Þjóðviljinn - 21.11.1963, Síða 12
Börn í
sleðaleik
t fyrrinótt snjóaði rækilega
hér í Reykjavík og voru börnin
fljót að fagna snjónum í gær-
morgun og draga fram sleðana.
Virðast bömin á myndinni
skemmta sér konunglega á sleð-
annm sínum.(Ljósm. Þjóðv. A.K.)
Þjóðviljann vant-
ar fólk til að bera
blaðið út í eftirtalin
hverfi:
Hjarðarhaga
Fálkagötu
Tjarnargötu
og Grunnahverfi
Vinsamlegast hring-
ið í síma 17500.
Síðasta sýning
Leikrit Max Rrisch ,,Andorra”
verður sýnt í Þjóðleiíkhúsinu í
kivöld í síðasta sinn. Er þetta
47. sýningin á leikritinu og má
það teijast mjög góð aðsókn.
Gunnar Eyjólfsson leikur sem
faunnugt er aðalhlutverkið í
,-Andorra” og hefur túllkun hans
á hlutverkiniu vakið verðskuld-
aða athygli. Le'ikritið mun verða
fkrtt á nsestunni í útvarp með
sömu leikurum og þátt tóku í
sýningum Þjóðleikhússins.
Gylfi Þ. Gíslason lýsir yfir á Alþingi:
íslenzkur landbúnaður
dragbítur á hagvexti
□ Ekkert er íslenzkum
hagvexti meiri fjötur
um fót en þau hundruð
milljóna króna sem
þjóðin verður að borga
með landbúnaðinum á
ári hverju.
□ Á þessa leið fórust
viðskiptamálaráðherra,
Gylfa Þ. Gíslasyni orð
í ræðum í sameinuðu
Alþingi í gær 1 fram-
haldi fyrstu umræðu
um frumvarp til laga
um þjóðhagsáætlun
framborið af Helga
Bergs og fleiri Fram-
sóknarmönnum.
Varð mikill kurr meðal Fram-
sóknarmanna í þingsalnum og
frammíköll, svo að forseti varð
margoft að biðja þá að gefa
ráðherra hljóð á meðan hann
greindi frá því, sem hann kall-
aði þær bláköldu staðreyndir, er
menn yrðu að gera sér grein
fyrir til að skilja vandamál ís-
lenzks efnahagslífs. Samkvæmt
skilningi Gylfa eru þessar stað-
reyndir einfaldlega þær, að
landbúnaður á íslandi borgar
sig ekki, frekar en í öðrum
löndum Vestur-Evrópu, og neyt-
endur hafa greitt allt að þrjú
hundruð milljónir króna á ári
og eflaust rmm meira nú. til að
Gylfi Þ. Gíslason
halda þessum atvinnuvegi uppi.
Þessa upphæð verður að lækka
en styrkgreiðsla þessi mun aldr-
ei hverfa svo langt sem við get-
um séð. sagði viðskiptamálaráð-
herra.
Vill ekki gera nauðsyn-
legar ráðstafanir
Raunhæfustu ráð til úrbóta
taldi Gylfi vera þau, að flytja
vinnuafl úr landbúnaði í sjávar-
útveg og iðnað. Þetta væru
beztu aðgerðir til að efla ís-
lenzkan hagvöxt. En ráðstafan-
ir í þessa átt vill ríkisstjómin
ekki gera, sagði ráðhérrann,
heldur fara gullinn rrjeöalveg.
En sá sem ekld skilur fyrr-
greindar staðreyndir hefur ekki
gert sér grein fyrir vandamálum
efnahagslífsins, sagði Gylfi und-
ir lok máls síns.
Loks las ráðherra. máli sínu
til stuðnings, kaffla úr grein í
Árbók landbúnaðarins 1963 eft-
ir dr. Bjöm Sigurbjömsson, þar
sem hann heldur þvi fram að
mjólkurbú borgi sig ekki með
færri en 30 mjólkandi kúm og
sauðfjárræktarbú eigi að miða
við efcki færri en 500 vetur-
fóðraðar ær. Eða í stuttu máli:
að fækkun fólks í landbúnaði
megi ekki líta á sem hnignun
landbúnaðar heldur öfúgt og tefc-
ur sem dæmi um möguleika á
tæknivæðingu og verkhagræð-
ingu í þessari atvinnugrein að
í Gunnarsholti annist einn mað-
ur ellefu hundruð fjár.
Föðurleg áminning
Bjami Benediktsson kvaddi
sér hljóðs næst á eftir Gylfa og
Framhald á 2. síðu.
Halldóra B.
Björnsson kjörin
formaður Rit-
höfundafél. fsl.
Aðalfundur Rithöfundafélags
Islands var haldinn sL sunnudag
i Aðalstræti 12. Kostn var ný
stjóm, og skipa hana eftirtald-
ir menn: Formaður: Halldóra
B. Bjömsson, ritari: Elías Mar,
gjaldkeri: Baldur Óskarsson, og
meðstjómendur Þorsteinn frá
Hamri og Jón frá Pálmholti.
Fráfarandi formaður félagsins,
Friðjón Stefánsson, baðst ein-
dregið undan endurkjöri.
LH FRUMSYNIR JOLA-
ÞYRNA ANNAÐ KYÖLD
A morgun, föstudag, frum-
sýnir Leikfélag Hafnarfjarð-
ar leifcritið Jólaþyrna eftir
Wynyard Browne. Þýðingu
gerði Þorsteinn ö. Stephen-
sen, en þetta var jólaleikur
útvarpsins fyrir sjö árum.
Leifcur þessi fjailar eins og
önnur leifcrit höfundartas um
lífslygina, eða leitina að sann-
leikanum, og gerist á ensku
prestssetri. Með aðalhlutverk-
ið fer Gestur Pálsson en aðr-
ir leikendur eru: Emelía Jón-
asdóttir, Áróra Halldórsdótt-
ir. Jóhanna Norðfjörð, Auður
Guðmundsdóttir. Ragnar
Magnússon, Sigurður Krist-
insson og Valgeir Óli Gí&la-
son. Leikstjórn annast Kílem-
ens Jónsson. Eins og nafnið
ber með sér er þetta fyrst og
fremst jólaleikur og fer fram
á aðfangadag og jóladag.
Fi-umsýning verður eins og
fyrr segir á föstudagstovöld í
Bæjarbíói í Hafnarfirði og
verða sýningar fram yfir jól.
Þess má að lokum geta að
þetta er 28. leikár Leifcfélags
Hafnfirðinga og mun í ráði að
setja annað styfckl á svið eft-
ir áramót. Formaður Leik-
félagsins er Sigurður Krist-
insson.
Ný bók á markaðnum:
,Þér ai segja'
1 gær kom á bókamarkaðinn
veraldarsaga Péturs Hoffmanns
Salómonssonar er Stefán Jónsson
fréttamaður hefur skráð og
nefnist hún „Þér að segja”.
I bók þessari sem er 275 blað-
síður að stærð auk allmargra
myndasíðna rekur sá frægi mað-
ur Pétur Hoffmann Salómonsson
æviferil sinn allt frá blautu
barnsbeini til þessa dags og
kennir þar að líkum margra
grasa. Segir þama frá mörgum
mannraunum sem Pétur hefur
ratað í um dagana, svaðiMarir
á sjó og landi, athöfnum hans
margvíslegum og viðskiptum
við ýmsa kunna menn.
Skrásetjari bókarinnar er
Stefán Jónsson fréttamaður en
hann hefur sem kunnugt er sett
saman tvær bækur áður, Kross-
fiska og hrúðurkarla og Mína
menn. er báðar hlutu miklar
vinsældir og runnu út eins og
bráðið smér á jólamarkaðinum.
Er trúlegt að svo fari ertn um
þessa bók.
Útgefandi bókar þessarar er
Ægisútgáfan, Guðmundur Jak-
obsson, en bókin er prentuð f
Prentsmiðju Jóns Helgasonar.
Káputeikningu hefur Atli Már
gert.
Svcrrir Haraldsson listmálari í vinnustofu sinni. Hann stendur
þarna hjá höggmynd sem hann hcfur gert og verður á sýningunni
i Listamannaskálanum. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.).
Sverrir Haraldsson
opnar sýningu
í kvöld opnar Sverrir Har-
aldsson listmálari málverkasýn-
ingu í Listamannaskálanum. Á
sýningunni eru 69 listaverk.
Sýningin ber þess ljósan vott
að þama er á ferðinni lista-
maður sem framarlega stendur
í sinni grein þótt ungur sé. Mál-
verkin eru flest gerð á þessu
ári og hafa aldrei komið fram
á sýningu áður.
Á þessari sýningu kemur
Sverrir fram með algjöra nýj-
ung hér á landi, hvað uppstill-
ingu myndanna snertir. Hann
hefur látið útbúa einkar
skemmtileg statíf fyrir hverja
mynd sem gera það að verkum
að málverkin njóta sín mun bet-
ur en þegar um vegguppheng-
ingar er að ræða. Einnig mun
nýr kastljósaútbúnaður verða
settur í Listamannaskálann.
Eins og fyrr segir verður sýn-
ingin opnuð í kvöld og þá fyrir
boðsgesti. Á föstudag verður
opið fyrir almenning milli
klukkan 2 og 11 en þannig verð-
ur sýningartíma háttað eftir-
leiðis. — Málverkasýningar
Sverris verður nánar getið í
blaðinu síðar.
Tvær nýjar
bækur frá
Ægisútgáfu
Ægisútgáfan hefur sent frá
sér tvær nýjar bækur auk bók-
arinnar um Pétur Hoffmann
Salómonsson sem getið er ann-
ars staðar í blaðinu. önnur bók-
in nefnist Töfrar íss og auðna
og er eftir Ebbe Munck. Þýð-
andi er Gissur Ó. Erlingsson.
Segir í bókinni frá rannsóknar-
ferðum um hálendi Grænlands.
Hin bókin heitir Hjúkrunar-
neminn. ástarsaga eftir Renée
Sham, og er hún einnig þýdd af
Gissuri Ó. Erlingssyni.
>