Þjóðviljinn - 08.09.1963, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 08.09.1963, Blaðsíða 8
Niðurstöður fiskirannsókna við ströndina: MINNI GENGD AF OG KOLA 1 ofanverðum júlímánuði var lagt upp í leið- angur kringum landið til rannsókna á fiskistofn- inum meðfram ströndinni og höfðu leiðangurs- menn varðskipið Maríu Júlíu til umráða. Leið- angursstjóri var Aðalsteinn Sigurðsson, fiskifræð- ingur og aðstoðarmenn hans Ingi Magnússon, Sigurður Gunnarsson * og Stefán Aðalsteinsson. Þessi sumarleiðangur stóð yfir frá 21. júlí til 27. ágúst og lenti skipið í vélarbilun um hálfs- mánaðar skeið. Þá urðu nokkrar tafir vegna veð- urs. Helztu nlðurstöður borið sam- an við sumarleiðangra undanfar- in ár á sömu slóðum er minni gengd af þorski og skarkola, en hinsvegar má búast við sterkum árgangi af ýsu. Þá ruddu þeir félagar nýja braut í merking- um á humargöngum og er enn- þá sáralítið vitað um þetta merkilega krabbadýr. Árangur af þessum leiðangri byggist á skilvísi sjómanna á merktum fiskum til Fiskideild- arinnar, sagði Aðalsteinn Sig- urðsson. Merktir 5628 fiskar Eíns og undanfarin ár var unnið að merkingu á þorski, ýsu og skarkola, til þess að auka þekkingu á göngum, stofnstærð og vaxtarhraða þessara tegunda. Merkingamar bera því aðeins árangur, að merkjum úr end- urveiddum fiski sé skilað til okkar með þeim upplýsingum sem fyrir hendi eru sagði Aðal- seinn við blaðamenn í gær. Merktir voru 5628 fiskar á 17 stöðum umhverfis landið. Er það nokkru minna en undan- farin ár, og er það einkum þorskurinn, sem tiltölulega lítið var merkt af, enda var minna af honum yfirleitt en oftast hef- ur verið að undanförnu á sömu slóðum og á Sama árstíma. Einnig var heldur minna merkt af skarkola en venjulega, en hins vegar öllu meira af ýsu, enda var víða meira af henni að þessu sinni en oft hefur ver- ið. Hún var víðast smá, þ.e.a.s. ungur fiskur, og er því e.t.v. von um, að þama sé að koma fram sterkur árgangur, en um það verður ekki sagt að svo komnu máli, þar sem aldurá- kvörðun hefur ekki enn farið fram á þeim gögnum, sem safn- að var. Kvömum var safnað til ald- ursákvörðunar á helztu nytja- fiskunum, sem veiddust, samtals úr 6209 fiskum. Er það nokkru minna en vemjulega, einkum fékkst tiltölulega lítið af þorsk- kvörnum. Ýmsum öðrum gögnum var safnað og voru handfjallaðir rúmlega 55 þúsund fiskar í leið- angrinum. Nýmæli í merkingum Sl. vor tók Fiskideildin upp það nýmæli að merkja letur- humar eða humar, eins óg hann Framhald á 2. síðu. Skiptar skoðanir um lokunartímann Eins og frá var skýrt 1 Þjóðviljanum í fyrrad. fór fram í borgarstjóm á fimmtudag fyrri umræða um tillögur að nýrri samþykkt um lokunartíma verzlana í Reykjavík og eru þær tillögur birtar 1 heild annarsstaðar í blaðnu í dag. Hér á eftir verður hins vegar drepið stuttlega á það helzta sem fram kcm í umræðunum um málið í borgarst j óminni. Sigurður Magnússon, annar af höfundum tillagnanna, hafði framsögu fyrir' þeim og skýrði þær. Sagði hann að upphaf þessa máls hefði verið það að Kaupmannasamtökin hefðu í fe- brúar 1962 ritað borgarráði og farið fram á^það að breytt yrði lokunartíma vezlananna. Hefði sú ósk verið reist á þeirri for- sendu að núverandi fyrirkomu- lag á þessum málum, þ.e. sölu- opakvöldsala í sambandi við verzlanir o.fl. hefði skapað ó- viðundandi misrétti milli verzl- ana. Einnig rtiincnti hann á ó- æskileg uppeldisáhrif er sjopp- urnar hefðu. Varðandi tillögumar sagði Sig- urður að með þeim væri stefnt að aukinni verkaskiptingu milli verzlana, veitingastaða og kvöld- sölustaða. Þannig á t.d. ekki að leyfa sölu sælgætis í veitinga- húsum og ekki sölu ölfanga og gosdryggja í mjólkurbúðum. Sagði Sigurður að hið síðar- nefnda væri raunar ekki leyfi- Iggt samkvæmt núgildandi heil- brigðissamþykkt bótt það ákvæði hefði verið brotið. Jafnframt ræddi um það að til greina kæmi að leyfa matvöruverzlunum að selja mjólk og brauð í lokuðum umbúðum og lagði hann fram tillögu þess efnis að gerð yrði athugun á því hvort slíkt þætti tiltækilegt. Var sú tillaga samþykkt ein- róma. Sigurður taldi, að það ákvæði tillagnanna að lokunartími strætisvagnabiðskýlanna skyldi vera óbreyttur, þyrfti nánari at- hugunar við og taldi ýmis tor- merki á að leyfa það, t.d. væri hætta á miklum átroðningi í skýlunum og slysahættu í ná- grenni þeirra vegna aukinnar umferðar. Loks ræddi hann um þau ákvæði tillagnanna að heim- ila mætti vissum sölustöðum að hafa opið til kl. 22 á kvöldin. Sagði hann að- skiptar skoðanir væru um þetta atriði, t.d. hefðu samtök verzlanafólks lagzt gegn lengingu vinnutímans er af þessu leiddi, og taldi hann að áður en slík leyfi yrðu veitt þyrfti að liggja fyrir að fullt sam- komulag væri milli verzlunareig- enda og verzlunarfólks um Frpmþald á 2. síðu. Aðalsteinn Sigurðsson, filskifræðingur og Kristján Bjarnason, bátsmaður um borð í varðskipinu Mariu Júlíu. Þetta er enginn smáræðis þorskur, sem þarna er til merkingar. 4 Islendingar á alþjóða- fundi þingmanna í Belgrad 12.—20. september heldur Alþj ó'ðasamband þing- manna þing í Belgrad, höf- uðborg Júgóslavíu. Þar verða mættir fjórir íslenzk- ir þingmenn, Lúðvík Jós- epsson, Gunnar Thorodd- sen, Hermann Jónasson, og Eggert G. Þorsteinsson. Þetta er 52. þing Alþj óðasam- bandsins, en það var stof.nað í Farís 1889, en tilgangur þess er að auka gagnkvæm kynni þingmanna í ýmsum löndum 1 þágu samvinnu og friðar. Næst- um 70 ríki eru aðilar að sam- bandinu, jafnt auðvaldsríki sem sósialistísk ríki; þó eru Kína og Austur-Þýzkaland ekki aðilar að samtökunum. A þinginu í Belgrad verður m.a. rætt um jafnrétti ríkja í alþjóðlegri samvinnu. samskipti iðnaðarrikja og vanþróaðra ríkja, um stjómmálastofnanir ogstjóm- arkerfi í vanþróuðum löndum, um eflingu Sameinuðu þjóðanna í þágu friðar og öryggis. um ráð- stafanir til að draga úr vígbún- aði og banna kjamorkuvopn á ákveðnum svæðum, um meðferð efnahagsmála og félagsmála í þingstörfum, um baráttuna gegn kynþáttamisrétti o. fl. Fundimir verða haldnir í þinghöllinni í Belgrad. Lúðvík Jósepsson og Gunnar Thoroddsen ern þegar famir ut- an. Heimsótti Lúðvík kaupstefn- una í Leipzig í leiðinni. í Asmundarsal 1 gær opnaöi ungur maður, Jes Einar Þorsteinsson, málverka- sýningu £ Asmundarsal. Er þetta fyrsta sýning hans, og stendur aðeins í tíu daga. Jes Einar er feeddur 1934 í Vestmannaeyjum. Til Reykja- víkur fluttist hann 1941, stundaði nám við Menntaskólann og lauk stúdentsprófi þaðan 1954. Sama ár hélt hann til Parísar og lagði stund á málaralist í eitt ár við Academie de la Grande Chaumi- ere, en innritaðist þá sem nem- andi í húsagerðarlist í Eeole des Beaux Arts, og er nú kominn á lokastig þess náms. Jafnframt skólanámi hér heima eða allt frá 1941, hefur Jes Ein- ar lagt stund á teikningu og mál- aralist á námskeiðum Handiða- skólans og Myndlistarskóla fri- stundamálara. Samtímis námi sínu í húsagerðarlist hefur hann málað og gefizt góð tækifæri til þess að fylgjast með þróun mái- aralistar í París. Á námsárum sínum erlendis hefur Jes í skólaleyfum farið námsferðir til Madrid, Feneyja, Flórens og Rómar. Þá hefur hann einnig dvalizt nokkuð á Suður- Frakklandi. Þess má geta, að í sýningarskrá er kvæði eftir Em- il H. Eyjólfsson. háskólakennara við Svartaskóla í París. 23. sambandsþing IIMFf sett í gær Kl. 2 síðdegis í gær var 23. sambandsþing Ungmennafélags íslands sett í salarkynnum Hótel Sögu. Þingið stendur tvo daga, lýkur síðdegis í dag. I NÝ OG I | HAND- j HÆG j HÚSGÖGN j : i : ' : ★ Ný gerð af húsgögnum er : : nú komin á markaðinn nér j ■ i Reykjavík. Éru þetta eins ■ ■ konar raðhúsgögn, sem Sig- ; ; urður Karlsson hefur gert ; : teikningar af, en þau eru : : srmðuð á húsgagnaverkstæði j ■ Helga Einarssonar. Eru þau í ■ ■ alla staði mjög frábrugðin ■ ; húsgögnum. sem hér hafa : j sézt í verzlunum, og er ekki : j að efa að þau eiga eftir að j ■ vekja töluverða athygli. ■ ■ ■ ■ ■ ★ Þessi húsgögn verða sýnd j ■ næstu daga í sýningarskála : j Qefjunar við Kirkjustræti, en j j þar verða jafnframt til sýn- j : is nýjar gerðir af skrifstofu- •■ ■ húsgögnum. sem exru fram- ■ * leidd eftir fyrirsögn Helga : j Einarssonar og Sigurðar Karls- j j sonar. Er þama um að ræða j j skrifborð og ritvélaborð, sem ■ ■ eru gerð þannig að hægt er ■ ■ að breyta þeim og snúa eftlr : : vild. ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ★ Þriðja nýjungin á þessari ■ ■ sýningu Helga Einarssonar eru ■ [ sænsk rað- og vegghúsgögn, : j sem eru gerð eftir teikningum j j Svíans Olav Pira. Eru betta j j hillur og skápar. sem komið ■ ■ er fyrir á sérstökum „stadív- ■ [ um“, og eru þessir hlatir ; : einkar þægilegir í meðförum. : : : ■ ■ ■ ★* Setustofuhúsgögnin, sem j ■ Sigurður hefur teiknað iru ■ ■ mjög sérkennileg. og er auð- ; j velt að breyta beim á alia : j vegu. Þeim er erfitt að lýsa j : í örfáum línum, en sjón er j ■ sögu ríkari, og verður sýning- ■ [ in í Kirkjustræti opin klukk- ■ ; an 2-10 daglega. ■ ■ : : j ★ Myndin er af Sigurði Karls- j ■ syni, þar sem hann situr í ■ ■ einum af sófum sínum með ■ : vínskápinn opinn við hliðina. : ■ ■ ■... ..... ..... ..... .... ■ Dágób síldveiði i gær Síldveiði var dágóð um 100 mflur austur af suðri frá Dala- tanga í gær. Veiðin var þó treg seinni partinn, síldin dreifð og stygg, enda líka allmikill strekk- ingur. Síðan klukkan átta í gær- morgun og þangað til seint í gær- kvöld höfðu þessi skip tilkynnt komu síng til Seyðisfjarðar með 800 mál og meira: Steingrímur trölli 900. Snæfeil 800, Guðmundur Þórðarson 1050, Ingiberg Ölafsson 1000, Bjöm Jónsson 1000, Hrafn Sveinbjam- arson II. 900, Hafrún ÍS 1400. Sæfari BA 800. Ámi Þorkelsson 800, Dofri 850, Fagriklettur 1100, Amfirðingur 1200. Héðinn 850, Guðrún Þorkelsdóttir 900, Jón Oddsson 1000 og Sigurður Bjarna- son 1700. 11111

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.