Þjóðviljinn - 13.10.1963, Side 1
Sunnudagur [13. október [1963 — 28 árangur — 2211 tölublað.
Munið afmœfissöfnun Þjóðvilians - Skrif-
stofan að Þórsgötu 1 er opin í dag kl. 2-5
DAGSBRÚN, HLÍF og VerkalýSsfélagicS EINING, Akureyri, rœSa annaS kvöld
Yngsta sýn-
ingardaman
KAUPGJALSMÁLIN OG
VERKAMANNASAMBAND
■ Verkamannafélagið Dagsbrún boðar til félagsfundar í Iðnó annað kvöld, mánudags- ^
kvöld, kl. 8.30. Til fundarins er boðað á svo örlagaríkri stundu fyrir verkamannasam-
tökin, og svo mikilvæg mál eru til umræðu og afgreiðslu að varla þarf að hvetja Dags-
brúnarmenn til að fjölmenna á þennan fund. \
■ Á sama tíma, mánudagskvöld kl. 8.30 boða
tvö önnur af stærstu verkamannafélögum lands-
ins, Verkamanna'félagið Hlíf í Ha'fnarfirði og
Verkamannafélagið Eining, Akureyri, 'fundi til að
ræða um sömu dagskrármál og Dagsbrúnarfund-
urinn fjallar um.
Eygló litla óladóttir var
yngsta sýningardama á hár-
greiðslusýningu Raffó síðast-
liðið þriðjudagskvöld. Eins og
þið sjáið tók hún starf sitt
mjög alvarlega og fékkst ekki
einu sinni til að brosa til
ljósmyndarans. Fleiri myndir
frá sýningunni eru á áttundu
síðu. (Lijósm. G. M.).
Kaupgjaldsmálin
Dagskrármál allra þessara
funda verða fyrst og fremst
kaupgjaldsmálin og samningar
og viðbrögð verkamannafélag-
anna við verðbólgubáli ríkis-
stjómarinnar, sem þegar hefur
gert 28 króna tímakaup verka-
manna næsta lítils virði.
Minna má á að fundir hinna
þriggja stóru verkamannafé-
laga eru haldnir 14. október, en
daginn eftir, 15. október, renna
út samningar þeirra allra og
fjöldi annarra launþegafélaga.
Og ráðstefnu Alþýðusamibands
íslands um kaupgjaldsmál verð-
ur þá væntanlega lokið, en hún
hófst í gær og heldur áfiram í
dag.
Verkamanna-
samband
Hitt dagsk'rármálið á fundum
-*allra félaganna þriggja er að
rætt verður um stofnun verka-
mannasambands. Hugmyndin
um nánara samstarf verka-
mannafélaganna hefur alllengi
verið á lofti og munu verka-
menn sízt telja vanþörf á þvi
að treysta áðstöðu verka-
mannafélaganna í landinu, þeg-
ar verið er að reyna að gera
verkamenn að varanlegri lág-
launastétt, einnig miðað við
aðrar vinnustéttir landsins.
Dagsbrúnarmenn, Hlífarfélag-
ar og verkafólk á Akureyri
mun tvímælalaust mæta vel á
fundum félaga sinna annað
kvöld og gera sínar ráðstafanir.
Kjararáð-
stefna ASÍ
Ráðstefna sú er Alþýðusam-
band íslands hafði boðað til
um kjaramál hófst í gær kl.
4 síðdegis í fundarsal AI-
þýðusambands íslands.
Þar sem ráðstefnan var ný-
byrjuð er blaðið fór i prent-
un í gær verður frásögn af
störfum hennar og ályktun-
um birt á þriðjudag.
Stjórnmálaritstjóri Alþýðu-
blaðsins ræður sig að Vísi!
Dagblaðið Vísir skýrir frá því í gær að Björgvin Guð-
mundsson viðskiptafræðingur hafi nýlega verið ráðinn til
starfa á ritstjórn Vísis og muni hann rita þar „greinar
um innlend og erlend efni, m.a. um markaðsmál Evrópu“.
Þessi frétt vekur að vonum
talsverða furðu. Björgvin Guð-
munds&on hefur sem kunnugt er
um mörg ár verið starfsmaður
Alþýðublaðsins, fyrst blaðamað-
ur, síðan fréttastjóri og loks að-
stoðarritstjóri síðustu árin, en
af þvi starfi lét hann um síðustu
mánaðamót. Ritaði Björgvin
einkum um stjómmál í Alþýðu-
blaðið eftir að hann varð að-
stoðarritstjóri, enda hefur hann
Vakinnmeð tónlist,
blómum og koníaki
Dr. Páll ísólfsson varð sjö-
tugur í gær og þegar klukkan
átta í gærmorgun tóku menn
að hópast til heimilis hans á
Víðimel 55.
3Khi!kíkan átta kom Lúðrasveit
Reýkjavikur og lék fyrir utan
húsið, formaður sveitarinnar
Bjöm Guðjónsson flutti afmæl-
isbamimx, sem um tólf ára
skeið yar stjómandi Dúðrasveit-
armnjy, árvarp og færði Páli
fagra Iblðmaiköifu og fimm
potta dýrindis koniaki
Stutfcn síðaT kom Ucarlakórinn
Fóstbræðnr og isöng, séra Hjalti
Guðmundsson formaður kórsins
flutti ávarp og sæmdi Pál heið-
ursmerki kórsins úr gulli.
Kl, níu kom stjóm Norræna
félagsins, en í henni átti Páll
lengi sætí. Formaðurinn, Gunn-
ar Thoroddsen flutti ávarp og
færði tónskáldinu hókagjöf frá
félaginu. Nokkru síðar kom
stjóm Stokkseyringafélagsins,
þá forystumenn Sinfóníunnar
og Tónlistarskólans og loks
Dómkórínn. Fluttu þessir aðilar
allir, afmælisbaminu þakkir og
ámaðaróskir, og færðu margar
veglegar gjafir.
um árabil verið einn hélzti for-
ustumaður. ungra jafnaðarmanna
og mun hafa stefnt að því að
verða stjómmálaleiðtogi í Al-
þýðuflokknum. Er Björgvin
varafulltrúi í borgarstjóm fyrir
AJþýðuflokkinn og á sæti í mið-
stjóm flokksins.
Á síðustu árum hefur það
oft gerzt að blaðamenn flyttu
sig milli dagblaðanna hér í
Reykjavík en þetta er hins veg-
ar í fyrsta sinn sem stjómmála-
ritstjóri ræður sig að blaði ann-
ars flokks án þess að vitað sé
að hann hafi skipt um pólitíska
skoðun.
Merkjadagur
skáta / dag
Hinn árlegi merkjasöludagur
skáta er í dag. Víðs vegar um
lliandið miunu skáitastúlkur og
skátadrengir bjóða fólki að
kaupa af sér merki. FóJk hefur
alltaf tekið vel á móti sfcátun-
um. og svo mun emn reynast.
Fulltráaráðsfandur
A þriðjudaginn verður haldiim fundur í fulltrúaráði Sósíal-
istafélags Reykjavíkur. Fundurinn verður í Tjarnargötu 20 og
hefst kl. 8.30. Stjórnin.
HINN HÖRMULEGI atburðurf
sem varð á fimmtudagskvöld'
þegar skriða féll í lónið fyr-
ir ofan Vajonstífluna í Pia-
vedal á Ítalíu og koxn af
stað vatnsflóði sem varð
tveim þúsundum manna að
bana virðist mnnu draga dilk
á eftir sér.
STJÓRNARVÖLDUM ítalska í-
lialdsins er borið á brýn að
eiga sök á hörmungunum
vegna þess að þau sinntu
engix aðvörunum um þá hættu
sem var á ferðum. Þær að-
varanir birtnst í blöðum
ítalskra kommúnista þegar
fyrir tveimur árum, en var
þá svarað með málsókn fyr-
ir rógburð og meiðyrði.
NÚ ER öllum Ijóst hverjir höfðu
á réttn að standa og stjórnin
á í vök að verjast.
MYNDIN: Hér var áður bær-
inn Longarone. Aðeins örfá
hús standa eftir.
Verkíaiii gagnfræða■
skólakennara áfíýst
★ Eins og kunnugt er boðuðu kennarar við gagnfræðaskólana hér
í Reykjavík fyrir nokkrum dögum að þeir myndu leggja niður
kennslu 15. þ.m. ef þeir fengju ekki fyrir þann tíma greiðslur
fyrir yfirvinnu og biðtima sem þeir eiga inni frá síðasta vetri.
Hafa kennarar úti á landi þegar fengið þessar greiðslur en á því
hefur orðið talsverður dráttur hér í Reykjavík að þær væru inntar
af hendi þar eð ágreiningur var um það milli ríkisins og borgar-
innar hve mikinn hluta þeirra hvorum þessara aðila um sig bæri
að grciða.
★ Þjóðviljinn hefur nú fregnað að ekki muni koma til vlnnu-
stöðvunar hjá kennurunum, þar eð þeim hefur verið gcfiö fyrir-
hdt um það að greiðslumar verði inntar af hendi fyrir ákveðinn
tíma sem samkomulag hefur náðst um.