. Hrökkvi skipu-
lagsgjöldin þar ekki til að standa
straum af rekstri skipulagsskrif-
stofu sveitarfélagsins, greiðist
það, sem á vantar, að jöfnu úr
ríkissjóði og sveitarsjóði.
Rækjumiðin »ið
Eldey rannsökuð
Milwood lœtur úr höfn í Reykjavík
I gær lét hinn frægi land-
helgisbrjótur, brezki togarinn
Milwood, úr höfn í Reykjavík
eftir að hafa vcrið hafður hér
í haldi í rúmlega fjóra mán-
uði cn eins og frá hefur vcrið
sagt hér í blaðinu fclldi Saka-
dómur Reykjavíkur nývcrið
þann úrskurð að slcppa toger-
anum úr haldi gegn tryggingu.
Hefur sú bankatrygging nú
verði sett og nemur hún 10
þúsund pundum.
Áhöfn kom frá Skotlandi til
þess að sækja togarann en af
góðum og gildum ástæðum
var John Smith ckki í þeim
hópi en hann hefur þverneit-
að að mæta fyrir dómstólum hér
og neitaði að taka við dóm-
kvaðnlngu. Verður réttur sett-
ur í máli hans 2. sept. n.k.
Myndin er tekin er Milwood
hafði leyst landfestar og var
að snúa stefni til heímahafn-
ar í Skotlandi
— (Ljósm. Þjóðv. G.O.)
I vikunni sem leið var
gerður út leiðangur á
vegum sjávarútvegs-
málaráðuneytisins til
þess að kanna rækjumið
þau sem humarveiðibát-
urinn Morgunstjarnan
frá ísafirði fann í nám-
unda við Eldey.
Farið var í rannsóknarleiðang-
urinn á tveim bátum, Morgun-
stjömunni og Eldey og var
rækjunnar leitað bæði við Eld-
ey, austur af Krxsuvíkurbjargi,
út af Höfnum svo og 1 Faxaflóa.
Stjómaði Ingvar Hallgrímsson
fiskifræðingur leiðangrinum.
Talsvert fannst af rækju, mest
út af Hafnarleir og milli Staf-
ness og Reykjaness. Fékkst hún
á 60—90 faðma dýpi og var með-
alafli um 60 kg. á klukkustund.
Er það nokkru minna en fæst
á aðalveiðitímanum á Vestfjörð-
um.
Ætlunin er að kanna þetta
svæði einu sinni í mánuði næstu
mánuðina til þess að athuga
göngu rækjunnar og magn svo að
full vitneskja liggi fyTir um
hvort tveggja áður en veiðar
hefjast fyrir alvöru.
//
Pressuliðið
var valið í gær
í gær völdu íþróttafréttarit-
arar lið það sem á að leika gegn
tilraunalandsliðinu á laugar-
daginn og er það þannig skipað
talið frá markmanni: Heimir
Guðjónsson, KR, Hreiðar Ár-
sælsson KR, Jón Leósson ÍA,
Hrannar Haraldsson Fram,
Högni Gunnlaugsson ÍBK, Skúli
Ágústsson ÍBA, Örn Steinsen
KR, Gunnar Guðmannsson KR,
Hermann Gunnarsson Val, Skúli
Hákonarson ÍA og Steingrímur
Björnsson ÍBA.
Þá hafa og verið valdir 5
varamenn sameiginlega fyrir
bæði liðin þeir Geir Kristjáns-
son Fram, Þorsteinn Friðþjófs-
son Val, Magnús Torfason ÍBK,
Baldur Schewing Fram og Stein-
grímur Dagbjartsson Val.