Þjóðviljinn - 08.09.1963, Side 3

Þjóðviljinn - 08.09.1963, Side 3
Sunnudagur 8. september 1963 ÞIÖÐVIUINN Deilurnar magnast enn Kína sakar Sovétríkin um undirróður við landamærin PEKING og MOSKVU 6/9 — Kínversk bíöð birtu í dag langa grein þar sem ýmsar sakir eru bornar á leiðtoga Sovétríkjanna. Segir þar meðal ann- ars að Sovétríkin hafi vísvitandi reynt að stofna til vandræða við landamæri ríkjanna og hafi þau hvatt kínverska borgara til að flýja yfir landa- mærin og síðan neitað að framselja þá. 2500 km. landamæri Kínverska greinin er svar við opnu bréfi frá Sovétríkjunum sem birtist 14. júlí síðastliðinn. Greinin er 40.000 orð og fyllir fjórar fyrstu síður allra Peking- blaðanna. Ennfremur var hún lesin í útvarp og tók sá lestur þrjár klukkustundir. Tíu atriði f iok greinarinnar eru tekin saman tíu atriði sem sanna eiga það hvernig Sovétríkin hafa spillt sambúðinni við Kína. Eitt þessara atriða greinir frá erj- um við landamærin milli Kaz- •akstan i Sovétríkjunum og Sinkiang sem tilheyrir Kína. Segir í grein Kínverja að erjur þessar hafi byrjað fyrir ári og standi enn. Kínveriar segja að í aprfl- og maímánuði síðastliðnum hafi Sovetríkin með aðstoð hand- benda sinna í Sinkiang hafið mikla moldvörpustarfsemi í hér- aðinu. Hafi tugþúsundir kín- verskra borgara verið hvattir til að flýja yfir til Sovétríkjanna en kínverska stjómin hafi hvað eftir annað mótmælt þessum að- förum. Sovétríkin hafi samt sem áður neitað að framselja flótta- mennina og borið mannúð fyrir - sig. f greininni eru Sovétríkin ennfremur sökuð um að hafa æst' til vandræða við landamær- in á árinu*1960 og segir að það hafi verið ein af mörgum skrá- veifum sem Sovétríkin hafi gert Kínverjum eftir fund kommún- istaleiðtoganna Búkarest. Sovétrikin eiga 2500 kílómetra löng landamæri að Sinkiang- héraði. Héraðið hefur nokkra sjálfstjóm og búa þar ýmis þjóð- arbrot. Kazakstanarnir m«nu vera næst fjölmennastir. Marg- ar milljónir Kazakstana búa Sovét-megin við landamærin og hafa fréttir borizt af því að þeir sem búa i Kína vilji gjarna sameinast sambjóðarmönnum sínum í Sovétrikjunum. Frá keisaratímanum Landamærin á svæði þessu eru samkvæmt samningum frá keisaratímabilinu og hefur iðu- lega komið til orða að þeir skyldu endurskoðaðir. enda þótt ekki hafi orðið úr því. Fyrir kinversku byltinguna áttu Sov- étríkin mikil ítök í Sinkiang og á fjórða tug aldarinnar var kín- Stokkhólmsfundinum lokið Ráðherrarnir for- dæmdu Verwoerd verski landsstjórinn í héraðinu ákaflega háður stjórninni í Moskvu. 50.000 flóttamenn Fréttamenn Moskvu fullyrtu i dag að um 50.000 kínverskir borgarar hafi flúið yfir landa- mærin til Sovétríkjanna frá því á hálfnuðu síðasta ári. Á tala þessi að vera byggð á upplýs- ingum frá ábyrgum embættis- nrönnum í Sovétríkjunúm.. Sam- kvæmt fréttum þessum vísa ráðamenn Sovétríkjanna algjör- lega á bug þeirri staðhæfingu Kínverja að kinverskir borgar- ar hafi verið hvattir til að flýja yfir landamærin. íStalín á dagskrá í kínversku greininni sem birt var í dag er vikið að ýmsu öðru en landamæraérjunum. Meðal annars er farið hörðum orðum um Krústioff forsætisráð- herra fyrir að hafa logið illu um Stalín. Segir í greininm' ágreiningur Sovétrikianna Kína hafi byriað á 20. flokVc:- binsinu í Moskvu begar Krúst- joff réðist gegn stefriu Stalins og persónudýrkuninni. Ennfremur er Krústjoff sak- aður um að hafa stutt „flokks- fjandsamleg“ öfl innan kin- verska kommúnistaflokksins og fyrir að 'hafa lagt á ráðin um undirróður gegn forystumönn- um kommúnistaflokka í ýmsum öðrum löndum. 'á'. • . Þannig er umhorfs í Huntsville'og víðar í Alabama þessa dagana. Fylkisstjórinn beið ósigur Mæiur ruddust mei börn sjn fram hiá lögreglunni HUNTSVILLE 6/9 — Hinn alræmdi negrahatari Wallace ’fylkisstjóri í Alabama beið mikinn ósig- ur í dag er hvítar mæður þrengdu sér með börn sín gegnum lögregluvörðinn umhverfis skólana í Huntsville, enda þótt fylkisstjórinn hafi fyrir- skipað að þeir skyldu vera lokaðir fram á mánu- dag til að hindra að svört börn feiigju að stunda þar nám ásamt hvífum jafnöldrum sínum. -$> STOKKHÓLMI 6/9 — Fundi utanríkisráðherra Noröurland- anna í Stokkhólmi er lokið en hann stóð í tvo ^ daga. 1 dag samþykktu ráðherrarnir að fá sérfræðinga til að rannsaka hvaða ráðstafanir væri unnt að gera til þess að knýja stjórnar- völdin í Suður-Afríku til að láta af stefnu sinni f kynþáttamál- um. Ýmsar tillögur 1 tilkynningu sem birt var var eftir fundinn segir að fyrst skuli kannað hvaða afstöðu ein- staka aðildarríki Sameinuðu þjóðanna hafa til þeirra ýmsu tillagna um afskipti af Suður- Afríkumálum sem liggja fyrir öryggisráðinu og allsherjarþing- inu og hvaða afleiðingar það myndi hafa ef þeim yrði hrynt Kúrdar stofna eigið ríki LONDON 6/9 — Kúrdarnir j fr- ak hafa lýst því yfir að þeir -hafi stofnað sjálfstætt ríki og hafi lelðtogi þeirra Mullah Mustafa el Barzani verið skip- aður forseti þess. Kúrdarnir hafa að undanförnu barizt harðri baráttu gegn yaldhöfun- um í írak. í tilkynningu Kúrdanna seg- ir að Barzani muni gegna for- setaembættinu þar til þing hef- ur verið kosið. en það á að ger- ast í lok ársins. í framkvæmd. Ráðherramir leggja áherzlu á að ríkisstjóm- in Norðurlanda fordæmi harð- lega kynþáttaofsóknir valdhaf- anna í Suður-Afríku og tillits- leysi því sem þeir hafa sýnt gagnvart vilja þeim sem komið hefur fram á vettvangi Samein- uðu þjóðanna. Eina frumkvæðið Eins og nú standa sakir telja utanríkisráðherramir sér ekki fært að hafa frumkvæði að öðr- um ráðstöfunum en þeirri að stofnuð verði sérstök nefnd emb- ættismanna til að rannsaka hvað gera skuli. Eftir því sem NTB- fréttastofan norska skýrir frá snérust umræðurnar 1 dag eink- um um það hvað uppi yrði á teningnum þann dag sem stjórn- in í Suður-Afríku breytti um stefnu í kynþáttamálum og fer að virða mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Samkvæmt tilkynningunni eiga sérfræðing- amir einnig að leita leiða til lausnar þeim vandamálum sem upp munu koma þegar það ger- ist. Fundur í Höfn Á Stokkhólmsfundinum sátu Guðmundur 1. Guðmundsson, utanríkisráðherra Islands, Per Hækkerup, utanríkisráðherra Danmerkur, Erling Wikborg, utanríkisráðherra Noregs, Tor- stein Nilsson, utanríkisráðherra Svíþjóðar og Mac Jakobson. deildarstjóri frá Finnlandi, en þar er stjórnarkreppa í landi, eins og kunnugt er. Næsti fund- ur ráðherranna verður haldinn í Kaupmannahöfn á næsta ári. Þessi mynd var tekin í Philadelphia fyrir skömmu og sýnir hvíta unglinga æpa ókvæðisorðum að svartri fjölskyldu sem dirfðist að fá sér húsnæði í ,,hvítu“ hverfi þar í borg. Um 1000 hvítir menn söfnuðust saman umhverfis húsið og brutu ailt og brömluðu með grjótkasti. Fjölskyldan lét þó ekki bugast og flutti inn I húsið. Um 500 lögreglumenn þurftu að aðstoða negrana, slíkt var æði skrílsins. Wallace fylkisstjóri braut í bága við vilja skólayfirvalda borgarinnar er hann mælti svo fyrir að skólarnir skyldu ekki opnaðir fyrr en á mánudag og skipaði fylkislögreglunni að sjá til þess að hvorki kennarar né nemendur kæmust þar inn fyrir dyr. Skóiayfirvöldin tilkynntu að skólahald skyldi hef jast í dag. Lögreglumennimir slógu hring um skólana og stóðu þar búnir hjálmum og í alla staði hinir vígalegustu. Um 20 til 30 hvítar mæður létu sér þó ekki bregða og þrengdu sér með böm sín gegnum fylkinguna til East Clinton-skólans. Á sama tima hrópaði rödd í hátalara að þeim skyldi hleypt í gegn. Var þá lögregluliðið enn eflt að mönn- um. Síðar bárust fréttir af hlið- stæðum atburðum við hina skól- ana þrjá. Vísað frá . Tveimur negradrengjum sem ætla að stunda nám við East Clinton-skólann var vísað frá af lögreglunni. Annar þeirra heitir S. W. Hereforéd og er sonur negraleiðtoga sem hefur kært kynþáttaaðskilnaðinn í skólum fyrir dómstólum. Hinn, John Brewton. reyndi ásamt móður sinni að komast til skól- ans en var gripinn af lögreglu Wallace. Ibúarnir í Huntsville eru 100.000 að tölu og 'er aðeins 17 prósent negrar og er það mun lægri hlutfallslega en annars staðar í Alabama. Einræðisherra 1 gækvöld varð Ijóst að skóla- yfirvöldin myndu virða fyrir- mæli fylkisstjórans um að skól- arnir skyldu vera lokaðir fram á mánudag að vettugi. Málið kom einnig fyrir borgarstjórnina sem skoraði á Wallace að skipta sér ekki af skólamálum. Einn borgarfulltrúanna lét svo um- mælt að Wallace ætlaði sér að verða éinræðisherra í Alabama. Jacob Javits, öldungadeildar- maður repúblikana frá New York-fylki sagði í Washington í dag að vel gæti hugsazt að Kennedy sendi lið úr sambands- hemum til Alabama. Vonast eftir milljón hl síldar ÁLASUNDI 6/9 — Norðmenn hafa nú veitt um 750.000 hl. af síld við íslandsstrendur og von- ast þeir eftir að vertíðaraflinn nái milljón hl. ef aflabrögð hald- ast óbreytt nokkra daga til við- bótar. Um 15 skip munu nú vera á leiðinni til Noregs með samtals 50.000 hl. ÖIl þessi skip svo og þau sem stödd eru í Nor- egi með síld, munu snúa aftur til Xslandsmiða. Loftárás á Kúbu HAVANA 6ii9 — Kúhanska landvarnaráðuneytið til- kynnti í dag að tvær flug- vélar hefðu varpað sprengj- um á horgina Santa Clara i Las Vilias-héraðinu á Kúbu snemma í gærmorg- un. Eirni maður lét lífið i órásinni en brjú börn ^rðust. Landvarnaráðu- ueytið telur að BanfHríkia- •nenn beri óhvrcð á árás- ’uni og varar há vi« a« ->t>u„rtaka þennan Ijóta ieik, ^ ©• 0 NY HUSGOGN Á SÝNINGU í SÝNINGARSKÁ LANUM VIÐ KJRKJUSTRÆTI SVND ERU: GERÐ- TEIKNARI: „KONTOR“-SYSTEM „PIRAMID“-SYSTEM ,.PIRA“-SYSTEM SIGGI KARLS SIGGI KARLS OLAV PIRA, SVÍÞJÓÐ KOMIÐ OG KYNNIÐ YÐUR NÝUNGAR í HÚSGÖGNUM ■ ! OPIÐ DAGANA 7.—15. SEPTEMBER KLUKKAN 14—22 j FRAMLEIÐANDI: HELGI EINARSSON, BRAUTARHOLTI 26.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.