Þjóðviljinn - 26.11.1963, Síða 1
Þriðjudagur 26. nóvember 1963 — 28. árgangur — 251. tölublað.
Oswald var myrtur í höndum lögreglunnar í Dallas
GRUNURUM AÐEKKISÉALLT
MEÐ FELLDU VIÐ MORÐÁKÆRUNA
DALLAS 25/11 — Grunsemdir sem vaknað höfðu um að ekki væri allt með
felldu við handtöku Texasbúans Lee Harvey Oswald og ákæruna á hend-
ur honum fyrir að hafa myrt Kennedy forseta mögnuðust um allan helm-
ing, þegar Oswald var sjálfur myrtur í höndum lögreglunnar í Dallas í
gær, svo að nú verður aldrei hægt að sannprófa það fyrir rétti, hvort
nokkuð er hæft í fullyrðingum lögreglunnar að hún hafi í höndum næg-
ar sannanir fyrir sekt hans. Morðið á sakbomingnum hefur vakið hryll-
ing manna og bandarísk blöð tala um smánarblett á bandarísku réttarfari.
ÞEGAR MUNNLEGUR flutning-
ur olíumálsins svonefnda
hófst fyrir Hæstarétti í gær-
dag hafði verið komið fyrir
stórum stöflum af skjölum
og skjalaafritum á öllum
borðum dómenda og mál-
flutningsmanna, sækjanda og
verjenda.
MÁLIÐ ER SEM kunnugt er
mjög umfangsmikið, enda bú-
izt við að málflutningurinn
standi yfir alla þessa viku.
Endurrit dómsskjala fylla 14
stór hefti, auk héraðsdóms,
endurskoðunarskýrslna og
cfnisyfirlits.
SAKSÓKNARI RÍKISINS hafði
með sér frumrit dómsskjala,
mikinn skjalabunka sem fyU-
ir mörg innstunguhefti, eins
og myndin hér fyrir ófan
sýnir, en liún var tekin við
upphaf málflutningsins í gær.
— Sjá síðu 12
Oswald í járnum — nú mun aldrei fást úr því skorið fyrir
rétti hvort fótur var fyrir morðkærunni á hann.
Kosin viiræiunefnd
Þetta nýja morð var framið
meðan Oswald var enn í borg-
arfangelsinu í Dallas, i kjallara
lögreglustöðvarinnar, en flytja
átti hann í héraðsfangahúsið á
öðrum stað í borginni. í bryn-
vörðum bíl.
Morðið
Morðinginn, fimmtugur nætur-
klúbbseigandi, Jack Ruby að
nafni, stökk að sögn sjónarvotta
yfir girðingu sem skildi milli
fangans og fréttamanna, hljóp að
Oswald með skammbyssu í
hendi, rak byssuna í kvið hans
og hleypti af. Oswald var þegar
fluttur í Parkland-sjúkrahúsið
en þangað hafði einnig verið
farið með Kennedy forseta,
Kúlan hafði farið inn í kviðar-
holið og sat föst í nágrenni
hjartans. Læknar fengu ekkert
að gert og andaðist Oswald um
hálftíma síðar. '
Engin skýring
Engin skýring hefur fengizt á
því hvernig Ruby komst inn í
lögreglustöðina, en þess hefur
verið getið til að hann hafi
laumazt þangað í fylgd sjón-
varpsmanna. Það þykir hins veg-
ar furðulegt að lögreglan skyldi
ekki hafa betri gætur á því
hverjir komust inn í húsið og
ekki dregur það úr tortryggni
manna að lögreglan þekkti Ruby
vel. Bæði var það að nætur-
klúbbur hans er aðeins stein-
snar frá lögreglustöðinni og svo
hitt að hann hafði oft' komizt
í kynni við lögregluna sem
handtekið hefur hann fyrir of-
beldisárásir og líkamsmeiðingar.
Úr sögunni
Að Oswald látnum er mál
hans úr sögunni, sagði Wade,
saksóknari í Dallas, við blaða-
menn í gær. Þess vegna yrði
ekkert birt af þeim gögnum sem
lögreglan hafði safnað og hún
fullyrðir að sanni sekt hans. —
Ég hef sagt lögreglunni að mal
Oswalds sé nú útrætt. Nú verð-
um við að einbeita okkur að
máli Rubys. sagði Wade.
Ruby, sem að réttu lagi heitir
Rubinstein og er aðfluttur til
Dallas frá Chicago, var hand-
tekinn strax eftir morðið og
mun verða leiddur fyrir kvið-
Framhald á 3. síðu.
Minningarathöfn
í Dómkirkjunni
í gær klukkan fimm hófst i
Dómkirkjunni minningarathöfn
um John F. Kennedy, forseta
Bandaríkjanna. Þar voru við-
staddir fulltrúar erlendra ríkja
á íslandi, alþingismenn allir,
æðstu embættismenn og aðrir
fulltrúar þjóðarinnar; ennfrem-
ur var almenningi heimill að-
gangur meðan rúm leyfði. Var
kirkjan þéttsetin og allmargt
manna safnaðist saman fyrir ut-
an kirkjuna.
Dr. Páll ísólfsson flutti í upp-
hafi orgelforleik, Benedictus
eftir Max Reger en dómkirkju-
kórinn söng „Vér stöndum á
bjargi, sem bifast ei má“. Sig-
urbjörn Einarsson biskup flutti
minningarorð um hinn látna
forseta; lagði hann áherzlu á
hina mannlegu eiginleika Johns
F. Kennedys sem hefðu áunnið
honum traust jafnvel þeirrá
sem fjarlægastir hefðu verið
verksviði hans, þannig að menn
hefðu boj-ið til hans vinarhug
en ekki aðeins virðingu. Björn
Ólafsson lék þvínæst á fiðlu
Litanei eftir Schubert með und-
irleik dr. Páls, en dómkirkju-
kórinn söng „Bjargið alda, borg-
in mín.“ Þá flutti James K. Pen-
field, ambassador Bandaríkj-
anna á íslandi, ávarp frá ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna,
en .kaþólski presturinn á Kefla-
víkurflugvelli, séra S. E. Alm-
asy, flutti bæn. Eftir að biskup
fslands hafði flutt blessunar-
orðin söng dómkirkjukórirm
þjóðsöngva Bandaríkjanna og
íslands, en að lokum lék Páll
fsólfsson.
★ Viðræðufundur var á laugardaginn milli ráðherranna tveggja,
Bjarna Benediktssonar og Emils Jónssonar annars vegar og hins
vegar íiannibals Vaidimarssonar, Eðvarðs Sigurðssonar og Björns
Jónssonar. sem rætt hafa við ríkisstjómina sem fulltrúar lands-
nefndar verkamannafélaganna. Tilkynntu þeir ráðherrunum að
hin nýja samstarfsnefnd' mundi nú kjósa viðræðunefnd við ríkis-
stjómina af hálfu alira þeirra aðila sem að samstarfsnefndinni
standa.
★ Viðræðunefndin við ríkisstjómina var síðan kosin á fundi
samstarfsnefndarinnai á sunnudagsmorgun og skipa hana þessir
menn: Hannibal Valdimarsson. forseti Alþýðusambands fslands,
Eðvarð Sigurðsson, formaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar,
Björn Tónsson, formaður Verkalýðsfélagsins Einingar á Akureyri,
Sverrir Hermannsson, forseti Lsndssambands íslenzkra verzlunar-
manna og Óskar Haflgrímsson, formaður Félags íslenzkra rafvirkja.
★ Sáttafundur var haldinn á laugardag með fulltrúum Lands-
nefndar verkamanna- og verkakvennafélaganna og fulltrúum at-
vinnurekenda. Annar fundur þessara aðila hefur verið boðaður
í dag, þriðjudag.
Þegar gosið tók breytingum
Þessar myndir tók Þorleifur Einarsson jarðfræðingur rétt fyrir
hádegi síðastliðinn fimmtudag, eða í þann mund sem gosið við
Geirfuglasker tók þeirri breytingu að dökkir sprengjumekk<r hættu
að þeytast upp en vikri, gjalli og ösku tók að gjósa látlaust.
Þorleifur fræddi okkur á þvi, að eina vonin til þess að eyjan
ekki hyrfi aftur í sæ væri að henni tækist að loka sér íyrir
sjógangi og að hraun tæki að renna og klæddi
hana. Hann sagði eyjuna svipaða Grábrók að gorð
og það hraun sem menn þættust hafa séö væru
aðeins stórar hraunslettur er moluðust jafnskjótt
og þær kæmu niður og rynnu sem skriður í
kafið.